Á Grikklandi eru 6,3 læknar starfandi á hverja 1.000 íbúa, en meðaltal OECD- ríkjanna er 3,4 læknar á 1.000 íbúa. Á Íslandi voru 3,8 læknar starfandi á hverja 1.000 íbúa árið 2015.
Meira
Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, fór í fallhlífarstökk á Hellu í gærkvöldi. Hann er 95 ára og elsti maðurinn sem hér stekkur í fallhlíf, 20 árum eldri en sá næstelsti. Tilefnið var 95 ára afmælið 13. ágúst sl.
Meira
Ásókn í sérnám í heimilislækningum hefur aukist í kjölfar aðgerða sem farið var í árið 2011. Nú eru 47 læknar í náminu sem fram fer í Reykjavík og á Akureyri.
Meira
Héraðssaksóknari hefur ákært tvítugan mann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Kjarnaskógi við Akureyri árið 2016. Maðurinn er sagður hafa stungið annan mann tvisvar með þeim afleiðingum að slagæð og bláæð í læri fórnarlambsins fóru í sundur.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Um 350 blöð í Bandaríkjunum tóku höndum saman í gær til að verjast árásum Donalds Trumps forseta á fjölmiðla og birtu forystugreinar um mikilvægi frjálsra fjölmiðla fyrir lýðræðið.
Meira
Utanríkisráðherra Noregs, Ine Marie Eriksen Søreide, segist hafa gert Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra, og íslenskum þingmönnum grein fyrir mikilvægi þess að þriðji orkupakki ESB verði innleiddur sem hluti af samningnum um Evrópska...
Meira
Bræðurnir Bjarni og Einar Þór Guðmundssynir syngja íslensk einsöngslög og dúetta við undirleik Guðjóns Halldórs Óskarssonar í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð á morgun, laugardag, kl. 15.
Meira
Aretha Franklin, „drottning sálartónlistarinnar“, lést á heimili sínu í Detroit í Bandaríkjunum í gær, 76 ára að aldri. Dánarmein hennar var krabbamein í briskirtli.
Meira
Vífilsstaðir Húsnæðið, sem tekið var í notkun 1910 fyrir berklasjúklinga, hefur þjónað mörgum og á sér merka og langa sögu. Þar er nú öldrunardeild...
Meira
Sviðsljós Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Skólataska, pennaveski, vetrarfatnaður, skólaferðir, greiðsla fyrir íþrótta- og tómstundastarf.
Meira
Merlin Entertainment mun á næsta ári taka við rekstri Sæheima, fiska- og náttúrugripasafns Vestmannaeyja. Á nýjum stað mun aðstaða til fuglabjörgunar stórbatna að sögn safnstjóra og sjö lundar sem þar búa fá stærri sundlaug.
Meira
Með mikilli lækkun tyrknesku lírunnar kann ferðamannastraumur til Tyrklands að aukast. Það bætist við vaxandi vinsældir landa fyrir botni Miðjarðarhafs sem hafa liðið fyrir óróa síðustu ára.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjölmennt lið starfsmanna hvalaskoðunarfyrirtækja í Reykjavík og björgunarsveitarmanna reyndi í gær að halda lífi í tveimur andarnefjum sem festust uppi í fjöru í Engey.
Meira
Rúm 42% þátttakenda í könnun MMR um ferðavenjur Íslendinga í sumarfríinu kváðust ætla að ferðast bæði innan- og utanlands. Er þetta 3% aukning frá síðustu könnun sem gerð var fyrir ári.
Meira
Fréttaskýring Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hlýri verður kvótasettur með nýju fiskveiðiári, samkvæmt auglýsingu sjávarútvegsráðuneytisins í Stjórnartíðindum. Miðað er við að afli næsta fiskveiðiárs verði að hámarki 1.
Meira
Karólína Lárusdóttir opnar sýningu í Galleríi Fold á morgun, laugardag, kl. 13. Þar getur meðal annars að líta vatnslitamyndir og grafíkverk sem sum hver hafa aldrei verið sýnd áður. Sýningin stendur til og með 25....
Meira
Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Íslendingar sem búsettir eru utan landsins hafa stofnað með sér hundruð Facebook-hópa til þess að halda tengslum við samlanda sína og hjálpa þeim að setjast að á nýjum stað.
