Frá því í lok nóvember hefur inflúensa A(H3) verið staðfest hjá 315 manns. Í síðustu viku greindust heldur færri með staðfesta inflúensu samanborið við vikurnar á undan og nú hefur hún verið staðfest í öllum landshlutum.
Meira
Reiknaðar afurðir eftir hverja á voru á síðasta ári 28,2 kg, yfir landið allt. Eru þetta meiri meðalafurðir en áður hafa sést í skýrsluhaldinu hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) en tölulegar upplýsingar ná rúm 60 ár aftur í tímann.
Meira
Ásgeir Guðbjartur Guðbjartsson, „Geiri á Guggunni“, skipstjóri og útgerðarmaður, lést í gær á Sjúkrahúsinu á Ísafirði á 89. aldursári. Ásgeir fæddist 31. júlí 1928 í Kjós í Grunnavíkurhreppi. Foreldrar hans voru Jónína Þ.
Meira
Nú, um 43 árum eftir að Guðmundur Einarsson og Geirfinnur Einarsson hurfu, mun endurupptökunefndin birta sex úrskurði er varða sex manneskjur sem dæmdar voru í tengslum við málin. Af þeim eru tveir sakborninganna látnir.
Meira
Á síðasta fundi í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur lagði Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fram tillögu um að gerð yrði áætlun og átak í uppsetningu öryggismyndavéla utanhúss við leik- og grunnskóla borgarinnar.
Meira
Á heimasíðu Samgöngustofu má meðal annars nálgast nokkrar ábendingar og tilmæli til þeirra sem fljúga dróna. „Munið að þið berið ábyrgð á að ekki verði árekstur,“ segir þar.
Meira
Bræður voru í gær dæmdir fyrir skotárás í Breiðholti í ágúst. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Marcin Wieslaw Nabakowski í fangelsi í tvö ár og sjö mánuði og Rafal Marek Nabakowski í tvö ár og átta mánuði.
Meira
Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Ég lít á þetta sem aðför að Leikni og öllu því starfi sem félagið stendur fyrir í Breiðholtinu,“ segir Þórður Einarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Leiknis og núverandi yfirþjálfari.
Meira
Hæstiréttur ómerkti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli ákæruvaldsins gegn Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings í Lúxemborg, og fleiri forsvarsmönnum bankans.
Meira
Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Samgöngustofa hefur nú gefið út ákvörðun um flug allra dróna óháð þyngd þeirra, en drög að reglugerð um notkun og starfrækslu fjarstýrðra loftfara er nú til umsagnar hjá innanríkisráðuneytinu.
Meira
Mestu meðalafurðirnar á árinu 2016 voru sem fyrr á búi Eiríks Jónssonar í Gýgjarhólskoti 1 í Biskupstungum. Ærnar skiluðu 44,8 kílóum kjöts að meðaltali.
Meira
Flokkur Fólksins býður til formlegrar opnunar skrifstofu sinnar á morgun, laugardaginn 25. febrúar kl. 14.00. Skrifstofan er á 4. hæð í Hamraborg 10.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nú á vormánuðum munu hátt í 200 starfsmenn fjögurra fyrirtækja í Orkuveituhúsinu flytja í Turninn við Smáratorg í Kópavogi meðan á viðgerðum vesturhússins á Bæjarhálsi stendur.
Meira
„Það var gaman að sjá hversu margir mættu á fyrsta Nýsköpunarmót Álklasans, en lagt er upp með að það verði árlegur viðburður,“ segir Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls og stjórnarmaður í Álklasanum.
Meira
Georg Breiðfjörð Ólafsson, sem var elsti núlifandi einstaklingur á Íslandi, lést í gær, miðvikudaginn 22. febrúar á Dvalarheimili Stykkishólms. Georg var jafnframt elstur karla hér á landi. Hann var fæddur 26.
Meira
Baksvið Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Margir Svíar undrast nýlegar yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um hættuna sem hann segir að Svíþjóð stafi af mikilli fjölgun innflytjenda í landinu.
Meira
Stuðningsmenn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og sumir fjölmiðlar hafa dregið upp mjög ýkta mynd af vandamálum Svíþjóðar vegna mikillar fjölgunar innflytjenda.
