Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Erla Gígja Þorvaldsdóttir, 76 ára húsmóðir á Sauðárkróki, hefur sent frá sér diskinn Nafnið þitt . Þetta er fyrsti diskur Erlu, sem hefur alla tíð haft áhuga á tónlist.
Meira
Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Áform eru uppi um að reisa Íslandslíkan í þrívídd sem yrði um 10 þúsund fermetrar að stærð eða á við knattspyrnuvöll.
Meira
Neyðarástand var enn í gær í Brussel vegna hryðjuverkahættunnar og fáir á ferli á götunum, víða sáust brynvarðir vagnar lögreglunnar. Skólar og jarðlestakerfi voru lokuð enda óttast yfirvöld að gerðar verði árásir á fjölfarna staði.
Meira
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Einhlíta skýringu er ekki að finna á því hvers vegna konur eru í miklum minnihluta viðmælenda fjölmiðla á Íslandi og í heiminum.
Meira
Síðasti fræðslufundur þessa árs hjá Náum áttum hópnum, sem vinnur að forvarnafræðslu, verður haldinn á Grand Hotel á morgun, miðvikudag, frá kl. 8-10. Yfirskrift fundarins er Skóli fyrir alla – eða hvað?
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ágæt viðbrögð hafa verið við auglýsingu Vinnumálastofnunar eftir starfstækifærum fyrir flóttamenn. Auglýsingin birtist mánudaginn 16. nóvember og er fyrst í stað leitað að störfum á höfuðborgarsvæðinu og...
Meira
Benedikt Bóas Kristján Johannessen „Við sjáum ekki fram á að fá það svigrúm við fjárlagagerðina að við getum mætt ýtrustu óskum Landspítalans – langur vegur þar frá.
Meira
Gildi – lífeyrissjóður hefur lækkað vexti á húsnæðislánum og segir Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, að nú bjóði sjóðurinn upp á lægstu föstu verðtryggðu vextina sem Gildi hefur boðið á húsnæðislánum frá upphafi eða 3,55%.
Meira
Kíkt í skólatöskuna Stúlkan leitaði einbeitt að einhverju mikilvægu sem hún saknaði í litríkri skólatösku á meðan bílarnir þustu fram hjá með tilheyrandi gný sem fyllti...
Meira
Að tillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar sjávarútvegsráðherra hefur ríkisstjórnin samþykkt stórátak í kortlagningu hafsbotnsins innan íslensku efnahagslögsögunnar.
Meira
Kristján Jónsson kjon@mbl.is Franska flugvélamóðurskipið Charles de Gaulle er nú á austanverðu Miðjarðarhafi og tók í gær í fyrsta skipti þátt í loftárásunum á stöðvar Ríkis íslams, IS, í Sýrlandi.
Meira
Benedikt Bóas Þorsteinn Ásgrímsson Stórbruni varð þegar eldur gaus upp í Plastiðjunni á Selfossi á tíunda tímanum í gærkvöldi. Mikill eldsmatur var inni í verksmiðjunni og barðist allt tiltækt slökkvilið við eldinn.
Meira
Mikil umskipti urðu í Argentínu um helgina þegar hægrimaðurinn Mauricio Macri sigraði perónistann Daniel Scioli í seinni umferð forsetakosninganna. Macri fékk um 51,5% atkvæða. Perónistar hafa ráðið forsetaembættinu í 12 ár samfleytt.
Meira
Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni og Sogni, hefur sagt upp störfum en hún tilkynnti samstarfsfólki sínu þetta í gær. Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfesti þetta í samtali við mbl.
Meira
Miðvikudaginn 25. nóvember kl. 08:15-10:00 verður morgunverðarfundur á Nauthóli í Nauthólsvík undir yfirskriftinni Ár jarðvegs – öld umhverfisvitundar – alda nýrrar hugsunar.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Útgerðarfyrirtækið Jakob Valgeir ehf. í Bolungarvík hefur fest kaup á norskum togara sem væntanlegur er til landsins um miðjan janúar næstkomandi.
Meira
Baksvið Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Hjá álverinu í Straumsvík, Rio Tinto Alcan á Íslandi, vinna 450 starfsmenn og um þúsund manns tengjast auk þess starfsemi fyrirtækisins með einum eða öðrum hætti.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nærri 100 útlendingar eru um þessar mundir að störfum hjá ýmsum aðilum í Þingeyjarsýslum, sem launþegar hjá fyrirtækjum sem eru undirverktakar til dæmis við mannvirkjagerð á svæðinu.
