Árið 2016 komu ríflega 39 þúsund gestir inn á upplýsingamiðstöð ferðamanna í Húnaþingi vestra, sem er á Selasetrinu á Hvammstanga. Þetta er 44% fjölgun frá árinu 2015. Flestir urðu gestakomurnar í júlí, þegar 10.
Meira
Í tilefni dagsins bjóða Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Karl Olgeir Olgeirsson til bóndadagsveislu í Hannesarholti í kvöld kl. 19. Meðan gestir snæða mat í Hljóðbergi flytja Sigríður og Karl ljúfa tóna.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við leggjum áherslu á að fólk hér á svæðinu geti komið og kynnst erlendum ferðamönnum. Umræðan sem er áberandi um að ferðafólkið sé að taka yfir landið byggist á vanþekkingu.
Meira
Salernismál ferðamanna hafa líka verið inni á borði Vegagerðarinnar, en hún gerði áætlun síðasta vor um að koma upp bráðabirgðasalernisaðstöðu á um 30 stöðum um landið.
Meira
Þriðjudaginn 24. janúar nk. hefst opinber heimsókn forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, og Elizu Reid forsetafrúar til Danmerkur. Venju samkvæmt er Danmörk fyrsti áfangastaður í opinberri heimsókn nýs forseta Íslands til útlanda.
Meira
Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Kærunefnd útlendingamála sinnti á síðasta ári fjórfalt fleiri málum hælisleitenda en árið 2015. 450 mál komu til kasta nefndarinnar árið 2016 og 122 mál árið 2015.
Meira
Öll hönnunarteymin fjögur sem tóku þátt í forvali vegna fullnaðarhönnunar á rannsóknarhúsi nýs Landspítala stóðust kröfur nefndar sem lagði mat á innsend gögn. Fyrsti hópurinn er Grænaborg, þar sem innanborðs eru Arkstudio ehf.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þrátt fyrir að svokallað hliðrað áhorf á sjónvarp þ.e. þegar fólk horfir á sjónvarpsefni á öðrum tíma en á beinum útsendingartíma, hafi aukist mikið á árunum 2012-2015, virðist sú þróun hafa stöðvast hér á landi í fyrra.
Meira
Endurfundir nefnist sýning sem opnuð er í Borgarbókasafninu í Grófinni í dag. Þar getur að líta myndir sem innblásnar eru af ljóðum Snorra Hjartarsonar og unnar af þátttakendum listasmiðju Hlutverkaseturs. Við opnun sýningarinnar kl. 12.
Meira
Hæstiréttur staðfesti í gær þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm Héraðsdóms Suðurlands frá því í mars í fyrra yfir kínverskum ferðamanni fyrir manndráp af gáleysi.
Meira
Birnu Brjánsdóttur, sem ekkert hefur spurst til í sex sólarhringa, er enn saknað. Í gær var hennar leitað á Strandarheiði með fulltingi leitarhunda en sú leit skilaði engum árangri.
Meira
Anna S. Einarsdóttir, Anna L. Þórisdóttir, Freyr Bjarnason, Guðrún Hálfdánardóttir, Hallur M. Hallsson, Hjörtur J. Guðmundsson, Ingileif Friðriksdóttir, Jón B. Eiríksson, Sigurður B. Sævarsson, Sunna Ósk Logadóttir, Viðar Guðjónsson, Þorsteinn F.
Meira
Yfirvöld á Ítalíu sögðu í gær að minnst 25 manna væri saknað, þar á meðal nokkurra barna, eftir að snjóflóð féll á hótel á skíðasvæði í fjallahéraðinu Abruzzo. Í gærkvöldi höfðu þrír fundist látnir.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Gerðar voru álagsárásir á netkerfi íslenskra fjármálafyrirtækja í fyrradag en ekki er talið að þær hafi valdið tjóni eða stefnt öryggi bankaþjónustunnar í neina hættu.
