Kúabændum er að fækka og framleiðsla hvers og eins að aukast. Þannig fækkaði þeim sem tóku þátt í skýrsluhaldi nautgriparæktarinnar í desember úr 573 í 547 á milli ára, eða um 26 bændur.
Meira
„Samband Íslands og Bandaríkjanna stendur á traustum grunni og við munum að sjálfsögðu leitast við að eiga sem best samskipti við nýja valdhafa í Washington og tryggja okkar hagsmuni,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Meira
Fréttaskýring Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Ekki er óhugsandi að seta Donalds Trumps á forsetastól í Bandaríkjunum hafi áhrif á varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna sem verið hefur að aukast á undanförnum árum.
Meira
Eftir átta ár á valdastóli kveður Barack Obama, 44. forseti Bandaríkjanna, Hvíta húsið ásamt eiginkonu sinni, Michelle Obama. Obama tók við völdum 20.
Meira
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur ritað Jóni Gunnarssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, bréf þar sem segir að Reykjavíkurborg sé tilbúin til funda um framtíð Reykjavíkurflugvallar við fyrsta tækifæri.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Helgi Tómasson, frægasti ballettdansari Íslendinga, hóf ballettnám fimm ára, en eins og í mörgum listgreinum er almennt aldrei of seint að æfa ballett. Silfursvanirnir í Ballettskóla Eddu Scheving bera þess merki.
Meira
Donald J. Trump sór embættiseið sem 45. forseti Bandaríkjanna í gær. Athöfnin fór fram á vestursvölum þinghússins á Capitol-hæð í höfuðborginni, Washington DC.
Meira
„Þetta lag virðist ganga mann fram af manni, kynslóða á milli,“ segir Eyjólfur Kristjánsson, spurður út í lagið sem hann söng fyrir hönd Íslands, ásamt Stefáni Hilmarssyni, í Eurovision árið 1991.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Valgeir Þorvaldsson fyrir hönd Vesturfarasetursins á Hofsósi og Sunna Pam Olafson-Furstenau fyrir hönd sjálfseignarstofnunarinnar Icelandic Roots (icelandicroots.
Meira
Borgarráð hefur samþykkt tímabundið leyfi til lengri veitingatíma áfengis vegna veitingahússins American Bar, Austurstræti 8-10, aðfaranótt mánudagsins 6. febrúar, vegna úrslitaleiks amerísku fótboltadeildarinnar, Superbowl 2017.
Meira
Langflest sveitarfélög landsins hafa enn ekki breytt launum kjörinna fulltrúa sinna þrátt fyrir hækkun þingfararkaups eftir úrskurð Kjararáðs og bíða átekta eftir niðurstöðu Alþingis varðandi umdeilda hækkun þingfararkaupsins.
Meira
Mikil vinna fer í innsetningarathöfn forseta Bandaríkjanna enda er athöfnin talin merki um þá ríku lýðræðislegu hefð að valdhafaskipti fari fram fyrir augum almennings á friðsaman hátt.
Meira
Irina Bokov, framkvæmdastjóri UNESCO, segir eyðileggingu Ríkis íslams á ómetanlegum menningarverðmætum í sýrlensku borginni Palmyra vera stríðsglæp. Meðal þess sem skemmt var eru rómverskur minnisvarði og hringleikahús borgarinnar frá tímum Rómverja.
Meira
„Það var gagnlegt að fá þessa yfirferð á skýrslunni á fundinum þótt ég hefði auðvitað kosið að fyrrverandi fjármálaráðherra hefði mætt á hann, eins og var bókað á fundi nefndarinnar.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt að bjóða út framkvæmdir vegna breytinga á gatnamótum Geirsgötu og Lækjargötu/Kalkofnsvegar. Kostnaðaráætlun er 600 milljónir króna og áætlað er að framkvæma fyrir um 400 milljónir á árinu...
Meira
Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Mexíkóski eiturlyfjabaróninn Joaquín „El Chapo“ Guzmán kom til Bandaríkjanna í fyrrinótt eftir að hafa verið framseldur af yfirvöldum í heimalandinu.