Meira
Götunafnanefnd á vegum borgarráðs hefur komið með tillögur að götuheitum í þremur mismunandi hverfum í Reykjavík, þar á meðal á Hólmsheiði og við Landspítala.
Meira
Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Aldrei hafa fleiri stundað sérnám í heimilislækningum á Íslandi en 47 læknar eru nú í slíku námi. 12 sérfræðingar í heimilislækningum hafa útskrifast á s.l. tveimur árum.
Meira
Miðflokkurinn tapaði tæplega 16 milljónum króna samkvæmt útdrætti úr ársreikningi sem hefur verið skilað inn til Ríkisendurskoðunar. Rekstur flokksins var 27,5 milljónir en tekjur um 11,8 milljónir.
Meira
Ine Marie Eriksen Søreide er 42 ára og hefur langan stjórnmálaferil að baki, en fyrsta embætti hennar fyrir flokkinn Høyre hlaut hún 1995 í Tromsö. Hún var fyrst kjörin á þing 2001 fyrir sama flokk í Óslóarkjördæmi.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Útlit er fyrir að um 335 þúsundum færri farþegar muni fara um Keflavíkurflugvöll í ár en Isavia áætlaði í nóvember síðastliðnum. Það samsvarar rúmlega 900 farþegum á dag.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Deiliskipulag sem nú er til lokaafgreiðslu hjá Árneshreppi lýtur að ýmsum undirbúningi vegna fyrirhugaðrar Hvalárvirkjunar, en tekur ekki til virkjunarinnar sjálfrar. Vesturverk ehf.
Meira
Ef vel viðrar er tilvalið að fara á fjöll á afmælisdaginn. Ofan við Ísafjörð eru Breiðadals- og Botnsheiðar sem eru stórkostleg útivistarsvæði og minn heimavöllur, þar hef ég farið mikið um, til dæmis á gönguskíðum og nú í seinni tíð á fjallahjóli.
Meira
Fjármálaráðuneytið og Þjóðskjalasafnið greinir á um hvorri stofnuninni beri að veita aðgang að fundargerðum kjararáðs sem lagt var niður 1. júlí sl.
Meira
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur leiðir sögugöngu um Sjómannaskólareitinn á Menningarnótt. Gangan hefst við Háteigskirkju kl. 15. Guðjón fræðir gesti um þær merku byggingar, listaverk og söguminjar sem leynast á reitnum.
Meira
Hafnarfjarðarbær og Háskóli Íslands hafa komist að samkomulagi um að skólinn komi upp aðstöðu fyrir tæknifræðinám í Menntasetrinu við Lækinn, gamla Lækjarskóla.
Meira
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG, segir að hún hafi borið upp fyrirspurn sína til ráðherra til þess að fá botn í umræðuna um það hvort ekki væri eitthvað sem þyrfti að ganga betur frá á Straumsvíkurfjalli.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Nýjar tölur Þjóðskrár Íslands benda til að ávöxtun af útleigu íbúða í eigu einstaklinga fari minnkandi. Minni munur er nú milli Reykjavíkur og margra þéttbýlisstaða úti á landi en áður (sjá graf).
Meira
Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Brúin yfir Ölfusá verður opnuð fyrir umferð á hádegi í dag, þremur dögum á undan áætlun, að sögn Arons Bjarnasonar, deildarstjóra hjá Vegagerðinni. Til stóð að opna Ölfusárbrú mánudaginn 20. ágúst nk.
Meira
Illa er talað um „popúlisma“ núna. Áður fitjuðu stertimenni úr fámennri embættis- og lærdómsstétt upp á nef og fordæmdu „lýðskrumið“. Snobbið niður til pupulsins sem stóð undir launum þeirra.
Meira
Í lítilli íbúð við Klapparstíg 12 munu 10 listamenn koma saman á Menningarnótt undir yfirskriftinni KS12: Umskipti. Viðburðurinn er liður í formlegri dagskrá Menningarnætur og einblínir á einkasamtalið sem rannsóknartæki.
Meira
Á sýningunni í Norðurbryggju er Grýlu-myndin, sem Þrándur málaði árið 2009 og fór með eldingarhraða um netið þremur árum síðar þegar einhver setti ljósmynd af verkinu á vefsíðuna reddit.com.
