Fundi í kjaradeilu fulltrúa starfsmanna álversins í Straumsvík og stjórnenda lauk á sjötta tímanum í gær án þess að niðurstaða fengist. Fulltrúar hittast að nýju á fundi á mánudag klukkan 11. Yfirvofandi er að verkfall hefjist í álverinu á miðvikudag.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Stéttarfélög sjómanna, vélstjóra og skipstjórnenda hafa enn ekki gert nýjan kjarasamning við útgerðarmenn. Samningar hafa verið lausir frá árinu 2011 og kjaradeilan hefur verið á borði ríkissáttasemjara frá 2012.
Meira
Hinn árlegi jólabasar KFUK verður haldinn í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 laugardaginn 28. nóvember kl. 14.00-17.00. Á boðstólum verður handverk ásamt ljúffengum kökum, t.d. jólasmákökur og tertur, sultur og marmelaði.
Meira
Forrannsókn á matarsóun heimila í Reykjavík bendir til að a.m.k. 5.800 tonnum af mat og drykk sé hent af reykvískum heimilum árlega, en 17 heimili tóku þátt í rannsókninni. Þetta samsvarar a.m.k.
Meira
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Það er mat sérfræðinga Hagstofu Íslands að aukinn fjöldi brottfluttra íslenskra ríkisborgara sé „ekki umfram það sem telja má eðlilega sveiflu miðað við fyrri ár“.
Meira
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is „Þetta er skemmtilegt ferðalag að leggja upp í á hverju ári. Ég er hætt að leika svona opinberar sýningar eins og verður í Sólheimasafni.
Meira
Fréttaskýring Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Viðræður samtaka á vinnumarkaði um útfærslu Salek-rammasamkomulagsins hafa gengið ágætlega að undanförnu en skv.
Meira
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Skólastjórnendur í Reykjavík eru uggandi vegna niðurskurðar borgarinnar til skóla- og frístundasviðs um 669 milljónir króna á næsta ári.
Meira
Biskup Íslands hefur auglýst laust til umsóknar embætti sóknarprests í Nesprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Embættið veitist frá 1. febrúar 2016. Biskup Íslands skipar í embætti sóknarprests til fimm ára.
Meira
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur hafnað beiðni frá EAB Ný orku ehf. um uppbyggingu vindmyllugarða í sveitarfélaginu. Félagið hefur umboð fyrir samnefnt vindorkufyrirtæki í Þýskalandi sem hefur haft áform um uppsetningu vindmyllugarða hér á landi.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Lækningatækið og fjarbúnaðurinn Agnes, sem settur var upp á heilsugæslustöðinni á Kirkjubæjarklaustri 2013, hefur gefið góða raun að sögn Auðbjargar Brynju Bjarnadóttur, hjúkrunarstjóra og ljósmóður hjá HSU.
Meira
Fjórði Billy-drengurinn bætist við í kvöld þegar Bjarni Kristbjörnsson þreytir frumraun sína í aðalhlutverkinu í söngleiknum Billy Elliot hjá Borgarleikhúsinu.
Meira
Aðventuhátíð verður haldin í Kópavogi 28. og 29. nóvember með jóladagskrá fyrir alla fjölskylduna. Hátíðin er að þessu sinni á nýjum stað, á túninu við menningarhúsin í Hamraborg og verður einnig dagskrá í menningarhúsunum laugardag og sunnudag.
Meira
Flutningabifreið með tengivagn fór á hliðina í Bolöldu við Jósepsdal í gærmorgun. Ökumaður flutningabílsins var fluttur á slysadeild til skoðunar en hann slasaðist ekki alvarlega. Bifreiðin var ekki á mikilli ferð þegar hún fór á hliðina.
Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hóf í gærkvöldi árvisst eftirlit með umferðinni á þessum árstíma, með áherslu á ölvunarakstur. Fylgst var með fólki á leið vestur eftir Sæbraut og voru sex lögreglumenn við eftirlitsstörf.
Meira
Snjórinn býður upp á ýmsa skemmtun og sjálfsagt er að taka myndir af gæðastundum í hvítri mjöllinni. Snjórinn hefur líka í för með sér ófærð og erfiðleika og í fyrrinótt snjóaði talsvert á suðvesturhorninu.