Meira
Herdís Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi deildarstjóri taugadeildar Landspítalans, lést á líknardeild Landspítalans síðastliðinn fimmtudag, 19. janúar, á 89. aldursári. Herdís fæddist á Akureyri hinn 10.
Meira
Eftir að sala eggja frá Brúneggjum hrundi í kjölfar umfjöllunar í Kastljósi um aðbúnað fuglanna hafa birgðir hlaðist upp. Þá er þegar búið að slátra hluta af bústofninum á búinu, að sögn Kristins Gylfa Jónssonar, framkvæmdastjóra Brúneggja.
Meira
Brúni hundamítillinn greindist nýlega á hundi sem komið var með á Dýraspítalann í Víðidal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun (MAST). Mítillinn hefur aðeins örsjaldan áður greinst hér á landi.
Meira
Borgaráð samþykkti á síðasta fundi sínum að heimila umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir vegna lagfæringa og endurnýjunar á boltagerðum á skólalóðum 2017.
Meira
Úr bæjarlífinu Atli Vigfússon Laxamýri Kúabúum heldur áfram að fækka í Suður-Þingeyjarsýslu. Fimm mjólkurframleiðendur hættu um áramótin og vitað er um nokkra sem eru að velta fyrir sér framtíðinni.
Meira
Gengið hefur á með éljum víða á landinu síðustu daga og hér forða farþegar sér í hlýju og skjól í strætisvagni á Lækjartorgi. Spáð er rigningu með köflum á höfuðborgarsvæðinu í dag en útlit er fyrir að hlé verði á úrkomunni á morgun.
Meira
Anna Sigríður Einarsdóttir Jón Birgir Eiríksson Lífsýni voru tekin úr fatnaði skipverjanna tveggja sem nú sitja í gæsluvarðhaldi vegna hvarfs Birnu Brjánsdóttur.
Meira
Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að malbika götur og fræsa fyrir um 1,5 milljarða króna á þessu ári, eða fyrir ríflega tvöfalt meiri fjárhæð en á síðasta ári.
Meira
„Eflaust má finna einhver dæmi þess að ekki hafi allt verið kórrétt. En heilt yfir sýnist mér fjölmiðlar hafa staðið sig prýðilega í fréttaflutningi af þessu máli og um leið gert það sem þeim ber að gera.
Meira
Í dag er mánuður liðinn frá vetrarsólstöðum sem bar upp á 21. desember síðastliðinn sem af þeim sökum bar þann vafasama heiður að teljast stysti dagur ársins. Daginn hefur lengt frá þeim degi, hægt í fyrstu, eða 11 sekúndur fyrsta daginn.
Meira
„Hún er stór og mikil og mikið rými í henni til að éta. Svo hefur hún töluvert skap. Þær ákveðnu fara að garðann og éta hvað sem tautar og raular,“ segir Gróa Margrét Lárusdóttir um Nínu 676 sem var afurðahæsta kýr landsins á síðasta ári.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Möttulstrókurinn undir Íslandi verður á sýningu í Lava - Eldfjalla- og jarðskjálftamiðstöð Íslands sem verið er að koma upp á Hvolsvelli.
Meira
Skilti fyrir ferðamenn Starfsmaður Reykjavíkurborgar ber með hamri og setur upp leiðbeiningarskilti fyrir ferðalanga á gangstétt við gatnamót Templarasunds og Kirkjustrætis í...
Meira
Í samningi sem gerður var í gær milli Rauða kross Íslands og íslenskra stjórnvalda er stigið skref til að jafna þjónustu við flóttafólk hér á landi, hvort sem það kemur í boði stjórnvalda, sem svonefnt kvótaflóttafólk, eða á eigin vegum.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur heimilað niðurrif hússins Thorvaldsensstræti 6. Ráðið hafði áður hafnað beiðni um að fá að rífa húsið og byggja annað hús sem betur hentaði þeirri starfsemi sem þar verður.