Meira
Halldór Gylfason tekur við hlutverki sögumannsins í söngleiknum Rocky Horror sem verður sýndur áfram á næsta leikári á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu. Valur Freyr Einarsson, sem fór með hlutverkið áður, mun frumsýna nýjan einleik á Litla sviðinu 14.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Hið ófyrirséða er mikilvægt í myndlistinni,“ segir Kees Visser þar sem við skoðum verkin á sýningunni sem verður opnuð á verkum hans í BERG Contemporary á Klapparstíg 16 í dag, föstudag, klukkan 17.
Meira
Ólík rými / Different Spaces nefnist sýning Salmans Ezzammoury sem opnuð verður formlega í Deiglunni á morgun kl. 14, en sýningin stendur aðeins um helgina milli kl. 11 og 20. Sýningin er hluti af Listasumri á Akureyri.
Meira
Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is „ . . . og það sem hann er duttlungafullur, hann Thrándur Thórarinsson,“ skrifar gagnrýnandi Kunstavisen , eins helsta menningarfjölmiðils Danmerkur, um myndlistarmanninn Þránd Þórarinsson.
Meira
Það er svo sem ekkert athugavert við það að setja á fót stofnun eins og Bankasýslu ríkisins í kjölfar hrunsins. Enda fordæmalausar hremmingar sem þjóðin gekk í gegnum vegna þess. Það eru fáir sem munu halda upp á 10 ára amæli hrunsins nú í október.
Meira
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson: "Hvað veist þú dýrmætara en vera ávarpaður að morgni lífsins af höfundi þess og fullkomnara: „Sjá, ég verð með þér alla daga, allt til enda veraldar.“"
Meira
Eftir Gunnar Björnsson: "Hverfi af landinu kristinn siður feðra okkar og mæðra, þeirra, er héldu vel trú sína, verður til tómarúm, sem fyrr en varir fyllist öðru efni."
Meira
Ágústa Úlfarsdóttir Edwald fæddist á Seyðisfirði 25. maí 1928. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 6. ágúst 2018. Foreldrar Ágústu voru Úlfar Karlsson, f. 1896, d. 1996, og Helga Jónína Steindórsdóttir, f. 1905, d. 1974.
MeiraKaupa minningabók
Ágúst Önundarson fæddist á Akranesi 7. júlí 1981. Hann varð bráðkvaddur á eyjunni Möltu þann 31. júlí 2018. Foreldrar hans eru Kristrún Harpa Ágústsdóttir f. 28. júní 1948 og Önundur Jónsson f. 5. október 1947.
MeiraKaupa minningabók
Eiríkur Hilmarsson fæddist í Keflavík 11. janúar 1958. Hann lést á heimili sínu, Góðakri 3, Garðabæ, 8. ágúst 2018. Hann var sonur hjónanna Guðrúnar Kristinsdóttur verslunarkonu, f. 17.5. 1932 í Ölfusi, og Hilmars Péturssonar rafvirkja, f. 12.9.
MeiraKaupa minningabók
Guðlaug Ólafsdóttir fæddist í Flatey á Breiðafirði 26. apríl 1931. Hún lést á dvalarheimilinu Skjóli 4. ágúst 2018. Foreldrar hennar voru Ólafur E. Gunnlaugsson, f. 26.10. 1899, d. 21.12. 1984, og Guðbjörg Pétursdóttir, f. 1.3. 1901, d. 9.9. 1989.
MeiraKaupa minningabók
Helgi fæddist í Reykjavík 16. september 1936. Hann lést á heimili sínu 6. ágúst 2018. Foreldrar hans voru Filippía Sigurlaug Kristjánsdóttir (Hugrún), húsmóðir og rithöfundur, f. 3.10. 1905 á Brautarhóli í Svarfaðardal, d. 8.6.
MeiraKaupa minningabók
Ingólfur G. Sigurðsson fæddist á Laugavegi 27a í Reykjavík 22. apríl 1929. Hann lést á heimili sínu 6. ágúst 2018. Ingólfur var sonur hjónanna Sigurðar Sigurðssonar járnsmiðs og Dagmarar Júlíu Finnbjörnsdóttur húsfreyju.
