Ríkissjóður hefur greitt 286 milljónir króna til stjórnmálasamtaka fyrir þetta ár. Framlagið skiptist á milli flokka eftir atkvæðum í síðustu kosningum.
Meira
„Enn eru talsverðir fordómar gagnvart offitu og meðferðarúrræði hefur skort,“ segir Erla Gerður Sveinsdóttir, heimilislæknir, lýðheilsufræðingur og formaður Félags fagfólks um offitu.
Meira
Kærunefnd greiðsluaðlögunarmála hafa borist alls 665 kærur frá því að hún var sett á fót samkvæmt lögum um greiðsluaðlögun sem tóku gildi í ágúst árið 2010. Flestar kærur bárust árið 2012, alls 245 talsins.
Meira
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mest mæðir á Landspítalanum vegna verkfalla SFR og Sjúkraliðafélags Íslands. Undanþágunefnd hefur veitt spítalanum um 100 undanþágur, til viðbótar öryggislistum sem fyrir lágu, til að tryggja öryggi sjúklinga.
Meira
Tveir dómar féllu í Hæstarétti í gær í málum sem Atlantsolía höfðaði gegn Landsbankanum vegna gengislána sem félagið tók á sínum tíma hjá bankanum.
Meira
Sviðsljós Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Í fyrra töldust tveir milljarðar fullorðinna jarðarbúa vera yfir kjörþyngd. Verði ekki gripið til aðgerða mun talan hækka í 2,7 milljarða árið 2025 og 177 milljónir munu þá þjást af offitu.
Meira
„Menn hafa áhyggjur af þessari samþjöppun sem hefur orðið og finnst hafa orðið dálítið mikil skil á milli þeirra sem eru með útgerð og þeirra sem eru í útgerð með vinnslu,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, um...
Meira
Baksvið Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, fagnar nýrri löggjöf þar sem settar eru stífari reglur um heimild til sölu fasteigna og skipa.
Meira
Dómstóll í Bretlandi komst í gær að þeirri niðurstöðu, að brids væri ekki íþrótt og því hefði enska íþróttasambandið, Sport England, getað með réttmætum hætti neitað enska bridssambandinu um aðild.
Meira
Karl Blöndal kbl@mbl.is Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, greindi í gær frá því að hætt yrði að fækka í herliði bandaríska hersins í Afganistan vegna þess að afganski herinn væri enn ekki tilbúinn til að gegna hlutverki sínu óstuddur. 9.
Meira
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Seðlabankinn hóf rannsóknir á meintum brotum á gjaldeyrisreglum bankans eftir að starfsmönnum bankans mátti vera orðið ljóst að reglurnar væru ekki gildar refsiheimildir.
Meira
Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Það er að bætast á jökulinn í fyrsta skipti síðan 1994,“ segir Þorsteinn Þorsteinsson, sérfræðingur í jöklarannsóknum hjá Veðurstofu Íslands.
Meira
Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Hreyfing er komin á byggingarmál Menntaskólans í Reykjavík, þótt ekkert fjármagn sé eyrnamerkt verkefninu í fjárlagafrumvarpinu. Vonast forráðamenn skólans til þess að á því verði breyting í meðförum Alþingis.
Meira
Árlegt þing Hringborðs norðurslóða – Arctic Circle verður sett í dag klukkan 8:30 í Hörpu. Hafa rúmlega 1.800 þátttakendur frá 50 löndum skráð sig á þingið.
Meira
Lögreglan á Ítalíu gerði húsleit í aðalstöðvum þýska bílarisans Volkswagen á Ítalíu í gær, auk þess sem leitað var í húsakynnum dótturfyrirtækisins Lamborghini.
Meira
„Leggja þarf áherslu á víðtæka samstöðu innan hreyfingarinnar um bætt vinnubrögð og nýjar lausnir við gerð kjarasamninga.“ Þetta kemur fram í kjaramálaályktun þings Starfsgreinasambandsins, sem lauk í gær. Er þess m.a.
Meira
Goggfylli í garðveislunni Skógarþrestir eru sólgnir í allskonar ber, einkum reyniber og rifsber, á haustin þegar gnægð er af þessari gómsætu og næringarríku fæðu í görðum...