Meira
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Garðar Eiríksson, talsmaður Landeigendafélags Geysis, kveðst ánægður með að ríkið vilji ræða við landeigendur um möguleg kaup þess á eignarhluta landeigenda að Geysis-svæðinu.
Meira
Sumar konur upplifa fæðingu sem svo slæma reynslu að þær fá einkenni áfallastreituröskunar. Mætti reikna með að allt að 200 íslenskar konur lendi í þessum sporum ár hvert.
Meira
Hjálparstarf kirkjunnar undirbýr nú stærsta verkefni sitt á árinu en það er sérsök aðstoð við efnalitlar fjölskyldur í desember vegna jólahaldsins.
Meira
François Hollande, forseti Frakklands, sagði í gær, að Frakkar myndu mæta „her ofstækismannanna“, sem stóð fyrir hryðjuverkaárásum í París fyrir hálfum mánuði, með söngvum, tónleikum og leiksýningum.
Meira
Samninganefndir Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar, skrifuðu undir nýjan kjarasamning fyrir leikskólakennara seint í fyrrakvöld. Launahækkanir samkvæmt samningnum eru afturvirkar frá 1.
Meira
Jólaljósin verða tendruð á Akratorgi, Akranesi laugardaginn 28. nóvember 16.00. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri aðtoðar barnabörn Bjarna Þóroddssonar, sem gróðursetti tréð fyrir 20 árum við að tendra ljósin á trénu. Jólaskemmtun hefst klukkan 14.
Meira
Á sunnudaginn, 29. nóvember, verða ljósin tendruð á Óslóartrénu við hátíðalega athöfn á Austurvelli og hefst hún klukkan 15.30. Dagskráin verður með hefðbundnum hætti.
Meira
Í gærmorgun var jörð alhvít í fyrsta sinn á þessu hausti í Reykjavík. „Og það munar aldeilis um það. Snjódýptin var mæld 21 cm sem er sú mesta á landinu ásamt Ólafsfirði.
Meira
Aldrei hafa fleiri ný tilfelli HIV-smits, sem veldur alnæmi, greinst í Evrópu á einu ári en í fyrra. Fjölgunin er einkum í Rússlandi og meðal innflytjenda, sem smituðust af veirunni eftir að þeir komu til álfunnar.
Meira
Ofbeldi gegn öldruðum getur tekið á sig ýmsar myndir og meðal annars verður eldra fólk fyrir líkamlegu, andlegu og kynferðislegu ofbeldi. Þá eru einnig líkur á því að aldraðir verði fyrir vanrækslu eða fjárhagslegri misbeitingu.
Meira
Meiri snjó Þá glettast fer krakkakórinn/ er kemur jólasnjórinn/ og æskan fær aldrei nóg,/ meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó. Þessar stúlkur kunna vel að meta snjóinn eins og höfundur...
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra telur Morgunblaðið hafa rangtúlkað ummæli sem það hafði eftir Matthias Brinkmann, sendiherra ESB á Íslandi.
Meira
Árviss rithöfundalest fer um Austurland um helgina. Meðal höfunda sem lesa úr nýjum verkum sínum eru Iðunn Steinsdóttir, Jón Gnarr og Kristín Helga Gunnarsdóttir. Auk þess verða með í för austfirskir höfundar og þýðendur. Í dag kl.
Meira
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Fram kemur í fjáraukalögum að rekstrarafkoma ríkisins er rúmum 17 milljörðum kr. betri en gert var ráð fyrir í fjárlögum.
Meira
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Héraðsdómur Suðurlands hefur ógilt tvær ákvarðanir meirihluta hluthafa í Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyjum, frá 8. október 2014.
Meira
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is „Við erum ekki að fara fram á að borgin skerði lögbundna þjónustu vegna þess að það þurfi að endurnýja gervigrasvelli.
Meira
Vinna er nú hafin við að setja upp tæplega 400 fermetra skautasvell á Ingólfstorgi sem umbreytist í Ingólfssvell í desember. Nova stendur að svellinu í samstarfi við Samsung í tilefni af 8 ára afmæli Nova 1.
Meira
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Skólastjórnendur í Reykjavík eru uggandi vegna niðurskurðar Reykjavíkurborgar til skóla- og frístundasviðs sem er um 669 milljónir króna á næsta ári.
