Fréttaskýring Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Uppgangur lífeyrissjóðakerfisins hefur verið mikill á umliðnum áratugum. Saga Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, sem fagnar um þessar mundir 60 ára afmæli sínu, sýnir þetta vel.
Meira
Engar breytingar hafa orðið á viðbrögðum íslenskra sóttvarnayfirvalda og ráðleggingum þeirra vegna zika-veirunnar svonefndu, þrátt fyrir fréttir um að hún hafi greinst í nágrannalöndunum. Ferðamenn í sólarlöndum séu ekki í hættu.
Meira
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í umhverfis- og skipulagsráði hafa áhyggjur vegna aukningar heimagistingar og áhrifa á heilu göturnar og hverfin. Júlíus Vífill Ingvarsson og Hildur Sverrisdóttir lögðu fram fyrirspurn í ráðinu í fyrradag, þar sem m.a.
Meira
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í nýju virðismati sem KPMG hefur unnið fyrir stjórn Borgunar er fyrirtækið metið á 19 til 26 milljarða króna. Þetta herma áreiðanlegar heimildir Morgunblaðsins.
Meira
Fátt er Danskinum óviðkomandi. Það sannaðist enn og aftur um síðustu helgi þegar danska ríkissjónvarpið sýndi afar athyglisverða heimildarmynd um kynlíf aldraðra Dana.
Meira
Bresku lögreglunni ber skylda til þess að handtaka Julian Assange, stofnanda Wikileaks, ef hann fer út úr sendiráði Ekvador í Lundúnum. Þetta segir talsmaður ríkisstjórnar Bretlands í samtali við fréttaveituna AFP .
Meira
Hæstiréttur þyngdi í gær dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í svonefndu markaðsmisnotkunarmáli Landsbankans. Sigurjón Þ. Árnason, fv. bankastjóri Landsbankans, var dæmdur í 18 mánaða fangelsi og þrír fv. samstarfsmenn hans í 9-24 mánaða fangelsi.
Meira
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fyrir nokkrum misserum var verðlag í Noregi óhagstætt fyrir Íslendinga. Norska krónan var sterk en íslenska krónan enn að jafna sig eftir gengishrunið 2008.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum segir að samkvæmt langri reynslu fyrirtækisins séu nýtanleg 20 til 25 þúsund tonn af þangi í Breiðafirði á hverju ári. Það er lítið umfram hráefnisþörf fyrirtækisins.
Meira
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Trúnaðarráðsfundur grunnskólakennara í Reykjavík, haldinn í síðustu viku, lýsti yfir þungum áhyggjum af fjárhagslegri stöðu grunnskólanna í Reykjavík.
Meira
Málað yfir ósómann Sum verkefni þarf að inna af hendi aftur og aftur þótt þau geti verið hvimleið. Þessi þrautseigi maður sér um það þarfa verk að mála yfir ófagurt veggjakrot á...
Meira
Ljósahjúp Hörpu var breytt í stóran, gagnvirkan striga við setningu Vetrarhátíðar í Reykjavík í gærkvöldi. Höfundar verksins, sem heitir Slettireka, eru þeir Halldór Eldjárn og Þórður Hans Baldursson og sýndu þeir Degi B.
Meira
Hæstiréttur dæmdi í gær hollenska konu, Mirjam Foekje van Twuijver, í átta ára fangelsi fyrir stórfelldan innflutning á fíkniefnum til landsins. Áður hafði hún verið dæmd í 11 ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness.
Meira
Vökudeild Barnaspítala Hringsins átti 40 ára afmæli 2. febrúar sl. Hringskonum var boðið til afmælishátíðar í tilefni dagsins og þar tilkynnti formaður félagsins, Sonja Egilsdóttir, að samþykktar hefðu verið styrkbeiðnir að upphæð níu milljónir króna.
Meira
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Allt er á suðupunkti í Flint í Michiganríki þar sem neyðarástandi hefur verið lýst yfir eftir að upp komst að blýmagn í kranavatni er langt yfir mörkum.