Meira
Hindúi, klæddur sem guðinn Shiva, er hér með logandi kerti í munninum á göngu fyrir trúarhátíðina Maha Shivratri í borginni Jalandhar á Indlandi. Shiva er þriðji guðinn í guðaþrenningu hindúa.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Félag ábyrgra hundaeigenda segir að miðað við tækni nútímans sé með „öllu óskiljanlegt hvað það tekur marga hundaeftirlitsmenn langan tíma að koma óskilahundum til fjölskyldna sinna“.
Meira
„Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns,“ segir í fréttatilkynningu sem samtökin sendu frá sér í gær undir yfirskriftinni: Mývatn njóti vafans – ekki hótelstarfsemi. Þar er m.a.
Meira
Baksvið Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Endurupptökunefnd mun í dag kl. 14 birta niðurstöður sínar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu á heimasíðu nefndarinnar.
Meira
Í umfjöllun á síðu 10 í Morgunblaðinu í gær um UHT-meðhöndlun á mjólkurvörum var rætt við Kjartan Hreinsson, sérgreinadýralækni hjá Matvælastofnun. Þar var stofnunin ranglega skammstöfuð MATÍS, en rétt skammstöfun á heiti Matvælastofnunar er MAST.
Meira
Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Landfræðileg einangrun Íslands er höfuðástæða þess að húsdýr hérlendis eru að mestu laus við mörg þeirra smitefna sem landlæg eru í dýrum utan Íslands.
Meira
Landafræði Þau eru mörg púsluspilin, sem ungir sem aldnir glíma við, mörg púslin sem þarf að skoða og setja saman. Sum eru auðveld og kunn, en ekki er víst að allir átti sig á því hvernig púslin smella á Mýrum í...
Meira
Þótt margir leggi nú land undir fót og ferðist til fjarlægra landa í leit að heppilegu færi vita reykvísk börn að góðar brekkur leynast víða innan borgarlandsins.
Meira
„Húfurnar seldust á 100 þúsund krónur,“ segir Hanna Eiríksdóttir, herferðarstýra UN Women á Íslandi, um uppboð á þremur nokkuð sérstökum Fokk ofbeldi húfum.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verið er að undirbúa opnun á þremur sértækum hjúkrunarrýmum á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum í Reykjavík. Rýmin eru ætluð fólki með þörf fyrir mikla og sérhæfða hjúkrun og umönnun, til dæmis vegna meðferðar í...
Meira
Skálar Ferðafélags Íslands standa öllum opnir. Almenningur hefur not af gönguleiðum og brúm sem félagsmenn hafa merkt og smíðað. Útsýnisskífur lýsa staðháttum öllum sem á þær líta. Íslandslýsingar Ferðafélagsins, árbækurnar, eru öllum ætlaðar.
Meira
Reykjaneshöfn hefur óskað eftir tilboðum í að farga eikarbátnum Stormi SH 333. Báturinn liggur í Njarðvíkurhöfn. Stormur hefur alloft komist í fréttirnar fyrir að hafa sokkið í höfnum, síðast í október í fyrra, þegar hann sökk í Njarðvíkurhöfn.
Meira
Umhverfisstofnun áformar að fram fari verkfræðileg úttekt á starfsemi United Silicon vegna mengunarmála, en undanfarið hafa fjölmiðlar fjallað um lífsgæðaskerðingu íbúa í nágrenni kísilversins vegna loftmengunar.
Meira
Veðurstofa Íslands varar við stormi eða roki um allt land í dag og talsverðri eða mikilli rigningu suðaustanlands. Vaxandi suðaustanátt verður í morgunsárið, fyrst á suðvesturhorninu. Síðdegis má búast við að stormur verði, 20 til 28 m/s þar.
Meira
Vegna óvenjulegrar smitsjúkdómastöðu dýra á Íslandi er ljóst að öllum innflutningi á ferskum dýraafurðum fylgir ákveðin hætta með tilliti til smitefna.
Meira
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is „Ákveði nefndin að tilefni sé til endurupptöku, þá leggur ákæruvaldið, í þessu tilfelli settur ríkissaksóknari, málið fyrir Hæstarétt aftur á grundvelli sömu ákæru, að því viðbættu að það eru komin ný skjöl í málið.