Meira
Ísland skipar 25. sæti lista Bloomberg yfir framsæknustu hagkerfi heims, þ.e. Bloomberg Innovation Index. Þrátt fyrir að fara upp um þrjú sæti á milli ára situr Ísland tíu sætum á eftir næsta Norðurlandaríki.
Meira
Íslendingum sem borða óhollan mat er að fjölga, samkvæmt niðurstöðum nýrrar norrænnar rannsóknar sem gerð var m.a. á vegum Embættis landlæknis og birt í gær.
Meira
Matur Þessi þröstur er einn þeirra sem sækja í Bæjarins bestu í miðbæ Reykjavíkur, þangað sem margur ferðamaðurinn fer og fær sér eina pylsu með öllu. Sá fiðraði nældi sér í...
Meira
Fréttaskýring Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ekkert er því til fyrirstöðu að sótt verði um byggingarleyfi fyrir nýja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli samkvæmt deiliskipulagi sem tók gildi um mitt ár 2016.
Meira
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Félagið Roller Derby Ísland stóð fyrir nýliðanámskeiði í þessari íþrótt í vikunni. Fóru námskeiðin fram í Kórnum í Kópavogi og var vel mætt.
Meira
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttisráðherra, og Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, ræddu saman um helstu áherslur í starfi Barnaverndarstofu og verkefnin framundan á fundi í velferðarráðuneytinu í gær.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir við stækkun Búrfellsvirkjunar hafa farið vel af stað eftir stutt frí verktaka yfir jól og áramót að því er fram kemur í frétt á heimasíðu Landsvirkjunar.
Meira
Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur í SPRON-málinu svonefnda. Málsvarnarlaun ákærðu greiðast því úr ríkissjóði, en þau hlaupa samtals á nokkrum milljónum króna.
Meira
Friðrik Sigurðsson rekstrarráðgjafi, sem starfar nú tímabundið fyrir norsku hagsmunasamtökin í laxeldi, Sjömat Norge, segir að togstreita geti orðið á milli Noregs og Íslands ef íslensk stjórnvöld hafni því að innleiða regluverk Evrópusambandsins um...
Meira
Fjölmörg sveitarfélög á landsbyggðinni hafa ályktað um Reykjavíkurflugvöll þar sem þungum áhyggjum er lýst af öryggi sjúkraflugs eftir lokun neyðarbrautarinnar svonefndu. Nú hafa Eyjafjarðarsveit og Skagafjörður bæst í hópinn.
Meira
Mikið hefur verið fjallað síðustu sólarhringa í fjölmiðlum á Grænlandi um tengsl skipverja á grænlenska togaranum Polar Nanoq við hvarf Birnu Brjánsdóttur.
Meira
Vef-þjóðviljinn bendir á að fjölmiðlamenn kalla þjóðernissinnaða flokka oft hægriflokka, eða öfgahægriflokka, þótt í fæstum tilvikum sé margt í stefnu þeirra sem er hægra megin við miðju.
Meira
Heimildarmyndin David Bowie: Last Five Years sem RÚV dreif í að sýna á mánudagskvöldið, var áhugaverð. Hún svalaði í það minnsta ágætlega áhuga mínum á viðfangsefninu. Sem er töluvert mikill en Bowie hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér.
Meira
Kór Harvard-háskóla heldur tónleika í Hallgrímskirkju í kvöld kl. 20 á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Kórinn skipa 30 söngvarar og flytja þeir efnisskrá með nýlegri bandarískri og breskri kórtónlist og eldri verkum eftir William Byrd o.fl.
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Fangar og fangelsi hafa löngum verið vinsælt umfjöllunarefni í kvikmyndum og sjónum þá oftar en ekki beint að föngum en ekki þeim sem gæta þeirra, fangavörðum.
Meira
Moonlight Kvikmynd sem fjallar um þeldökkan, samkynhneigðan Bandaríkjamann og glímu hans við sjálfan sig og heiminn á þremur ólíkum æviskeiðum. Moonlight hlaut Golden Globe verðlaunin sem besta dramatíska kvikmynd ársins 2016.