Meira
Hin árlega hátíð Safnanótt er í kvöld og eru þá ýmsar sýningar opnaðar í söfnum og sýningarsölum og boðið upp á fjölbreytilega dagskrá. Viðamesta sýningin verður opnuð á Kjarvalsstöðum klukkan 16.
Meira
Forsvarsmenn Borgarsögusafns Reykjavíkur ákváðu í gærkvöldi að ratleikurinn Morð um borð sem vera átti í varðskipinu Óðni við Sjóminjasafnið á Grandagarði yrði blásinn af. Ástæðan er athugasemdir frá fyrrverandi varðskipsmönnum sem þótti of langt...
Meira
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Íslenskt skyr frá MS mun frá og með mánudeginum fást í Bretlandi en af því tilefni var efnt til veislu í sendiráðinu í London. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hélt meðal annars ávarp af því tilefni.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Seint í gærkvöldi stóð til að opna Suðurlandsveg úr Reykjavík austur í Hveragerði fyrir nóttina, en leiðinni var lokað í eftirmiðdaginn í gær þegar austanstætt hvassviðri og snjókoma gekk inn yfir landið.
Meira
Fjölmenningarsamfélagið Ísland verður skoðað frá fjölbreyttum sjónarhornum á viðamikilli ráðstefnu sem fram fer í Háskóla Íslands laugardaginn 6. febrúar nk. frá kl. 10-14.30.
Meira
Málefni Sýrlands voru rædd á fundi leiðtoga um sjötíu ríkja í London í gær. Ríkin hafa lofað að veita meira en tíu milljarða dollara til hjálparstarfs í Sýrlandi.
Meira
Hlutabréf í Royal Dutch Shell hækkuðu um 4% í gær eftir að tilkynning barst um að félagið hygðist segja upp 10 þúsund starfsmönnum. Lækkandi olíuverð hefur gert það að verkum að hagnaður hefur dregist hratt saman.
Meira
Viðgerð á Samskip Hoffelli er að ljúka og er stefnt að því að skipið hefji aftur siglingar 15. febrúar næstkomandi. Talið er að sprunga hafi komið í þilfar skipsins í miklu óveðri.
Meira
Norsku loðnuskipin Eros og Fiskebas komu í gær til Fáskrúðsfjarðar með samtals um 450 tonn af fallegri loðnu. Aflinn veiddist í fyrrinótt en skipin komu í land vegna væntanlegrar brælu á miðunum.
Meira
Þegar kaldar hryðjur með hvassviðri og snjókomu gengu yfir landið í gær var allur varinn góður. Vel búnir vegfarendur fundu sér skjól við húsveggi og stikuðu þannig áfram. Vegum á sunnan- og vestanverðu landinu var lokað meðan veðrið gekk yfir.
Meira
Samstarfsráð félagasamtaka í forvörnum, SAFF, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á þingmenn að fella áfengisfrumvarpið sem er til meðferðar á Alþingi.
Meira
Laugardagskvöldið 6. febrúar verður haldin hátíð í Lágafellslaug í Mosfellsbæ undir heitinu Sundlaugarnótt. Tengist hún fjögurra daga Vetrarhátíð sem haldin er dagana 4.-7. febrúar í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Frítt í laugina frá kl.
Meira
Tilraunatónlistarmaðurinn Alan Courtis er staddur á landinu og hefur síðustu daga verið með námskeið og haldið fyrirlestra á vegum Listar án landamæra og Listaháskólans.
Meira
Þjóðir heims hafa heitið því að safna 10 milljörðum dollara sem eiga að renna til mannúðaraðstoðar í Sýrlandi. Þetta kom fram á ráðstefnu sem fer fram í Lundúnum. „Það sem við höfum áorkað í dag er engin lausn á vandamálinu.