Meira
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Mjög hefur dregið úr því að fólk reyni að koma fölsuðum peningaseðlum í umferð, að sögn Hafliða Þórðarsonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þríburasystur fæddust á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja fyrir sextíu árum. Þær eru einu þríburarnir sem vitað er til að hafi fæðst í Vestmannaeyjum. Systurnar ætla að halda saman upp á afmælið í dag.
Meira
Röng mynd Með grein um Þríhnúkagíg í Morgunblaðinu í gær birtist mynd af Ólafi Júlíussyni og var hann nefndur Björn Ólafsson. Hér birtist mynd af Birni. Hlutaðeigandi eru beðnir afsökunar á þessum mistökum.
Meira
Hjörtur J. Guðmundsson hjortur@mbl.is Ákæruvaldið fer fram á þunga fangelsisdóma komi til sakfellingar í Stímmálinu svonefnda en málflutningur vegna þess stendur yfir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Meira
Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Leggja ætti til hliðar opin landamæri Evrópu og hvert og eitt þátttökuríki Schengen-samstarfsins ætti tafarlaust að bera öll vegabréf kerfisbundið saman við gagnagrunn Interpol um stolin og glötuð vegabréf.
Meira
Á göngu um Elliðaárdalinn ber ævinlega eitthvað nýtt fyrir augu. Gróðurfarið er fjölbreytt og gott skjól af trjánum þar. Ef rigning er og kalt í veðri er ekki annað að gera en klæða sig í samræmi við veðráttuna.
Meira
Til stendur að ræða sjálfkeyrandi bíla í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, að sögn Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins sem á sæti í nefndinni.
Meira
Kristján Jónsson kjon@mbl.is Marokkómenn munu í desember taka í notkun nýtt sólarorkuver í héraðinu Ouarzazate og verður það meðal hinna stærstu sinnar tegundar í heiminum. Verið mun sjá um milljón manna fyrir raforku.
Meira
Tíu þúsund fermetra Íslandslíkan í þrívídd gæti orðið að veruleika innan tveggja ára ef áform forsprakka hugmyndarinnar ganga eftir. Rætt er um að það verði staðsett á Leirvogstungumelum í Mosfellsbæ.
Meira
Steve Jobs Opinská mynd um snillinginn Steve Jobs, stofnanda Apple og frumkvöðul stafrænu byltingarinnar. Metacritic 82/100 IMDb 7,7/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.40 Sambíóin Akureyri 22.20 Smárabíó 20.
Meira
Arion banki opnaði í gærmorgun nýtt útibú við Túngötu 3 í Siglufirði. Nýja útibúið er byggt á grunni starfsemi Sparisjóðs Siglufjarðar. Einnig hefur útibú Sparisjóðs Skagafjarðar á Sauðárkróki sameinast starfsemi útibús Arion banka á staðnum.
Meira
Starfsmenn verktakafyrirtækisins Jarðvals eru þessa dagana að leggja lokahönd á gerð tveggja settjarna við Fornahvarf í Kópavogi, það er við affallið úr Elliðavatni.
Meira
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þrátt fyrir að íbúum sé að fjölga og útvarstekjur að aukast er tvísýnt með fjárhag Reykjanesbæjar. Frekari hagræðing og auknar tekjur þurfa að koma til ef takast á að greiða niður skuldir.
Meira
Fyrsti sunudagur í aðventu er skammt undan. Forðum tíð hugsuðu vitringar sér til hreyfings um það leyti. Það er önnur saga. Viðskiptablaðið segir nú svo frá: Vitringarnir“ segja magnbundna íhlutun Seðlabanka Evrópu ógna stöðugleika.
Meira
„Að brúa bilið á milli hönnuða og framleiðanda“ er yfirskrift málþings sem haldið verður á Kjarvalsstöðum í dag milli kl. 15.30 og 17.30. Að málþingi loknu fer fram afhending Hönnunarverðlauna Íslands.
Meira
Stórsöngvarinn Bogomil Font heldur tónleika á Kex hosteli í kvöld ásamt hljómsveit sem skipuð er Steinari Sigurðarsyni á saxófón, Árna Heiðari Karlssyni á píanó og Óttari Sæmundsen á kontrabassa.