Meira
Hin sígilda unglingamynd leikstjórans John Hughes, The Breakfast Club , frá árinu 1985, verður sýnd í Bíó Paradís í kvöld kl. 20 og eru foreldrar hvattir til að mæta með unglingum sínum.
Meira
Eftir að ungri konu var vísað upp úr sundlaug um síðustu helgi fyrir að vera berbrjósta er enn og aftur deilt um brjóst. Og enn og aftur snýst deilan um hvort konur „megi vera“ berar að ofan á almannafæri.
Meira
Eftir Þórunni Erlu Sighvats: "Getur það talist sanngjörn málsmeðferð að taka meintan þolanda burt af vinnustaðnum en hrófla ekki við meintum geranda?"
Meira
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson: "Lífið er núna. Vertu ekki sífellt að bíða eftir einhverju sem verður kannski seinna. Þetta er þín stund. Vertu ekki eins og skugginn af sjálfum þér."
Meira
Alma Þöll Ólafsdóttir fæddist á Landspítalanum í Reykjavík 13. júlí 1998. Hún lést af slysförum 12. janúar 2017. Foreldrar hennar eru Lóa Mjöll Ægisdóttir, f. 20. júní 1973, dóttir Ölmu Vestmann og Ægis Sigurðssonar, og Ólafur Már Guðmundsson, f. 3.
MeiraKaupa minningabók
Erla Bjarnadóttir fæddist í Reykjavík 15. mars 1925. Hún lést á Landakoti 7. janúar 2017. Erla var dóttir hjónanna Bjarna Bjarnasonar læknis og Regínu Þórðardóttur leikkonu. Erla átti eina systur, Kolbrúnu, f. 1928, d. 2013.
MeiraKaupa minningabók
Gróa Þorleifsdóttir fæddist að Veðraási, þar sem nú er Kirkjuvegur 11b í Hafnarfirði, 12. september 1921. Hún lést á Droplaugarstöðum 3. janúar 2017.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Erla Skúladóttir fæddist í Reykjavík 27. júlí 1935. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. janúar 2017. Foreldrar hennar voru Hulda Pálína Vigfúsdóttir, f. 20. júlí 1918, d. 7. júlí 2000, og Skúli Árnason, f. 4. janúar 1919, d. 27.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Lúðvíksson fæddist á Akureyri 27. júní 1932. Hann lést á Öldrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 12. janúar 2017. Foreldrar Gunnars voru Guðni Lúðvík Jónsson, f. 26.4. 1909, d. 14.1. 1984, og Sigurbjörg Guðmundsdóttir, f. 13.5. 1907, d. 22.12. 1998.
MeiraKaupa minningabók
Ingigerður Þórðardóttir fæddist á Reykjum á Skeiðum 21. janúar 1912. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Ljósheimum 11. janúar 2017. Foreldrar hennar voru Guðrún Jónsdóttir fædd í Sandlækjarkoti 19. febrúar 1879, hún lést 15.
MeiraKaupa minningabók
Jónína Guðrún Kjartansdóttir fæddist í Reykjavík 14. mars 1941. Hún andaðist á Landspítalanum 10. janúar 2017. Foreldrar hennar voru Rannveig Oddsdóttir frá Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri, f. 22. mars 1920, d. 22.
MeiraKaupa minningabók
Karlotta Sigurbjörnsdóttir fæddist 4. febrúar 1931 á V-Stafnesi, Miðneshreppi. Hún lést 7. janúar 2017 á Hrafnistu, Nesvöllum í Reykjanesbæ. Foreldrar hennar voru Sigurbjörn Metúsalemsson, útvegs- og garðyrkjubóndi á Stafnesi, f. 3. maí 1906, d. 26.