Meira
Snjór hreinsaður við stíga Gyeongbokgung-hallarinnar í Seoul í Suður Kóreu í gær. Töluverður snjór hefur fallið í borginni undanfarið og hefur fólk átt erfitt með að komast ferða sinna þar.
Meira
Breski sjóherinn var kallaður út til að farga gamalli sprengju sem fannst í Thames-ánni í London, skammt frá breska þinghúsinu. Lögregluyfirvöld segja allar líkur á að sprengjan sé frá tímum síðari heimsstyrjaldar.
Meira
Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Rannsókn lögreglunnar vegna hvarfs Birnu Brjánsdóttur er ein stærsta aðgerð lögreglunnar frá aldamótum í máli af þessari tegund. Þetta segir Ævar Pálmi Pálmason, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Meira
Hjón á Akureyri unnu rúmlega 64 milljónir króna í lottóinu milli jóla og nýárs en biðu með að sækja vinninginn. Vinningsmiðinn var keyptur í Hagkaupum á Akureyri milli jóla og nýárs en hjónin vissu strax á nýársnótt að þau hefðu unnið milljónirnar.
Meira
Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Ungum dreng og móður hans var bjargað síðdegis í gær úr rústum Rigapiano-hótelsins á Ítalíu, sem snjóflóð féll á fyrir þremur dögum.
Meira
Sænska Hagstofan greindi frá því í gær að Svíar væru orðnir tíu milljónir talsins. Svíar náðu níu milljóna manna markinu árið 2004 og það er áætlað að þeir verði 11 milljónir árið 2024.
Meira
„Þetta hefur verið mikið áfall fyrir suma skipverja, að vera viðfang rannsóknar af þessari stærðargráðu og ekki síst vegna athyglinnar sem málið hefur fengið á Íslandi.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Staðan í sjómannadeilunni er mjög tvísýn en næsti sáttafundur er boðaður á mánudaginn, á fertugasta degi verkfalls sjómanna.
Meira
Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Donald John Trump sór embættiseið sem 45. forseti Bandaríkjanna í Washington DC síðdegis í gær. Rúmlega 800 þúsund áhorfendur mættu til höfuðborgarinnar að fylgjast með athöfninni sem var með hefðbundnu sniði.
Meira
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, birti í gær kveðju til nýs fjármálaráðherra þar sem bent var á að „Ísland er háskattaland og það er ekkert svigrúm til skattahækkana á komandi misserum“.
Meira
Viðtal Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Barnaleikritið Fjarskaland , eftir Guðjón Davíð Karlsson, Góa, verður frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins á morgun kl. 13.
Meira
Flugufen er plata eftir dúettinn Ambátt, en hann skipa þeir Pan Thorarensen og Þorkell Atlason. Þeir kappar hafa komið víða við í alls kyns verkefnum en hugmyndin að Ambátt fæddist fyrir röskum fimm árum.
Meira
Japanskur andblær er heiti sýningar á vatnslitamyndum eftir Maríu Loftsdóttur sem verður opnuð í Hannesarholti við Grundarstíg í dag, laugardag, kl. 16. María Loftsdóttir hefur numið myndlist og sótt sér innblástur víða um heim.
Meira
Jónas Sig. og hljómsveit hans Ritvélar framtíðarinnar halda tónleika á Græna hattinum á Akureyri í kvöld kl. 20. Nýverið kom út plata sem inniheldur öll vinsælustu lög Jónasar ásamt lifandi upptökum og áður óútgefnu...
Meira
Sönghópurinn Olga Vocal Ensemble kemur fram á tónleikum í Norðurljósasal Hörpu á mánudagskvöld kl. 20 og flytur a cappella-tónlist víðs vegar að úr heiminum. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.
Meira
Á námsárum mínum í grunn- og framhaldsskóla fannst flestum í kringum mig leiðinlegt að læra dönsku. Ég er þar ekki undanskilinn, þó hún hafi samt ekki vafist neitt sérstaklega fyrir mér.