Meira
Baksvið Guðni Einarsson gudni@mbl.is Talið er að umfang Skaftárhlaupsins hafi verið 400-500 gígalítrar (400-500 milljónir rúmmetra (m 3 )). Það samsvarar um fjórðungi af vatnsmagninu í fullu Hálslóni.
Meira
Áberandi lægð sést á yfirborði Vatnajökuls suður úr Eystri Skaftárkatli. Talið er að aukinnar jarðhitavirkni gæti þar og að jarðhitasvæðið hafi teygt sig á nýjan stað undir jöklinum.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Nú stendur yfir sýning nokkurra íslenskra listamanna í Gouda í Hollandi. „Við erum að kynna íslenska list og íslenskt handverk,“ segir Grímkell P.
Meira
Um 400 gestir í dýragarðinum í Óðinsvéum í Danmörku fylgdust í gær með því þegar ljón, sem þurfti að fella vegna þess hve mjög hafði fjölgað í ljónagirðingunni, var fláð og krufið.
Meira
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Olíudreifing fer í 7-10 útköll í hverri viku þar sem sérstakur bíll, sem fyrirtækið hefur yfir að ráða, dælir upp eldsneyti, sem ranglega hefur verið sett á bíla. Á miðvikudag fór fyrirtækið í fimm slík útköll.
Meira
Pétur K. Maack, fyrrverandi flugmálastjóri og framkvæmdastjóri flugöryggissviðs Flugmálastjórnar, lést 14. október síðastliðinn, 69 ára að aldri. Pétur fæddist í Reykjavík 1. janúar 1946.
Meira
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hvetja til þess að allt kapp verði lagt á að ná upp flakinu af Jóni Hákoni frá Bíldudal sem sökk út af Aðalvík í júlí.
Meira
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Seðlabankinn verður að veita slitabúum föllnu viðskiptabankanna þriggja svör fyrir lok næstu viku varðandi þær undanþágubeiðnir sem bankinn hefur haft til meðferðar í þrjá mánuði.
Meira
Hvorki gengur né rekur í kjaradeilu starfsmanna í álverinu í Straumsvík við álfyrirtækið Rio Tinto Alcan. Síðasti sáttafundur, sem haldinn var sl. mánudag, skilaði engum árangri.
Meira
Mýrdalshreppur og aðrir eigendur Austurhúsa í Dyrhólahverfi eiga einir beinan eignarrétt yfir Dyrhólaey, samkvæmt dómi Hæstaréttar. Með því er leyst úr deilum um eignarréttinn sem staðið hafa frá því um miðja 15. öld.
Meira
Legend Tvíburarnir Ronnie og Reggie Kray voru valdamestu glæpakóngar Lundúna og jafnframt þeir grimmustu. Metacritic 59/100 IMDb 7,5/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.40 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.40 Sambíóin Akureyri...
Meira
Grænlandsjökull minnkar um einn tíunda hluta af Vatnajökli á ári, 350 rúmkílómetra. Það þýðir að ef Vatnajökull bráðnaði jafnhratt og Grænlandsjökull hyrfi hann á tíu árum.
Meira
Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Skert þjónusta er framundan í banka- og póstafgreiðslu á Þórshöfn eftir samruna Landsbankans og Sparisjóðs Norðurlands.
Meira
Andríki skrifar: Það er lítill vafi á því að hefðu lögreglumenn farið í verkfall hefði því annaðhvort lokið með verulegum launahækkunum eða gerðardómi.
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Íslenska óperan frumsýnir annað kvöld Rakarann frá Sevilla , gamanóperu Gioacchino Rossinis frá árinu 1816, í Eldborgarsal Hörpu.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hin kunna sinfóníuhljómsveit Philharmonia Orchestra, sem kölluð hefur verið þjóðarhljómsveit Breta, kemur fram á tvennum tónleikum í Hörpu á næstu dögum, á sunnudags- og mánudagskvöld.
Meira
Það er góð skemmtun að horfa á spurninga- og spéþáttinn Útsvar. Hressir spyrlar og keppendur sem leggja sig alla fram um að vera fyndnir – og svara spurningum.