MeiraKaupa minningabók
Kjartan Jónsson fæddist í Hafnarfirði 17. apríl 1930. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 10. janúar 2017. Foreldrar Kjartans voru Jón Kristinn Sveinsson, sjómaður í Hafnarfirði, f. 5. jan. 1900 í Breiðagerði, d. 23. nóv.
MeiraKaupa minningabók
Sigurbjörg Steinþórudóttir fæddist í Hafnarfirði 23. desember 1954. Hún lést á Líknardeild LSH 6. janúar 2017. Foreldrar hennar eru Steinþóra Þorsteinsdóttir, húsmóðir í Hafnarfirði, f. 29. júlí 1934, og Sverrir Júlíusson, f. 26.
MeiraKaupa minningabók
Unnur Dóróthea Haraldsdóttir fæddist á Eyrarbakka 24. janúar 1922. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ 12. janúar 2017.
MeiraKaupa minningabók
Þórhildur Jóhannesdóttir Sutherland fæddist í Reykjavík 18. janúar 1941. Hún lést 13. desember 2016. Minningarathöfn hefur farið fram en Þórhildur verður jarðsett í leiði móður sinnar og sonar síns í Gufuneskirkjugarði.
MeiraKaupa minningabók
Örn Agnarsson fæddist 5. ágúst árið 1949 í Neskaupstað í húsi afa síns og ömmu er heitir Svíþjóð. Hann lést 10. janúar 2017. Foreldrar hans voru Agnar Hall Ármannsson fæddur 27. október 1927, látinn 30.
MeiraKaupa minningabók
Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Bjarni Þór Bjarnason, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte, segir að nýleg lagabreyting er leyfir skattaafslátt af hlutabréfakaupum sé bæði flókin og ósveigjanleg. Fyrirtækin þurfa að uppfylla 12 skilyrði.
Meira
Ríkisstjórnin hyggst einfalda skattaumhverfi einyrkja og lítilla og meðalstórra fyrirtækja með lækkun tryggingagjalds í huga. „Við erum að hugsa um að lækka tryggingagjaldið í öruggum skrefum.
Meira
Velta má fyrir sér hvort fataverslun hafi í raun dregist saman hér á landi á undanförnum árum, ef ekki væri fyrir erlenda ferðamenn. Þessari spurningu er velt upp í Morgunkorni Íslandsbanka.
Meira
Myndlistaskólinn í Reykjavík býður upp á námskeið fyrir börn og foreldra eða forráðamenn þeirra sem í sameiningu vinna fjölbreytt verkefni með ýmis ólík efni.
Meira
Á Playstore og iStore má finna app sem heitir Andrés+. Þar eru sögur úr Andrésblöðum og úr Syrpunni. Ný saga birtist á hverjum degi en allt eru þetta áður útgefnar sögur. Á annað þúsund sögur hafa birst þar. Forritið er ókeypis.
Meira
Glöggir lesendur Andrésblaða vita að Ripp, Rapp og Rupp eru frændur Andrésar. Færri vita hins vegar að Andrés á systur sem aldrei hefur komið fram í blöðunum sem er móðir drengjanna.
Meira
Andrésblöðin eiga sinn sess í þjóðarsálinni. Eiga þau það sammerkt að koma eingöngu út á Norðurlöndunum, og í Finnlandi er það svo að annað hvert heimili er með áskrift að blöðunum. Sumir segja að persóna Andrésar Andar hafi breyst í tímanna rás.
Meira
30 ára Eva Lind ólst upp í Staðarsveit, býr í Ólafsvík, lauk prófi sem stuðningsfulltrúi og starfar í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Maki: Emanúel Þórður Magnússon, f. 1983, skipstjóri. Synir: Magnús Guðni, f. 2007, og Aron Eyjólfur, f. 2013.
Meira
30 ára Gestur lauk prófi í íþróttaþjálfun í Danmörku og er dagskrárgerðarmaður. Maki: Rakel Þórarinsdóttir, f. 1988, leikskólakennari Börn: Einar Ari, f. 2008, Jónas Þór Hafþórsson, f. 2010 (stjúpsonur) og Ingibjörg Halla, f. 2016.