Meira
Stígamót veittu í gær árlegar viðurkenningar sínar í áttunda sinn. Á sama tíma fór fram athöfn hjá Sólstöfum, systursamtökum Stígamóta á Ísafirði, þar sem einn verðlaunahafinn er búsettur.
Meira
Vaxandi áhyggjur eru nú í viðræðum samtaka á vinnumarkaði um útfærslu Salek-rammasamkomulagsins vegna þess að ríkisstjórnin hefur enn ekki kynnt tillögur til að uppfylla hlut stjórnvalda í samkomulaginu.
Meira
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Rússnesk stjórnvöld ákváðu í gær að beita refsiaðgerðum gegn Tyrkjum fyrir að hafa skotið niður rússneska herþotu við landamæri Tyrklands og Sýrlands á þriðjudaginn var.
Meira
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs voru afhent á sérstöku afmælisþingi Rannís sl. fimmtudag, en um þessar mundir eru 75 ár síðan Rannsóknaráð Íslands var stofnað. Tveir ungir vísindamenn hlutu verðlaunin. Dr.
Meira
Sinfóníuhljómsveit Íslands: Claude Debussy: Forleikur að Síðdegi skógarpúkans (1892-1894) og La mer (1903-1905), György Ligeti: Lontano (1967), Gustav Mahler: Kindertotenlieder (1901-1904) og Collider (2015) eftir Daníel Bjarnason – frumflutningur...
Meira
Kvenleikar nefnist listsýning Erlu Þórarinsdóttur sem opnuð verður á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju á morgun, sunnudag, við messulok kl. 12.15.
Meira
Eitt er plata eftir þá Jón Ólafsson og Futuregrapher sem er listamannsnafn Árna Grétars Jóhannessonar. Jón leikur á píanó en Futuregrapher sér um hljóðgervla og áhrifs- og vettvangshljóð. Jón og Árni hljóðblönduðu en Finnur Hákonarson hljómjafnaði. Möller Records gefur út.
Meira
Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju verða haldnir 18. desember kl. 23, 19. desember kl. 20 og 20. desember kl. 20, en áratugalöng hefð er fyrir tónleikunum. Þar koma fram Kór Langholtskirkju og Gradualekór Langholtskirkju.
Meira
„Gáttir – Gleym mér ey“ nefnist sýning með verkum þriggja listakvenna, Bryndísar Hrannar Ragnarsdóttur (f. 1974), Gunnþórunnar Sveinsdóttur (1885-1970)og Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur (f.
Meira
Samsýning átta nemenda á fyrra ári meistarastigs við Listaháskóla Íslands verður opnuð í Nýlistasafninu í Breiðholtinu, í Völvufelli 13-21, í dag, laugardag, kl. 16.
Meira
Fyrstu aðventutónleikar hins nýstofnaða Óperukórs Mosfellsbæjar verða í Aðventkirkjunni, Ingólfsstræti 19, á morgun, sunnudag, kl. 16. Antonia Hevesi leikur með á píanó. Stjórnandi er Julian M. Hewlett.
Meira
Sýning á myndverkum Þorgerðar Sigurðardóttur verður opnuð í Grensáskirkju í dag, laugardag, klukkan 14. Þorgerður lést árið 2003 en hún hefði orðið sjötug í dag hefði hún lifað.
Meira
Leiksýningin How to Become Icelandic in 60 minutes eftir Bjarna Hauk Þórsson, í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar, hefur verið sýnd í Hörpu frá árinu 2012 og í dag verður hún sýnd í þrjúhundraðasta sinn.
Meira
Taívanska kvikmyndin The Assassin er sú besta af þeim sem frumsýndar voru á árinu að mati 168 gagnrýnenda víða um lönd. Þeir svöruðu könnun fyrir tímaritið Sight & Sound sem birti niðurstöðurnar í vikunni.
Meira
Eftir Þórhall Heimisson: "Sjálft inntak námskeiðanna hefur þess vegna lítið breyst í gegnum árin – að hjálpa þátttakendum að greiða úr flækjum lífsins."
Meira
Eftir Helga Sigurðsson: "Þannig er tryggð ákveðin leynd um það þegar tilteknum einstaklingum er veitt friðhelgi frá því að allir séu jafnir fyrir lögum."
