„Það hefur verið mokveiði við Reykjanesið hjá öllum sem sækja í þorskinn. Ég man ekki eftir öðrum eins landburði af fiski hjá minni bátunum og er ég þó búinn að vera í þessu frá 1988,“ segir Guðjón Þ.
Meira
Atli Vigfússon Laxamýri „Það er alltaf gaman að hafa aliendur, auk þess sem eggin þeirra eru mjög góð. Ég er lengi búinn að búa með þær og yfir veturinn læt ég þær út hvernig sem viðrar því þær kunna mjög vel við að viðra sig.
Meira
Toyota Corolla-bifreið er vinningurinn í nýju áskrifendahappdrætti Morgunblaðsins. Bifreiðin verður dregin úr potti með nöfnum áskrifenda blaðsins 22. apríl næstkomandi.
Meira
Viðtal Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Ég býst við að ég verði meira heima núna eftir að ég fékk styrkinn þar sem kjarni rannsóknarinnar fer fram á Íslandi á íslenskum ungmennum.
Meira
Ellilífeyrisþegum fjölgaði á síðasta ári um 3,8% eða 1.141. Örorkulífeyrisþegum fjölgaði á sama tímabili um 1,1% eða 177 og auk þessa hefur endurhæfingarlífeyrisþegum fjölgað um 13,1% eða um 185.
Meira
Greiðslukortavelta erlendra ferðamanna í janúar sýnir að erlendir gestir eyddu um 9% meira í janúar en í desembermánuði á undan skv. athugun Rannsóknaseturs verslunarinnar.
Meira
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Segja má að algjör umskipti hafi orðið á námsvali Stefaníu Bjarneyjar Ólafsdóttur stærðfræðings þegar hún lagði leið sína á háskóladaginn fyrir nokkrum árum til að kynna sér háskólanám.
Meira
Ragnar Kjartansson hefur gert fjórðu útgáfu vídeóverksins „Me and my Mother“, með móður sinni Guðrúnu Ásmundsdóttur leikkonu sem stendur þar við hlið hans og spýtir ítrekað á son sinn.
Meira
Vegunum um Hellisheiði, Þrengsli, Sandskeið og Lyngdalsheiði var lokað síðdegis í gær vegna óveðurs og ófærðar. Ökumenn höfðu þá lent í vandræðum m.a. á Hellisheiði og í Þrengslum þar sem stór rúta fauk til. Vegirnir voru enn lokaðir í gærkvöld.
Meira
Lögmál borgarísjakans gildir um verk listmálarans Jóhannesar Kjarvals sem varðveitt eru í Listasafni Reykjavíkur við Klambratún. Aðeins lítill hluti þeirra er sýnilegur; flest verkin, stór og smá, eru í geymslum í kjallara hússins.
Meira
Tillögur starfshóps um gjaldtöku í innanlandsflugi ganga aðallega út á að færa kostnað frá flugfarþegum eða flugrekendum til ríkisins. Hópurinn leggur m.a.
Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur á undanförnum vikum hand-tekið á annan tug manna og lagt hald á talsvert af fíkniefnum í aðgerðum sem beinast gegn sölu fíkniefna á samfélagsmiðlum.
Meira
Lagt var til á fundi borgarráðs í gær að hætt verði við þrengingu Grensásvegar á milli Miklubrautar og Bústaðavegar en áætlaður kostnaður við framkvæmdina er 160 milljónir króna.
Meira
Viðtal Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Búast má við að hlýindakafla sem hófst í kringum 1990 fari senn að ljúka og við taki um 30 ára kuldaskeið. Umhleypingar í vetur hafa ekki verið óvenjulegir, að öðru leyti en því að lítið hefur borið á...
Meira
Baksvið Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Gott fiskirí, jafnvel ævintýralegt, hefur verið undanfarið hjá línubátum sem róið hafa frá Sandgerði og eins hafa bátar frá Snæfellsnesi aflað mjög vel.
Meira
Íslendingurinn sem lést af slysförum í Narvik í Noregi síðastliðið þriðjudagskvöld hét Magnús Kristján Magnússon. Hann var frá Hamraendum í Stafholtstungum í Borgarfirði og fæddur 16. maí 1985.