Meira
Tvíeykið Calder heldur sína fyrstu tónleika í 14 ár í Mengi í kvöld, skipað Ólafi Erni Josephssyni og Lárusi Sigurðssyni. Annað kvöld munu svo feðgarnir Þórarinn og Halldór Eldjárn stefna saman ljóðum og hljóðfærum undir yfirskriftinni Ljóðfæri.
Meira
Sýningin Geimþrá verður opnuð í Ásmundarsafni í dag kl. 18. Á henni eru verk eftir listamenn sem hver um sig hafa sett mark sitt á íslenska listasögu 20. aldar, einkum þegar litið er til þrívíðrar myndlistar, eins og segir í tilkynningu.
Meira
Tríóið Kokteilpinnarnir heldur hausttónleika í Kiðagili í Bárðardal annað kvöld kl. 20 sem bera yfirskriftina Komdu í kvöld. Á þeim verða flutt íslensk dægurlög frá árunum 1950-1980.
Meira
ASSITEJ á Íslandi, alþjóðleg samtök sviðslistafólks sem skapar leikhúslist fyrir börn og ungt fólk, leita að danshópi til þátttöku í kvikmynd um dansflæði eftir finnska danshöfundinn Kati Kallio.
Meira
Ef ég hefði verið... nefnist sýning bandarísku listakonunnar Ninu Zurier sem verður opnuð í Sjóminjasafninu í Reykjavík í dag, föstudag, klukkan 17.
Meira
Slóvakísk-austurríska tríóið Lotz, skipað bræðrunum Ronald og Robert Šebesta og Sylvester Perschler, sem leika á endurgerðir af bassetthornum eftir hinn virta hljóðfærasmið Theodor Lotz, heldur tónleika í Skálholtskirkju í dag og á morgun í...
Meira
Kling & Bang gallerí er í útrás og tekur þátt í vídeósýningu sem verður opnuð í Ausstellungsraum Klingental í Basel í Sviss í dag. Sýningin er hluti af hinni viðamiklu Íslandshátíð Culturescapes.
Meira
Eftir Ómar Ragnarsson: "Heildartalan, 11.629 tonn, sýnir möguleika til kolefnisjöfnunar, stig af stigi, í framtíðinni, en ekki risastóran hluta af útblæstrinum núna."
Meira
Eftir Björn Bjarnason: "Íslensk norðurslóðastefna er í raun ekki utanríkismál heldur ný vídd á flestum sviðum stjórnmálanna. Forgangsraða verður verkefnum."
Meira
Ertu hvítur femínisti? Þetta er ein af þeim spurningum sem Emma Watson, leikkona og stofnandi jafnréttisátaksins He For She, var spurð í síðustu viku þegar forvitnum gafst kostur á að spyrja hana um hitt og þetta á samskiptamiðlinum Twitter.
Meira
Elín Hanna Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 5. ágúst 1966. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. október 2015. Foreldrar hennar eru Jón Sigurgeirsson vinnuvélastjóri, f. 30. júní 1945, og Ingibjörg Steinunn Sigurvinsdóttir heilbrigðisritari, f. 4.
MeiraKaupa minningabók
Kristín Jóhannsdóttir fæddist í Reykjavík 27. mars 1929. Hún lést á Droplaugarstöðum 12. október 2015. Foreldrar hennar voru Guðmundur Jóhann Þorleifsson, f. í Kleifakoti í Nauteyrarhreppi, N-Ís. 9. 7. 1888, d. 15.12.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Gröndal fæddist í Reykjavík 9. febrúar 1956. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 7. október 2015. Foreldrar hennar voru Páll Gröndal, sellóleikari, f. 15. október 1935, d. 1. desember 2013, og Valgerður B. Gröndal, f. 29. maí 1934.
MeiraKaupa minningabók
Vigfús Erlendsson fæddist í Reykjavík 26. febrúar 1955. Hann lést 11. október 2015. Foreldrar hans voru Erlendur Kr. Vigfússon, f. 24. september 1926, d. 11. ágúst 2005, og Jóhanna Soffía Sigurðardóttir, f. 21. september 1929.