Meira
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Á tónleikunum fléttast saman norræn miðaldatónlist, íslensk, sænsk og norsk, þjóðlög og spuni þar sem raddir tríósins og hljóðfæri okkar og raddir fléttast saman í tímalausu flæði.
Meira
Nína Dögg Filippusdóttir leikkona var í gær útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness 2017. Við athöfnina tilkynnti hún að hún hygðist gefa verðlaunaféð, eina milljón króna, til eflingar skapandi starfi ungmenna á Seltjarnarnesi með áherslu á sviðslistir.
Meira
Eftir Ævar Halldór Kolbeinsson: "Í bókinni Heiður og huggun (2015) má finna fjölda ljóða og kvæða frá 17. öld. Þau hafa varðveist í handritum á söfnum og í þeim má finna nýtt sjónarhorn í sögu aldarinnar."
Meira
Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson: "Nú fær ný ríkisstjórn og þá einkum nýr dómsmálaráðherra tækifæri til að sýna í verki að til standi að taka upp ný og heilbrigðari vinnubrögð á vettvangi dómsýslunnar."
Meira
Tyrkjaránið 1627 var einn sögulegasti viðburður sautjándu aldar á Íslandi. En ræningjahóparnir, sem hjuggu hér strandhögg, voru tveir, voru frá ólíkum stöðum og komu á ólíkum tímum.
Meira
Þegar ég var barn vitnaði faðir minn í að grínblaðið Spegillinn hefði hæðst að málsmekk samtímans með því að snúa tilsvörum úr fornritum upp á nútímamál: „Mikið djöfull er hlíðin smart, ég fer ekki rassgat,“ („Fögur er hlíðin ...
Meira
Guðríður Soffía Sigurðardóttir fæddist 23. febrúar 1928. Hún lést 7. janúar 2017. Guðríður Soffía var jarðsungin 18. janúar 2017.
MeiraKaupa minningabók
Helga Kristjana Ólafsdóttir fæddist á Húsavík 9. desember 1944. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík 9. janúar 2017. Foreldrar hennar voru Ásgerður Júlíusdóttir, f. 20.7. 1926, d. 1. ágúst 2008, og Ólafur Jón Aðalsteinsson, f. 17.6.
MeiraKaupa minningabók
Jón Á. Hjartarson fæddist 20. janúar 1928 á Bakka í Ölfusi. Hann lést á Sólvöllum, Eyrarbakka, 15. janúar 2017. Foreldrar hans voru Hjörtur Sigurðsson og Jóhanna Ásta Hannesdóttir, bændur að Auðsholtshjáleigu Ölfusi.
MeiraKaupa minningabók
Kristín Margrét Sveinbjörnsdóttir var fædd í Viðvík við Stykkishólm 4. marz 1921. Hún lézt á Hrafnistu í Reykjavík 5. janúar 2017. Foreldrar hennar voru Jóhanna Sigríður Jónsdóttir, f. 21.
MeiraKaupa minningabók
Ólöf Ragnheiður Guðjónsdóttir fæddist 16. desember 1919. Hún lést 18. desember 2016. Útför Ólafar Ragnheiðar fór fram 4. janúar 2017.
MeiraKaupa minningabók
Pétur Þórðarson fæddist 29. maí 1932. Hann lést 23. nóvember 2016. Foreldrar Péturs, sem bæði eru látin, voru Inga Kristjánsdóttir og Þórður Pétursson og átti Pétur þrjú systkin sem lifa bróður sinn. Eftirlifandi eiginkona hans er Erna Sigurbergsdóttir.
MeiraKaupa minningabók
Stefán fæddist 5. júní 1941 að Hofstöðum í Skagafirði. Hann lést á hjartadeild Landspítalans 12. janúar 2017. Foreldrar hans voru Ingigerður Guðmundsdóttir, f. 18. desember 1901, d. 24. febrúar 1987, og Stefán Stefánsson, f. 18. desember 1885, d. 25.