Meira
Búast má við meinlausu veðri víðast hvar á landinu í dag. Gera má ráð fyrir strekkingi og éljum á Vestfjörðum og um landið norðanvert. Óvissustig vegna snjóflóða á sunnanverðum og norðanverðum Vestfjörðum var í gildi í gær.
Meira
Eftir því sem leið á gærdaginn fjölgaði loðnuskipum á miðunum suður og vestur af Reykjanesi. Fyrstu skipin sem köstuðu sunnan við nesið í gærmorgun eftir að lygndi fengu ágætan afla.
Meira
Skýrar vísbendingar eru um að lækkun vörugjalda á sykri og sætindum, svokölluðum sykurskatti, hafi enn ekki skilað sér að fullu að mati ASÍ, sem hefur greint breytingar á vísitölu neysluverðs, sem birt var í gær.
Meira
Hlíðar með Suðurhlíðum, Holtum og Norðurmýri mynda saman einn borgarhluta í stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Til borgarhlutans teljast einnig Öskjuhlíð og Nauthólsvík.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Biskup Íslands hefur auglýst bæði prestsembættin í Keflavíkurprestakalli, embætti sóknarprests og prests, laus til umsóknar. Stuðningsmenn þriðja prestsins við kirkjuna, sr.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Miðað við alla rútuumferðina, sem oft er við mjög tvísýnar aðstæður, óttast ég að vont rútuslys geti orðið. Ekki endilega á Þingvöllum heldur einhvers staðar á fjölförnustu leiðunum.
Meira
Alls tóku 7.103 borgarbúar þátt í rafrænum íbúakosningunum Betri hverfi 2015 í Reykjavík, þ.e. 7,3% og hækkar úr 5,7% árið 2014 þegar fjöldi þátttakenda var 5.272.
Meira
Viðtal Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég sakna þess mest frá togaraárunum að vera með gömlu félögunum í borðsalnum og heyra þá segja frá. Þetta voru miklir sögumenn og sögðu mest gamansögur af sér og skipsfélögum sínum.
Meira
Fjörutíu og fimm kjarasamningar á almennum vinnumarkaði renna út á morgun ásamt á þriðja tug samninga á opinberum vinnumarkaði, þ.e. félaga í BHM og BSRB.
Meira
Sjónvarpsmaðurinn Jimmy Savile beitti 63 einstaklinga á Stoke Mandeville-sjúkrahúsinu kynferðislegu ofbeldi, þ.ám. alvarlega veik átta ára börn. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar á vegum breska heilbrigðiskerfisins, NHS.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Vonast er til þess að hægt verði að aflétta rýmingu húsa á Patreksfirði og Tálknafirði í dag, að sögn Davíðs Rúnars Gunnarssonar, formanns svæðisstjórnar á Patreksfirði.
Meira
Veðurblíðan braust fram í gær á milli þess sem vetur konungur lét til sín taka með tilheyrandi vindi og snjókomu. Krakkarnir í Austurbæjarskóla biðu ekki boðanna og héldu út á fótboltavöll þar sem fram fór fótboltamót á milli bekkjanna.
Meira
Fréttaskýring Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Fyrirhuguð ræða Benjamins Netanyahus, forsætisráðherra Ísraels, á Bandaríkjaþingi hefur aukið togstreituna milli hans og Baracks Obama forseta og er talin geta haft langvarandi eftirköst í samskiptum landanna.
Meira
Óttast er um líf a.m.k. 220 kristinna Assýríumanna sem vígamenn Ríkis íslams, samtaka íslamista, rændu í norðaustanverðu Sýrlandi í vikunni. Flestir fanganna eru konur, börn og öldungar.
Meira
Einar Öder Magnússon, einn þekktasti hestamaður landsins, var borinn til grafar í gær frá Hallgrímskirkju. Á myndinni má sjá Þórarin Ragnarsson halda í gæðinginn Glóðafeyki frá Halakoti. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson jarðsöng.
Meira
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Á fundi byggingafulltrúa Reykjavíkurborgar á þriðjudag var tekin fyrir fyrirspurn frá Knattspyrnufélaginu Val um það hvort leyft yrði að byggja fjögurra hæða hús með atvinnuhúsnæði á 1. hæð og þremur íbúðarhæðum á lóð nr.