Meira
Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, var í gær dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir hlut sinn í svonefndu markaðsmisnotkunarmáli Landsbankans.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Um 35% þeirra ökumanna sem segjast tala í farsíma án handfrjáls búnaðar segjast nota hann til annars, t.d. senda sms eða fara á netið oft, stundum eða sjaldan.
Meira
The Choice Rómantísk mynd um tvo nágranna sem verða ástfangnir við fyrstu sýn. IMDb 5,5/10 Laugarásbíó 20.00, 22.20 Smárabíó 17.15 Borgarbíó Akureyri 20.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Óánægja er meðal fyrrverandi skipverja á varðskipum Landhelgisgæslunnar vegna dagskráratriðis á Safnanótt sem vera átti um borð í varðskipinu Óðni.
Meira
Ástandið í stjórnmálaflokkum landsins er ekki með besta móti ef marka má kannanir. Fleiri vísbendingar gefa hið sama til kynna og jafnvel Píratar, sem fara mikinn í könnunum, vita ekki í hvorn tréfótinn þeir eiga að stíga.
Meira
Myndlistarmaðurinn Unnar Örn verður með opinn fyrirlestur sem nefnist Glötuð aðferðafræði - Hugmyndir, vinnuferli og skrásetning á eigin verkum, í fyrirlestrarsal myndlistardeildar Listaháskóla Íslands í dag, föstudag, kl. 13.
Meira
Klængur Gunnarsson opnar á morgun, laugardag klukkan 14, sýninguna Dæld í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Í list sinni er Klængur (f. 1985) sagður vinna með blæbrigði hversdagsleikans á tragikómískan hátt.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafni ASÍ við Freyjugötu í kvöld, föstudag, klukkan 19. Er opnun beggja á dagskrá Safnanætur.
Meira
13 Hours: The Secret Soldiers of Benghazi Leikstjórinn Michael Bay segir hér frá raunverulegum atburðum sem gerðust í borginni Benghazi í Líbíu 12. september 2012.
Meira
Til fundar við formæður er verkefni tveggja sagnakvenna, þeirra Sigurborgar Kr. Hannesdóttur og Sigurbjargar Karlsdóttur. Það spratt upp úr þeirra eigin áhuga á sögum formæðra sinna.
Meira
Undir berum himni - með suðurströndinni nefnist ný sýning í Safni Ásgríms Jónssonar, sem verður opnuð á Safnanótt á Vetrarhátíð í dag kl. 20. Á sýningunni eru bæði olíu- og vatnslitamyndir frá árunum 1909 til 1928.
Meira
Myndlistarkonurnar Halla Birgisdóttir, Katrín Eyjólfsdóttir, Ragnheiður Maísól Sturludóttir, Sigrún Hlín Sigurðardóttir og Una Björg Magnúsdóttir setja upp sýninguna Ástarsameindir í SÍM-salnum Hafnarstræti 16. Sýningin verður opnuð á Safnanótt í dag...
Meira
Eftir Björn Bjarnason: "Að Bandaríkjamenn auki hernaðarlega viðveru sína í Evrópu beinir athygli þeirra jafnframt að lífæðinni yfir N-Atlantshaf og öryggi á henni."
Meira
Ef kona sætir líkamsárás í tvígang, í annað skiptið þegar hún er barnshafandi og í hitt skiptið fyrir framan börnin sín, þykir hæfileg refsing ofbeldismannsins þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og samtals 600.
Meira
Eftir Júlíus Sólnes: "Íslendingar skera sig sem sagt úr hvað þetta efni áhrærir og því ekki vanþörf á, að meira sé fjallað um þessa ógn á opinberum vettvangi."
Meira
Haraldur Páll Bjarkason fæddist á Ólafsfirði 18. júlí 1968. Hann lést á heimili sínu 26. janúar 2016. Foreldrar hans eru Bjarki Sigurðsson, fæddur 6. maí 1944, og Elín H. Haraldsdóttir, fædd 26. mars 1950. Systkini hans eru: a) Stefán Kemp, fæddur 12.
