Þinglýsing skjala hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu tekur yfirleitt þrjá virka daga, eins og fyrir sameiningu embættanna þriggja. Ef ekki næst að ljúka vinnslunni innan þessa tíma eru skjölin þó yfirleitt afgreidd á meðan fólk bíður.
Meira
Vellauðug indversk hjón hafa ákveðið að arfleiða apa sinn að öllum auðæfum sínum. Hjónin líta á apann sem son sinn og hafa stofnað sjóð sem á að tryggja að honum líði vel eftir að þau falla frá. Hjónin eiga engin börn, aðeins tvo apa.
Meira
Stjórn Sorpu bs. kom saman síðast til fundar 6. febrúar síðastliðinn. Fyrsta mál á dagskrá fundarins var niðurstaða úrskurðarnefndar upplýsingamála vegna spilliefnaútboðs og ósk Efnamóttökunnar hf. um að reka það mál fyrir dómstólum fyrir hönd Sorpu.
Meira
Kínverskir spámenn segja að ár kindarinnar, sem gekk í garð í gær samkvæmt kínverska tímatalinu, verði ekki jafnróstusamt og ár hestsins sem einkenndist af hryðjuverkum, hernaðarátökum og pólitísku umróti víða um heim.
Meira
„Ég vildi fá að vita hvort þetta væri með svipuðum hætti og í Hafnarfirði og þess vegna lagði ég fram fyrirspurn í borgarráði,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Meira
„Ég vildi fá að vita hvort þetta væri með svipuðum hætti og í Hafnarfirði og þess vegna lagði ég fram fyrirspurn í borgarráði,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Meira
Lára Halla Sigurðardóttir Laufey Rún Ketilsdóttir Nokkuð ákveðið hefur dregið úr gosinu í Holuhrauni í febrúar og gæti því lokið á nokkrum vikum eða mánuðum.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Nýja vinnumatið í framhaldsskólum sem félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda greiða atkvæði um í næstu viku er umdeilt meðal framhaldsskólakennara. Baldur J.
Meira
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is „Þessi atburður er í takti við það sem menn hafa orðið varir við víða í NATO-ríkjunum og öðrum vestrænum ríkjum, eins og Finnlandi og Svíþjóð.
Meira
Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi Lýsingar, gerir fastlega ráð fyrir því að dómunum verði áfrýjað til Hæstaréttar. Hann segir að verið sé að reyna á markatilvik í þessum málum þar sem tekist er á um skilyrði undantekningarreglu.
Meira
Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, vakti athygli á því að fjarvera meirihluta borgarstjórnar á fundi Sjálfsbjargar um málefni ferðaþjónustu fatlaðra hinn 18. febrúar hefði verið vegna þess að ekkert boð hefði borist þeim.
Meira
Samstarf tónlistarmannanna Benedikts H. Hermannssonar, Benna Hemm Hemm, Svavars Péturs Eysteinssonar í Prins Póló og fjögurra kanadískra kollega hófst fyrir tveimur árum.
Meira
„Þetta er mjög mikil viðurkenning fyrir rannsóknarhópinn okkar og það sem við stöndum fyrir og Háskólann í Reykjavík,“ segir Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík.
Meira
Gylfi Þór Sigurðsson spilar aftur með Swansea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á morgun eftir mánaðar hlé vegna leikbanns en lið hans tekur þá á móti Manchester United.
Meira
HB Grandi og Samherji sitja í tveimur efstu sætum þeirra 100 útgerða sem ráða yfir mestum aflahlutdeildum í upphafi nýs árs. HB Grandi er þannig með 12,2% af úthlutuðu aflamarki en Samherji er með 6,6%. Talsverðar breytingar urðu á listanum þetta árið.
Meira
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þorkell Ásgeir Jóhannsson, flugstjóri hjá Mýflugi, segir að það sem af er ári hafi sjúkraflugvél Mýflugs notað 06/24-flugbrautina (suðvestur-norðaustur-brautina) á Reykjavíkurflugvelli tólf sinnum.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hestar eru ekki aðeins dráttardýr eða til útreiða heldur geta þeir verið hinir bestu leikfélagar. Það hefur Ragnheiður Þorvaldsdóttir, tamningakona og reiðkennari, sýnt með umgengni sinni við dýrin.