Meira
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ríflega 350 manns leita nú reglulega til Fjölskylduhjálparinnar í Reykjanesbæ, eða ríflega tvöfalt fleiri en leituðu þangað eftir efnahagshrunið.
Meira
Viðtal Kristján Jónsson kjon@mbl.is Íslensk kona, Lóa Brynjúlfsdóttir, hefur í tvö ár veitt forstöðu alþjóðadeild sænska Alþýðusambandsins, LO. Tíu manns vinna í alþjóðadeildinni en alls eru félagar í LO um ein og hálf milljón.
Meira
Rótarýklúbbur Kópavogs hefur valið Vilmund Guðnason, lækni og prófessor við HÍ, sem Eldhuga Kópavogs, en klúbburinn stendur árlega fyrir slíkri útnefningu. Helgi Sigurðsson, forseti Rkl. Kópavogs, afhenti verðlaunin á fundi í vikunni. Í umsögn segir...
Meira
Sautjánda Hátíð Havanavindlanna er nú haldin í höfuðborg Kúbu. Að þessu sinni er hátíðin tileinkuð eftirlætisvindlum Winstons Churchills, sem kenndir eru við Rómeó og Júlíu, í tilefni af 50 ára ártíð...
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Það eru vísbendingar um að farið sé að gæta gremju meðal íbúa miðborgarinnar í garð erlendra ferðamanna sem þangað sækja.
Meira
Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Penninn Eymundsson taka höndum saman í Hörpu um helgina og bjóða gestum að hlýða á átta rithöfunda lesa úr verkum sínum og spjalla um þau.
Meira
Leikstjóri: Michael Winterbottom. Aðalleikarar: Steve Coogan, Rob Brydon, Claire Keelan, Marta Barrio og Rosie Fellner. Bretland og Ítalía, 2014. 108 mín.
Meira
Árni Kristjánsson hefur verið tekinn inn í leikstjórnarnám við Bristol Old Vic. Aðeins fá fjórir nemendur inni á ári og er Árni sá eini í hópnum í ár sem ekki kemur frá enskumælandi landi. Námið hefst í apríl nk. og lýkur með útskrift sumarið 2016.
Meira
Það áhugaverðasta á dagskrá sjónvarpsstöðvanna alla vikuna var mögnuð sena úr smiðju meistara Davids Attenborough af tveimur kengúrum í slagsmálum.
Meira
Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópran og Antonía Hevesi píanóleikari koma fram í Laugarneskirkju í dag kl. 12, en tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum. Á efnisskránni eru ljóð, bænir og aríur sem tengjast heilagri Maríu.
Meira
Guðni Th. Jóhannesson, dósent í sagnfræði, heldur í dag klukkan 12 í stofu 132 í Öskju – náttúrufræðahúsi HÍ, Sturlugötu 7, fyrirlesturinn „Vonir ömmu, veruleiki pabba. Munur kyns og kynslóða“.
Meira
Hádegistónleikar með Íslenska flautukórnum verða í Listasafni Íslands í dag kl. 12.10. Á efnisskránni eru verk eftir Joseph Haydn og Franz A. Hoffmeister.
Meira
Leiksýning framtíðardeildar Gaflaraleikhússins, „Heili Hjarta Typpi“, verður aftur tekin til sýninga í kvöld, föstudag, eftir hlé. Verkið var sýnt síðasta haust og fékk góðar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda.
Meira
Himnesk heiðríkja er yfirskrift tónleika í röðinni Klassík í hádeginu sem fram fara í Gerðubergi í dag, föstudag, kl. 12.15-13 og sunnudaginn 1. mars kl. 13.15-14.
Meira
Kór Akraneskirkju kemur fram á tónleikum í Norðurljósum í Hörpu í kvöld, föstudag, klukkan 20. Yfirskrift tónleikanna er „Þegar sólin sigri nær“. Flutt verður fjölbreytt efnisskrá sem inniheldur m.a. sönglög úr smiðju Tómasar R.
Meira
Hljómsveitin Legend, með Krumma Björgvinsson í broddi fylkingar, kemur fram á belgísku Eurorock-tónlistarhátíðinni í maí. Þar troða ýmsar rokksveitir upp, meðal annars hin gamalkunna Killing Joke, Fields Of The Nephilim, Front 242 og Peter...