MeiraKaupa minningabók
Magnea Jenny Guðmundardóttir fæddist á Ísafirði 2. apríl 1963. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 6. ágúst 2018.Magnea ólst upp á Melgraseyri við Ísafjarðardjúp. Foreldrar hennar voru Guðmundur Kristján Magnússon, f. 1927, d.
MeiraKaupa minningabók
Magnea Jenny Guðmundardóttir fæddist á Ísafirði 2. apríl 1963. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 6. ágúst 2018. Magnea ólst upp á Melgraseyri við Ísafjarðardjúp. Foreldrar hennar voru Guðmundur Kristján Magnússon, f. 1927, d.
MeiraKaupa minningabók
Ólöf Guðbjörg Pálsdóttir fæddist á Siglufirði 13. desember 1936. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Uppsölum 8. ágúst 2018. Foreldrar hennar voru Anna Kristrún Bjarnadóttir f. 27. ágúst 1913, d. 10. mars 1947, og Páll Steinn Einarsson, f. 30. janúar 1905, d.
MeiraKaupa minningabók
Svanur Bragason fæddist 19. febrúar 1945 á Vopnafirði. Hann lést á krabbameinslækningadeild Landspítalans 3. ágúst 2018. Foreldrar Svans voru Bragi Haraldsson og Guðbjörg Þorsteinsdóttir sem bæði eru látin.
MeiraKaupa minningabók
Þorbjörg Laxdal Marinósdóttir fæddist á Akureyri 7. apríl 1935. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík 3. ágúst 2018. Foreldrar hennar voru hjónin Guðbjörg R. Bergsveinsdóttir frá Aratungu á Ströndum f. 10. september 1905, d. 1.
MeiraKaupa minningabók
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Útlit er fyrir að um 335 þúsund færri farþegar fari um Keflavíkurflugvöll í ár en Isavia spáði í nóvember. Farþegar eru engu að síður fleiri en nokkru sinni. Isavia hefur birt tölur um farþegafjölda á fyrri hluta ársins.
Meira
Hagnaður bakarísins Hjá Jóa Fel – brauð og kökulist ehf. nam tæpum 27,6 milljónum króna á árinu 2017. Til samanburðar nam hagnaður ársins 2016 um 18,4 milljónum og því er um 50% aukningu að ræða milli ára.
Meira
Hagnaður fasteignafélagsins Regins nam 32 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi, en til samanburðar var hagnaðurinn 892 milljónir á sama tímabili í fyrra. Þar munar mest um 1.
Meira
Ís með minnst 20 nýjum og framandi bragðtegundum verður á boðstólum á Ísdeginum sem Kjörís í Hveragerði stendur fyrir á morgun, laugardag, jafnhliða því sem bæjarhátíðin Blómstrandi dagar er haldin.
Meira
Fimm sveitarfélög hafa sett upp hreystigarða fyrir íbúa sína. Í görðunum, sem eru úti og ýmist kallaðir hreyfi- eða hreystigarðar, eru tæki til þol-, styrktar- og teygjuæfinga. Ókeypis er í tækin, sem ætluð eru fullorðnum.
Meira
6.45 til 9 Ísland vaknar Logi Bergmann, Rikka og Rúnar Freyr vakna með hlustendum K100 alla virka morgna. 9 til 12 Siggi Gunnars Skemmtileg tónlist og góðir gestir reka nefið inn.
Meira
Baldur Líndal fæddist á Lækjamóti í Víðidal 17.8. 1918. Foreldrar hans voru Jakob Hansson Líndal, hreppstjóri, kennari og jarðfræðingur á Lækjamóti, og k.h., Jónína Steinvör Sigurðardóttir Líndal kennari.
Meira
Fyrir helgi skrifaði Ármann Þorgrímsson í Leirinn „breytir víst litlu hver stjórnar“: Birtu er að bregða hér, bráðum fer að hausta og snjóa. Sé það gerast senn hjá mér, sama hver mun bátnum róa.
Meira
Friðrik Dór kíkti í spjall til Sigga Gunnars á K100 í gærmorgun þar sem hann ræddi meðal annars pabbahlutverkið, en hann samdi á dögunum einstaklega fallegt lag til dóttur sinnar sem hann kallar „Ekki stinga mig af“.