Meira
Ákveðið var á fundi skipulagsnefndar Rangárþings eystra í gær að fresta byggingu nýs hótels á Skógum, en mikil andstaða hefur verið á meðal íbúa svæðisins við fyrirhugaða staðsetningu hótelsins.
Meira
„Sagt er að alls konar draugar séu á vappi í miðborg Reykjavíkur,“ sagði Óli Kári Ólason sagnfræðingur, sem leiddi hóp fólks í draugagöngu um miðborgina í gær á vegum fyrirtækisins Reykjavík Haunted Walks.
Meira
Árbær er eitt af fjölmennustu hverfum Reykjavíkurborgar. Þar búa um 10.800 manns. Það er nefnt í höfuðið á býli sem þar stóð áður. Hverfið samanstendur af Ártúnsholti, Bæjum, Hálsum, Selási og Norðlingaholti.
Meira
Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til rannsókna á lífríki Þingvallavatns. Áhersla verður lögð á vatnasviðið sunnanvert og urriðastofninn. Tekjum OR af sölu veiðileyfa í Þingvallavatni verður varið til rannsóknanna.
Meira
Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir hefur legið í dvala um skeið en skríður nú úr híði og hyggst skemmta Norðlendingum á Græna hattinum á Akureyri, bæði í kvöld og annað kvöld. Hyggjast þeir rifja upp gamla takta og jafnvel bæði tóna og texta við...
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Á annað þúsund hönnuðir, iðnmeistarar og byggingastjórar hafa fengið skráð gæðastjórnunarkerfi hjá Mannvirkjastofnun.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjarðalax hyggst hefja sjókvíaeldi á laxi í Eyjafirði, Seyðisfirði og Mjóafirði. Hugmyndin er að vera aðeins með einn árgang í hverjum firði og hvíla síðan aðstöðuna eftir að laxinum hefur verið slátrað.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Aldrei fyrr hafa jafnmargir fuglar verið nýmerktir hér á landi og í fyrra. Þá voru merktir 19.046 fuglar af 79 tegundum. Þetta kemur fram í yfirliti Náttúrufræðistofnunar Íslands um fuglamerkingar 2014.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, kynnti í gær tólf nýjar ráðstafanir í baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi.
Meira
Tvær súlur, sem merktar voru í Eldey árið 1982, fundust dauðar í fyrra, önnur þeirra var 31 árs og fimm mánaða, hin 32 ára og þriggja mánaða. Fyrra aldursmet var 27 ár og átta mánuðir.
Meira
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun MRR fyrir fréttamiðilinn Eyjar.net eru 51,9% íbúa í Vestmanneyjum mjög óánægð með núverandi fyrirkomulag sjósamgangna milli lands og Vestmannaeyja og 36,2% frekar óánægð. Símakönnunin fór fram 11.-17. febrúar.
Meira
Síðdegisfegurð Þau kölluðust fallega á skömmu fyrir sólsetur í gær krumminn og kirkjan sem bar við himin á Álftanesinu. Kannski almættið hafi verið að kíkja niður til...
Meira
Fréttaskýring Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing hf. tapaði þremur málum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag sem skuldarar höfðuðu vegna ágreinings um uppgjör á lánasamningum.
Meira
Baksvið Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Sorpa bs. hefur á undanförnum árum orðið að verja talsverðum tíma og fjármunum í málarekstur vegna meintra brota í samkeppnis- og útboðsmálum.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Stjórn Sorpu bs. ætlar að ganga á fund Sigrúnar Magnúsdóttur umhverfisráðherra til að óska breytinga á lögum þannig að ábyrgðarskipting sé skýr í sorphirðumálum.
Meira
Sunddeild Ármanns hélt úti frískandi kennslu í sundlaugapóló í Árbæjarlaug í gær. Er það liður í fjölbreyttri dagskrá Reykjavíkurborgar fyrir alla fjölskylduna í frístundamiðstöðvum og menningarstofnunum borgarinnar í vetrarfríi grunnskólanema dagana...
Meira
SVIÐSLJÓS Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Viðbrögð vegna viðtals í Morgunblaðinu í fyrradag við Bretann Philip Eastwood um vefsíðu hans (bagleysrunningblind.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Dregið verður um hreindýraveiðileyfi á morgun kl. 14 í húsi Menntaskólans á Egilsstöðum. Bein útsending verður á vef Umhverfisstofnunar (www.ust.is). Þeir sem verða dregnir út þurfa að greiða veiðileyfið í síðasta lagi 15.