Meira
Halldór Sveinn Rafnar fæddist í Reykjavík 20.1. 1923. Foreldrar hans voru Stefán Sigurður Jónasson Rafnar, aðalbókari hjá SÍS í Reykjavík, og k.h., Ásthildur Steinunn Sveinsdóttir Rafnar húsfreyja.
Meira
Það fer ekki framhjá neinum að Ólafur Stefánsson hefur mikið dálæti á Heinz Erhardt. Hér er ljóð hans Lífskúnstin í þýðingu Ólafs: Einn stígur löngum fast á fold en flugið annar tekur. Náttúran og nakið hold, þeim næsta gleði vekur.
Meira
40 ára Sara er löggiltur bókari og rekur veitingastaðina Kitchen and Wine á 101 Hótel og Essensia á Hverfisgötu. Maki: Hákon Már Örvarsson, f. 1973, matreiðslumeistari. Dætur: Sunna Björk, f. 2000, og Helen Ösp, f. 2004.
Meira
95 ára Elín Margrethe Kaaber 90 ára Baldur Davíðsson 85 ára Guðbjörg Helga Guðbrandsdóttir Halldór Ólafsson Hörður B. Sigurðsson Kristjana H. Guðmundsdóttir Páll Cecilsson Sigríður Regína Waage 80 ára Hrefna Einarsdóttir 75 ára Birgir J.
Meira
Ungar stelpur á Reyðarfirði gáfu pening sem safnað var á tombólu og söfnuðu þær 19.910 kr. Tombólan var haldin í verslunarmiðstöðinni Molanum á Reyðarfirði. Stelpurnar heita, frá vinstri, Stephanie , Thelma , Sunneva , Alexandra og Ísabella...
Meira
Árrisulir á þessum góða morgni geta búist við því að sjá konsertmeistarann eða Stálið eða hvaða karl sem er berlæraðan og berfættan í annarri brókarskálminni og skyrtu hoppandi á öðrum fæti í kringum húsið.
Meira
20. janúar 1976 Bresk herskip sigldu út fyrir 200 mílna mörkin eftir að Íslendingar höfðu hótað að slíta stjórnmálasambandi við Breta. Deilur höfðu staðið eftir útfærslu landhelginnar í október 1975. 20.
Meira
Í Metz Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is ,,Það var alltaf markmiðið hjá okkur að komast í 16 liða úrslitin. Því hefur verið náð og við erum auðvitað ánægðir með það þegar fram líða stundir.
Meira
Á Hlíðarenda Benedikt Grétarsson bgretarsson@mbl.is Það er sígild klisja að tala um að íþróttamenn séu enn með örlítið „jólaryð“ þegar frammistaðan er ekki á pari skömmu eftir hátíð ljóss og friðar.
Meira
„Leikurinn var mjög góður af hálfu íslenska liðsins í 45 mínútur. Það besta sem liðið hefur sýnt í keppninni,“ sagði Stefán Árnason, þjálfari karlaliðs Selfoss, við Morgunblaðið eftir jafnteflisleikinn við Makedóníu í gær, 27:27.
Meira
Í Metz Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Hún var hreint óbærileg spennan í viðureign Íslendinga og Makedóníumanna á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Metz í gærkvöld.
Meira
Spánn Bikarinn, 8 liða, fyrri leikir: Atlético Madrid – Eibar 3:0 Real Sociedad – Barcelona 0:1 Ítalía Bikarkeppnin, 16 liða úrslit: Roma – Sampdoria 4:0 Vináttulandsleikur kvenna Noregur – Svíþjóð...
Meira
Spánverjar tryggðu sér öruggan sigur í riðli okkar Íslendinga á heimsmeistaramótinu í handknattleik þegar þeir léku sér að Slóvenum í síðasta leik riðilsins í Metz í gærkvöldi, lokatölur 36:26.