MeiraKaupa minningabók
Hlutabréf Símans voru tekin til viðskipta í gær í Kauphöll Íslands þegar Orri Hauksson, forstjóri Símans, hringdi viðskiptin inn í höfuðstöðvum fyrirtækisins. Viðskipti fóru vel af stað en verð bréfa félagsins fór hæst í 3,55 krónur á hlut innan...
Meira
Baksvið Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Veiti Seðlabankinn ekki svör við undanþágubeiðnum slitastjórna Glitnis og Kaupþings fyrir dagslok föstudaginn 23.
Meira
Greining Íslandsbanka spáir 4,3% hagvexti í ár og 4,4% hagvexti á næsta ári í nýrri þjóðhagsspá sem kynnt var á Fjármálaþingi Íslandsbanka í gær. Bankinn sér svo fram á talsvert hægari hagvöxt á árinu 2017, eða 2,5%.
Meira
Það er alltaf fallegt þegar vinir taka sig saman og gera eitthvað til að safna fyrir þá sem eiga um sárt að binda. Og það er sannarlega gefandi fyrir alla að leggja eitthvað af mörkum til að hjálpa öðrum.
Meira
Framundan er Fuglavika í Reykjavík, vika tileinkuð hinu fjölskrúðuga fuglalífi borgarinnar, gildi þess fyrir borgarbúa og mikilvægi Reykjavíkur og nágrennis fyrir viðkomu og velferð íslenskra fugla.
Meira
Margrét Lóa Jónsdóttir skáldkona og listakona á 30 ára afmæli sem ljóðskáld og nú sendir hún frá sér sína níundu ljóðabók, Frostið inni í hauskúpunni, en þar segir m.a. frá heimsreisu sem hefst í hjartanu.
Meira
... fyrir aðeins of þungan og aðeins of lítinn 33 ára blaðamann með gleraugu var ég að standa mig eins og ég væri karakter í bók eftir Þorgrím Þráins.
Meira
Erla Bergmann Danelíusdóttir er 80 ára í dag. Hún er eitt þriggja eftirlifandi barna Sveindísar Hansdóttur og Danelíusar Bergmann Sigurðssonar, skipstjóra og hafnsögumanns á Hellissandi. Hin eru Cýrus og Sjöfn. Erla er af Cýrusar-ætt og Bergmanns-ætt.
Meira
30 ára Lena ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk sveinsprófi í gullsmíði og er nú í fæðingarorlofi. Maki: Hörður Jens Guðmundsson, f. 1981, lögfræðingur. Synir: Hlynur Atli Harðarson, f. 2011, og óskírður Harðarson, f. 2015.
Meira
Grunnfærni merkir það að vera grunnfær . En grunnfær merkir að vera yfirborðskenndur eða grunnhygginn . Nú er ný merking grunnfærni komin fram: grundvallarfærni – t.d. í lestri og skrift, og er að ryðja hinni úr vegi.
Meira
Pétur fæddist á Eyrarbakka 16.10. 1918 en ólst upp á Bráðræðisholtinu og á Framnesveginum í Reykjavík. Foreldrar hans voru Pétur Guðmundsson, skólastjóri á Eyrarbakka, og k.h., Elísabet Jónsdóttir húsfreyja.
Meira
Edgar fæddist í Reykjavík 16.10. 1940 og ólst þar upp í Vesturbænum. Hann lauk stúdentsprófi frá ML og verkfræðiprófi frá Tækniháskólanum í Þrándheimi 1966. Edgar var bæjarverkfræðingur á Ólafsfirði og á Dalvík 1968-69, vann á verkfræðistofu G.
Meira
Reykjavík Eva Ísfold fæddist 18. október 2014. Hún vó 4.370 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Tinna Harper Arnardóttir og Andrew Robert...
Meira
30 ára Sigurjón ólst upp í Bolungarvík, býr í Reykjavík og er nú á lokaári í læknisfræði við HÍ. Maki: Ásgerður Höskuldsdóttir, f. 1987, viðskiptafræðingur hjá Valtor. Sonur: Ásgeir Ragnar, f. 2013. Foreldrar: Rögnvaldur Guðmundsson, f.