Meira
Lögfræðistofan vann Lögfræðistofa Íslands vann 1. deild deildakeppninnar en sveitin sigraði sveit Grant Thornton í úrslitaleik 167-93. Þrír frakkar unnu 2. deildina með 96,76 stigum en í 2. sæti varð sveit Frímanns Stefánssonar með 89,26. Í 3.
Meira
Eftir Halldór Þorsteinsson: "Það er alveg á hreinu að stofnun Ísraelsríkis hefur átt sinn þátt í því að magna hatrið og heiftina í þessum ógnvænlegu og örlagaríku átökum."
Meira
Ég sá siguratriði Hagaskóla í Skrekk 2015 í fyrsta sinn á Jafnréttisþingi sl. miðvikudag. Það þarf vart að taka fram að konur voru stór meirihluti viðstaddra. Við sátum í stórum sal á Hilton og upptöku af atriðinu var varpað á skjá.
Meira
Fyrr á tímum var börnum kennt að tala rétt af öllu minna umburðarlyndi en nú tíðkast. Þegar þau töluðu vitlaust voru þau umsvifalaust leiðrétt og stanslaust ef þau létu sér ekki segjast. „Ekki segja heingur, segðu hangir!
Meira
Einar Kristjánsson fæddist 15. ágúst 1917. Hann lést 31. október 2015. Kristín Bergmann Tómasdóttir fæddist 12. ágúst 1926. Hún lést 1. ágúst 2015.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Guðmundsson fæddist í Hnífsdal 11. apríl 1916, og ólst þar upp. Hann lést á Landspítalanum 13. nóvember 2015. Foreldrar hans voru Guðmundur Stefán Guðmundsson formaður í Hnífsdal, f. 7.12. 1877, d. 22.2.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Dagný Kristjánsdóttir fæddist í Hvammi við Fáskrúðsfjörð 28. september 1925. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 12. nóvember 2015. Foreldrar hennar voru Guðrún Magnúsdóttir, f. 6. júlí 1902, d. 3. október 1925, og Kristján Jóhannsson, f. 1.
MeiraKaupa minningabók
Kristbjörg Sigurjóna Bjarnadóttir fæddist í Stóru-Brekku í Fljótum 13. maí 1935. Hún lést 22. nóvember 2015. Foreldrar hennar voru Bjarni Kristjánsson bóndi í Ökrum og eiginkona hans Aldís Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja.
MeiraKaupa minningabók
28. nóvember 2015
| Minningargrein á mbl.is
| 769 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Ragnheiður G. Rasmussen fæddist 28. ágúst í Reykjavík 1932. Hún lést á heimili fyrir aldraða í Helsingör í Danmörku 20. nóvember 2015.
MeiraKaupa minningabók
Ragnheiður G. Rasmussen fæddist 28. ágúst í Reykjavík 1932. Hún lést á heimili fyrir aldraða í Helsingör í Danmörku 20. nóvember 2015. Ragnheiður eignaðist þrjú börn með fyrri manni sínum og eru það þau Guðrún Kaldan, Tryggvi Kaldan og Kristín Kaldan.
MeiraKaupa minningabók
Steingerður fæddist á Öndólfsstöðum í Reykjadal 8. maí 1932. Hún lést 12. nóvember 2015 á dvalarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri. Foreldrar Steingerðar voru Jón Stefánsson, bóndi og byggingameistari, f. 8. apríl 1900, d.
MeiraKaupa minningabók
Í bígerð er að stofna afurðamiðstöð fyrir viðarafurðir á Austurlandi. Félag skógarbænda á Austurlandi stendur á þriðjudag í næstu viku fyrir kynningarfundi á Egilsstöðum þar sem fyrirætlanir þessa verða kynntar.
Meira
Ég stefndi aldrei á núverandi starf sem er þó algjör draumur. Verkefnin hér á Klaustri eru fjölbreytt, hér stendur til að efla ferðaþjónustu, búskapinn og atvinnulífið. Tækifærin eru fyrir hendi. Sandra Brá Jóhannsdóttir, sveitarstjóri...
Meira
Ritstjórn Framhaldsskólablaðsins, Halla Kristín Einarsdóttir og Sigrún Stefánsdóttir fengu á dögunum viðurkenningar Jafnréttisráðs vegna fjölmiðlaumfjöllunar sem tengist jafnrétti kynjanna.
Meira
Í vikunni hóf flugfélagið WOW air sölu sæta í ferðum sínum til Bristol á Englandi en flug þangað hefst 13. maí á næsta ári. Flogið verður þrisvar sinnum í viku; á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, allan ársins hring.
