Georg Ottósson, eigandi Flúðasveppa, kveðst lengi hafa gengið með þá hugmynd í maganum að opna veitingastað í tengslum við ræktunina. „Hugmyndin hjá mér er orðin svona 15 ára gömul. Friðheimar voru bara á undan að framkvæma hana.
Meira
Fimmtán sveitarfélög eru á Suðurlandi. Langur vegur er á milli vestasta hluta Suðurlands og þess austasta. Til að mynda eru 429 kílómetrar á milli Þorlákshafnar og Hafnar í Hornafirði. Árborg er langfjölmennasta sveitarfélagið með 8.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt tillögu borgarstjóra um að stefna að gerð ylstrandar í Laugarnesi, við Skarfaklett. Þar er nú manngerð lítil vík með hvítum skeljasandi.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Einar Páll Svavarsson, sem er í forsvari fyrir íbúa í Mánatúni, segir niðurstöðu Skipulagsstofnunar varðandi breytingar á deiliskipulagi Borgartúns 24 hljóta að leiða til þess að hætt verði við áformin.
Meira
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað Sigurð Kristinsson, sem er grunaður um aðild að stóru fíkniefnamáli, Skáksambandsmálinu svokallaða, í fjögurra vikna farbann, eða til 18. maí. Þetta er gert að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Meira
Skilríkjaeftirlit er einn af mikilvægustu þáttunum í samfélagslegri ábyrgð. Markmiðið er að tryggja að allir viðskiptavinir hafi náð 20 ára aldri.
Meira
Fangar sem hafa sammælst um að hjálpast að við flótta geta átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. Það varðar við lög að hvetja eða hjálpa manni að losna úr haldi yfirvalda. Slíkt getur leitt til allt að tveggja ára fangelsis.
Meira
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands, segir nauðsynlegt að læknar endurhugsi ávísun morfínskyldra lyfja við stoðkerfisverkjum.
Meira
Sveinbjörn Halldórsson, formaður Samtaka útivistarfélaga (SAMÚT), er afar ósáttur við þá ákvörðun stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs að banna umferð um Vonarskarð. „Við teljum lokun í Vonarskarði og því svæði í nafni náttúruverndar ekki rétta.
Meira
Matjurtagarðarnir í Reykjavík verða opnaðir 1. maí næstkomandi og geta íbúar pantað þá til afnota eins og undanfarin ár. Átta hundruð matjurtagarðar eru leigðir út á vegum borgarinnar og eru þeir víða um borgina.
Meira
„Þetta er fyrirbæri sem heitir „Með fróðleik í fararnesti“ og er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands,“ segir Tómas Grétar Gunnarsson vistfræðingur, en í dag kl.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við opnuðum 22. júlí á síðasta ári en einhvers staðar er talað um í þessum veitingafræðum að það taki alveg tvö ár að koma veitingastað á kortið.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Viðskiptavinum Vínbúðanna fjölgaði um 4% í fyrra frá árinu áður og voru alls 4,9 milljónir. Þeir keyptu tæplega 22 milljónir lítra af áfengi, langmest af bjór. Í boði voru alls 3.350 vörutegundir.
Meira
„Ég er mjög ánægður hér, ég kýs frekar að vinna en að vera atvinnulaus. Þegar maður er ekki að gera neitt kemur alltaf þessi hugsun; ég er ekki að gera neitt fyrir þjóðfélagið, ég er ekki að gera neitt fyrir landið.
Meira
Til stendur að loka fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í Reykjanesbæ í sumar þar sem ekki hefur tekist að fá fólk til afleysingastarfa þar. Þetta segir Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður kjaramálaráðs Ljósmæðrafélags Íslands.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ástand göngustíga að Brúarfossi í Biskupstungum er slæmt í vor. Stígarnir þola ekki þá miklu umferð sem er um svæðið. Til stendur að halda áfram úrbótum í sumar.
Meira
Elísabet II Bretadrottning heldur upp á 92 ára afmæli sitt í dag eftir að hafa sett leiðtogafund ríkja Samveldisins í Lundúnum, hugsanlega í síðasta skipti. Elísabet drottning hefur ríkt lengst allra þjóðhöfðingja í sögu Bretlands.
Meira
21. apríl 2018
| Innlendar fréttir
| 1187 orð
| 4 myndir
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Húsnæðisskortur, samgöngumál, bygging hjúkrunarheimila, heilbrigðisþjónusta og sambúðin við ferðamenn eru þau mál sem brenna hvað helst á Sunnlendingum þegar nær dregur kosningum til sveitarstjórna.
Meira
Einar Kristinsson verslunarmaður í Mosfelli á Hellu Það þarf að bæta samgöngur. Hér við verslunina leggur hreppurinn stétt hérna megin við hringtorgið en Vegagerðin vill hafa hana hinum megin og þar leggja þeir sebrabrautina.
Meira
Sviðsljós Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Þjóðskjalasafnið hefur nýlega sett á vef sinn (skjalasafn.is) prestþjónustubækur og sóknarmannatöl á stafrænu formi. Hvort tveggja eru grundvallarrit þegar leitað er upplýsinga á sviði ættfræði og sögu.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Meirihluti hreppsnefndar Reykhólahrepps hefur samþykkt að láta gera „óháð mat“ á valkostum í vegagerð í Gufudalssveit.
Meira
Fyrsta landsþing Miðflokksins verður haldið í Hörpu í Reykjavík í dag og á morgun, í sölunum Kaldalóni og Norðurljósum. Fram kemur í frétt á heimasíðu Miðflokksins að landsþing hefur æðsta vald í málefnum Miðflokksins, mótar m.a.