Meira
Hot Tub Time Machine 2 Nú er ferðinni heitið fram í tímann og tilgangurinn er að koma í veg fyrir að Lou verði myrtur með skoti í liminn, af leigumorðingja sem einnig er tímaferðalangur. Sambíóin Álfabakka 15.40, 17.50, 20.00, 22.10, 22.
Meira
Áformað er að notast við afkomustuðla í nýju veiðigjaldafrumvarpi. Slíkir stuðlar munu byggjast á hlutfallslegri afkomu fisktegunda miðað við afkomu í þorski.
Meira
Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Mörg hundruð manns vinna að framleiðslu, sölu og dreifingu matvæla og drykkjarvöru af ýmsu tagi í Hálsahverfinu, sem er einn hluti Árbæjarhverfis. Þar eru mörg af stærstu fyrirtækjum landsins staðsett.
Meira
Fyrir frumsýningu í kvöld á Hrikalegir, nýrri heimildarkvikmynd Hauks Valdimars Pálssonar, býðst gestum að lyfta lóðum í anddyri Tjarnarbíós. Karlar sem geta lyft 150 kg í bekk og konur 90 kg fá ókeypis inn. Kvikmyndin fjallar um kraftakarla.
Meira
Stjórnvöld í Þýskalandi hafa hafnað beiðni um að lánveitingar til Grikklands verði framlengdar um sex mánuði þrátt fyrir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafi tekið jákvætt í þá ósk grískra ráðamanna skömmu áður.
Meira
Söngvari rokksveitarinnar Iron Maiden, Bruce Dickinson, er þessa dagana að ljúka krabbameinsmeðferð en samkvæmt tilkynningu á heimasíðu hljómsveitarinnar er búist við því að hann nái sér að fullu.
Meira
Skáldsagan Fiskarnir hafa enga fætur eftir Jón Kalman Stefánsson og ljóðabókin Skessukatlar eftir Þorstein frá Hamri hafa verið tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Íslands hönd. Frá Danmörku eru tilnefndar ljóðabókin Avuncular.
Meira
Daníel Bjarnason tónskáld hefur verið ráðinn í stöðu staðarlistamanns Sinfóníuhljómsveitar Íslands og mun gegna margþættu hlutverki, sem hljómsveitarstjóri og tónskáld, ásamt því að sitja í verkefnavalsnefnd hljómsveitarinnar og stýra tónskáldastofu.
Meira
Stockfish-kvikmyndahátíðin vaer sett í gær en þess má geta að tvær stuttmyndir á hátíðinni eiga sér íslenskan framleiðanda, Evu Sigurðardóttur, en hún á framleiðslufyrirtækið Askja Films.
Meira
Eftir Sigrúnu Eldjárn. Leikstjórn: Þórhallur Sigurðsson. Leikmynd: Högni Sigurþórsson. Búningar: Leila Arge. Leikgervi: Guðrún Erla Sigurbjarnadóttir. Tónlist og hljóðmynd: Kristinn Gauti Einarsson. Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson.
Meira
Hrikalegir Heimildarmynd um Steve Gym, gamalgróna stöð íslenskra kraftlyftinga þar sem þjálfarinn Steve (Stefán Hallgrímsson) hefur í fjóra áratugi þjálfað sterkustu menn landsins, auk öryrkja og kynlegra kvista miðbæjar Reykjavíkur. Sjá umfjöllun á...
Meira
Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í 21. skipti í kvöld í Hörpu. Sjónvarpað verður beint frá viðburðinum í Ríkissjónvarpinu og hefst útsendingin kl. 20.30, en hægt er að fylgjast með verðlaunaafhendingunni á vef RÚV frá kl. 19.
Meira
Benedikta Br. Alexandersdóttir benedikta@mbl.is Hrikalegir , heimildarkvikmynd í leikstjórn Hauks Valdimars Pálssonar, verður frumsýnd í Tjarnarbíói í kvöld klukkan 21.
Meira
Skotárásirnar í Kaupmannahöfn um síðustu helgi voru dapurlegt dæmi um þann veruleika sem því miður blasir við. Að ef einhver er staðráðinn í því að vinna öðru fólki tjón, þá virðist lítið vera hægt að gera til að koma í veg fyrir það.