Meira
Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Kammersveit Reykjavíkur er búin að vera mjög viljug til að flytja tónlist eftir mig frá því að ég flutti til landsins árið 1972.
Meira
Fall poppdívunnar Madonnu afturábak niður þrjár tröppur þegar hún flutti lagið „Living for Love“, vakti mesta athygli við afhendingu bresku Brit-tónlistarverðlaunanna í fyrrakvöld.
Meira
Annie Um er að ræða endurgerð á myndinni um munaðarlausu stúlkuna Annie. Dag einn ákveður viðskiptajöfurinn Will Stacks að taka stúlkuna að sér í von um það muni gagnast í kosningabaráttu hans sem borgarstjóri New York.
Meira
Eftir Halldór Halldórsson: "Flókin mál í stjórnsýslu kalla á það að skipuleggjendur hugsi skýrt. Huga þarf að kostnaði ríkisins, atvinnulífsins og fólksins í landinu."
Meira
Eftir Örn Gunnlaugsson: "Ég vænti þess, Bjarni, að þú verðir í sambandi sem allra fyrst svo við getum gengið frá samkomulagi um þetta verkefni og hlakka ég mikið til..."
Meira
Eftir Jónas Þór Guðmundsson: "Fagna ber umræðu um hlutverk og störf lögmanna en gera verður þá kröfu að þeir sem taka til máls skýri mál sitt vel."
Meira
Eftir Snorra Snorrason: "Ég tel að sú skoðun sem ég set fram í þessari grein, eigi yfirburðastuðning meðal þjóðarinnar. Stöndum saman sem þroskuð þjóð"
Meira
Á tímum Svandísar Svavarsdóttur sem umhverfisráðherra var notað slagorðið „Náttúran njóti vafans“, í baráttu við erlendar og ágengar plöntur, t.d. lúpinu.
Meira
Eftir Ragnheiði Haraldsdóttur: "Með stöðugt batnandi lífslíkum krabbameinssjúklinga eykst þörfin fyrir endurhæfingu og hún verður æ mikilvægari."
Meira
Elín Erna Ólafsdóttir fæddist í Stekkadal á Rauðasandi 11. desember 1925. Hún andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði 19. febrúar 2015. Foreldrar hennar voru Anna Guðrún Torfadóttir, f. 1894, d.
MeiraKaupa minningabók
Guðjón Ó. Ásgrímsson fæddist í Reykjavík 27. júlí 1921. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 16. febrúar 2015. Foreldrar hans voru Nikólína Ragnheiður Oddsdóttir húsmóðir, f. 20.8. 1891, d. 4.8. 1970, og Ásgrímur Guðjónsson, tollvörður í Reykjavík, f....
MeiraKaupa minningabók
Guðný Sigríður Kolbeinsdóttir fæddist á Stöng í Mývatnssveit 7. maí 1929. Hún lést á Akureyri 18. febrúar 2015. Hún var yngsta dóttir hjónanna Kolbeins Ásmundssonar, f. 1.5. 1894, d. 3.8. 1987 og Jakobínu Sigurðardóttur, f. 1.8. 1889, d. 28.4. 1971.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Jónsdóttir fæddist 26. desember 1923 að Hellisholtum í Hrunamannahreppi. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 18. febrúar 2015. Foreldrar hennar voru Jón Einarsdóttir bóndi, fæddur 4. apríl árið 1882, og kona hans Eyrún Guðlaugsdóttir, fædd 22.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Halldór Lórenzson fæddist 22. október 1929 á Norðurpól á Akureyri. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 17. febrúar 2015. Gunnar var sonur hjónanna Aðalheiðar Antonsdóttur og Lórenz Halldórssonar. Systkini Gunnars eru Pálína, f. 14.9. 1928, d. 20.
MeiraKaupa minningabók
Haukur Líndal Eyþórsson fæddist í Fremri Hnífsdal Eyrarhreppi við Ísafjörð 18. október 1929. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 26. janúar 2015. Foreldrar hans voru Jón Eyþór Guðmundsson, f. á Guðlaugsstöðum í Blöndudal 19. febrúar 1894, d.