Meira
Fulltrúar SÁÁ og iKorta hafa gert samning um útgáfu fyrirframgreiddra greiðslukorta frá MasterCard fyrir velunnara SÁÁ. Hluti af tekjum vegna notkunar iKorthafa mun renna til SÁÁ.
Meira
Framsýn, stéttarfélag í Þingeyjarsýslum, skorar í ályktun sem stjórn og trúnaðarmannaráð félagsins samþykkti í vikunni, á Alþingi að falla frá því sem kallað er löngu úreltu kerfi, að þingið skammti minnihlutahópum í þjóðfélaginu launahækkanir sem séu...
Meira
Það eru vonbrigði að engin áform séu um að lækka tryggingagjaldið árið 2016 þrátt fyrir að atvinnuleysi sé hverfandi , segir í fréttabréfi Samtaka atvinnulífsins.
Meira
Skuldastaða fyrirtækja í sjávarútvegi hefur batnað á síðustu árum eftir að hafa náð hámarki 2009. Það ár fóru skuldir útgerðarinnar í 494 milljarða króna.
Meira
Skuldahlutfall Dalvíkurbyggðar mun lækka úr rúmum 84,1% árið 2014 í 80,2% árið 2016. Ef áætlanir þriggja ára áætlunar til 2019 ganga eftir verður skuldahlutfallið komið vel undir 80%. Þetta kemur fram í frétt frá sveitarfélaginu.
Meira
Baksvið Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is Flestir eða 73% þeirra sem sitja í endurskoðunarnefndum telja að með tilkomu slíkra nefnda hafi aukist gagnsæi í reikningsskilum, fjármálum og endurskoðun.
Meira
Í aðdraganda jólanna geta fjölskyldur tekið sér ótal margt skemmtilegt fyrir hendur til að auka verulega á jólagleðina. Barna- og fjölskylduviðburðir Borgarbókasafnsins eru afar heppilegir til þess.
Meira
Meistarar dauðans er þungarokkssveit ungra drengja sem eiga allir framtíðina fyrir sér á tónlistarsviðinu. Þeir hafa nú gefið út sína fyrstu plötu og koma fram á tónlistarhátíðinni Rokkjötnar í Vodafone-höllinni í byrjun desember.
Meira
Hlöðver Jóhannsson , fyrrverandi skrifstofustjóri hjá Vegagerð ríkisins, Núpalind 8 í Kópavogi, verður 90 ára 29. nóvember. Hann fagnar afmæli sínu með fjölskyldu og...
Meira
Rósa fæddist í Reykjavík 29.11. 1965 og ólst upp í Hlíðunum til tíu ára aldurs. Hún var í skóla Ísaks Jónssonar og Æfingadeild Kennaraháskólans. Fjölskyldan flutti síðan í Hafnarfjörðinn þar sem Rósa var í Víðistaðaskóla.
Meira
Gunnar Andrésson er þjálfari Gróttu í handbolta karla. Hann kom liðinu upp í efstu deild í vor og var kjörinn besti þjálfari 1. deildar karla í framhaldinu. „Við erum á þokkalegu róli um miðja deildina en viljum helst vera ofar.
Meira
Fjóla Guðrún Sigtryggsdóttir varð stúdent frá MR 1989, lauk lokaprófi í byggingarverkfræði frá HÍ 1993 og meistaragráðu frá NCSU, Raleigh, BNA 1994.
Meira
Nes sem eru inni í flóum eða fjörðum nefnast innnes . Matvælafyrirtæki eitt ber sérnafnið Innnes . Það var og haft um Seltjarnarnes og Álftanes , sem eru inni í Faxaflóa og því réttnefnd innnes .
Meira
Reykjavík Valgerður Friðriksdóttir fæddist í Reykjavík 28. nóvember 2014. Hún vó 3.860 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru S vava Óskarsdóttir og Friðrik Helgason...
Meira
Rússar unnu tvöfaldan sigur á Evrópumótinu í skák sem lauk í Laugardalshöll um síðustu helgi. Undanfarin ár hefur rússneskum liðum gengið allt annað en vel í flokkakeppnum og hafa þau margoft mátt sjá á eftir gullinu í greipar annarra þjóða.