Meira
Eftir Kristján Hall: "Að banna kennurum að segja börnum, þegar þau eru einmana, hrædd, máttlítil eða lasin, að það sé til eitthvað gott í þessum heimi, sem vaki yfir þeim."
Meira
Eftir Tómas Hallgrímsson: "Engum dylst mikilvægi endurhæfingar þegar krabbamein er annars vegar og hefur endurhæfing því verið lykilverkefni Ljóssins frá stofnun."
Meira
Eftir Hjörleif Guttormsson: "Nú ætti að vera einboðið að byggja ekki gistiaðstöðu og staðsetja bílaplön ofan í náttúrugersemum og auka þar með álag á þær, fyrir utan sjónræn lýti."
Meira
Eftir Gísla Holgersson: "Garðabær væri góður eigandi eða leigjandi smáhúsabyggðarinnar af ótal ástæðum. Má þar nefna skort á leiguhúsnæði sem og uppgang í ferðaþjónustu."
Meira
Eftir Helgi Seljan: "Það undarlega í sambandi við þann skaðvald sem áfengið er sannarlega, er að nær ætíð er talað um það öðruvísi og á allt annan og mildari hátt en önnur vímuefni."
Meira
Eftir Reyni Eyjólfsson: "Meirihlutinn af náttúrulegum „fæðubótarefnum“ er alls ekki náttúrulegur. Að halda slíku fram er oftast bara fals og della."
Meira
Eftir Árna Árnason: "Nöprustu fortíðarvindarnir sem gnauða eru sú forneskja og kvennakúgun sem viðgengst meðal múslimasamfélaganna í kringum okkur."
Meira
Nokkuð hefur verið ritað um hve götur höfuðborgarinnar séu illa farnar eftir veturinn. Víða má sjá myndarlegar pottholur – allt að því gímöld – en aðrar eru lúmskari og það er ekki fyrr en maður lendir ofan í þeim að maður verður var við...
Meira
Eftir Björn Sigurðsson: "Landeigendur telja að besta leiðin til uppgræðslu og landbóta á þessu svæði sé að ná vatninu í sömu stærð og það var fyrir um 100 árum."
Meira
Eftir Atla Harðarson: "Menntakerfið hlýtur að svara aukinni eftirspurn eftir almennri menntun með að bjóða fleiri leiðir til stúdentsprófs. Þetta á iðnaðurinn að nýta sér."
Meira
Eftir Vilhjálm Bjarnason: "Söfnun Jóns Árnasonar og Magnúsar Grímssonar á þjóðsögum hefur á liðnum árum horfið í skugga handritasöfnunar Árna Magnússonar."
Meira
Adda Gerður Árnadóttir fæddist í Reykjavík hinn 1. desember 1942. Hún lést á líknardeild Landspítalans eftir erfið veikindi 13. febrúar 2015. Faðir Öddu var Árni Guðmundsson, bílstjóri frá Kambi í Holtum, f. 26.3. 1900, d. 18.10. 1987.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Sigurðsson fæddist á Ljótsstöðum í Vopnafirði 1. janúar 1924. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 9. febrúar 2015. Eftirlifandi eiginkona hans er Ragnhildur Gunnarsdóttir frá Tungu í Fáskrúðsfirði. Þau eignuðust eina dóttur, Önnu Sólveigu.
MeiraKaupa minningabók
Inga Valfríður Einarsdóttir, Snúlla, fæddist 10. nóvember 1918. Hún lést 6. febrúar 2015. Snúlla var jarðsungin 17. febrúar 2015.
MeiraKaupa minningabók
Ingimundur Óskarsson fæddist á Akranesi 6. febrúar 1964. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 12. febrúar 2015. Foreldrar hans voru Óskar Guðmundsson, f. 16. febrúar 1918, d. 4. ágúst 1991 og Jóhanna Ólafsdóttir f. 25. október 1924, d.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Þórdís Benediktsdóttir fæddist í Hnífsdal 4. október 1928. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 13. febrúar 2015. Foreldrar hennar voru Benedikt Halldórsson verkamaður, f. 19.5. 1904, d. 2.9. 1980, og Þórunn Pálína B. Guðjónsdóttir, f....
MeiraKaupa minningabók
Sigurjón Helgason fæddist á Akureyri 19. nóvember 1929. Hann lést 12. febrúar 2015. Foreldrar hans voru Sigrún Júlíana Sigurjónsdóttir, f. 1.10. 1906, d. 30.6. 1935, frá Felli í Svarfaðadal, og Helgi K. Helgason, f. 14.12. 1901, d. 20.1.