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröð sem tileinkuð er tónlist blökkumanna í Bandaríkjunum verða haldnir í Hannesarholti í kvöld kl. 20. Á þeim mun söngvarinn Harold E.
Meira
Bresku Brit-tónlistarverðlaunin voru afhent í fyrrakvöld og hlaut David Bowie heitinn tvenn verðlaun, fyrir bestu bresku plötuna, Blackstar , og sem besti breski tónlistarmaðurinn.
Meira
Minningabókin Og svo tjöllum við okkur í rallið – Bókin um Thor eftir Guðmund Andra Thorsson og ljóðabókin Frelsi eftir Lindu Vilhjálmsdóttur hafa verið tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Íslands hönd.
Meira
Tvennir tónleikar tileinkaðir tónlist hljómsveitarinnar Nirvana verða haldnir í kvöld og á morgun, þeir fyrri á Græna hattinum á Akureyri kl. 22 og þeir seinni á Hard Rock Café í Reykjavík kl. 23.
Meira
Eins óborganlega fyndnir og þættirnir Shameless geta verið þá kippa þeir manni hressilega inn í harkalegan raunveruleika inn á milli. Líklega eru það þessi snörpu skipti milli gleði og eymdar sem gera þættina svona góða.
Meira
Bandaríska hljómsveitin Fleet Foxes og enski tónlistarmaðurinn Billy Bragg koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem haldin verður 1.-5. nóvember nk., skv. tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar.
Meira
Manchester by the Sea Þegar bróðir Lee Chandler (Casey Affleck) deyr er hann beðinn að taka að sér sonarson sinn, Patrick (Lucas Hedges). Þá ósk á Lee erfitt með að uppfylla. Myndin er tilnefnd til sex Óskarsverðlauna, þ.ám.
Meira
Tónleikar verða haldnir á Kaffi Laugalæk í kvöld kl. 20 til að hita upp fyrir tónlistarhátíðina Reykjavík Folk Festival sem haldin verður á Kex Hostel 2.-4. mars. Fram koma Bláskjár, Myrra Rós og Pétur Ben og er aðgangur ókeypis að...
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Una Björg Bjarnadóttir, dansari og danshöfundur, sýnir um helgina, 25. og 26. febrúar kl. 16, sitt fyrsta höfundarverk í Læknaminjasafninu á Seltjarnarnesi.
Meira
Strokkvartettinn Siggi, skipaður Unu Sveinbjarnardóttur, Helgu Þóru Björgvinsdóttur, Þórunni Ósk Marinósdóttur og Sigurði Bjarka Gunnarssyni, flytur efnisskrá þar sem saman fléttast gamalt og nýtt í Mengi í kvöld kl. 21.
Meira
Það var margt um manninn í Bíó Paradís í gær þegar kvikmyndahátíðin Stockfish var sett með sýningu á nýjustu kvikmynd þekktasta leikstjóra Finna, Aki Kaurismäki, sem í íslenskri þýðingu heitir Hin hlið vonarinnar.
Meira
Ég get ekki orða bundist um þetta áfengisfrumvarp sem er verið að leggja fram á Alþingi eina ferðina enn. Hefur þetta fólk ekkert þarfara að gera en ræða þetta mál sem þjóðin er alfarið á móti?
Meira
Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson: "Samfélag sem einkennist af frelsi og ábyrgð (á sjálfum sér) er líka miklu geðslegra þjóðfélag heldur en þjóðfélag valdboða og ofstjórnar."
Meira
Eftir Hildi Björk Sigurðardóttur: "Í dag vantar um 300 hjúkrunarfræðinga til starfa innan heilbrigðiskerfisins og áætlaðar tölur til næstu ára eru áhyggjuefni."
Meira
Eftir Björn Bjarnason: "Óvissan er nú ólíkt meiri um ýmsa þætti stjórnmála á Vesturlöndum en fyrir einu ári. Sumt breytist þó ekki þrátt fyrir stór orð í kosningabaráttu."
Meira
Eftir Hans Kristjánsson: "Næsta skref óvitans er að ná potti út úr skápnum og sveifla ógnandi kringum sig. Þar er forystusveit Landverndar stödd í sínu nýja þroskaferli."