MeiraKaupa minningabók
5. febrúar 2016
| Minningargrein á mbl.is
| 1256 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Haraldur Páll Bjarkason fæddist á Ólafsfirði 18. júlí 1968. Hann lést á heimili sínu 26. janúar 2016.Foreldrar hans eru Bjarki Sigurðsson, fæddur 6. maí 1944, og Elín H. Haraldsdóttir, fædd 26. mars 1950.
MeiraKaupa minningabók
Hrafnhildur Grace Sigurbjartsdóttir fæddist 8. apríl 1949 að Nýlendugötu 22 í Reykjavík. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 23. janúar 2016 Foreldrar hennar voru Sigurbjartur Sigurbjörnsson, verkstjóri hjá Reykjavíkurborg, fæddur 19.
MeiraKaupa minningabók
Jóhann Þorsteinsson fæddist 24. ágúst 1928 í Miðhlíð á Barðaströnd og fluttist á barnsaldri að Litluhlíð í sömu sveit. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 25. janúar 2016. Jóhann var sonur hjónanna Guðrúnar Jónu Margrétar Finnbogadóttur, f. 16.
MeiraKaupa minningabók
Kristján Árnason fæddist 25. apríl 1933 á Jódísarstöðum í Öngulsstaðahreppi, Eyjafirði. Hann lést 23. janúar 2016 á deild 11 E, Landspítalanum við Hringbraut. Foreldrar hans voru hjónin Árni Friðriksson verkstjóri á Akureyri, f. 17. júlí 1902, d. 14.
MeiraKaupa minningabók
Kristján Gils Sveinþórsson fæddist á Tröllanesi ytra í Neskaupstað 2. ágúst 1934. Hann lést á hjúkrunardeild Sjúkrahússins í Neskaupstað 8. janúar 2016.
MeiraKaupa minningabók
Ragnhildur Magnúsdóttir fæddist á Patreksfirði 31. ágúst 1950. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 28. janúar 2016. Foreldrar hennar voru Magnús Ingimundarson, f. 18. desember 1914, d. 9. október 1997, og María Sigurðardóttir, f. 24.
MeiraKaupa minningabók
Viðar Daníelsson byggingameistari fæddist í Saurbæ í Eyjafjarðarsýslu 3. apríl 1942. Hann andaðist á heimili sínu 19. janúar 2016. Foreldrar Viðars voru Daníel Sveinbjörnsson og Gunnhildur Kristinsdóttir frá Saurbæ.
MeiraKaupa minningabók
Alls bárust 43 kauptilboð í opnu söluferli Íbúðalánasjóðs sem auglýsti 504 fasteignir í sinni eigu til sölu fyrir áramót. Eignasöfnin voru 15 og bárust tilboð í þau öll.
Meira
Baksvið Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í nýju verðmati sem endurskoðunarfyrirtækið KPMG hefur unnið er greiðslukortafyrirtækið Borgun metið á 19 til 26 milljarða króna. Þetta herma áreiðanlegar heimildir Morgunblaðsins.
Meira
Gistinóttum á hótelum hefur fjölgað hægar en erlendum ferðamönnum og hefur hlutdeild annars konar gistingar því aukist. Þetta kemur meðal annars fram í Hagsjá Landsbankans.
Meira
„Einn af meginstraumunum í dag nefnist á ensku „Youniverse“ og sýnir að neysla hvers og eins endurspeglar smekk hans og persónuleika, og því vilja neytendur að fyrirtæki og vörumerki þekki þessa einstöku eiginleika þeirra,“ segir...
Meira
Aldrei fór ég Westur er yfirskrift fyrirlestraraðar MARK sem hefst í dag. Fyrsta fyrirlesturinn flytur Friðrik Þór Guðmundsson blaðamaður kl. 12-13 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins. Mr.