Meira
Óbrigðult merki um sumarkomuna er þegar eimreiðin Minør er sett upp á Miðbakka við Gömlu höfnina í Reykjavík. Eimreiðin er jafnan sett upp í kringum sumardaginn fyrsta og tekin niður í kringum fyrsta vetrardag.
Meira
„Þau eru mörg búin að dvelja stutt hér á landi og vantar móðurmálskennslu. Við viljum gera nemendur betur hæfa til þess að aðlagast samfélaginu hér,“ segir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari FSu, í samtali við Morgunblaðið.
Meira
Sú hefð hefur skapast hjá Þjóðbúningafélaginu Auði á sunnanverðum Vestfjörðum að hafa þjóðbúningamessu á sumardaginn fyrsta. Að þessu sinni mættu konur í norskum og pólskum búningum, auk íslenskra. Þær létu mynda sig á tröppum Bíldudalskirkju.
Meira
Fulltrúar N1 og stjórn ÍBV hafa undirritað samning sem felur í sér að N1 verður á ný og næstu þrjú árin helsti bakhjarl ÍBV í meistaraflokki karla í knattspyrnu.
Meira
Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, tilkynnti fjölmiðlum í Norður-Kóreu í gærkvöldi að ríkið hefði ákveðið að láta af frekari tilraunaskotum kjarnorkueldflauga frá og með deginum í dag.
Meira
Nú er hægt að fara til Rússlands, á heimsmeistarakeppni karla í fótbolta, með sérsmíðað handverk á fótunum, en Þráinn skóari á Grettisgötu hefur hannað HM-skó sem hann hyggst klæðast á fyrsta leik Íslands í Moskvu.
Meira
Alþýðufylkingin hélt blaðamannafund í Friðarhúsinu við Snorrabraut í gærmorgun, þar sem borgarmálastefnuskrá framboðslistans í Reykjavík var kynnt. Hefur hún einnig verið birt á vefsíðu flokksins.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Nýtt veitingahús, LOF, hefur verið opnað á Mýrargötu 31 í Reykjavík. Staðurinn sérhæfir sig í spænskri matargerð. Þar er rými fyrir 55 gesti innandyra og á garðpalli sem snýr til suðurs á baklóð.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stjórnvöld í Ísrael hafa miklar áhyggjur af því að Íranar, erkióvinir þeirra, geti eflt herafla sinn í Sýrlandi, við landamærin að Ísrael.
Meira
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands, segir nauðsynlegt að fækka ópíóðalyfjum í umferð á Íslandi til að reyna að minnka ópíóðafíknivandann. Hann segir lyfin gegna mikilvægu hlutverki ef þau eru rétt notuð,...
Meira
Upptök eldsvoðans í Miðhrauni í Garðabæ fyrr í mánuðinum voru í tenglum neðan við rafmagnstöflu á brunavegg í húsnæði Icewear. Þetta kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðu rannsóknar lögreglu.
Meira
Reykjavík Það var vor í lofti og spegilsléttur sjór á Sundunum þegar Teistan RE-33 var sjósett vestur við Granda. Sumarið er tími smábátanna og þá eru strandveiðar stundaðar af...
Meira
Borgarráð hefur einnig samþykkt að stefna að gerð ylstrandar í Gufunesi. Gera skal ráð fyrir henni í nýju deiliskipulagi og starfshópur skal áfram vinna að þróun verkefnisins á grundvelli frumathugunar sem liggur fyrir.
Meira
Þuríður Jóhanna Kristjánsdóttir, fyrrverandi prófessor við Kennaraháskóla Íslands, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum síðastliðinn miðvikudag, nærri níutíu og eins árs að aldri. Þuríður fæddist á Steinum í Stafholtstungum í Borgarfirði 28.
Meira
Álitsgerð fjármálaráðs um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2018-2022 verður sennilega ekki metsölubókin í ár, enda efnið fremur tormelt og orðalag varfærið eins og við er að búast í slíkri skýrslu.
Meira
Íslenski flautukórinn kemur fram í 15:15-tónleikasyrpunni í Norræna húsinu á morgun kl. 15.15, að þessu sinni skipaður 13 flautuleikurum sem leika úrval verka Þorkels Sigurbjörnssonar, bæði einleiksverk, dúetta, kammerverk og verk fyrir...
Meira
Sænska akademían (SA) hyggst afhenda lögregluyfirvöldum úttekt lögfræðistofunnar Hammarskiöld & Co sem Sara Danius, þáverandi ritari SA, réð til að rannsaka tengsl Jean-Claudes Arnaults við alla meðlimi SA, en Arnault er kvæntur Katarinu Frostenson sem...
Meira
Að velja sjónvarpsefni getur verið snúið. Þrátt fyrir allar sjónvarpsstöðvarnar með ofgnótt af nýju efni og endalausu efni á Netflix hef ég af einhverjum ástæðum dottið í eldgamlar seríur.
Meira
The Man Who Killed Don Quixote , kvikmynd leikstjórans Terry Gilliam, verður lokamynd kvikmyndahátíðarinnar í Cannes og heimsfrumsýnd þar 19. maí. Gilliam hóf að vinna að myndinni fyrir tveimur áratugum en varð að hætta tökum árið 2000.
Meira
Söngsveitin Ægisif mun á tónleikum í Langholtskirkju í dag, laugardag, kl. 17, flytja kórverkið Bjöllurnar eftir Sergej Rachmaninov, auk valdra kafla úr Náttsöngvum tónskáldsins.
Meira
Hulda Jónsdóttir fiðluleikari og Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari slá botninn í fimmta starfsár tónleikaraðarinnar Hljóðön í Hafnarborg á morgun kl. 20 með tónleikum sínum tileinkuðum andþemum og örsögum.