MeiraKaupa minningabók
Bréfsendingum sem falla undir einkarétt Íslandspósts fækkaði um 8,1% á árinu 2014, borið saman við fyrra ár. Sé litið til þróunarinnar í þessum efnum frá árinu 2007 hefur bréfsendingum fækkað um 45%, úr 50 milljón bréfum í 27,5 milljónir í fyrra.
Meira
Primera Air hefur gengið frá samningum um flug frá Álaborg fyrir næsta vetur . Félagið mun meðal annars fljúga fyrir Thomas Cook, Tui og Apollo auk Bravo Tours, sem er í eigu Primera Travel Group og er þriðja stærsta ferðaskrifstofa Danmerkur.
Meira
Fasteignafélagið Reginn og Miðengi sem er í eigu Íslandsbanka hafa gengið til samninga á kaupum Regins á fasteignasafni síðarnefnda félagsins. Um er að ræða atvinnuhúsnæði sem spannar 62.000 fermetra en 80% þess eru á höfuðborgarsvæðinu.
Meira
Actavis plc, móðurfélag Actavis á Íslandi, skilaði tapi á árinu 2014 sem samsvarar 7,42 dollurum á hvern hlut, samanborið við 5,27 dollara tap á árinu 2013.
Meira
Hópur nemenda og kennara frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti fór til Kanada, nánar tiltekið á slóðir Vestur-Íslendinga í Winnipeg og Gimli, í janúarmánuði. Mörgum þótti það óðs manns æði enda alla jafna mikið frost á þessum árstíma.
Meira
Fyrir mér er það að leiða hjá sér undur heimsins eins og að búa í stórkostlegri borg með iðandi mannlífi eins og Barcelona en fara síðan aldrei út úr herberginu sínu.
Meira
Sýningin, Ásmundur Sveinsson: Vatnsberinn-Fjall+kona, verður opnuð í Ásmundarsafni næsta laugardag 21. febrúar kl. 16. Þar er þess minnst að á árinu 2015 er öld liðin frá því að konur fengu kosningarétt hér á landi, en það var þann 19. júní 1915.
Meira
Flest okkar dreymir eitthvað þegar við sofum. Hitt er annað mál hvort við munum draumana þegar við vöknum af værum blundi. Draumar geta verið býsna flóknir og ruglingslegir eða ákaflega skýrir og nokkuð einfaldir. Og í rauninni allt þar á milli.
Meira
20.00 * Þjóðbraut Upplýsandi yfirheyrsluþáttur um pólitík, efnahag og stöðu Íslands. 21.00 * Helgin Skemmtilegur spjallþáttur um atburði líðandi viku með Karil Ágústi Úlfssyni 21.
Meira
Á þriðjudag skrifaði Ólafur Stefánsson í Leirinn: „Það var hérna í gærkvöldi, í veðrabrigðum og ólátum síðþorra, að ég þóttist finna sting í hægri mjöðm og varð hugsað til kerlingarinnar í Nýársnóttinni, frekar en í Skuggasveini, sem æjaði sem...
Meira
Brynja fæddist á Reyni í Mýrdal 20.2. 1938. Foreldrar hennar voru Benedikt Guðjónsson, skólastjóri í Mýrdal og kennari í Reykjavík, og Róshildur Sveinsdóttir, handavinnu- og jógakennari.
Meira
30 ára Guðlaugur ólst upp á Ölvaldsstöðum, býr í Mosfellsbæ, er vélvirki, múrarameistari og er að læra flugvirkjun. Maki: Arna Þrándardóttir, f. 1985, kennari og deildarstjóri við leikskóla. Börn: Ísólfur Fjeldsted, f. 2009, og Karitas Fjeldsted, f.
Meira
Sigrún Rósa fæddist í Reykjavík 20.2. 1965: „Það var nú hún amma mín, Helga Marín Níelsdóttir, sem tók á móti mér en hún var þjóðþekkt ljósmóðir og dugnaðarforkur, var m.a. einn af stofnendum Fæðingarheimilisins við Eiríksgötu.