Meira
Hólmfríðar Bjarnadóttur. Hófý, hefur verið fararstjóri hjá Bændaferðum í 31 ár og farið með þúsundir Íslendinga á áhugaverða staði. Hófý segir það vera forréttindi í starfi sínu að skapa skemmtilegar minningar með farþegunum.
Meira
Páll Imsland segist halda áfram að bulla, nokkrum leirliðum til mikillar ánægju: Mermundur Mannsson á Fjalli átti merar tvær komnar að falli. Honum datt þá í hug að heimsækja guð og færa tvö folöld þeim karli.
Meira
Kristín Hermannsdóttir, veðurfræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Suðausturlands, er 45 ára í dag. Hún sá lengi um veðurfregnir í sjónvarpinu auk þess að vinna á Veðurstofu Íslands en hætti því árið 2013 þegar hún fékk þetta starf.
Meira
30 ára Hallbjörn er frá Skagaströnd og er sjómaður á Arnari HU. Maki : Árdís Pétursdóttir, f. 1981, bílamálari. Systkini : Arnar, Ómar Ingi, Amy, Fjóla og Linda. Sonur : Kristján Freyr, f. 2009. Foreldrar : Ómar Sigurbjörnsson, f.
Meira
Lárus Sigfússon fæddist 5. janúar 1915 á Stóru-Hvalsá í Hrútafirði sem var æskuheimili hans. Á þeim tíma var farandkennsla á milli bæja en Lárus fór í nám í Reykjaskóla þegar hann var settur fót 1931.
Meira
30 ára Hólmfríður Fjóla Zoëga er fædd og uppalin í Þorlákshöfn. Hún er íþróttafræðingur að mennt og kennir íþróttir og sund. Systkini : Brynjar Smárason, f. 1978, og Otri Smárason, f. 1984. Foreldrar : Guðmundur Smári Tómasson, f.
Meira
Lísa Anne Libungan er fædd árið 1977 í San Diego í Kaliforníu, Bandaríkjunum. Hún lauk B.Sc. gráðu í fiskifræði og vistfræði árið 2006 og M.Sc. gráðu í sjávarlíffræði með áherslu á vistfræði þorsksins árið 2009 frá Háskóla Íslands. .
Meira
Smjörþefur er lykt, eins og finna má af seinni hluta orðsins. Leggi hana fyrir vit fólks fitjar það flest upp á nefið. Það er af því að átt er við smjör sem farið er að súrna og fýla komin af.
Meira
Reykjavík Sara Líf Björnsdóttir fæddist 17. janúar 2015, kl. 6.40. Hún vó 2.434 g og var 47 cm löng. Emma Sól Björnsdóttir fæddist 17. janúar 2015, kl. 6.45. Hún vó 1.812 g og var 44 cm löng.
Meira
Staðan kom upp í A-flokki Tata Steel-skákhátíðarinnar sem lauk fyrir skömmu í hollenska sjávarbænum Wijk aan Zee. Tékkneski stórmeistarinn David Navara (2.730) hafði hvítt gegn bandaríska kollega sínum, Fabiano Caruana (2.787) . 50. a5! bxa5 51. c5!
Meira
101 árs Lárus Sigfússon 95 ára Sigríður Þorláksdóttir 90 ára Guðbjörg Jónsdóttir 85 ára Helga Eðvaldsdóttir Rakel Jónsdóttir Sigurður Tómasson 80 ára Guðrún Guðmundsdóttir Magnús Valsteinn Tryggvason Marta Sigurjónsdóttir 75 ára Anna María Einarsdóttir...
Meira
40 ára Valey er Akurnesingur og er innanhússarkitekt að mennt og er fulltrúi hjá FVA. Maki : Stephen John Watt, f. 1981, sérfræðingur hjá Íslandsbanka. Börn : Matthea Kristín, f. 2007, Christian Sturri, f. 2009, og Ethan Agnar, f. 2011.