Meira
30 ára Guðrún Sif býr í Reykjavík, lauk BSc-prófi í tölvunarfræði og starfar hjá Seðlabanka Íslands. Maki: Sigurður Samik Davidsen, f. 1980, tölvunarfræðingur hjá Samskipum. Börn: Sara Björg, f. 2014, og Kristófer Jökull, f. 2017.
Meira
Fátt virðist vera Ljósvakarýnum Morgunblaðsins ofar í huga þessa dagana en dagskrárefni Ríkisútvarpsins, bæði til lofs og lasts. Ljósvakarýnir dagsins ætlar hins vegar að breyta aðeins til og fjalla um hlaðvarpsþætti sem nefnast Dómsdagur.
Meira
Kópavogur Laufey Hjaltadóttir fæddist hinn 4. apríl 2018, kl. 23.53. Hún vó 3.755 g og var 50 cm löng. Foreldrar Laufeyjar eru Lára Kristín Stefánsdóttir og Hjalti Óskarsson...
Meira
Kvenkynsnafnorðið skúr , um regndembu , verður til skúrar í eignarfalli. Skúrin , með greini, verður til skúrarinnar . Í fleirtölu heita demburnar skúrir , með greini skúrirnar .
Meira
30 ára Sigurbjörn ólst upp á Fáskrúðsfirði og í Garðabæ, býr í Hafnarfirði og stundar BSc-nám í íþróttafræði við HR. Systkini: Gyða Ingólfsdóttir, f. 1983, og Agnar Páll Ingólfsson, f. 1984. Foreldrar: Anna Björg Pálsdóttir, f.
Meira
95 ára Tómas Guðmundsson Þórólfur Jónsson 90 ára Elísabet J. Guðmundsdóttir 85 ára Eiður A. Breiðfjörð James Arthur Rail Sigfinnur Gunnarsson 80 ára Arnoddur Þ. Tyrfingsson Guðný R. Gunnþórsdóttir Margrét A.
Meira
30 ára Trausti ólst upp í Þorlákshöfn, býr í Garðabær og starfar hjá Stólpa – Gámum. Maki: Ingibjörg Rafnsdóttir, f. 1990, verkstjóri við heimaþjónustu. Sonur: Jökull, f. 2015. Foreldrar: Jóhanna Sigríður Emilsdóttir, f.
Meira
Valdís Fjölnisdóttir fæddist í Reykjavík 17.8. 1978 og ólst þar upp í Vesturbænum. Hún gekk í Vesturbæjarskóla og Hagaskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1998, stundaði frönskunám við Université de Montpellier í Frakklandi, lauk B.Sc.
Meira
Sturla Böðvarsson, fyrrverandi forseti Alþingis og ráðherra, skrifaði athyglisverða grein hér í Morgunblaðið sl. þriðjudag, undir fyrirsögninni „Óviðeigandi framkvæmd í höfuðborginni okkar“.
Meira
0:1 Gonzalo Zamorano 31. af stuttu færi í kjölfar hornspyrnu. 1:1 Thomas Mikkelsen 67. vann boltann af Emmanuel Keke og skoraði. 1:2 Sjálfsmark 105. Davíðs Kristjáns Ólafssonar eftir aukaspyrnu Víkings. 2:2 Brynjólfur Darri Willumsson 120.
Meira
1:0 Allyson Haran 36. með skoti af stuttu færi úr teignum eftir aukaspyrnu Hrafnhildar Hauksdóttur. 1:1 Rio Hardy 80. með skoti af stuttu færi eftir langt innkast Madeline Keane. Gul spjöld: Madeline (Grindavík) 35. brot., Sophie (Grindavík) 56. brot.
Meira
1:0 Haukur Páll Sigurðsson 40. Skoraði með skalla úr teignum eftir aukaspyrnu Kristins Freys. 1:1 Ziguy Badibanga 68. Skoraði með hnitmiðuðu skoti rétt utan vítateigs upp í hægra hornið. 2:1 Patrick Pedersen 90.
Meira
Í Smáranum Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Ofanritaður hefur séð þá nokkra, knattspyrnuleikina, en sennilega aldrei orðið vitni að jafn mikilli dramatík og á Kópavogsvelli í gærkvöldi.