Meira
Síðasta vísnagáta var sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Háslétta það heiti ber. Heitir líka kjarrlendið. Himinn blár og bjartur er. Bungu lága sjáum við. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Ég fór um Hellisheiði, og Heiðmerkur reit.
Meira
Snjórinn, snjórinn, snjórinn alls staðar. Mikil ósköp sem Víkverja þykir snjórinn yndislegur. Að heyra marrið undan kuldaskónum þegar gengið er í fönninni. Og loftið, einstaklega hreint og tært og ekki laust við að það bíti aðeins í kinnarnar.
Meira
28. nóvember 1909 Sjö þúsund manns komu saman á Lækjartorgi til að mótmæla aðgerðum ráðherra landsins gegn Landsbankanum og stjórnendum hans. „Stærsti mannsöfnuður sem sést hefur í Reykjavík,“ sagði blaðið Reykjavík. 28.
Meira
Fótbolti Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Þegar komið er í átta liða úrslitin eru bara góð lið eftir og þá er alveg eins gott að mæta þeim bestu. Ég viðurkenni þó fúslega að ég hefði alveg vilja mæta t.d.
Meira
Handbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Við erum komin með nokkra nýja hluti sem við þurfum að fara í gegnum, og nokkrar nýjar stelpur sem þurfa að komast betur inn í hlutina.
Meira
„Þetta er alls ekki ómögulegt verkefni og við lítum svo á að við séum bara einum leik frá því að komast í riðlakeppnina,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Íslandsmeistara Hauka, við Morgunblaðið í gærkvöld en Haukar mæta franska liðinu...
Meira
Júdókappinn Þormóður Árni Jónsson er staddur á eyjunni Jeju, sem tilheyrir Suður-Kóreu, en þar hóf hann keppni á Grand Prix-móti í nótt, eða á laugardagsmorgni að staðartíma.
Meira
Í Lissabon Baldur Haraldsson sport@mbl.is ÍBV tapaði með tveggja marka mun, 28:26, í fyrri leik sínum gegn Benfica í 3. umferð Áskorendabikars karla í handknattleik í Lissabon í gær. Það var skemmtileg stemning í Pavilhao-höllinni í Lissabon í...
Meira
• Viðar Guðjohnsen sigraði í 86 kg flokki á Opna skandinavíska mótinu í júdói, fyrstur íslenskra júdómanna, í Finnlandi í nóvember 1976, þá 18 ára gamall, og sigraði þar m.a. bronsverðlaunahafa frá Ólympíuleikunum sama ár.
Meira
Jakob Örn Sigurðarson, landsliðsmaður í körfuknattleik, var tekjuhæsti leikmaðurinn í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta ári ef marka má úttekt sænska blaðsins Aftonbladet.
Meira
Karlalandslið Katar í handknattleik, undir stjórn Spánverjans Valero Rivera, tryggði sér í gær farseðilinn á Ólympíuleikana í Ríó í Brasilíu á næsta ári þegar liðið hafði betur á móti Íran, 28:19, í úrslitaleik Asíuhluta forkeppni Ólympíuleikanna sem...
Meira
Pétur Guðmundsson, Íslandsmethafi í kúluvarpi bæði innanhúss og utanhúss, stendur í dag fyrir kúluvarpsmóti í Laugardalshöll í tilefni þess að í ár eru 25 ár liðin frá því hann setti Íslandsmetin.
Meira
Snæfell nældi sér í tvö mikilvæg stig þegar liðið gerði góða ferð á Selfoss og lagði nýliða FSu að velli, 110:97, í lokaleik áttunda umferðar í Dominos-deild karla í körfuknattleik í gær.
Meira
Afreksíþróttir Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Það er ótrúlegt hvað þú styður marga þegar þú spilar í lottói. Það sem er samt enn ótrúlegra er hvað þú styður þá lítið.
Meira
Fótbolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslenskir knattspyrnuáhugamenn bíða sjálfsagt margir hverjir eftir því að heyra fréttir af landsliðsmarkverðinum Hannesi Þór Halldórssyni.
Meira
Starfsmenn fiskþurrkunar HB Granda á Akranesi hafa að undanförnu sótt námskeið í skyndihjálp á vegum Rauðakrossdeildarinnar á Akranesi. Slík námskeið eru fastur liður í þjálfun starfsfólks til sjós og lands.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.