Meira
Breski tónlistarmaðurinn Benjamin Clementine hreppti hin árlegu Mercury-tónlistarverðlaun sem veitt eru breskum eða írskum tónlistarmönnum. Verðlaunin hlaut hinn 26 ára gamli listamaður fyrir frumraun sína, plötuna At Least For Now.
Meira
Þjófar brutust á fimmtudagskvöldið var inn í listasafn í Verona á Ítalíu, Museo Civico di Castelvecchio, og stálu þar 17 listaverkum eftir marga af kunnustu myndlistarmönnum fyrri alda.
Meira
Rebecca Clarke: Prelude, Allegro and Pastorale f. víólu og klarínettu (ísl. frumfl.) Beethoven: Strengjakvartett í G Op. 18,2. Brahms: Kvintett f. klarínett og strengjakvartett í a Op. 115.
Meira
Kannski hef ég skrifað það áður en ég skrifa það þá bara aftur; Skjáreinn í opinni dagskrá er frábær búbót. Það er liðin tíð að heil helgi líði án þess að maður hafi brutt poppkorn heima hjá sér í sófanum í að minnsta klukkustund.
Meira
Síðasta kvikmyndin í Hungurleika-syrpunni, The Hunger Games: Mockingjay – Part 2, skilaði mestum miðasölutekjum til bíóhúsanna um helgina, um 11,2 milljónum króna og sáu myndina um 7.600 manns.
Meira
Bridsfélag eldri borgara í Hafnarfirði Þriðjudaginn 17. nóvember var spilaður tvímenningur með þátttöku 28 para. Efstu pör í N/S (% skor): Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 57,4 Jón Sigvaldason – Katarínus Jónss. 56,5 Erla Sigurjónsd.
Meira
Eftir Viktor Stefánsson: "Forsætisráðherrann ætlar sér nú að nýta sér hryðjuverkaárásir í Evrópu og flýjandi Sýrlendinga til þess að endurlífga úreltar hugmyndir gærdagsins."
Meira
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson: "Með bæninni tökum við að upplifa fegurð lífsins, lærum að þakka fyrir það og njóta þess. Bænin er ekki spurning um orðalag heldur hjartalag."
Meira
Ég er viss um að margir væru til í að stofna félag um að flytja inn lítil og stór hús til uppsetningar fyrir ungt fólk sem fyrsta húsnæði. Leita yrði tilboða á Norðurlöndum og hægt væri að flytja inn slík hús þaðan.
Meira
Eftir Sigurð Sigurðsson: "Miðað við mikla aukningu á krabbameini þá virðist manni að eiturefnaviðvaranir á húð- og snyrtivörum mættu vera meiri og eftirlitið skilvirkara."
Meira
Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson: "Þessi atburðarás, sem raunar stendur ennþá yfir, er að mínum dómi afar merkileg, ekki síst vegna þess að hún er um menn með réttlætiskennd, sem byggist á hugsjónum þeirra, og þrek til að standa við þær þótt óþokkar sæki að."
Meira
Eftir Kristin Heiðar Fjölnisson, Sigurborgu Sveinsdóttur, Þóru Kristínu Stefánsdóttur og Kristínu Sigríði Garðarsdóttur: "Það er markmið okkar að hið góða starf þjónustunnar verði viðurkennt og þegið með þökkum inn í almenna heilsugæslu í þjóðfélaginu..."
Meira
Eftir Helga Seljan: "... enn er það svo að öryrkjar svo og fjölmargir ellilífeyrisþegar og láglaunafólk bera hræðilega skarðan hlut frá borði ..."
Meira
Björgvin Hjaltason, Venni, fæddist í Reykjavík 4. nóvember 1932. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 14. nóvember 2015. Foreldrar Björgvins voru Þóra Guðmundsdóttir og Hjalti Benónýsson, sem bæði eru látin. Eiginkona Björgvins var Daisy Karlsdóttir, f. 26.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Eyjólfs Sigurðsson fæddist í Reykjavík 25. janúar 1968. Hann lést á heimili sínu 10. nóvember 2015. Foreldrar Guðmundar eru Sigurður Vilhelm Ólafsson f. 2.11. 1937, og Bára Norðfjörð Guðmundsdóttir, f. 7.9. 1936.