Meira
Eftir Helga Helgason: "Við þurfum að koma böndum á þennan elítulýð sem er að og ætlar að sölsa undir sig eigur þjóðarinnar smátt og smátt. Við þurfum beint lýðræði."
Meira
Alexía Margrét Gísladóttir fæddist í Reykjavík 14. ágúst 1932. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 13. febrúar 2017. Foreldrar hennar voru Gísli Sigurðsson, f. 1. apríl 1896 á Yrpuhóli, Villingaholtshreppi, d. 24. ágúst 1978, og Katrín Kolbeinsdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Guðbjörg Egilsdóttir fæddist 1. ágúst 1937 í Múla í Biskupstungum. Hún lést 13. febrúar 2017. Foreldrar Guðbjargar voru Egill Geirsson, bóndi í Múla, f. 11. júlí 1906, d. 5 desember 1990, og Stefanía Ósk Valdimarsdóttir, f. 14. mars 1904, d. 9.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Sigvaldason fæddist 14. apríl 1954 í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu, Birkihlíð 6, Hörgársveit, 8. febrúar 2017. Foreldrar hans eru Ásthildur Guðmundsdóttir, f. 1. júlí 1928 í Dufansdal við Arnarfjörð, og Sigvaldi Jónsson, f. 1.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Zoega fæddist 7. mars 1923 í Reykjavík. Hann lést í Reykjavík 17. febrúar 2017. Foreldrar hans voru Geir G. Zoega, verkfræðingur, f. 28. september 1885, d. 4.
MeiraKaupa minningabók
Hafþór Snorrason fæddist í Hafnarfirði 21. nóvember 1954. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 14. febrúar 2017. Foreldrar hans voru Snorri Þorvaldsson fiðluleikari, f. 8. apríl 1931, d. 31. mars 2014, og Steiney Ketilsdóttir, f. 26. júní 1931, d.
MeiraKaupa minningabók
Kristinn Auðbergur Pálsson fæddist 20. júlí 1941. Hann lést á Skjólgarði, hjúkrunarheimili á Höfn í Hornafirði, 14. febrúar 2017. Foreldrar hans voru Sigurborg Sigurðardóttir, f. 31. júlí 1922, d. 24. september 1957, og Páll Vídalín Einarsson, f. 20.
MeiraKaupa minningabók
Lúðvík Jens (Lúlli) fæddist í Keflavík 22. apríl 1964. Hann varð bráðkvaddur 13. febrúar 2017. Foreldrar hans eru Eggert A. Sigurðsson, f. 9. febrúar 1938, d. 27. desember 2002 og Elísabet Lúðvíksdóttir, f. 20. mars 1939. Systkini Lúðvíks eru Guðrún, f.
MeiraKaupa minningabók
Markús Sigurðsson fæddist í Reykjavík 20. desember 1935. Hann lést á gjörgæsludeild Landsspítalans 13. febrúar 2017. Foreldrar Markúsar voru Guðrún Markúsdóttir, f. 22. júlí 1895, d. 23. júlí 1971, og Sigurður Einarsson, f. 6. júlí 1903, d. 24.
MeiraKaupa minningabók
Magga, eða Bebba eins og hún var líka kölluð, var fædd á Ísafirði 9. júlí 1944. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 18. febrúar 2017. Foreldrar voru Guðrún Þórunn Jónsdóttir, fædd 14. júní 1921 í Gjörvidal við Ísafjörð, dáin 6.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 21. maí 1926. Hún lést á Landakotsspítala 18. febrúar 2017. Foreldrar hennar voru Guðmundur Þórðarson frá Hól, f. 8. nóvember 1886, d. 6. mars 1960, bókari og Ingibjörg Ásta Filippusdóttir frá Gufunesi, f. 12.
MeiraKaupa minningabók
Sveinn Torfi Þórólfsson fæddist 5. september 1945. Hann lést 28. desember 2016 í Noregi. Jarðarförin fór fram frá Havsteinkirkju 17. janúar 2017.
MeiraKaupa minningabók
Hlutfall erlendra eigna af heildareignum lífeyrissjóða lækkaði á síðasta ári, þrátt fyrir að heimildir þeirra til erlendra verðbréfakaupa hafi numið 85 milljörðum króna á árinu. Um þetta er fjallað í Morgunkorni Íslandsbanka.