MeiraKaupa minningabók
Jóhanna Guðrún Björnsdóttir framhaldsskólakennari fæddist í Reykjavík 27. september 1947. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 17. febrúar 2015. Foreldrar hennar voru Oddný Ólafsdóttir kjólameistari, f. 26. júní 1921 á Látrum í Aðalvík, d. 27.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Jóhann Sigurðsson fæddist í Reykjavík 21. apríl 1943. Hann varð bráðkvaddur 15. febrúar 2015. Foreldrar hans voru Sigurður Bjarnason, bifreiðastjóri, f. 21.11. 1905, d. 23.12. 1971, og Jóhanna Bára Jóhannsdóttir, f. 12.6. 1921, d. 18.6. 1996.
MeiraKaupa minningabók
Markús Þorkelsson fæddist 6. júní 1918 í Gerðum í Gaulverjabæjarhreppi. Hann lést á dvalarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka 29. janúar 2015. Foreldrar hans voru Þorkell Guðmunds., f. 31. des. 1883, d. 17. júní 1975, bóndi í Gerðum, og k.
MeiraKaupa minningabók
Páll Hreinn Pálsson fæddist í Reykjavík 3. júní 1932. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 16. febrúar 2015. Foreldrar Páls voru Páll Jónsson, f. 12.12. 1904, d. 25.11. 1943, skipstjóri og útgerðarmaður á Þingeyri, og Jóhanna Daðey Gísladóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Sigurjón Pálsson fæddist á Þorgilsstöðum í Fróðárhreppi 7. maí 1921, sonur Páls Þorgilssonar og Óskar Guðmundsdóttur. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi þann 20. febrúar 2015. Eftirlifandi eiginkona Sigurjóns er Laufey Sigurðardóttir.
MeiraKaupa minningabók
Unnur Jónasdóttir fæddist í Reykjavík 10. júlí 1935. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi 21. febrúar 2015. Foreldrar hennar voru: Fanney Þorvarðardóttir, f. 23. desember 1911, d. 30. október 1989, og Jónas Ragnar Jónasson, f. 11. ágúst 1908, d. 2.
MeiraKaupa minningabók
Þorfinnur Guðnason fæddist 4. mars 1959 í Hafnarfirði. Hann lést á líknardeild Landspítalans 15. febrúar 2015. Þorfinnur var sonur hjónanna Guðna Þ. Þorfinnssonar, f. 8. mars 1916, d. 13. febrúar 1966, og Steingerðar Þorsteinsdóttur, f. 2. febrúar 1926.
MeiraKaupa minningabók
Hagnaður VÍS eftir skatta á árinu 2014 dróst saman um 21% frá fyrra ári og nam 1.710 milljónum króna í stað 2.154 milljóna. Hagnaður á hvern hlut í félaginu fer því úr 0,86 krónum í 0,69 krónur.
Meira
Landsbankinn hagnaðist um 29,7 milljarða króna á árinu 2014, en um 28,8 milljarða á árinu 2013. Arðsemi eiginfjár var 12,5%. Virðisbreytingar á útlánum voru jákvæðar um 20 milljarða króna á síðasta ári og hækkuðu um 54% á milli ára.
Meira
Mæling Hagstofunnar sýnir að verðlag hefur hækkað um 0,7% í febrúar. Sama mæling sýnir að verðbólga er 0,8% á ársgrundvelli og að breytingar síðustu þriggja mánaða jafngilda 1% verðbólgu á ársgrundvelli.
Meira
Háskóladagurinn verður haldinn á morgun, laugardaginn 28. febrúar. Í Háskólanum í Reykjavík verður þétt dagskrá og munu nemendur og kennarar úr öllum deildum leggja sig fram um að kynna námsleiðirnar sem standa nemendum til boða.
Meira
Friðrik Ólafsson stórmeistara í skák þarf vart að kynna enda fyrstur Íslendinga til að hljóta útnefningu sem stórmeistari í skák og á að baki farsælan feril á alþjóðavettvangi.
Meira
Bjarkey fæddist í Reykjavík 27.2. 1965 en ólst upp á Siglufirði og flutti síðan til Ólafsfjarðar 1980. Hún gekk í Grunnskóla Siglufjarðar, lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri, B.Ed.