MeiraKaupa minningabók
Hjalti Már Baldursson fæddist 9. febrúar 1980. Hann lést í flugslysi 12. nóvember 2015. Foreldrar hans eru Baldur Freyr Kristinsson, f. 11.8. 1952, og Guðrún Elísabet Jensdóttir, f. 25.9. 1960. Systkini Hjalta eru: 1) Fannar, f. 25.9.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður G. Sigurðsson fæddist í Vestmannaeyjum 1. desember 1937. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 9. nóvember 2015. Foreldrar hans voru Sigurður Gottskálksson, fæddur 23. ágúst 1896, dáinn 5. apríl 1955, og Dýrfinna Ingvarsdóttir, fædd 7.
MeiraKaupa minningabók
Sonja Reynisdóttir fæddist 2. mars 1963 á Þórshöfn á Langanesi. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 16. nóvember 2015. Foreldrar hennar eru Reynir Guðmannsson, f. 4. júlí 1937, og Ólöf Magnúsdóttir, f. 15. janúar 1942.
MeiraKaupa minningabók
Í þremur tilkynningum sem sendar voru til Kauphallar í gær kemur fram að Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður Nýherja, og tengdir aðilar hafi selt samtals níu milljón hluti í Nýherja á genginu 14,7 krónur á hlut.
Meira
Baksvið Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is „Það hefur verið stefna stjórnarinnar að bjóða sjóðfélögum upp á hagstæð kjör og þetta er bara eitt skref í þá áttina að vera með einna hagstæðustu kjörin á markaðnum.
Meira
Gengi hlutabréfa í Marel tók kipp við opnun Kauphallarinnar í gær í kjölfar þess að félagið tilkynnti um helgina að það hefði samþykkt kaup á MPS, hollenskum framleiðanda á kjötvinnslubúnaði.
Meira
Kröfuhafar LBI, slitabús gamla Landsbankans, samþykktu í gær frumvarp að nauðasamningi slitabúsins á kröfuhafafundi á Hótel Hilton Nordica. Frumvarpið var samþykkt með 99,76% atkvæða eftir fjárhæðum og 99,67% atkvæða eftir höfðatölu.
Meira
Skáldsagan Lísa í Undralandi eftir breska heimspekinginn Lewis Carroll kom fyrst út fyrir 150 árum. Nánar tiltekið 26. nóvember 1865. Af því tilefni efnir Bókasafn Kópavogs til sérstakrar Lísudagskrár, annars vegar á morgun, 25.
Meira
Skaðabótakröfur fyrir fórnarlömb talídómíð, lyfs sem á sjötta og sjöunda áratug liðinnar aldar er talið hafa valdið vanskapnaði um tíu þúsund barna í um 46 löndum, standa enn yfir.
Meira
Hún segir að sér líði nánast eins og hún sé stödd inni í tölvuleik þegar hún brunar á fjallahjólinu niður kletta og klungur. Að fá að leika sér úti í íslenskri náttúru á fjallahjóli og njóta fegurðarinnar er það skemmtilegasta sem hún gerir. Og uppáhaldshjólavinirnir eru synir hennar og systir.
Meira
Páll Imsland heilsaði leirliði í regnúðanum með þessum orðum: „Ég sá fyrir skömmu í Limrubókinni, sem líta má í af og til eins og biflíuna, frábæra limru eftir Hjörleif Hjartarson sem bæði var limra og ekki limra og snerist um rímorðið limra, sem...
Meira
40 ára Auður býr í Reykjavík, er fv. verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, var að klára BA-nám í frönsku og stefnir á að vinna við þýðingar. Maki : Benjamin Bohn, f. 1972, yfirmaður hjá CCP. Börn : Sunna, f. 2005, og Óskar, f. 2008.
Meira
Einar Kárason fæddist í Reykjavík 24. nóvember 1955. Hann ólst upp í Hlíðum og Háaleitishverfi. „Ég er því Reykvíkingur en allt mitt fólk er Vestfirðingar og mér finnst ég vera það líka.
Meira
Drottinn fer sjálfur fyrir þér, hann verður með þér. Hann mun hvorki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig. Óttastu ekki og láttu ekki hugfallast.
Meira
50 ára Ingigerður er frá Andrésfjósi á Skeiðum en býr á Eyrarbakka og vinnur við umönnun. Maki : Guðjón Guðmundsson, f. 1970, rafvirki. Börn : Ingunn, f. 1987, Ægir, f. 1991, Guðmundur Ingi, f. 1997, og Ingimar, f. 2000.