Meira
Hrafnhildur Arnarsdóttir myndlistarkona, sem þekkt er undir listamannsnafninu Shoplifter, segir að þegar henni hafi verið boðið að setja upp sýningu í samtali við verk Ásmundar Sveinssonar í Ásmundarsafni, hafi hún ákveðið að vinna ekki með hár, eins og...
Meira
Tónlistarhátíðin Heima fór fram í ýmsum heimahúsum í Hafnarfirði nú á miðvikudaginn, síðasta vetrardag. Pistilritari rölti um götu bæjarins og þáði góðgjörðir úr höndum tónlistargyðjunnar.
Meira
Af tónlist Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Að kvöldi síðasta vetrardags bauð Bubbi Morthens til sannkallaðrar tónlistarveislu í Eldborgarsal Hörpu.
Meira
Útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands hefst í dag og stendur yfir til 24. maí. Fyrsti viðburður hátíðarinnar eru tónleikar Ingunnar Huldar Sævarsdóttur, meistaranema í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi í tónlist, sem fara fram í dag kl. 15 í...
Meira
Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson: "Verði ekki ráðist í skipulagsbreytingar og ákveðna uppstokkun á heilbrigðiskerfinu munu bæði biðlistar lengjast og biðlistar eftir að komast á biðlistana."
Meira
Eftir Ingu Láru Karlsdóttur og Ásdísi Halldórsdóttur: "Eflum og styrkjum aldraða sem búa heima hjá sér með sveigjanlegri heimaþjónustu og notum nýjar forvarnarleiðir með velferðartækni að leiðarljósi."
Meira
Eftir Vilhelm Jónsson: "Geðheilbrigði þjóðarinnar er slæmt en sýnu verst er það hjá stjórnvöldum, sem virðast ekki hafa samvisku og réttlætiskennd til að haga sér eins og menn."
Meira
Eftir Þorkel Sigurlaugsson: "Frambjóðendur til borgarstjórnar eiga ekki að gefa ríkisstjórninni neinn afslátt af því að klára núverandi uppbyggingu meðferðarkjarna og rannsóknarhúss árin 2023/2024."
Meira
Eftir Kjartan Jóhannesson: "Fjármálaráðuneytið hefur hafnað kröfum um að semja um leiðréttingu, þrátt fyrir að dómkvaddur óháður matsmaður hafi sýnt fram á forsendubrest."
Meira
Eftir Hildi Hermóðsdóttur: "Er ekki hreinlega háskalegt að róta á þennan hátt í okkar viðkvæma málkerfi og hefur þetta eitthvað með jafnrétti að gera?"
Meira
Alkunna er að við beitum tungumálinu eftir aðstæðum, við skrifum ekki eins í blöðin og í smáskilaboðum og ritmál er að jafnaði ólíkt talmáli, svo mjög að það kemur fólki á óvart að sjá orð- og hikréttar uppskriftir af eigin tungutaki og viðmælenda...
Meira
Eftir Miroslav Lajcák: "Við ættum að hafa varanlegan frið að leiðarljósi, frekar en að reyna í ofboði að finna fyrst lausnir þegar byssurnar hafa talað."
Meira
Í liðinni viku skapaðist mikil umræða um öryggis- og varnarmál í kjölfar aðgerða Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands í Sýrlandi. Eftir aðgerðina stóð Ísland ásamt öllum bandalagsríkjum Atlantshafsbandalagsins að yfirlýsingu NATO.
Meira
Út er komið eftir mig ritið Totalitarianism in Europe: Three Case Studies , Alræði í Evrópu: Þrjár rannsóknir, og kynni ég það á fundi í Háskólatorgi, stofu 101 (Ingjaldsstofu), fimmtudaginn 26. apríl klukkan fimm.
Meira
Fjóla Ólafsdóttir fæddist að Kleifum í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi 10. júní 1922. Hún lést 10. apríl 2018.Foreldrar hennar voru hjónin Ólafur Hálfdánarson, f. 4.8. 1891, d. 1973, og María Rögnvaldsdóttir, f. 13.1. 1891, d. 1989. Fjóla.
MeiraKaupa minningabók
Fjóla Ólafsdóttir fæddist að Kleifum í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi 10. júní 1922. Hún lést 10. apríl 2018. Foreldrar hennar voru hjónin Ólafur Hálfdánarson, f. 4.8. 1891, d. 1973, og María Rögnvaldsdóttir, f. 13.1. 1891, d. 1989.
MeiraKaupa minningabók
Gréta Sigrún Tryggvadóttir fæddist 12. ágúst 1941 á Raufafelli í Austur-Eyjafjallahreppi. Hún andaðist á gjörgæsludeild FSA 11. apríl 2018. Foreldar Grétu Sigrúnar voru Eiríkur Tryggvi Þorbjörnsson, f. 6.8. 1909, d. 22.5.
MeiraKaupa minningabók
Guðjón Arnar Kristjánsson fæddist á Ísafirði 5. júlí 1944. Hann lést 17. mars 2018. Foreldrar hans voru Kristján Sigmundur Guðjónsson smiður, f. 17. nóvember 1911, d. 22. desember 1989, og kona hans Jóhanna Jakobsdóttir húsmóðir, f. 16. október 1913, d.
MeiraKaupa minningabók
Reynir Bergsveinsson fæddist 30. nóvember 1938 í Gufudal í Austur-Barðastrandarsýslu. Hann lést 6. apríl 2018 á sjúkrahúsinu á Akranesi. Foreldrar hans voru Kristín Petrea Sveinsdóttir, f. í Hvallátrum 1894, d. 2000, og Bergsveinn Elidon Finnsson, f.