Meira
Hagnaður Eimskips nam 21,9 milljónum evra á síðasta ári, eða sem svara til liðlega 2,5 milljarða króna. Jókst hagnaðurinn um 23,0% frá árinu 2015.
Meira
Exton ehf. hefur fest kaup á fyrirtækinu Skemmtilegt ehf., sem býður upp á útleigu tjalda og fylgibúnaðar fyrir hina ýmsu viðburði, svo sem borð, stóla, uppblásna sófa, hitara, partagólf, uppblásin leiktæki og tréfelliskála.
Meira
Sumir segja að Guðjón Svansson sé gegnheill eins og rússneskur rekaviður en á sama tíma mjúkur maður. Hann lætur verkin tala og er óhræddur við að stökkva og sleppa öryggisnetinu.
Meira
Hinn hrífandi hljómur sellósins mun óma í Gerðubergi þegar Sigurður Bjarki Gunnarsson, sellóleikari við Sinfóníuhjómsveit Íslands, mun leika verk fyrir selló og píanó eftir Schumann, Bruch og Debussy, ásamt Nínu Margréti Grímsdóttur píanóleikara á...
Meira
Ég er mikið afmælisbarn og ætla að halda upp á afmælið í kvöld,“ segir Björg Jóna Birgisdóttir, námsstjóri í Listaháskóla Íslands, en hún á 60 ára afmæli í dag.
Meira
Bolli fæddist á Vesturgötu 38 í Reykjavík 24.2. 1947. Þar bjuggu þá foreldrar hans hjá afa hans og ömmu í móðurætt: „Þegar foreldrar mínir skildu, 1949, fór ég til föðurömmu og föðursystur minnar á Bárugötuna en Einar varð eftir á Vesturgötunni.
Meira
30 ára Guðrún ólst upp á Selfossi, býr í Dölum á Fáskrúðsfirði og starfar á leikskóla á Fáskrúðsfirði. Maki: Arnar Ingi Ármannsson, f. 1984, starfsmaður hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði. Börn: Sigurður Elís, f. 2012, og Jóna Dís, f. 2014.
Meira
Guðrún Ágústa Símonardóttir fæddist í Reykjavík 24.2. 1924. Foreldrar hennar voru Símon Johnsen Þórðarson lögfræðingur, jafnan nefndur „Símon á Hól“, og Steinþóra Ágústa Pálsdóttir, kölluð Ágústa.
Meira
30 ára Júlía ólst upp á Siglufirði og í Reykjavík, býr í Reykjavík og starfar hjá Íslandspósti. Maki: Valur Hentze Úlfarsson, f. 1983, íþróttafræðingur. Sonur: Úlfar Júlíus Valsson, 2015. Foreldrar: Halldóra Gordon, f.
Meira
Katla Bríet Björgvinsdóttir og Auður Katrín Linnet Björnsdóttir héldu tombólu hjá Austurveri og seldu origami og kort. Þær söfnuðu 2.067 kr. sem þær afhentu Rauða krossinum til að aðstoða börn í...
Meira
Að lúta í lægra haldi er að tapa , verða undir í átökum . Líkingin er óljós, segir í Merg málsins, en sennilega merki hald hér virðing , enda þekkist t.d. bæði að vera ( ekki ) í miklu haldi og að vera í lægra haldi .
Meira
40 ára Sigtryggur ólst upp í Sandgerði, býr í Njarðvík og er háseti á togaranum Vigra RE 71. Maki: Pranee Kawsri, f. 1978, starfsmaður við heimaþjónustu Reykjanesbæjar. Börn: Gísli Jón, f. 2005, og Lovísa Rós, f. 2007. Foreldrar: Gísli Arnbergsson, f.
Meira
90 ára Arnbjörn Ásgrímsson Ásdís Jónsdóttir Elías Guðmundsson 85 ára Guðrún Guðmundsdóttir Gunnlaugur Búi Sveinsson 75 ára Magni Steingrímsson Ragnar Árnason 70 ára Björn Magnússon Bolli Þór Bollason Elínborg Kristín Stefánsdóttir Helgi Jörgensson Jóna...