Meira
Jón og séra Jón. S-Allir Norður &spade;Á104 &heart;ÁK864 ⋄D72 &klubs;Á9 Vestur Austur &spade;KG7632 &spade;D85 &heart;10 &heart;53 ⋄G10 ⋄K964 &klubs;D1082 &klubs;7543 Suður &spade;9 &heart;DG972 ⋄Á853 &klubs;KG6 Suður spilar...
Meira
Vigfús Karlsson, sem rekur tölvunám.is, er fertugur í dag. Tölvunám.is er kennsluvefur í tölvu- og upplýsingafræði. „Þetta er vefur sem er bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Við kennum ýmis forrit eins og Word og Excel.
Meira
30 ára Magnús er Sauðkrækingur og er útibússtjóri hjá Arion banka í Skagafirði. Maki : Anna Hlín Jónsdóttir, f. 1985, kennari við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Börn : Pálína Petra, f. 2011, og Patrekur Elí, f. 2012. Foreldrar : Reynir Barðdal, f.
Meira
Orðasambandið að mæla með e-u getur þýtt tvennt: að setja fram meðmæli með e-u eða mæla með mælitæki eða - kvarða , málbandi t.d. En í fyrra tilfellinu beygist sögnin: mæla, mælti , hef mælt – í því síðara mæla, mældi , hef mælt.
Meira
Seltjarnarnes Zarja Guðrún Þóra Magnúsdóttir fæddist 25. júní 2015 kl. 9.17. Hún vó 3.850 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Zdenka Zurga og Magnús Sigurðsson...
Meira
Sigurður Magnússon fæddist á Skorrastað í Norðfirði 24. nóvember 1869. Hann var sonur hjónanna Magnúsar Jónssonar prests og k.h. Vilborgar Sigurðardóttur húsfreyju. Eldri bróðir Sigurðar var Jón Magnússon, fyrsti forsætisráðherra Íslands.
Meira
Víkverji naut þess í góðum félagsskap um helgina að hlýða á uppistand hjá Ara Eldjárn. Drengurinn sá er magnaður, eins og fjölmargir geta vitnað um sem á hann hafa hlustað og horft.
Meira
24. nóvember 1972 Suðurlandsvegur milli Reykjavíkur og Selfoss var formlega tekinn í notkun. Hann hafði verið endurbyggður og lagður bundnu slitlagi. Verkið tók sex ár. 24.
Meira
Hverjar eru líkurnar á að Los Angeles Lakers taki upp á því að vinna Golden State Warriors í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt og komi í veg fyrir að ríkjandi meistarar deildarinnar setji nýtt og glæsilegt met í sigurleikjum?
Meira
Alfreð Finnbogason og félagar í gríska liðinu Olympiacos geta tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld takist þeim að krækja í stig gegn Bayern München í Þýskalandi.
Meira
FIFA Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Geir Þorsteinsson og aðrir formenn knattspyrnusambandanna á Norðurlöndunum fengu að kynnast fjórum af fimm frambjóðendum til forseta FIFA, á fundi í Danmörku í gær.
Meira
Florentino Pérez, forseti Real Madrid, blés til blaðamannafundar í gær þar sem hann tilkynnti miklum fjölda gesta að knattspyrnustjórinn Rafael Benítez nyti fyllsta trausts.
Meira
Miklar breytingar eru fyrirhugaðar á Eimskipsmótaröðinni í golfi en starfshópur á vegum Golfsambandsins skilaði af sér tillögum þess efnis á nýafstöðnu þingi sambandsins.
Meira
Serbneski tennisleikarinn Novak Djokovic batt endahnút á frábæran árangur sinn á árinu með því að leggja Svisslendinginn Roger Federer að velli í úrslitaleik á ATP World Tour Finals á sunnudaginn og tryggja sér þar með sigur á mótinu fjórða árið í röð.
Meira
Knattspyrnumaðurinn Emil Ásmundsson er á förum frá enska B-deildarfélaginu Brighton & Hove Albion, en þetta staðfesti hann í samtali við vefsíðuna Fótbolta.net í gær.
Meira
Sá besti Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Guðmundur Hólmar Helgason, fyrirliði Vals, er leikmaður 14. umferðar í Olís-deild karla í handknattleik en hann fór fyrir Hlíðarendaliðinu sem hafði betur gegn Gróttu, 26:24, á Seltjarnarnesi á laugardaginn.
Meira
G uðjón Valur Sigurðsson er næstmarkahæsti leikmaður Barcelona í spænsku 1. deildinni í handknattleik á leiktíðinni. Guðjón Valur hefur skorað 49 mörk í fyrstu 11 leikjum Börsunga en spænsku meistararnir eru með fullt hús stiga.