MeiraKaupa minningabók
Sigmar Ólason sjómaður fæddist á Reyðarfirði 12. október 1927. Hann lést á Hulduhlíð Eskifirði 15. apríl 2018. Sigmar var yngstur fimm barna Óla Sigurðar Bjarnasonar og Kristínar Hólmfríðar Nikulásdóttur.
MeiraKaupa minningabók
Sigurlaug Vilmundardóttir fæddist í Höfðahúsi á Fáskrúðsfirði 1. júní 1935. Hún lést á Kanaríeyjum 2. mars 2018. Foreldrar hennar voru Vilmundur Sigurðsson og Stefanía Marta Bjarnadóttir.
MeiraKaupa minningabók
Örn Guðmundsson fæddist í Reykjavík 21. apríl 1948. Hann lést eftir erfið veikindi 25. mars 2018. Örn var sonur hjónanna Helgu Hermóðsdóttur, húsmóður og verkakonu, f. 1925, og Guðmundar Vals Sigurðssonar, húsasmíðameistara, f. 1913. Þau skildu.
MeiraKaupa minningabók
Nú er að renna upp annað sumarið sem ég er hótelstjóri á Laugum í Sælingsdal. Jafnframt vinn ég hjá Fræðsluneti Suðurlands enda kennari í hjarta mínu. Þetta er góð blanda; fólk og flakk út og suður. Dýrfinna Sigurjónsdóttir,...
Meira
Háskólamenntuðu fólki á Íslandi á aldrinum 25 til 64 ára hefur fjölgað um 14,7% frá árinu 2003. Alls 42,4% fólks í þessum aldurshópi höfðu lokið háskólamenntun á síðasta ári eða alls 73.600.
Meira
Iðnvélar ehf. keyptu í síðustu viku allt hlutafé í Innvali ehf. Með kaupunum hafa Iðnvélar það að markmiði að auka þjónustustig sitt og auka úrval á hágæða íhlutum til viðbótar við þau gæðamerki sem Iðnvélar selja nú þegar.
Meira
Í viðtali við Guðmund Kristjánsson í blaðinu á föstudag, um kaup Brims hf. á þriðjungshlut í HB Granda hf., misritaðist nafn Kristjáns Loftssonar, stærsta hluthafa Hvals hf. og hann kallaður Jónsson. Beðist er afsökunar mistökunum. ai@mbl.
Meira
Karlakórinn Lóuþrælar úr Húnaþingi vestra heldur sína árlegu vortónleika í Seltjarnarneskirkju í dag, laugardaginn 21. apríl, kl. 16. Söngstjóri kórsins er Ólafur Rúnarsson, undirleikari Elínborg Sigurgeirsdóttir og einsöngvarar Friðrik M.
Meira
Alls 14,1 milljarðs kr. heildarávinningur var af starfsemi Virk starfsendurhæfingarsjóðs á síðasta ári og ávinningur á hvern útskrifaðan einstakling var 12,6 millj. kr., skv. nýrri skýrslu Talnakönnunar.
Meira
Origo hefur keypt hugbúnaðarfyrirtækið Benhur. Markmiðið með kaupunum á Benhur er að breikka lausnaframboð Origo á heilbrigðissviði , svo sem með lausnum og þjónustu til rannsóknastofa, segir í tilkynningu.
Meira
TripAdvisor, sem rekur heimsþekkta ferðasíðu, hefur keypt íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Bókun. Hugbúnaður fyrirtækisins er mest notaða sölu- og birgðakerfið í íslenskri ferðaþjónustu.
Meira
Fátt vita krakkar skemmtilegra en að fara í fjársjóðsleit og nú verður einmitt boðið upp á slíkt á morgun, sunnudag 22. apríl, kl. 13:30-15:00 í Borgarbókasafninu í Árbæ, Hraunbæ 119.
Meira
Það er nóg að gera hjá honum Osamu Yamaguchi sem ræktar japanska hunda sem kallast Akita. Ræktunarbú hans er í Takasaki í Japan, en þó nokkur eftirspurn er eftir þessum sjúklega sætu og vinalegu hundum.
Meira
Fyrir þá krakka sem eru á aldrinum 9 til 15 ára og langar að fá leiðsögn í að rappa, þá er um að gera að skella sér í Gerðuberg í Breiðholti í dag laugardag 21. apríl klukkan 13.30-14.
Meira
Ljósmyndasýningin Miðbærinn – söguleg byggð, er sett saman til þess að vekja fólk til umhugsunar um verðmætin sem eru fólgin í hinni sögulegu byggð á Eyrarbakka fyrir Sveitarfélagið Árborg í heild sinni. Í aðalskipulagi Árborgar segir m.a.
Meira
Búast má við dásamlegu dirrindíi í Árnesi í Gnúpverjahreppi í dag, laugardag, kl. 16, en þá ætla kórar úr þremur áttum að mætast þar og flytja heilan Fuglakabarett.
Meira
9 til 12 Opið um helgar Hinn vinsæli útvarpsmaður Ásgeir Páll hefur opið allar helgar á K100. Vaknaðu með Ásgeiri á laugardagsmorgni. Svaraðu rangt til að vinna, skemmtileg viðtöl og góð tónlist.
Meira
Akureyri Eldey Björt Óskarsdóttir fæddist 2. mars 2017 kl. 4.45. Hún vó 3.622 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Halla Soffía Tulinius og Óskar Jónasson...
Meira
Karl Dietrich Roth fæddist í Hannover í Þýskalandi 21. apríl 1930. Foreldrar hans voru Karl Ulrich Roth bókari og Vera Ella Dolla Roth Feltman, húsmóðir og ljóðskáld. Fyrstu 13 árin bjó Dieter í foreldrahúsum í Hannover.