Meira
Ný þúsund fermetra Bónusverslun verður opnuð í Skipholti 11-13 síðar á árinu en kaupsamningur um fasteignina var undirritaður í desember síðastliðnum, að því er segir í tilkynningu frá Högum.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Um verk listaskálds litanna, eins og Jóhannes Sveinsson Kjarval er stundum nefndur, gilda lögmál borgarísjakans. Sú tíund jakanna sem sést er stórbrotin, en 90% eru í felum undir yfirborðinu.
Meira
40 ára Íris býr í Hafnarfirði, lauk sjúkraþjálfaraprófi í Danmörku, B.Ed.-prófi frá KHÍ og er sjúkraþjálfari á DAS. Maki: Ólafur Ragnar Guðbjörnsson, f. 1975, verkstjóri. Börn: Andri Marteinn, f. 2004, og Sara Bryndís, f. 2007.
Meira
30 ára Íris býr í Kópavogi, stundaði nám í ljósmyndun og grafískri miðlun, hefur unnið við ljósmyndun og umbrot og er nú í fæðingarorlofi. Maki: Davíð Kristjánsson, f. 1980, rafvirki. Börn: Irena April, f. 2005, og Oliver Leo, f. 2014.
Meira
Að reiða er m.a. að lyfta til höggs : að reiða sverð eða hamar , t.d. Að reiða til höggs er að lyfta hendi til höggs , með eða án bareflis, annaðhvort til að berja eða til hótunar. Með reiddan hnefa merkir með hnefann á lofti .
Meira
Nýbyggt hverfi er núllpunktur. Þegar svo stundir fram líða breytist mannlífið í myndir og sögur. Sú er raunin um Norðurmýrina, sem er milli Rauðarárstígs og Snorrabrautar.
Meira
Heimir L. Fjeldsted skrifaði mér og sagði að góðkunningi sinn, sem væri búinn að bíða í tæpa fjóra mánuði eftir skurðaðgerð við krabbameini, segðist þreyttur á biðinni sem tæki meira á en skurðaðgerð.
Meira
Reykjavík Veigar Óli Veigarsson fæddist 26. mars 2014. Hann vó 4.400 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Veigar Þór Sturluson og Sigurlaug Hrönn Magnúsdóttir...
Meira
30 ára Salvör ólst upp í Kópavogi, býr á Álftanesi, lauk BS-prófi í stærðfræði frá HÍ og atvinnuflugmannsprófi og er flugmaður hjá Icelandair. Maki: Dagbjartur Einarsson, f. 1985, flugmaður. Dóttir: Bríet, f. 2010.
Meira
90 ára Ásta Hallgrímsdóttir Kristbjörg Ingimundardóttir 85 ára María Áslaug Guðmundsdóttir Sakibe Bakraqi Valgeir Tryggvi Ingimundarson 80 ára Edda Gísladóttir Guðbjörg Jóna Jónsdóttir Hans Guðmundur Hilaríusson Margrét Erla Hallsdóttir 75 ára Ásdís...
Meira
Steindór Jónsson hefur rekið mötuneyti á virkjanasvæðum frá 1988. Hann sá um mötuneytið í Blönduvirkjun og á Kárahnjúkasvæðinu og hefur verið síðastliðin tvö sumur á Þeistareykjavæðinu. Svo hefur hann séð um mötuneytið í Kröfluvirkjun síðastliðin 20 ár.
Meira
Ástand gatna í höfuðborginni hefur aldrei verið verra, en það kemur Víkverja ekki á óvart, vegna þess að það er stefna borgarstjóra og formanns umhverfis- og skipulagsráðs að takmarka umferð sem mest í borginni.
Meira
27. febrúar 1878 Eldgos hófst við Krákutind, austur af Heklu. Það stóð fram í apríl eða maí en olli ekki teljandi tjóni. 27. febrúar 1928 Togarinn Jón forseti frá Reykjavík fórst við Stafnes.
Meira
Hið fornfræga knattspyrnufélag Valur rekur sögu sína aftur til ársins 1911 þegar ungir menn í KFUM tóku sig til og stofnuðu félag utan um knattspyrnuiðkun sína.