Meira
Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Andri Tryggvason, sem leikur með KR, mun æfa með hollenska liðinu Feyenoord næstu daga. Guðmundur Andri hélt til Hollands í fyrrinótt ásamt Henrik Bödker, aðstoðarþjálfara KR-liðsins.
Meira
Hinn 22 ára gamli knattspyrnumaður Ingólfur Sigurðsson hefur skrifað undir samning til tveggja ára við Fram. Hann mun því leika með Frömurum í 1.
Meira
Axel Stefánsson er þjálfari B-landsliðs Noregs í handknattleik kvenna sem mætir A-landsliði Íslands í tveimur vináttulandsleikjum um næstu helgi. Axel var á árum áður markvörður Þórs á Akureyri og síðar Vals.
Meira
• Ingólfur Óskarsson var í íslenska landsliðinu í handknattleik sem sigraði Spánverja, 22:13, í vináttulandsleik í íþróttahúsinu á Keflavíkurflugvelli 24. nóvember árið 1964.
Meira
Neymar og Luis Suárez eru búnir að skora í sameiningu 23 af 29 mörkum Spánar- og Evrópumeistara Barcelona í spænsku deildinni á tímabilinu. Neymar er markahæsti leikmaður deildarinnar með 12 mörk og fast á hæla hans kemur Suárez með 11.
Meira
Olís-deild karla ÍBV – Afturelding frestað Danmörk Ribe-Esbjerg – SönderjyskE 22:27 • Árni Steinn Steinþórsson skoraði eitt mark fyrir SönderjyskE. Daníel Freyr Andrésson ver mark...
Meira
Sá besti Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Reginald Keil Dupree, betur þekktur sem Reggie Dupree, lagði svo sannarlega sitt af mörkum þegar Keflvíkingar lögðu Íslandsmeistara KR-inga, 89:81, í síðustu viku.
Meira
Fyrirliðinn Ashley Williams og sóknarmaðurinn André Ayew, liðsfélagar Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Swansea, hafa lýst yfir stuðningi leikmanna við knattspyrnustjórann Garry Monk sem þykir afar valtur í starfi vegna slæms gengis liðsins í vetur.
Meira
Það er stundum haft á orði að ástæða þess hve margir glæsilegir bílar komust í almenna framleiðslu á 6. og 7. áratugnum sé sú að í þá daga drógu bílar sem framleiddir voru fyrir almenning mjög ríkulega dám af keppnisbílum viðkomandi fyrirtækis.
Meira
Fiat er að senda frá sér nýjan tveggja sæta opinn sportbíl, Fiat 124 Spider, sem ítalski bílsmiðurinn hefur þróað í samstarfi við Mazda. Er hann byggður upp af undirvagni Mazda MX-5 en hönnunin er ítölsk og í aflrásinni hverfilblásin vél.
Meira
Ford Mondeo var nýlega valinn fyrirtækjabíll ársins 2016 í Danmörku, annað árið í röð. Hann hlaut einnig titilinn fjölskyldubíll ársins í Bretlandi nú nýlega og var þar að auki valinn „Best Estate car“ af WhatCar?
Meira
Sjaldan eða aldrei hafa fleiri mótorhjól prýtt sýningarbásana á EICMA-mótorhjólasýningunni en einmitt núna. Fjöldi nýrra alls kyns gerða var frumsýndur. Til að hægt sé að fjalla um það sem helst bar fyrir augu verður upptalning á helstu tegundum að...
Meira
Ný kynslóð af tengiltvinnbílnum Toyota Prius, sú fjórða í röðinni, verður mun öflugri en samt sparneytnari en þær fyrri. Tekur skilvirkni hans miklum breytingum til hins betra, að sögn Toyota.
Meira
Þegar leitast er við að fara ótroðnar slóðir í kynningar- og markaðsstörfum er gott að hugmyndaflugið sé frjótt. Þeir kostir virtust alla vega fyrir hendi hjá þeim sem stóðu fyrir kynningu í Kína vegna 45 ára afmælis Range Rover.
Meira
Toyota og Lexus efndu til sýningar í Kauptúni laugardaginn 14. nóvember sl. Lexus sýndi þar nokkrar myndarlegar sportútfærslur á meðan Toyota hélt hátíðlega Vetrarfönn.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.