Meira
* Sverrir Ingi Ingason , landsliðsmaður í knattspyrnu, var formlega kynntur til leiks sem leikmaður Granada á Spáni í gær, en félagið keypti hann af Lokeren í Belgíu. Sverrir samdi til hálfs fjórða árs, eða til vorsins 2020. Í ítarlegu viðtali á mbl.
Meira
Leikur Frakka og Íslendinga í 16 liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik karla á morgun verður að öllum líkindum sögulegur hver sem úrslit hans verða. Leikurinn fer fram á knattspyrnuleikvanginum í Lille, Stade Pierre-Mauroy.
Meira
Árstíðabundinn bjór verður sífellt vinsælli þáttur í hinni ört vaxandi handverksbjórasenu á Íslandi. Þorrabjórinn er þar síst undanskilinn og á bóndadag ár hvert er nú von á verulega áhugaverðum bjórtegundum.
Meira
1 gulrófa millistærð (Einnig gott að nota rauðrófur) 2 nípur olía salt og pipar Aðferð: Takið af hýðið og notið svo skrælara eða mandolín til þess að skræla/skera gulrófuna og nípuna í mjög þunnar sneiðar. Hitið olíu, u.þ.b. 1 - ½ lítra í góðum potti.
Meira
Margir ferðast um langan veg til að koma á þorrablótið í Norfolk. Þar eiga bæði Íslendingar og bandarískir Íslandsvinir góða stund saman en matur fyrir 220 gesti hefur verið ferjaður skipulega til Bandaríkjanna með því að nota laust pláss í ferðatöskum.
Meira
Það er óhætt að segja að skiptar skoðanir séu á hinum hefðbundna þorramat. Sumir geta ekki hugsað sér að fara á mis við hann en aðrir geta ekki hugsað sér að smakka hann. En burtséð frá bragði og smekk, er þorramatur hollur eða kannski alls ekki?
Meira
2 gulrætur ½-1 hvítkálshaus (fer eftir stærð) ½ chili 1 dós sýrður rjómi 1 sítróna ½ tsk hunang salt Gulrætur og hvítkál rifið niður eða smátt saxað, chili saxað smátt. Sýrður rjómi og hunang hrært saman í skál, smakkað til með sítrónu og salti.
Meira
6-8 lambaskankar olía 2 gulrætur 1 stilkur sellerí 1 laukur 4 hvítlauksrif 2 lárviðarlauf 10 piparkorn 4 greinar timjan 500 ml rauðvín 300 ml vatn 1 lítil dós tómatpúrra 25 g smjör salt Grænmeti er grófskorið í bita og brúnað á pönnu í olíu.
Meira
1 laukur 2 hvítlauksrif 1 msk olía 50 gr smjör 50 gr hveiti 500 ml mjólk salt 600 gr þorskur 400 gr sætar kartöflur svartur pipar eftir smekk 200 gr rifinn ostur Sæt kartafla flysjuð og skorin í bita, velt upp úr olíu og bakað í ofni á 180 gráðum í 14...
Meira
„Þetta er alltaf gaman, hafi maður farið einu sinni á þorrablót hér vill maður fara aftur. Þegar ég var yngri var þetta fjölskylduskemmtun án aldurs svo maður var mættur þarna mjög ungur, en nú er komið aldurstakmark.“
Meira
1 dós niðursoðnar svartbaunir 150 gr fersk brauðmylsna af grófu brauði (best er að rista brauð og raspa niður) 150 gr fínt saxaður laukur 100 gr tómatamauk 1 tsk cumin 2 msk ferskt, fínsaxað kóríander Vökvanum af baununum er hellt af og þær settar í...
Meira
Uppistandari fer með gamanmál á bóndadaginn og matargestir geta fengið að skoða bjórbruggið hjá Bryggjunni brugghúsi. Þeir sem vilja ekki dýraafurðir geta pantað tvíreykta rauðbeðu og grafna gulrót.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.