Meira
Bikarkeppni karla Undanúrslit Breiðablik – Víkingur Ó. 6:4 • Eftir vítakeppni. *Breiðablik leikur til úrslita í keppninni við Stjörnuna. 4. deild karla A Hamar – Ýmir 1:2 4. deild karla B Mídas – Úlfarnir 3:2 4.
Meira
• Núverandi bikarmeistarar eru ÍBV. Liðið sigraði Stjörnuna 3:2 í framlengdum leik. • Leikurinn í kvöld átti upprunalega að vera spilaður á laugardaginn 18. ágúst. Honum var hinsvegar flýtt um einn dag að ósk beggja félaga.
Meira
Nýliðar KA í efstu deild karla í handknattleik hafa tryggt sér krafta Bosníumannsins Tarik Kasumovic fyrir komandi keppnistíð. Kasumovic er 26 ára gamall, 202 sentímetra há hægri handar skytta. Hann er mikið sigldur og hefur m.a.
Meira
Breiðablik og Stjarnan eigast við í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu á Laugardalsvelli í kvöld. Stjarnan hefur komist í úrslit fimm sinnum á síðustu sjö árum en liðið tapaði í fyrra fyrir ÍBV í úrslitum.
Meira
Bikarúrslit Guðjón Þór Ólafsson gudjon@mbl.is Það er alltaf ákveðinn dýrðarljómi í kringum bikarúrslitaleiki. Í þessum leikjum mætast oftar en ekki tvö af betri liðum landsins fyrir framan fullt af fólki í hreinum úrslitaleik.
Meira
Á Selfossi Guðmundur Karl sport@mbl.is Það er óhætt að segja að leikur Selfoss og Grindavíkur í Pepsideild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi hafi verið kaflaskiptur.
Meira
Frjálsar Kristján Jónsson kris@mbl.is Guðni Valur Guðnason úr ÍR og Hafdís Sigurðardóttir úr UFA settu bæði mótsmet á Manchester International-mótinu.
Meira
Á Hlíðarenda Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslandsmeistarar Vals í knattspyrnu karla geta borið höfuðið hátt þótt þátttöku þeirra í Evrópudeildinni sé lokið þetta sumarið.
Meira
Í Morgunblaði gærdagsins var grein eftir mig um heimaleikjaárangur íslensku karlalandsliðanna í körfubolta, fótbolta og handbolta. Árangur liðanna er magnaður. Það eru nokkrir þættir sem einkenna völl sem erfitt er fyrir andstæðinginn að fá úrslit á.
Meira
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fellur um tíu sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem var birtur í gær. Ísland var í 22. sæti síðast þegar listinn var birtur en er nú komið í 32.-34. sæti, ásamt Kostaríku og Íran.
Meira
*Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson var í gær orðaður við ónefnt félag í Rússlandi. Sænska blaðið Expressen segir að rússneska félagið hafi boðið Norrköping um 30 milljónir sænskra króna fyrir Arnór, jafnvirði 357 milljóna króna.
Meira
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur og íþróttamaður ársins 2017, fór ágætlega af stað á Indy Women in Tech-mótinu á LPGA-mótaröðinni í gær og lék fyrsta hringinn á 71 höggi, eða einu höggi undir pari.
Meira
Jáverksvöllur, Pepsi-deild kvenna, 14. umferð, fimmtudag 16. ágúst 2018. Skilyrði : Sól og logn, og meira að segja hlýtt í veðri. Skot : Selfoss 11(8) – Grindavík 7 (3). Horn : Selfoss 5 – Grindavík 6. Selfoss : (4-5-1) Mark : Caitlyn Clem.
Meira
„Fram til þessa hefur gengið afar vel og þar af leiðandi hefur verið mjög gaman hjá okkur,“ sagði Heimir Ríkarðsson, þjálfari 18 ára landsliðs Íslands í handknattleik karla en liðið er komið í undanúrslit á Evrópumótinu sem stendur yfir í...
Meira
Íslandsmeistarar Vals í knattspyrnu karla eru úr leik í Evrópudeildinni í knattspyrnu þrátt fyrir 2:1 sigur á Sheriff frá Moldóvu á Hlíðarenda í gærkvöldi.