MeiraKaupa minningabók
Svava Friðgeirsdóttir fæddist í Vestmanneyjum 4. júlí 1940. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Vestmannaeyjum 9. janúar 2017. Foreldrar Svövu voru Friðgeir Guðmundsson, f. 21. júlí 1916, d. 6. júní 2001, og Elínborg Dagmar Sigurðardóttir, f. 8.
MeiraKaupa minningabók
Sveinn Trausti Haraldsson fæddist í Reykjavik 27. janúar 1946. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga hinn 11. janúar 2017. Foreldrar hans voru Sveindís Sveinsdóttir húsmóðir f. 11. nóvember 1922, d. 6.
MeiraKaupa minningabók
Í ályktun sem samþykkt var í vikunni skorar stjórn íbúasamtaka Úlfarsárdals á Reykjavíkurborg að ganga strax frá samningum við Knattspyrnufélagið Fram svo frekari uppbygging á starfsemi þess í Úlfarsárdal geti hafist.
Meira
Ég hef aldrei þurft að vinna við annað en það sem mér finnst skemmtilegt. Var lengi í verktakastarfsemi en núna á ferðaþjónustan hug minn allan. Sólmundur Sigurðsson, eigandi Sólhesta í...
Meira
Eimskip hefur átt í samningaviðræðum við skipasmíðastöðvar í Kína í tengslum við smíði á tveimur 2.150 gámaeininga skipum með ísklassa, að því er fram kemur í tilkynningu félagsins til Kauphallar.
Meira
Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Fjármálaeftirlitið hefur enn ekki afgreitt umsókn BLM fjárfestinga ehf. um að fara með yfir 50% eignarhlut í Klakka, sem er 100% eigandi fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar.
Meira
Í tilefni af Degi rafmagnsins , sem verður nk. mánudag, 23. janúar, styrkir Samorka innleiðingu og notkun á rúmlega 100 sólarorkulömpum sem fara inn á heimili í Kendu Bay í Afríkuríkinu Kenía, Afríku.
Meira
Skrifað hefur undir samning um sameiningu Verslunarmannafélags Suðurlands og VR. Framundan er rafræn kosning meðal allra sem eru í VMS um þessi áform. Hefst kosningin næstkomandi mánudag, 23. janúar kl. 12 og stendur til hádegis 30. janúar.
Meira
Listakonan Rúna, Sigrún Guðjónsdóttir, sýnir ný verk í Gerðubergi í Breiðholti um þessar mundir, en hún á að baki langan listamannsferil. Rúna ætlar að ganga með gestum um sýninguna á morgun, sunnudag, kl.
Meira
Ljóðahátíðin Dagar ljóðsins í Menningarhúsunum í Kópavogi hefst í dag, laugardaginn 21. janúar, þegar100 ár eru liðin frá fæðingu Jóns úr Vör. Hátíðin stendur til 28.
Meira
Hana dreymdi um að halda kvennaboð, nokkurs konar gjörning, þegar hún var í Listaháskóla Íslands. 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna í hittifyrra ýtti svolítið við Önnu Leif Elídóttur myndlistarkonu að láta til skarar skríða.
Meira
Fyrrverandi slökkvistjóri, rekstrarstjóri og deildarstjóri á Keflavíkurflugvelli, Haraldur Stefánsson, á áttræðisafmæli á morgun, 22. janúar. Hann er fæddur í Vesturbæ Reykjavíkur en ólst upp í Austurbænum í stríðinu.
Meira
Á þeim tveim sterku mótum sem þessa dagana fara fram á höfuðborgarsvæðinu, Skákþingi Reykjavíkur og Nóa-Síríus mótinu, er komin upp sú staða að sami skákmaðurinn er efstur í báðum mótunum.
Meira
Laugardagsgátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Nú er stefnan vestur á við. Víst á báðum eruð þið. Kona þessi eign þín er. Ætt til forna merkir hér. Hér er lausn Helga R. Einarssonar: Á báðum áttum er ég og á því frekar bágt.