Meira
Mikið verður um dýrðir í Hörpu í kvöld þegar Eldborg breytist í Rauðu mylluna. Þessi glæsilega tónleikasýning byggist á einni vinsælustu kvikmynd okkar samtíma, Moulin Rouge og munu áheyrendur upplifa hana í tónlist, dansi og leik.
Meira
Tónlistargoðsögnin Prince fannst látin í lyftu á heimili sínu í Minnesota á þessum degi árið 2016. Fullt nafn söngvarans var Prince Rogers Nelson en hann fæddist í Minneapolis 7. júní árið 1958 og var því á 58. aldursári.
Meira
Maður með „klyfjaðan innkaupapoka í hvorri hendi“ þarf að standa fyrir máli sínu. Ílát geta verið barma-, kúf-. stút-, fleyti-, troð- eða sneisafull eftir lagi og efni. En bæði klyf og fleirtalan klyfjar þýða byrði .
Meira
Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor í almennri bókmenntafræði í Háskóla Íslands og deildarforseti Íslensku- og menningardeildar, á 50 ára afmæli í dag. „Ég er því með yfirumsjón með deildinni þessa dagana svo ég kenni minna en vanalega.
Meira
Gátan er sem endranær efir Guðmund Arnfinnsson Fulllærður hann fráleitt er. Fljóð sá ekki barnar. Við hirðina þeir sómdu sér. Sonur Axlar-Bjarnar. Knútur H. Ólafsson svarar: Sveininum margt ólært er, ungur sveinn ei barnar.
Meira
Laugardagur 85 ára Ólafur Einar Ólafsson Sigurður Þórhallsson 80 ára Halldór Gíslason Páll G. Sigurþórsson Ragnhildur Björnsson Vera Einarsdóttir 75 ára Arnór L. Pálsson Bergljót B. Gíslason Edda Steingrímsdóttir Guðjón Samúelsson 70 ára Einar G.
Meira
Víkverja finnst gaman að halda upp á sumardaginn fyrsta. Það er ekki alltaf gott veður þennan dag og það má deila um hvort sumarið sé komið eða ekki en eitt er víst að fólk er komið með sumarið í hjarta.
Meira
21. apríl 1919 Sænsk kvikmynd um Fjalla-Eyvind, eftir sögu Jóhanns Sigurjónssonar, var frumsýnd í Gamla bíói annan í páskum. „Eru sýningarnar mjög skrautlegar,“ sagði í Lögréttu.
Meira
Seinni umferð Íslandsmóts skákfélaga hefur undanfarin ár farið svo nálægt dagskrá Reykjavíkurskákmótsins að úrslit og viðureignir hafa því ekki alltaf fengið verðskuldaða athygli.
Meira
Arnór Lárus Pálsson fæddist á Skinnastað í Öxarfirði og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Laugum í Reykjadal 1959 og nam tungumál og verslunarfræði í Danmörku og Englandi 1962-64.
Meira
Arnór Þór Gunnarsson og liðsfélagar hans í Bergischer tryggðu sér í gærkvöld sæti í efstu deild þýska handboltans með 35:22-sigri á Wilhelmshavener á heimavelli sínum.
Meira
Ég á einhvern veginn erfitt með að ákveða hvernig mér líður með þá staðreynd að Arsene Wenger skuli vera að hætta með Arsenal. Ég held að mér líði illa.
Meira
Grill 66-deild kvenna Umspil, þriðji úrslitaleikur: Grótta – HK 21:25 • HK vann 3:0 og leikur í úrvalsdeild á næstu leiktíð. Grótta fellur úr deildinni.
Meira
HK vann sér í gærkvöldi sæti í úrvalsdeild kvenna í handknattleik eftir að liðið vann Gróttu í þriðju viðureign liðanna í umspili um keppnisrétt í deildinni, 25:21. Leikið var á heimavelli Gróttu.
Meira
*Kínverska kvennalandsliðið í knattspyrnu, undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar , fékk í gær bronsverðlaunin í Asíubikarnum í Jórdaníu með því að sigra Taíland, 3:1.
Meira
Á Sauðárkróki Einar Sigtryggsson sport@mbl.is Tindastóll og KR mættust í fyrsta leiknum í úrslitaeinvígi Dominos-deildarinnar í körfubolta í gærkvöld. Liðin höfnuðu í 3. og 4. sæti deildarkeppninnar en slógu út lið ofar sér í undanúrslitum.
Meira
Viggó Kristjánsson og Ólafur Bjarki Ragnarsson áttu stóran þátt í að West Wien náði í 25:25-jafntefli á heimavelli meistara Alpla Hard í úrslitakeppni austurríska handboltans í gær.
Meira
Wenger Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Í fyrstu spurði ég sjálfan mig hvað þessi Frakki héldi að hann vissi eiginlega um fótbolta. Hann var með gleraugu og leit meira út eins og kennari.
Meira
Það blés ekki byrlega hjá Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur kylfingi þegar hún hafði lokið við að leika níu af átján brautum á öðrum keppnisdegi á LPGA-móti í Los Angeles þegar Morgunblaðið fór í prentun.
Meira
Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is Í annað sinn á einu ári eru leikmenn rúmenska liðsins Potaissa Turda mættir til Íslands til þess að mæta íslensku félagsliði í undanúrslitum Áskorendakeppni Evrópu.
Meira
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, og stöllur hennar í þýska meistaraliðinu Wolfsburg eru komnar til London þar sem þær mæta Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu síðdegis á morgun.
Meira
Íslandsmótið í sundi í 50 m laug hófst í gær í Laugardalslaug. Predrag Milos úr SH nældi í tvenn gullverðlaun. Hann kom fyrstur í mark í 50 m skriðsundi á tímanum 23,12 sekúndum og á 57,74 sekúndum í 100 m flugsundi.