Meira
Gunnhildur Arnardóttir er framkvæmdastjóri Stjórnvísi og meðstofnandi sprotafyrirtækisins HR Monitor. Gunnhildur hefur varið mestum hluta starfsævi sinnar við starfsmannastjórnun sem á hug hennar allan. Stjórnvísi býður upp á fjölmörg námskeið í vetur sem Gunnhildur segir frá í viðtalinu.
Meira
Erla Aradóttir hefur starfað sem kennari í yfir 40 ár. Hún stofnaði árið 1993 skólann Enska fyrir alla og leggur metnað sinn í að færa landsmönnum þá þekkingu sem þeir vilja öðlast á enskri tungu.
Meira
Erna Katrín Árnadóttir flugumferðarstjóri í flugstjórnarmiðstöð segir að símenntun sé nauðsynleg. Hún segist vera alsæl með að hafa ákveðið að læra flugumferðarstjórn og segir að það sé alltaf gaman í vinnunni.
Meira
Árelía Eydís Guðmundsdóttir er ein lífsglaðasta kona landsins. Hún starfar sem dósent við Viðskiptadeild Háskóla Íslands en er einnig farsæll rithöfundur og sjálfstæð þriggja barna móðir í Vesturbænum.
Meira
Stefán S. Stefánsson, skólastjóri Tónlistarskóla Árbæjar, saxófónleikari og tónskáld, er landsmönnum kunnur. Það hafa margir dansað við lagið „Disco Frisco“ sem hann samdi hér á árum áður.
Meira
Áslaug Kristjánsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur, starfar sem kynlífsráðgjafi á Domus Mentis geðheilsustöð í Þverholti, ásamt því að vera framkvæmdastýra stöðvarinnar. Áslaug fjallar um fjölmörg áhugaverð námskeið.
Meira
Ingibjörg Björnsdóttir nam við Listdansskóla Þjóðleikhússins og Scottish Ballet School í Edinborg auk þess að taka þátt í námskeiðum í ýmsum stílbrigðum dansins víða um lönd. Undanfarin ár hefur hún sérhæft síg í eldri dönsum, þ.e. miðalda-, endurreisnar- og barokkdönsum.
Meira
Ítalska tískuhúsið Gucci hefur aldrei verið vinsælla en akkúrat núna. Yfirhönnuður fyrirtækisins, Alessandro Michele, tók við starfinu 2015 og síðan hefur salan aukist og aukist.
Meira
Hausttískan er heillandi og ekki úr vegi að gera sig aðeins upp áður en námið hefst af fullum þunga. Mjúkar þunnar ullarpeysur eru áberandi ásamt ljósum köflóttum buxum. Hlébarðamunstrið er á sínum stað og líka kamellitar hnésíðar kápur sem eru beinar í sniðinu.
Meira
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir er framkvæmdastjóri FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu. Mesta hluta starfsævinnar hefur hún unnið að því að efla fólk í gegnum menntun, stjórnun og félagsstörf.
Meira
Elín Hallgrímsdóttir, símenntunarstjóri Háskólans á Akureyri, segir að í miðri 4. iðnbyltingu sé mikilvægt að læra stöðugt nýja hluti svo við sitjum ekki eftir með úrelta þekkingu.
Meira
Sirrý Arnardóttir er stjórnendaþjálfari sem á að baki 30 ára farsælan feril sem fjölmiðlakona. Sirrý stjórnaði vinsælum þáttum í beinum útsendingum í sjónvarpi og útvarpi um árabil og ritstýrði tímariti.
Meira
Guðrún Högnadóttir hefur starfað við stjórnendaþjálfun í tæpa þrjá áratugi sem fræðslustjóri Landspítalans, ráðgjafi og meðeigandi hjá Deloitte, framkvæmdastjóri og kennari við Háskólann í Reykjavík og leiðtogamarkþjálfi.
Meira
Í dag byggist starf Námsflokka Reykjavíkur einkum á að efla og styðja ungt fólk sem hefur helst úr námi og fullorðna sem þurfa á hvatningu að halda til að koma undir sig fótunum í vinnu og einkalífi.
Meira
Námsbrautin Menntastoðir hjá Mími hentar þeim sem hafa ekki lokið framhaldsskóla og langar að komast aftur af stað í námi. Öflugt teymi heldur vel utan um hópinn og hvetur nemendur til dáða.