Meira
90 ára Hilmar Rósmundsson Ingólfur Jónsson 85 ára Ásta Þórðardóttir Guðríður Guðmundsdóttir Páll Þórarinn Finnsson Vilhjálmur Eiríksson 80 ára Guðný Sigurðardóttir Gunnar L.
Meira
30 ára Tinna ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk prófi í læknisfræði frá HÍ, starfar á skurðsviði við LSH og stundar MSc-nám í lækna- og lífvísindum. Maki: Andrew Robert Harper, f. 1983, viðskiptafræðingur hjá Meniga. Börn: Alexander Örn Harper, f.
Meira
Út er kominn Vasapési partíljónsins eftir Pétur Bjarnason, – inniheldur „heilræði, limrur og léttmeti í bland“. Þar eru holl ráð gefin varðandi veislustjórn og ýmislegt sem lýtur að samkvæmislífi. Og þar er töluvert af limrum.
Meira
16. október 1890 Landshöfðingi tók formlega í notkun síma sem lagður hafði verið milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. „Heyrist nokkurn veginn jafnglöggt, þegar talað er í hann, sem viðtalendur væru í sama herbergi,“ sagði Fjallkonan.
Meira
Arnar Helgi Lárusson úr UMFN og Helgi Sveinsson úr Ármanni verða fulltrúar Íslands á HM fatlaðra í frjálsum sem hefst í Doha í Katar hinn 22. október. Hittu þeir fjölmiðlamenn á blaðamannafundi í Laugardalnum í gær.
Meira
Á Nesinu Arnar Gauti Grettisson sport@mbl.is Grótta og ÍR áttust við á Seltjarnarnesi í gær í 9. umferð Olís-deildar karla. Grótta vann sinn annan sigur í röð en lokatölur urðu 31:29, eftir hreint út sagt æsispennandi mínútur.
Meira
Í Seljaskóla Kristinn Friðriksson kiddigeirf@gmail.com Domino‘s-deildin hóf göngu sína í gærkveldi. Eftirfarandi er vitnisburður úr leik ÍR og Tindastóls.
Meira
„Ég er búinn að ræða við Lars um hug hans til þess að halda áfram eftir Evrópumótið í Frakklandi. Boltinn er í hans höndum og hann þarf að vega og meta hvort hann hafi metnað og áhuga á að halda áfram.
Meira
Dominos-deild karla ÍR – Tindastóll 90:103 Haukar – Snæfell 86:60 FSu – Grindavík 84:85 Svíþjóð Sundsvall – Jämtland 81:91 • Hlynur Bæringsson skoraði 17 fyrir Sundsvall og tók 14...
Meira
Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson hafa verið skipaðir dómarar í einum af stærri leikjum Meistaradeildar Evrópu á þessari leiktíð.
Meira
Framherjinn Danny Ings mun ekki leika meira með Liverpool á þessari leiktíð eftir að hafa slitið krossband í hné. Ings meiddist á fyrstu æfingunni undir stjórn nýja stjórans, Jürgen Klopp , í gær.
Meira
Grétar Sigfinnur Sigurðarson, varnarmaðurinn reyndi úr KR, gekk í gær til liðs við Stjörnuna. Grétar, sem er 33 ára gamall, er uppalinn KR-ingur en hefur einnig spilað með Sindra, Val og Víkingi.
Meira
Á Selfossi Guðmundur Karl sport@mbl.is Það var líf og fjör og mikil spenna þegar körfuboltamönnunum var hleypt inn í veturinn í viðureign FSu og Grindavíkur í Iðu í gærkvöldi.
Meira
• Heiðar Helguson skoraði fyrsta mark íslenska landsliðsins í 3:0 sigri gegn Litháum í undankeppni EM á Laugardalsvelli á þessum degi árið 2002. • Heiðar er fæddur árið 1977.
Meira
Bikarmeistarar Stjörnunnar hafa lokið þátttöku sinni í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu þetta árið en Stjarnan tapaði öðru sinni fyrir rússneska liðinu Zvezda á Zvezda Stadium í Perm í Rússlandi í gær.