Meira
Blak Gunnar Gunnarsson sport@mbl.is Þróttur Neskaupstað er Íslandsmeistari í blaki kvenna í níunda sinn eftir 3:0-sigur á Aftureldingu í þriðja leik liðanna í úrslitum í gærkvöldi.
Meira
Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir náði ekki að halda uppteknum hætti á Lalla Meryem-mótinu í golfi sem fram fer í Marokkó. Mótið er hluti af LET-Evrópumótaröðinni.
Meira
10 til 11 Þingvellir Páll Magnússon og Björt Ólafsdóttir stýra líflegum þjóðmálaþætti í beinni útsendingu á K100 alla sunnudagsmorgna. 11 til 15 Opið um helgar Hinn vinsæli útvarpsmaður Ásgeir Páll hefur opið allar helgar á K100.
Meira
Þegar Kim Bodnia gekk úr skaftinu eftir aðra seríuna af Brúnni var annar danskur leikari ráðinn í staðinn, Thure Lindhardt, og lék hann vinnufélaga og síðar ástmann Sögu í seinni seríunum tveimur, Henrik Sabroe.
Meira
Mér fannst að ef við vildum berjast gegn Trump þyrftum við að gera allt sem í okkar valdi stæði til að taka þátt. Þar á meðal að gefa kost á okkur til embættisstarfa.
Meira
RÚV Bein útsending verður á sunnudagskvöldið kl. 19:45 frá hátíð, þar sem verðlaunað verður það sem vel var gert í barnamenningu á Íslandi árið 2017. Sögur verða í forgrunni enda eru þær allt í kringum okkur.
Meira
Í tilefni af sextugsafmæli skáldkonunnar Elísabetar Kristínar Jökulsdóttur er efnt til málþings í Gunnarshúsi á morgun, sunnudag, milli kl. 15 og 17. Elísabet segist vera gátusmiður og hlakkar til að heyra hvernig bókmenntafræðingar leysi gáturnar. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Meira
Hinn 28 ára gamli Daði Gunnlaugsson hefur unnið hjá Leturprenti í þrjú ár. Hann er í hálfu starfi, frá 10-14, og unir hag sínum vel. Hann segist vilja gera gagn í samfélaginu en fyrir nokkrum árum var hann í mikilli lægð. Nú er hins vegar allt á uppleið.
Meira
Miðað við eina beyglu beygla (hægt að kaupa frosnar ef ekki heimabakaðar) 2 sneiðar cheddarostur 2-3 ræmur beikon ½ lárpera steiktur laukur sætt sinnep Ristið beyglubrauðið í ofninum eða í brauðrist. Bræðið ostinn á neðri helming beyglunnar í ofninum.
Meira
Þjóðin var slegin þegar fréttir bárust í byrjun mars um að Íslendingur væri mögulega fórnarlamb stríðsins í Sýrlandi. Nú um tveimur mánuðum síðar hefur enn ekki tekist að finna Hauk Hilmarsson, lífs eða liðinn.
Meira
„Jeg var svo lánsamur að kynnast góðu fólki strax er jeg kom hingað til lands, þá aðeins 23 ára. Jeg hafði að vísu ferðast lítilsháttar í Frakklandi og Þýskalandi, en Ísland var fyrsta landið utan míns heimalands, sem jeg kyntist að nokkru ráði.
Meira
Byrjendalæsi er aðferð sem tekin hefur verið upp við eflingu læsis í fyrsta og öðrum bekk margra íslenskra grunnskóla í samstarfi við miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.
Meira
Eldhús eftir máli, leikrit Völu Þórsdóttur eftir smásögum Svövu Jakobsdóttur er leiklesið í Hannesarholti á morgun, sunnudag, kl. 16. Meðal leikara eru Björn Ingi Hilmarsson, Hanna María Karlsdóttir, Íris Tanja Flygenring, Jakob S.
Meira
Ég byrjaði á túr í morgun. Dæmigerð setning fyrir Sögu Norén, þegar hún bryddar upp á samræðum við annað fólk, jafnvel bláókunnugt. Ekki hennar sterkasta...
Meira
Ástin Nixon var í sambandi með kennaranum Danny Mozes frá 1988-2003. Þau eiga tvö börn saman, Samönthu (f. 1996) og Charles Ezekiel (f. 2002). Árið 2004 byrjaði hún síðan í sambandi með baráttukonunni Christine Marinoni.
Meira
Þegar Kristín var komin á botninn og búin að fara í sautján meðferðir, liggja í dái í mánuð og búa við hrylling fíknarinnar í langan tíma ákvað hún að deyja.
Meira
Helgi Felixson er að leggja lokahönd á sjónvarpsmynd um Ib Árnason Riis, 103 ára gamlan Íslending, búsettan í Bandaríkjunum, sem var gagnnjósnari Breta á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Grein um vegan-lífsstílinn er að finna í nýjast hefti Vogue en þar eru nákvæmar leiðbeiningar fyrir fólk sem ætlar að verða vegan eða grænkeri „eins og Beyonce“ að því er segir í fyrirsögn.
Meira
Hundaeigendur eru í talsvert minni hættu á að fá hjartasjúkdóma og eru almennt líklegri til að lifa lengur en þeir sem eiga ekki hunda. Þetta sýnir ný sænsk rannsókn sem náði til 3,4 milljóna manna á aldrinum 40-80 ára.
Meira
Leikarinn William H. Macy hefur verið að máta sig við leikstjórastólinn undanfarin misseri milli þess sem hann túlkar hinn sjónumhrygga en úrræðagóða Frank Gallagher í sjónvarpsþáttunum Shameless.