Meira
Flestir vita að mánudagur er ekki það sama og fimmtudagur enda mæða allt annað en frægð. Augljósasta dæmið um þessar mundir eru dagarnir tveir, þar sem annar hefur heldur betur verið í skugganum af hinum.
Meira
5. febrúar 1967 Bókmenntaverðlaun dagblaðanna, Silfurhesturinn, voru veitt í fyrsta sinn. Snorri Hjartarson hlaut þau. Verðlaunin voru síðast veitt árið 1974. 5.
Meira
A gla María Albertsdóttir skoraði tvö mörk, það seinna með glæsilegu langskoti, þegar Ísland sigraði Skotland, 4:2, í vináttulandsleik stúlkna í knattspyrnu í Egilshöll í gær.
Meira
Spænska liðið Atlético Madrid hefur staðfest áhuga á því að fá Diego Costa aftur til sín. Costa yfirgaf Madrid sumarið 2014 og gekk til liðs við Chelsea. Hann hefur verið orðaður við brottför frá Englandi og Madridingar myndu taka honum opnum örmum.
Meira
England Neðrideildabikar, undanúrslit, 2. leikur: Fleetwood – Barnsley 1:1 • Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn með Fleetwood. *Barnsley sigraði í vítaspyrnukeppni eftir 2:2 samanlagt og mætir Oxford í úrslitaleik á Wembley.
Meira
Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is Yfirgnæfandi líkur eru á að landsliðsmaðurinn í handknattleik, Róbert Gunnarsson, skrifi undir samning við danska úrvalsdeildarliðið Århus Håndbold á næstu dögum.
Meira
Á Nesinu Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslandsmeistarar Gróttu sluppu nokkuð vel þegar þær lögðu Fylki að velli 25:23 í Olís-deild kvenna á Seltjarnarnesi í gær. Grótta er í efsta sæti deildarinnar en Fylkir er í því áttunda.
Meira
• Karl Þráinsson skoraði jöfnunarmark Íslands í 19:19-jafntefli við þáverandi ólympíu- og heimsmeistara Júgóslava á ÓL í Seúl 1988. • Karl fæddist 1965 og varð bæði Íslands- og bikarmeistari með sigursælu liði Víkings.
Meira
Leiknismenn úr Breiðholti eru komnir í úrslitaleik Reykjavíkurmóts karla í knattspyrnu í þriðja sinn á fjórum árum. Þeir sigruðu Fjölni í vítaspyrnukeppni í Egilshöllinni eftir að liðin skildu jöfn, 3:3, í bráðfjörugum leik í undanúrslitunum.
Meira
Körfubolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Mikið hefur gengið á í leikmannamálum hjá danska úrvalsdeildarliðinu Svendborg í körfuboltanum í vetur. Íslendingurinn Arnar Guðjónsson er þjálfari liðsins og Axel Kárason er þar leikmaður.
Meira
20. umferð Kristján Jónsson kris@mbl.is „Íris var frábær í Garðabænum,“ sagði Oddur Benediktsson, þjálfari Hamars, um frammistöðu fyrirliðans Írisar Ásgeirsdóttur í sigri Hamars á Stjörnunni í 20. umferð Dominos-deildar kvenna.
Meira
Sölvi Geir Ottesen, landsliðsmiðvörður í knattspyrnu, verður fyrstur Íslendinga til að spila í kínversku B-deildinni. Wuhan Zall, sem endaði í 9.
Meira
Thiago Pinto Borges, 27 ára brasilískur miðjumaður, gekk í gær til liðs við knattspyrnulið Þróttar í Reykjavík en hann varð samningslaus í desember þegar danska félagið Vestsjælland varð gjaldþrota.
Meira
Handbolti Guðmundur Hilmarsson Ívar Benediktsson Kristján Jónsson Hjörvar Ólafsson Íslandsmeistarar Hauka þurftu svo sem engan stórleik til að innbyrða fjögurra marka sigur, 26:22, gegn Aftureldingu í Olís-deildinni í gærkvöld.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.