Meira
U21 árs landsliðið karla í knattspyrnu á hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu í undankeppni EM og sú staðreynd að liðið er ósigrað eftir fimm leiki og hefur innbyrt 11 stig ber vott um það.
Meira
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson gekkst undir aðgerð á hægri öxl í gær en sem kunnugt er varð hann fyrir því óláni að fara úr axlarlið á æfingu landsliðsins á sunnudaginn. Hann missti þar af leiðandi af leiknum á móti Tyrkjum á...
Meira
Á Hlíðarenda Ívar Benediktsson iben@mbl.is Víkingar voru nærri því að hirða að minnsta kosti eitt stig í heimsókn sinni til Valsmanna í Vodafonehöll þeirra í gærkvöldi þegar liðin leiddu saman hesta sína í Olís-deildinni í handknattleik.
Meira
Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is Þrjú íslensk félagslið taka þátt í Evrópukeppni félagsliða í dag, á morgun og sunnudag. Öll leika þau á heimavelli.
Meira
Rétt er að láta kíkja á rafgeyminn áður en tekur að kólna. Slappir rafgeymar geta dugað yfir sumarið en fara að gefa sig á köldustu morgnunum. Þjóðráð er að hafa í bílnum vasaljós, kuldaskó og hlýjan fatnað ef eitthvað skyldi koma upp á.
Meira
The Icelandic Coast Guard has already established partnerships with many nations for joint search and security operations in the Arctic, and has in the past decade approached many more with collaboration in mind.
Meira
„Ég er yfirleitt með nokkrar bækur í gangi í einu, ásamt hljóðbók þegar ég er á ferðinni. Ég var að byrja á Svo þú týnist ekki í hverfinu hérna eftir nýjasta nóbelsskáldið, Patrick Modiano, sem var að koma út í flottri þýðingu Sigurðar Pálssonar.
Meira
Fátt er heimilislegra en að hafa rjúkandi heita kjötsúpu á borðum þegar vetur sækir að og kólna tekur í veðri. Kjötsúpa er gamall og góður íslenskur matur en hún er til í margvíslegum afbrigðum.
Meira
Grænlenski hundurinn er grjótharður nagli enda þarf hann að sinna sínum skyldum við erfiðustu skilyrði. Hann á sér mörgþúsund ára sögu. Ragnar Axelsson rax@mbl.is og Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Það færist í vöxt að hugur landsmanna hvarfli norður í land þegar vetur gengur í garð og heimsæki Akureyri í skammdeginu. Í höfuðstað Norðurlands er líka allt að finna sem hugurinn kann að girnast, segir veitingastjórinn Rut Pétursdóttir.
Meira
Ef Vatnajökull bráðnaði jafnhratt og Grænlandsjökull hyrfi hann á tíu árum og hlýnun á norðurslóðum er með ólíkindum. Þetta kemur fram í samtali við Tómas Jóhannesson, hópstjóra jöklarannsókna á Veðurstofu Íslands. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Mæðgurnar Sólveig Eiríksdóttir og Hildur Ársælsdóttir deila áhuganum á heilsusamlegu mataræði og í nýútkominni bók þeirra Himneskt – AÐ NJÓTA gefa þær uppskriftir að heilnæmum og fallegum mat þar sem íslenskt grænmeti er í aðalhlutverki og skírskotað er til árstíðanna.
Meira
Fátt er okkur eins nauðsynlegt á hendurnar og góðir vettlingar þegar vetur gengur í garð. Hjá Fossberg fást dugandi hanskar sem halda höndunum heitum þegar á þarf að halda. Svo er ekki verra að geta sýslað á snertiskjá snjallsímans án þess að taka þá af.
Meira
Fátt jafnast á við að flýja skammdegi og skuggalegt veður inn í notalegt skjól kaffihúss. Kaffihúsið Pallett flutti nýverið í nýtt húsnæði ásamt matsölustaðnum Litla bóndabænum. Þar leggja þeir Pálmar og David áherslu á framúrskarandi kaffi og ilmandi heimilismat undir enskum áhrifum.