Meira
Hver sér hlutina með sínum augum, skáldin jafn sem aðrir. „Seltjarnarnesið er lítið og lágt / Lifa þar fáir og hugsa smátt. / Aldrei líta þeir sumar né sól / Sál þeirra er blind einsog klerkur á stól.“ Hver orti svo um...
Meira
Frönsk hjón ákváðu að snúa lífi sínu á hvolf og fluttu til Íslands nýlega ásamt níu ára dóttur. Hér opnuðu þau ásamt íslenskri vinkonu nýtt kaffihús í miðbæ Reykjavíkur, Emilie and the cool kids.
Meira
Nokkrir viðmælendur fjölluðu um að of mikið magn auglýsinga lýsi sér þannig að þeim finnist auglýsendur vera að ryðjast inn á sig og mata þá með auglýsingum en allir viðmælendur voru einmitt á því máli að auglýsendur þyrftu að passa sig á því að fara...
Meira
• Þú velur síðu sem þú vilt auglýsa á. • Þú býrð til auglýsingu. • Þú sendir fyrirspurnir til annarra meðlima og tekur á móti tilboðum. • Þú finnur einhvern sem þú vilt skipta við og þið gangið frá samkomulaginu.
Meira
Snæfríður Ingadóttir og fjölskylda hennar hafa upplifað hvert ævintýrið á fætur öðru eftir að þau fóru að nýta sér íbúðaskipti. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Meira
Hvað er að frétta? Það er allt ljómandi gott að frétta. Ég er að vinna að minni fyrstu sólóplötu undir listamannsnafninu JAK. Samhliða því er ég að kaupa æskuheimilið af foreldrum mínum í Mývatnssveit, taka það í gegn og koma mér fyrir.
Meira
Flestar konur sem ná miðjum aldri ganga í gegnum hið alræmda breytingaskeið. Kvensjúkdómalæknirinn Berglind Steffensen segir að hægt sé að gera ýmislegt til að létta konum lífið á þessu lífsskeiði. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Meira
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðil með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausnum í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila lausn krossgátu 22.
Meira
Persónulegir hagir Ibs Árnasonar Riis fléttast inn í myndina, en hann var giftur íslenskri konu, Sigrúnu Þórarinsdóttur, og eignuðust þau fjögur börn. Sigrún kemur við sögu í myndinni, en hún lést fyrir fáeinum árum.
Meira
Stöð 2 Ellen's Game of Games kallast leikja- og skemmtiþættir í umsjón spjallþáttadrottningarinnar Ellen DeGeneres sem sýndir eru á laugardagskvöldum.
Meira
Sjónvarp Nixon er þekktust fyrir hlutverk sitt sem Miranda Hobbes í hinum vinsælu þáttum HBO Beðmálum í borginni ( Sex and the City ) sem voru framleiddir á árunum 1998-2004.
Meira
Tilkynnt var í vikunni að ítalska tískuhúsið Moschino myndi hanna línu fyrir fataframleiðandann H&M. Línan er væntanleg í verslanir 8. nóvember...
Meira
Fyrir 6 múffur 120 g eplamauk án viðbætts sykurs 80 ml fljótandi kókosolía 120 ml jurtamjólk (möndlu, kókos, soja, hafra o.s.frv.) 240 g hveiti 100 g kókosflögur eða kókosmjöl, eftir smekk 160 g púðursykur 2 þroskaðir bananar 1 msk.
Meira
Sjónvarp Breska sjónvarpskonan Holly Willoughby spyr sig í samtali við The Guardian hvort #metoo-byltingin sé þegar um garð gengin. Hún fór að velta þessu fyrir sér kvöldið sem Brit-verðlaunin voru haldin fyrir skemmstu.
Meira
Of mikið magn af auglýsingum er á samfélagsmiðlum og fyrirtæki þurfa að vanda markaðssetninguna á þeim og forðast að birta sömu auglýsinguna of oft, samkvæmt rannsókn Arnars Más Friðrikssonar.
Meira
Ég les ekki mikið af skáldsögum vegna þess að ég eyði hálfum deginum í að búa til sögur. Fyrir jafnvægi þefa ég upp fræðibækur um listina að skrifa. Þessa dagana er ég að lesa bók eftir Steven Pressfield, sem heitir The Authentic Swing.
Meira
Menn hafa endanlega brennt Brúna að baki sér en sænska leikkonan Sofia Helin veit eigi að síður að hún hefur eignast ferðafélaga fyrir lífstíð, hina sérlunduðu lögreglukonu Sögu Norén.
Meira
Ef baka á súkkulaðibitakökur um helgina er gott að gera deigið degi fyrr og geyma það í ísskáp. Þetta segja bakarar að geri kökurnar enn betri. Ekki er samt víst að allir séu til í að bíða eftir...
Meira
Það er persónulegra að skrifa skáldsögu en sjálfsævisögu, að dómi kanadíska rithöfundarins Iains Reids, enda býður höfundur lesandanum þannig að spássera um heilabú sitt. Fyrsta skáldsaga Reids er komin út á íslensku. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Stefán Jakobsson er söngvari hljómsveitarinnar Dimmu og hefur vakið athygli fyrir kraftmikla rödd sína. Hann býr í Mývatnssveit og er því á talsverðum ferðalögum, bæði sem leiðsögumaður og vegna...
Meira
Nú er rétti tíminn til þess að fara að huga að svölunum eða pallinum og gera útisvæðin örlítið huggulegri. Það er upplagt að fegra þessa staði með fallegum textíl, lifandi blómum og smekklegum smáhlutum Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Meira
Þeir sem stunda hjólreiðar, hlaup og eróbik ættu að íhuga að bæta sundi við þar sem það þjálfar aðra vöðvahópa svo sem bakvöðva og léttir á ýmsum álagsmeiðslum sem geta komið með öðrum...