Meira
Vinir málsins hamast stundum gegn slettum sem sinueldur væri. En þær eru meinlitlar, þær stinga bara í augu, og flestar deyja út. Gamla danska slettan nauið – þetta er ekki svo nauið: skiptir ekki svo miklu – er t.d. á grafarbakkanum.
Meira
Reykjanesbæ Ingimar Hrafn Grétarsson fæddist 3. mars 2014 kl. 9.05. Hann vó 3.795 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Ása Björg Ingimarsdóttir og Grétar Þór Þorsteinsson...
Meira
Reykjavík Aron Heiðar fæddist 12. mars 2014. Hann vó 3.350 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Steinunn Ólafsdóttir og Björn Svavar Jónsson...
Meira
30 ára Sigrún ólst upp á Hvolsvelli og í Reykjavík, býr í Reykjavík, lauk MA-prófi í félagsráðgjöf við HÍ og er félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg. Maki: Sindri Freyr Eiðsson, f. 1985, starfsmaður við Landsbankann. Sonur: Baldur Steinn, f. 2010.
Meira
Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Mikill kærleikur ríkir á milli nágrannanna við Rofabæinn en þar stendur Árbæjarkirkja við hlið Árbæjarskóla.
Meira
Lipurðin hjá starfsmönnum N1 við Ægisíðu hefur ávallt verið til fyrirmyndar og strákarnir á dekkjaverkstæðinu kunna sitt fag, hvort sem um er að ræða dekkjaskipti, smáviðgerðir eða smurþjónustu.
Meira
Það orð er satt, og í alla staði þess vert að við því sé tekið, að Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn og er ég þar fremstur í flokki.
Meira
20. febrúar 1882 Kaupfélag Þingeyinga, fyrsta íslenska kaupfélagið, var stofnað að Þverá í Laxárdal að frumkvæði Jakobs Hálfdanarsonar. 20. febrúar 1902 Sambandskaupfélag Þingeyinga var stofnað.
Meira
30 ára Þórdís ólst upp í Hafnarfirði, býr þar, stundar nám í frumgreinadeild HR og er strandvörður við Ylströndina í Nauthólsvík. Synir: Erik Nói, f. 2004, og Tristan Georg, f. 2008. Foreldrar: Georg Júlíusson, f.
Meira
Gautur Garðar Gunnlaugsson er menntaður tónmenntakennari og hefur unnið í Tónastöðinni síðan 1995, eða í 20 ár. „Stærsta breytingin á þessum tíma er að stafræna tæknin er að verða einfaldari og orðið algengt að menn taki upp tónlist heima hjá sér.
Meira
Á Akureyri Einar Sigtryggsson sport@mbl.is Síðasti leikurinn sem spilaður var í Olís-deild karla í handbolta í gær var viðureign Akureyrar og Stjörnunnar. Það tók Stjörnumenn hátt í níu klukkustundir að koma sér norður og hófst leikurinn kl. 20:38.
Meira
Evrópudeildin Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Enginn annar en Mario Balotelli sá um að tryggja Liverpool nauman sigur gegn tyrkneska liðinu Besiktas í fyrri viðureign liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á Anfield í gærkvöld.
Meira
Í Digranesi Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Hinn 19 ára gamli Daníel Þór Ingason hafði skorað tvö mörk í vetur fyrir topplið Vals í Olís-deildinni þegar hann steig inn á keppnisgólfið í Digranesi í gær, til að mæta HK.
Meira
Aron Pálmarsson sneri aftur inn á völlinn í gærkvöld en var í sigurliði Kiel gegn Meshkov Brest frá Hvíta-Rússlandi í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Kiel vann öruggan sigur, 33:22, og skoraði Aron tvö mörk í leiknum.
Meira
• Eysteinn Þórðarson hafnaði í 17. sæti í svigi karla á vetrarólympíuleikunum í Squaw Valley í Kaliforníu 20. febrúar 1960 og það er enn þann dag í dag besti árangur íslensks karlmanns í alpagreinum á leikunum.
Meira
Knattspyrnukonan Katrín Ásbjörnsdóttir flytur í dag til Noregs, þar sem hún hefur samið við úrvalsdeildarfélagið Klepp, og leikur þar á komandi tímabili undir stjórn Jóns Páls Pálmasonar .
Meira
Kristófer Acox hefur tekið flest fráköst allra í riðlinum sem lið hans, Furman Paladins, leikur í, Southern Conference, í bandaríska háskólakörfuboltanum.