Meira
Hálft til þrír fjórðu kíló kjöt 2 og hálfur lítri vatn 1 msk. salt 75 g hrísgrjón Hálft kíló gulrófur 250 g jarðepli 250 g hvítkál Aðferðinni er lýst í lok viðtalsins við Önnu Margréti. Hafa má einnig afvatnað saltkjöt í súpuna og sleppa þá salti.
Meira
„Ég er mjög spennt fyrir nýrri barnabók Gerðar Kristnýjar og hlakka sömuleiðis til að lesa bókina Eitthvað á stærð við alheiminn eftir Jón Kalman Stefánsson, en hún er seinni hluti Fiskarnir hafa enga fætur, sem var stórgóð.
Meira
Landhelgisgæsla Íslands hefur þegar byggt upp samstarf við marga aðila um björgunar-, leitar- og öryggismál á norðurslóðum og hefur óskað eftir samstarfi við enn fleiri á undanförnum áratug.
Meira
Landhelgisgæsla Íslands hefur þegar byggt upp samstarf við marga aðila um björgunar-, leitar- og öryggismál á norðurslóðum og hefur óskað eftir samstarfi við enn fleiri á undanförnum áratug.
Meira
Íslensk fyrirtæki eru í auknum mæli farin að sjá tækifæri á norðurslóðum, ekki síst í flutningum, en stjórnmálin mega skerpa á sinni sýn. Þetta er álit Heiðars Guðjónssonar hagfræðings. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Íslensk fyrirtæki eru í auknum mæli farin að sjá tækifæri á norðurslóðum, ekki síst í flutningum, en stjórnmálin mega skerpa á sinni sýn. Þetta er álit Heiðars Guðjónssonar hagfræðings. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Til að skórnir frá Timberland endist sem lengst er gott að bera á þá vönduð efni sem hreinsa og vatnsverja. Þannig verða skórnir bara betri og fallegri með aldrinum.
Meira
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segir fjölbreytt og spennandi tækifæri blasa við á norðurslóðum og vonar að íslenska þjóðin beri gæfu til að færa sér þau í nyt. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segir fjölbreytt og spennandi tækifæri blasa við á norðurslóðum og vonar að íslenska þjóðin beri gæfu til að færa sér þau í nyt. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segir fjölbreytt og spennandi tækifæri blasa við á norðurslóðum og vonar að íslenska þjóðin beri gæfu til að færa sér þau í nyt. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
„Oftast einbeiti ég mér að einni bók í einu, en ég á það alveg til að leggja hana frá mér og byrja á næstu ef ég er spennt fyrir einhverju og sú fyrri heldur athyglinni ekki nógu vel.
Meira
þetta eru svo skemmtileg kerti, þau brenna með eilítið daufari loga en venjuleg kerti, tólgin hefur þann skemmtilega eiginleika að varpa mildri birtu og kerti úr tólg brenna hægar en venjuleg kerti.
Meira
Icelandic companies are increasingly realising the opportunities to be had in the Arctic region – not least as regards transport. But politicians need to sharpen their focus, says economist Heiðar Guðjónsson. By Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Icelandic companies are increasingly realising the opportunities to be had in the Arctic region – not least as regards transport. But politicians need to sharpen their focus, says economist Heiðar Guðjónsson. By Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Kevin Anderson, prófessor í loftslagsbreytingum við Háskólann í Manchester, hvetur stefnumótendur til að vera ærlega, viðurkenna umfang losunarvandans og virða alþjóðlegar skuldbindingar sem þið/við höfum ítrekað tekist á hendur til að halda meðalhlýnun...
Meira
Íslendingum þykir flestum best að fá lýsið beint af flöskunni. Rannsóknir hafa sýnt að lýsið gerir heilsunni gott á margan hátt, léttir m.a. lund og heldur æðunum hraustum.
Meira
Ólafur Ragnar Grímsson says that the Arctic region offers diverse and exciting opportunities, and hopes that Iceland will be lucky enough to capitalise on them. By Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Ólafur Ragnar Grímsson says that the Arctic region offers diverse and exciting opportunities, and hopes that Iceland will be lucky enough to capitalise on them. By Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.