Meira
Ertu skapandi og handlagin/n og langar að vaxa á því sviðinu? Langar þig að geta framkvæmt hugmyndir þínar og verið sjálfbær? Ef svo er þá eru námskeiðin hjá Handverksskólanum eitthvað fyrir þig.
Meira
Hefur þig alltaf dreymt um að vinna á leikskóla eða læra að verða leikskólakennari? Háskóli Íslands, Háskólafélag Suðurlands og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga gerðu könnun um eftirspurn eftir fjarnámi á háskólastigi á Suðurlandi.
Meira
Snorri Ingason var orðinn fimmtugur þegar hann lét drauminn rætast og fór í leiðsögunám. Hann kvaddi skrifborðsvinnu og sýnir núna erlendum ferðalöngum landið.
Meira
Flest námskeið NTV má stunda í fjarnámi eða dreifnámi og segir Skúli það gert til að koma betur til móts við þarfir vinnandi fólks sem vill bæta við sig menntun en flestir nemendur skólans eru á vinnumarkaði með námi.
Meira
Guðrún Snorradóttir er einn vinsælasti leiðtogamarkþjálfi landsins. Hún hefur komið að mörgum verkefnum í gegnum árin með fjölmörgum fyrirtækjum sem hafa séð hag sinn í að þjálfa leiðtoga sína í að vinna með það sem er sterkt í starfsemi fyrirtækisins.
Meira
Nemendur standa betur að vígi á vinnumarkaði eftir námskeiðin hjá NTV. Þar má m.a. læra forritun, netstjórnun og bókun af fólki sem er leiðandi á sínu sviði.
Meira
Margrét Rósa Einarsdóttir er framreiðslumeistari að mennt. Hún segir að þjónar þurfi að hafa gott innsæi og mikla þjónustulund. Landsmenn muna án efa flestir eftir henni úr Iðnó. Hún stofnaði nýverið Þjónaskólann, þar sem hún þjálfar starfsfólk veitingahúsa sem gengur um beina.
Meira
Flex stóllinn er ein af vinsælustu vörunum hjá A2S, sem er þýskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í skólahúsgögnum. Verslunin Bústoð selur þessa vöru á Íslandi og er með samning við Ríkiskaup.
Meira
Söngskólinn í Reykjavík fagnar 45 ára afmæli í haust. Hátt í fimm þúsund nemendur hafa stundað nám við skólann. Nemendur skólans eru víða um heiminn starfandi við söng. Boðið er upp á söngnám fyrir stúlkur og stráka frá 11 ára aldri.
Meira
Námsframboðið hjá Mími er fjölbreytt en þar má t.d. sækja fjölbreytt atvinnutengt nám, s.s. nám í dyravörslu og nám um þjónustu við ferðamenn, og einnig hægt að taka undirbúningsnám fyrir leikskóla- og félagsliða.
Meira
Náms- og starfsráðgjafar Námsflokka Reykjavíkur eru til taks fyrir alla sem þangað leita. Það getur verið gagnlegt að setjast niður með ráðgjafa og t.d.
Meira
Hrafnhildur Einarsdóttir byrjaði í Ballettskóla Eddu Scheving aðeins fimm ára að aldri. Allar götur síðan hefur hún tileinkað lífið listgreininni. Hún starfar í dag sem skólastjóri Klassíska listdansskólans og Ballettskóla Guðbjargar Björgvins og ræðir í viðtali listgreinina frá sínu brjóstviti.
Meira
Þegar einn súkkulaðibiti kallar á þann næsta og þú hefur ekki stjórn á því sem þú borðar gæti lausnin fyrir þig verið að fara í afvötnun frá sykri og sterkju. MFM Miðstöðin gæti verið með lausnina fyrir þig.
Meira
Ósk Vilhjálmsdóttir er myndlistarmaður og fjallageit að eigin sögn. Hún er haldin mikilli ferðaþrá og er forvitin um ómælisvíddir veraldar. Hér ræðir hún áhugavert námskeið sem hún er með um handverk og menningu í Marokkó.
Meira
Valdimar Þór Svavarsson starfar sem ráðgjafi og fyrirlesari hjá ráðgjafarstofunni Fyrsta skrefinu ásamt eiginkonu sinni Berglindi Magnúsdóttur. Hann á ótrúlega sögu að baki og hefur sigrast á mörgu í lífinu.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.