Meira
Helgi R. Einarsson er nýkominn heim frá Tenerife, – og varð ýmislegt til í ferðinni eins og „Útskýring Daníels“: Þegar prúðmennið Daníel drjóli datt á gólfið af stóli var ástæðan víst og af einlægni lýst út af of litlu alkóhóli.
Meira
Stöðugt fleiri vekja athygli á klækjum borgarstjóra og formanns umhverfis- og skipulagsráðs og jafnvel fyrrverandi borgarstjóri og helsti samstarfsmaður núverandi ráðsmanna flúði í gin Trumps í Bandaríkjunum. Allt betra en borgin.
Meira
24. febrúar 1630 Skálholtsstaður brann til kaldra kola. Í eldinum eyðilögðust þrettán hús og mikið af verðmætum munum. 24. febrúar 1863 Forngripasafn Íslands var stofnað. Helsti hvatamaðurinn var Sigurður Guðmundsson málari.
Meira
Coca Cola bikar kvenna Undanúrslit: Stjarnan – Selfoss 27:23 Haukar – Fram 21:28 *Stjarnan og Fram mætast í úrslitaleik í Laugardalshöllinni á morgun, laugardag, kl. 13.30.
Meira
Ekki er langt síðan ég sá myndina Eddie The Eagle um breska skíðastökkvarann Eddie Edwards sem öðlaðist svo gott sem heimsfrægð á Vetrarólympíuleikunum í Calgary árið 1988. Ég þekkti sögu Edwards ekki vel en hafði séð fyrir mér einhvers konar trúð.
Meira
* Elsa Guðrún Jónsdóttir var rétt rúmum 20 sekúndum frá því að komast í 30 manna úrslit sprettgöngu á HM í norrænum greinum í Lahti í Finnlandi í gær. Elsa Guðrún, sem vann undankeppni fyrir lengri vegalengdir í fyrradag, hafnaði í 61.
Meira
Í Höllinni Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Við áttum mjög góðan kafla undir lok fyrri hálfleiks þar sem við náðum fimm marka forskoti sem var gott að fara með inn í hálfleikinn.
Meira
Valskonur héldu áfram sigurgöngu sinni á Reykjavíkurmóti kvenna í knattspyrnu í gærkvöld þegar þær unnu Fylki, 3:1, í úrslitaleik í Egilshöllinni.
Meira
Í Höllinni Kristján Jónsson kris@mbl.is Tvö efstu liðin í deildakeppni Íslandsmótsins, Fram og Stjarnan, mætast í úrslitaleik Coca Cola-bikars kvenna í handbolta í Laugardalshöll á morgun.
Meira
Guðmundur Þórður Guðmundsson, Dagur Sigurðsson og Þórir Hergeirsson eru tilnefndir í kjöri á þjálfurum ársins 2016 af Alþjóðahandknattleikssambandinu, IHF.
Meira
Eyjamaðurinn Hlynur Andrésson verður ásamt Anítu Hinriksdóttur fulltrúi Íslands á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum innanhúss í Belgrad eftir viku.
Meira
Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Kósóvó, næsti andstæðingur Íslands í undankeppni HM karla í knattspyrnu, er nú í fyrsta sinn með í undankeppni stórmóts.
Meira
Aðeins 298 dögum, eða um níu mánuðum, eftir að Claudio Ranieri leiddi Leicester City til óvæntasta meistaratitilsins í sögu fótboltans á síðari árum, var honum sagt upp störfum hjá enska félaginu.
Meira
Aníta Ösp Ingólfsdóttir veit fátt skemmtilegra en að gera framandlegar tilraunir með mat. Eitt af hennar uppáhalds er að blanda saman svínakjöti og hörpuskel en fiskur í hennar meðförum þykir með því betra sem boðið hefur verið upp á hér á landi.
Meira
„Þessi réttur er, að mínu mati, algjört sælgæti – og er frekar fljótlegur. Ég hef sótt námskeið í matargerð í Víetnam, Taílandi og í Kína (þar sem ég bjó á árum áður), en finnst þessi réttur einhvern veginn standa upp úr.