Meira
Einar Daði Lárusson úr ÍR stórbætti sinn fyrri árangur í sjöþraut og náði um leið níunda besta árangri í heiminum á árinu í sjöþrautarkeppni sem lauk í Laugardalshöll seint í gærkvöldi. Einar Daði önglagði saman 5.
Meira
Sævar Birgisson skíðagöngumaður var sæmilega sáttur við 67. sætið af 130 keppendum í sprettgöngu á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum skíðaíþrótta í Falun í Svíþjóð í gær.
Meira
Viðtal Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Gylfi Þór Sigurðsson var að koma frá sjúkraþjálfaranum þegar Morgunblaðið náði tali af honum en hann er ekki búinn að fá sig fullgóðan af meiðslunum í ristinni sem hann varð fyrir fyrr á leiktíðinni.
Meira
Ljúffengar veitingar, lífleg stemning og gestakokkur frá veitingastað þar sem hið argentínska grill er í aðalhlutverki – það stefnir í funhita á Food & Fun á Apotek Restaurant, eins og yfirmatreiðslumaðurinn Theódór Dreki Árnason segir frá.
Meira
Addý Ólafsdóttir, viðburða- og kynningarstjóri Icelandair – eins aðalstyrktaraðila Food & Fun – kveðst alltaf fá valkvíða þegar komi að því að velja á milli veitingastaða og spennandi rétta á hinni margrómuðu sælkerahátíð.
Meira
Hann er rammíslenskur, takturinn sem slær í hjarta veitingahússins, eldhúsinu. Gunnar Karl Gíslason yfirkokkur hlakkar til að taka á móti gestakokkinum sem stýrir eldhúsinu á Michelin-stað í Osló.
Meira
400 gr hveiti 1 tsk lyftiduft 1 msk hunang 300 ml bjór 10 gr þurrkaðar chiliflögur (má sleppa) 200 gr soðinn kræklingur sem búið er að hreinsa Aðferð Öllu er blandað vel saman í skál, þá er kræklingnum velt upp úr smá hveiti og svo lagt í deigið og...
Meira
Á Fiskfélaginu hafa menn gaman að því að skoða mismunandi stíla í leit að spennandi bragði. Sama er að segja um gestakokkinn í ár, segir Ari Þór Gunnarsson, yfirkokkur.
Meira
Gallerý Restaurant á Hótel Holti á von á góðum gesti frá kóngsins Kaupmannahöfn frá veitingastað sem sérhæfir sig í klassískri matargerðarlist, ekki ósvipað Gallerýinu. Það má því búast við sígildum töktum þar á Food & Fun 2015, segir Friðgeir Ingi Eiríksson yfirmatreiðslumaður.
Meira
Gestakokkurinn á Grand Restaurant er í meira lagi áhugaverður enda lærði hann fyrst lífefnafræði áður en hann settist á kokkaskólabekk. Í dag sérhæfir hann sig í klassískri franskri matargerð, segir Vignir Hlöðversson yfirmatreiðslumeistari.
Meira
Í þriðja sinn heimsækir Bretinn Paul Cunningham Grillið á Sögu sem gestakokkur á Food & Fun. Sigurður Helgason yfirkokkur hlakkar til að fá vin sinn í heimsókn á ný enda fellur hann fullkomlega að stemningunni í eldhúsinu.
Meira
Einar Bárðarson, forstöðumaður Höfuðborgarstofu, segir Food & Fun hafa gjörbreytt ímynd okkar erlendis sem matarþjóðar – nú sé talað um spennandi matarmenningu á Íslandi og íslenskt hráefni sé lofað í hástert.
Meira
Höfnin byggir matreiðslu sína á klassískum hráefnum, fiski bæði og kjöti, og það er því viðeigandi að gestakokkurinn aðhyllist sígild hráefni, segir Brynjar Eymundsson yfirmatreiðslumaður.
Meira
Framleiðsla á matvælum spilar stórt hlutverk í atvinnulífinu, býr til mikil verðmæti og skapar fjölda starfa. Gæði og sérstaða íslenskra matvæla sjást meðal annars vel á nýjum útflutningsævintýrum, til dæmis skyrs.
Meira
Georg Arnar Halldórsson, matreiðslumeistari á Kolabrautinni, hlakkar mikið til að taka á móti ítölskum kollega sínum á Food & Fun enda ítalskar áherslur á staðnum. Ekki að furða þar sem viðkomandi er matreiðslumeistari á veitingahúsi með Michelin-stjörnu.