Meira
ÍSHOKKÍ Kristján Jónsson kris@mbl.is Akureyringar fögnuðu Íslandsmeistaratitli kvenna í íshokkí í fjórtánda skipti í Egilshöll í Grafarvogi í gærkvöldi. Ásynjur Skautafélags Akureyrar unnu þá Björninn 4:1 og samtals 2:0 í úrslitarimmunni um titilinn.
Meira
Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is Eftir vel heppnaða undanúrslitaleiki kvenna í Coca Cola-bikarnum í handknattleik í gær er komin röðin að undanúrslitaleikjum karla í dag. Í fyrri leik dagsins sem hefst klukkan 17.15.
Meira
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Íslands- og bikarmeistara Stjörnunnar í knattspyrnu, gerði í gær þriggja mánaða lánssamning við sænska úrvalsdeildarliðið Kristianstad sem þýðir að hún mun vera klár í fyrsta leik með Stjörnunni í vor.
Meira
Handknattleiksdómaranefndir Íslands og Noregs hafa komist að samkomulagi um að skiptast á úrvalsdeildardómurum á þessu keppnistímabili og munu þeir Magnús Kári Jónsson og Ómar Ingi Sverrisson fara út á föstudaginn og dæma tvo leiki í Osló í úrvalsdeild...
Meira
Ekki á af Derrick Rose, bakverði Chicago Bulls, að ganga en hann er nú á leið í enn eina aðgerðina. Til stendur að skera Rose upp í dag og framkvæma á honum hnéaðgerð.
Meira
Everton verður eina enska liðið í pottinum þegar dregið verður í 16 liða úrslit Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í dag. Everton rúllaði yfir Young Boys frá Sviss, samanlagt 7:2.
Meira
F ernando Alonso hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi í Barcelona eftir að hafa dvalist þar undir læknishendi og til eftirlits í fjóra sólarhringa eftir slys í Katalóníu á sunnudag.
Meira
Í NJARÐVÍK Skúli B. Sigurðsson skulibsig@mbl.is Njarðvíkingar tóku á móti Haukum í Dominos-deild karla í gær í Ljónagryfjunni. Aðeins tvö stig skildu liðin í deildinni og síðasti leikur endaði með aðeins 1 stigs sigri og því von á hörku viðureign.
Meira
Körfubolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Við höfðum ekki hugmynd um að við værum orðnir meistarar þegar leiknum lauk. Það var ekki fyrr en Páll Sævar [Guðjónsson] tilkynnti það í hátalarakerfinu að Tindastóll hefði tapað.
Meira
Klara Bjartmarz, skrifstofustjóri KSÍ, mun gegna starfi framkvæmdastjóra sambandsins þar til annað verður ákveðið eins og það er orðað í frétt á heimasíðu KSÍ. Þórir Hákonarson, fráfarandi framkvæmdastjóri, sagði starfi sínu lausu á dögunum og hættir 1.
Meira
Enn er útlit fyrir að Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, haldi kyrru fyrir hjá Sandnes Ulf þrátt fyrir að liðið hafi fallið niður í næstefstu deild Noregs síðastliðið haust. Hannes er með liðinu í æfingaferð á La Manga á Spáni.
Meira
Reglulega dúkkar upp opinber umræða um dómgæslu í hópíþróttum hérlendis. Yfirleitt telja þátttakendur í kappleikjum sig hlunnfarna eða telja illa fyrir íþróttagreinunum komið vegna frammistöðu þeirra sem annast dómgæslu.
Meira
ÍR-ingar stigu stórt skref í gærkvöld í átt að því að halda sæti sínu í Dominos-deild karla í körfuknattleik þegar þeir unnu Snæfell í Breiðholtinu, 88:82. Þar með eru ÍR-ingar komnir tveimur stigum frá Fjölni og Skallagrími sem eru í fallsætunum.
Meira
Bjarni Þór Hannesson og Kristinn V. Jóhannsson voru valdir vallarstjórar ársins af SÍGÍ, samtökum íþrótta- og golfvallarstarfsmanna á Íslandi. Bjarni er golfvallarstarfsmaður ársins en hann starfar sem vallarstjóri á Hvaleyrinni hjá Keili.
Meira
Í Höllinni Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Sjötta árið í röð leika Valskonur til úrslita í bikarkeppninni í handknattleik. Það er hreint út sagt magnaður árangur.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.