Meira
„Um daginn sá ég auglýstan döðlusykur og varð ég mjög spennt að prufa hann enda elska ég að nota döðlur í matargerð. Ég skellti mér strax útí Nettó þar sem ég náði, held ég, síðasta pokanum.
Meira
Héðinn Svarfdal Björnsson er annálaður matgæðingur. Héðinn er sérfræðingur hjá embætti landlæknis, aðjúnkt við Háskóla Íslands og fararstjóri, en það síðastnefnda hefur kynt enn frekar undir mataráhuga hans.
Meira
„Ég hreinlega elska gott Sesar-salat og ef ég sé það á matseðli er ég fljót að ákveða mig. Það sem borið er á borð er þó mjög mismunandi eftir veitingahúsum og jafnvel er bætt við eggi eða beikoni.
Meira
Matreiðslumaðurinn Lucas Keller og ljósmyndarinn Íris Ann Sigurðardóttir eru eigendur veitingahússins The Coocoo‘s Nest. Lucas er frá Kaliforníu en lærði matreiðslu á Ítalíu svo réttir hans eru innblásnir víða að.
Meira
„Hér er fljótlegur réttur og barnvænn ‚crowd-pleaser‘ eins og Kaninn myndi segja. Þess má geta að hér má vel notast við ódýrari kjúklingabita og því gæti þetta alveg verið hversdagsmatur.
Meira
Á Grandanum í Reykjavík er að finna úrval skemmtilegra veitingamanna. Bæði í formi veitinghúsa og verslana. Matarvefurinn stefndi nokkrum þeirra saman og bað þau að töfra fram góðmeti sem þau tengja við orðið „comfort-food“ sem útleggst gjarnan sem kósí-matur á íslensku.
Meira
Það stóð ekki á internetinu þegar ég gerðist svo kræf að skella inn á facebook-síðu mína fyrirspurn um hvað skyldi kalla „comfort food“ á íslensku en margir kannast við enska heitið sem nær yfir girnilegan, djúsí mat sem nærir og veitir...
Meira
Matarbloggarinn Linda Björk Ingimarsdóttir á eatrvk.com töfrar hér fram veislumáltíð fyrir okkur en hún er orðin lesendum matarvefsins vel kunn fyrir uppskriftir sínar. Þemað í matargerðinni að þessu sinni var kósý-matur sem kætir í vetrarbylnum.
Meira
Systurnar Helga María og Júlía Sif Ragnarsdætur eru reglulegir gestir á síðum Matarvefsins enda annálaðir sælkerar og grænkerar. Hér er komin dásamleg leið til að nýta afgangsgrænmeti í ljúffenga súpu að hætti þeirra systra.
Meira
Matarvefurinn sá um eftirréttinn. 4 eggjarauður 6 msk. sykur 500 ml rjómi, þeyttur 2 msk. límónusafi 4-6 msk. romm ½ tsk. piparmintuessens eða dropar. Fersk minta og kóksflögur til skreytingar. Jafnvel mangó skorið í hjörtu með litlu piparkökuformi.
Meira
Þessi uppskrift er einföld og mjög góð. Pylsurnar eru skemmtilega kryddaðar og innihalda einungis fyrsta flokks hráefni en Þórarinn Jónsson og Lisa Boije, eigendur kjötvöruversluninnar Matarbúrið, framleiða pylsurnar sjálf.
Meira
6 mintulauf ½ lime í bátum 1 tsk. hrásykur 3 msk. romm 1 msk. Malibu 1 dl kókosvatn með mangó sódavatn ferskt mangó og minta til skreytinga Merjið mintulaufin, hrásykurinn og límónubátana saman í morteli.
Meira
Hildur Kristín Stefánsdóttir er 29 ára Reykjavíkurmær sem aðhyllist steinaldarfæði og tekur þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins á morgun. Hún opnaði nýlega skemmtilegt matarblogg þar sem hún deilir hollum uppskriftum og almennri gleði.
Meira
„Þetta gúmmelaði er upphaflega frá Ítalíu og Portúgal. Það er til í mörgum útgáfum og auðvelt er að leika sér með hráefnin. Það sem er frábært við þennan rétt er hve einfaldur hann er, bragðgóður, ég meina hver elskar ekki súkkulaði?
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.