Meira
Kolagrillofn, fagmannlegir kokteilar og áhersla á árstíðabundinn mat er það sem Kol Restaurant gengur út á. Gestakokkurinn 2014 skemmti sér að sögn svo vel að hann kemur aftur í ár, segja yfirkokkarnir Einar Hjaltason og Kári Þorsteinsson.
Meira
Íslenskur skelfiskur og annars lags úrvalshráefni er í aðalhlutverki á Kopar Restaurant. Ylfa Helgadóttir hlakkar til að taka á móti gestakokkinum, sjálfum Michael Ferraro frá New York.
Meira
Nýnorræn áhrif svífa yfir vötnum á Lava Restaurant í Bláa Lóninu og gestakokkurinn á Food & Fun kemur með spennandi kanadísk áhrif inn í eldhúsið, segir Þráinn Freyr Vigfússon, matreiðslumeistari.
Meira
Ertu á leiðinni á veitingastaðinn? Eða nýkominn heim eftir dýrlega máltíð og langar að horfa á eitthvað sem heldur þér í stemningunni? Hér eru nokkrar skemmtilegustu og bestu kvikmyndir seinni tíma sem allar hverfast um mat. Verði ykkur að góðu!
Meira
Þau eru á einn veg, viðbrögð matreiðslumannanna sem rætt var við fyrir þetta blað. Matarhátíðin Food & Fun er einfaldlega einn skemmtilegasti tími ársins í þeirra augum, tilhlökkunarefni fyrir kokkana sem og sælkerana í borginni.
Meira
Ekki er nóg með að mörg af öndvegiseldhúsum Reykjavíkur verði undirlögð af hinni árlegu matarhátíð heldur verður stærsta matarveislan af öllum í borginni haldin í Hörpu um næstu helgi. Þá efnir Búrið til fyrsta matarmarkaðsins af þremur í ár.
Meira
Nauthóll brýtur blað í sögu Food & Fun því í ár ber svo við að í fyrsta sinn í sögunni er gestakokkurinn Íslendingur sem snýr aftur til gamla landsins með margvíslega reynslu í farteskinu. Fyrir bragðið er tilhlökkunin mikil á staðnum, segir Ari Sylvain Posocco, yfirmatreiðslumaður á Nauthól.
Meira
Saltbökuð seljurót 1stk. seljurót 500 g hveiti 150 g Kötlusalt 1 stk. egg 180 ml vatn Aðferð Seljurót er burstuð og hreinsuð. Deigið: allt hrært saman og vafið utan um seljurótina. Bakað í 90 mín. á 170°C.
Meira
Íslenskt hágæðahráefni mætir ítalskri matargerðarlist eins og hún gerist best á Satt Restaurant á Food & Fun, segir Styrmir Karlsson yfirmatreiðslumaður.
Meira
Gestakokkur Sjávargrillsins á Food & Fun í ár var valinn matreiðslumaður Finnlands 2014 og á að baki eldamennsku á mörgum Michelin-stöðum. Gústav Axel Gunnlaugsson hlakkar að vanda til Food & Fun og lofar góðum mat.
Meira
Smurbrauð í nýnorrænum stíl er aðal Smurstöðvarinnar þar sem hráefni úr nærumhverfinu er í öndvegi. Hin sænska Frida Ronge verður gestakokkur og spennustigið er hátt, segir Sigurður Ívar Sigurðsson, yfirmatreiðslumaður Smurstöðvarinnar
Meira
Steikhúsið leggur mesta áherslu á eðalsteikur, eðli máls samkvæmt, en tilkomumukill vínseðill er staðnum líka hjartans mál, segir veitingastjórinn Einar Valur Þorvarðarson.
Meira
Gestakokkur Sushi Samba er guðfaðir ný-„latino“ matargerðar og yfirkokkurinn Eyþór Mar lofar kraftmikilli og bragðgóðri skemmtun á Food & Fun 2015.
Meira
Nýnorræn áhrif svífa yfir vötnum í eldhúsinu á VOX og gestakokkurinn er meðal nafntoguðustu listakokka Kaupmannahafnar. Fannar Vernharðsson yfirkokkur lofar flugeldasýningu á Food & Fun í ár.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.