Meira
Ragnhildur Guðrún Finnbjörnsdóttir lauk stúdentsprófi frá MH árið 2002. Hún lauk BSc-gráðu í líffræði frá HÍ árið 2007 og MSc-gráðu í umhverfis- og auðlindafræðum frá sama skóla árið 2010.
Meira
Laugardagur 95 ára Sigríður Ingimundardóttir 90 ára Astrid Marita Garðarsson 85 ára Anna Sigurjónsdóttir Halldór Jónatansson Kristín María Heiðberg Svava Torfadóttir 80 ára Edda Guðmundsdóttir Ingibjörg Jónasdóttir Jónína M.
Meira
Vinkonurnar Helga Dís Snæbjörnsdóttir og Arna Lísbet Ásgeirsdóttir gengu í hús í hverfinu sínu, Giljahverfi, á Akureyri og söfnuðu dóti á tombólu sem þær héldu síðan við verslun Samkaupa við Borgarbraut. Stúlkurnar söfnuðu alls 3.
Meira
21. janúar 1918 Mesta frost hér á landi, 38 stig á Celcius, mældist á Grímsstöðum og Möðrudal á Fjöllum. Þessi vetur var nefndur frostaveturinn mikli. Mesta frost í Reykjavík, 24,5 stig á Celcius, mældist þennan dag, en logn var og bjartviðri.
Meira
Alfons Sampsted hefur skrifað undir fjögurra ára samning við sænska knattspyrnufélagið Norrköping sem hefur gengið frá kaupum á þessum átján ára gamla bakverði frá Breiðabliki.
Meira
Í Borgarnesi Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Þór frá Akureyri hafði betur gegn Skallagrími í nýliðaslag í Dominos-deild karla í körfubolta í Borgarnesi í gærkvöldi, 100:89.
Meira
Íslensku þjálfarnir þrír sem stýra erlendum liðum á heimsmeistaramóti karla í handknattleik, Guðmundur Þ. Guðmundsson, Dagur Sigurðsson og Kristján Andrésson, unnu samtals fjórtán af fimmtán leikjum sínum í riðlakeppni mótsins.
Meira
Frakkland og Ísland frammi fyrir 28 þúsund áhorfendum í Lille í dag. Heimsmeistararnir og gestgjafarnir gegn íslenska liðinu sem vann einn leik af fimm í riðlakeppninni. Kalt mat segir okkur að líkur á íslenskum sigri séu í kringum fimm prósentin.
Meira
HM í Frakklandi Kristján Jónsson kris@mbl.is Gestgjafarnir Frakkar taka á móti okkur Íslendingum í 16 liða úrslitum á heimsmeistaramótinu í handbolta í Frakklandi í Lille í dag.
Meira
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City eru komnir til Liverpool þar sem þeir mæta heimamönnum á Anfield í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Flautað verður til leiks klukkan 12.30.
Meira
Samkenndin Gunnar Valgeirsson Los Angeles Donald Trump sór í gær embættiseið sinn sem forseti Bandaríkjanna og er jafn stór hluti landsmanna hér undrandi á þeim fréttum og aðrir heimsborgarar.
Meira
*Körfuknattleiksmaðurinn Danero Thomas sem hefur leikið með Þór á Akureyri í hálft annað ár samdi í gær við ÍR-inga um að leika með þeim út tímabilið. Hann var ósáttur fyrir norðan eins og fjallað var um á mbl.is.
Meira
Í Lille Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Það verður á brattann að sækja fyrir íslenska landsliðið í handknattleik í kvöld þegar það leikur í 16-liða úrslitunum á HM.
Meira
Handbolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Handboltamaðurinn Hreiðar Levý Guðmundsson á von á því að flytja heim í sumar og leika hér heima á næsta keppnistímabili.
Meira
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslandsmeistari í golfi, heldur á morgun til Bahamaeyja þar sem hún tekst á við sögulegt verkefni en hún verður þá fyrsta íslenska konan sem keppir á bandarísku mótaröðinni, LPGA.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.