Meira
Laugardaginn 21. apríl kl. 13-15 verður textílvinnusmiðja á vegum Barnamenningarhátíðar í Norræna húsinu fyrir börn frá 10 ára aldri. Listakonurnar Edda Mac og Bethina Elverdam segja til. Hægt er að verða sér úti um miða á síðunni...
Meira
Málmur Aðdáendur Judas Priest fengu óvæntan glaðning á dögunum þegar gítarleikarinn Glenn Tipton steig á svið með bandinu í uppklappi í Bandaríkjunum, og tók þrjú síðustu lögin með félögum sínum.
Meira
Tómleiki hið innra „Mér sýnist einhver tómleiki vera innra með honum og þörf fyrir viðurkenningu sem ég hef aldrei séð hjá fullorðinni manneskju.
Meira
Flestir kannast við fyrirtækið Swarovski sem framleiðir kristal í tískuvöru og skartgripi. Yfirmaður hönnunar skartgripadeildar Swarovski er Íslendingurinn Ragnar Hjartarson sem er búsettur í París Texti: Sigrún Úlfarsdóttir Ljósmyndir: Vera Pálsdóttir
Meira
Leiklist Edie Falco, sem þekkt er fyrir leik sinn í þáttum á borð við The Sopranos og Nurse Jackie, kveðst ekki hafa haft mikið sjálfstraust þegar hún var að fikra sig áfram í leiklist í háskóla. Fannst allir í kringum sig mun öruggari með sig.
Meira
Baráttumál Eitt af baráttumálum Nixon er að lögleiða notkun kannabisefna til eigin nota. Hún segir þetta vera nauðsynlegt skref til að berjast gegn kynþáttamismunum.
Meira
Specialisterne vinna markvisst að því að skapa einstaklingum á einhverfurófi atvinnu. Mikil ánægja hefur verið á meðal þeirra sem fá vinnu og í öllum tilfellum hefur það breytt lífi fólks til hins betra.
Meira
Fyrsta spurning flestra sem eru nýir í hjólageiranum og vilja byrja að hjóla er: „Hvernig hjól á ég að fá mér?“ Þetta er einföld spurning, en svarið er því miður ekki einfalt og það fer allt eftir því hvað viðkomandi áformar að nota hjólið...
Meira
• Að hugað sé betur að hönnun og frágangi á samgöngumannvirkjum þar sem hjólandi fólk fer um. Eins flottur og nýi hjólastígurinn á Gróttu er virðist ekki hafa verið hugsað til enda hvernig tenging hans við göngustíg eða götu við Gróttu er.
Meira
Keppnisfólk í öllum greinum hjólreiða hefur lengi hafið feril sinn í fjallahjólreiðum þar sem það öðlast ákveðna grunntækni sem nýtist vel almennt. Formaður Hjólreiðafélags Reykjavíkur segir sérstaka áherslu lagða á ungmennastarfið og að fá nýliðunin komi úr yngri aldursflokkum.
Meira
Þegar haldið er út að hjóla eru fjölmargir kostir í stöðunni. Sumir vilja fara í þægilegan bæjarhjólatúr og virða fyrir sér mannlífið meðan aðrir sækja í að fá sem mesta líkamsrækt á sem stystum tíma.
Meira
María Ögn Guðmundsdóttir er ein fremsta hjólreiðakona landsins og nægir ekki einungis að æfa og keppa í íþróttinni, heldur tengist vinnan hennar hjólreiðum.
Meira
Í júlí ár hvert fer fram stærsta og vinsælasta hjólakeppni heims, Tour de France. Áhugasömu hjólreiðafólki gefst tækifæri til að hjóla eina af dagleiðunum fjölmörgu sem atvinnumennirnir fara á þremur vikum.
Meira
Hvort sem það er sumar eða vetur, sól eða snjór, þá fer Gylfi til og frá vinnu, skutlar börnunum á leikskóla og sinnir öðrum erindum á kassahjóli í stað þess að vera alla daga á bíl.
Meira
Um mánaðamótin hefst átakið Hjólaðu í vinnuna í 16. skipti, en á þátttökutölum má vel sjá hversu vel Íslendingar hafa tekið hjólreiðum undanfarin ár.
Meira
Allt frá stórum almenningshjólakeppnum eins og Bláa lónsþrautinni, Tour of Reykjavík og WOW cyclothon yfir í Íslandsmeistaramót og fjöldaga keppnir á fjöllum eins og Glacier 360. Hjólreiðaáhugafólk ætti að finna eitthvað við sitt hæfi í sumar.
Meira
Fyrsta fjallahjólamót ársins fer fram fimmtudaginn 26. apríl klukkan 18.00, en mótið er jafnframt fyrsta bikarmót sumarsins. Keppt verður í meistaraflokki karla og kvenna(elite), U23 og ungmennaflokki (junior).
Meira
Það er oftast kalt að hjóla á Íslandi. Líka í sól á sumrin. Klæðið ykkur vel. Þröngur vind- og regnjakki gerir kraftaverk og handa- og fótahitarar eru nauðsynlegir eiginlega alltaf. • Ekki vera á skítugu hjóli.
Meira
Fyrir ekki svo mörgum árum var algengt að 10-30 tækju þátt í hjólreiðamótum. Í dag er aftur á móti ekki óalgengt að nokkur hundruð manns taki þátt í almennum mótum og í stóru almenningsmótunum er fjöldinn um og yfir eitt þúsund.
Meira
Eins og komið hefur fram í þessu blaði eru hjólreiðar mjög breiður vettvangur og þeir sem þær stunda ná allt frá því að vera keppnismenn yfir í fólk sem fer á hjóli í og úr vinnu.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.