Greinar miðvikudaginn 22. ágúst 2018

Fréttir

22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 261 orð

208 börn bíða eftir plássi í Reykjavík

Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is 13% barna sem sótt hafa um leikskólapláss í Reykjavík í haust eru á biðlista eða um 208 börn. Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að ráðningar fyrir haustið hafi gengið betur nú en í fyrra. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 101 orð | 1 mynd

211 starfsmenn vantar á frístundaheimilin í borginni

Aðeins tvö frístundaheimili í Reykjavík eru fullmönnuð fyrir komandi skólaár, en 211 starfsmenn vantar í 103,3 stöðugildi. 15,8 þeirra eru stöðugildi með fötluðum börnum og ungmennum og vantar 33 starfsmenn. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 65 orð | 1 mynd

60-70% færri í djúpköfun í Silfru

Aðsókn í djúpköfun í Silfru hefur minnkað um u.þ.b. 60-70% eftir að öryggiskröfur í gjánni voru hertar til muna í mars á síðasta ári, en ánægja er með hinar hertu öryggiskröfur. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 492 orð | 2 myndir

Aðsókn minnkað en öryggi aukist mjög

Baksvið Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Aðsókn í djúpköfun í Silfru hefur minnkað umtalsvert, um 60-70%, eftir að öryggiskröfur til köfunar í gjánni voru hertar til muna í mars á síðasta ári. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 230 orð | 1 mynd

Afskekktir staðir og ótroðnar slóðir

Hinn kunni fjallagarpur Simon Yates flytur í kvöld klukkan átta fyrirlestur í Bíó Paradís þar sem hann mun fjalla um leiðangur, sem hann er nýkominn úr, til Grænlands og ferðir sínar víða um heim. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 110 orð | 1 mynd

„Sameinuð stöndum við!“

Sandgerðisdagar, árleg bæjarhátíð í Sandgerði, hófust í fyrradag undir einkunnarorðunum „Sameinuð stöndum við!“. Hátíðin stendur til 26. ágúst og fer nú fram í fyrsta skiptið í nýju sameinuðu sveitarfélagi Sandgerðis og Garðs. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 50 orð | 1 mynd

Brim hagnaðist um 1,7 milljarða króna

Hagnaður af rekstri samstæðu útgerðarfyrirtækisins Brims hf. nam tæpum 1,7 milljörðum króna á árinu 2017. Til samanburðar var hagnaður af rekstri félagsins 116 milljónir árið á undan. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 61 orð | 1 mynd

Eftirvæntingin mikil meðal skólabarna

Systurnar Erla Sólbjört og Perla Sólbrá Jónsdætur eru spenntar að byrja aftur í skólanum. Þær voru í leit að drauma skólatöskunni þegar blaðamaður hitti þær fyrir í skólavöruverslun í gær. Um 4. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 421 orð | 1 mynd

Ellefta langreyðarfóstrið í sumar

Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Þetta er bara svona í dýraríkinu, við ráðum ekki við það. Samtals hafa komið ellefu fóstur í sumar,“ sagði Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., í samtali við mbl. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 566 orð | 2 myndir

Embættismenn hlupu líklega á sig

Agnes Bragadóttir agnes@mbl. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 372 orð | 2 myndir

Fagnar drögum að frumvarpi um jöfnunarstyrki

Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is „Ég fagna þessum áformum,“ segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Sambands garðyrkjubænda, í samtali við Morgunblaðið um drög að frumvarpi um framlengingu og víkkun gildissviðs laga um svæðisbundna... Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 184 orð | 1 mynd

Fann aðeins tólf aðalbláber

„Ég er nú staddur norður á Ströndum, en berjasprettan á Vesturlandi er víðast hvar mjög lítil. Ég er búinn að finna samtals tólf aðalbláber,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og áhugamaður um ber, í samtali við Morgunblaðið. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 169 orð

Ferðamennirnir greiddu 1,4 milljónir vegna utanvegaaksturs

Hópur erlendra ferðamanna sem gerðust sekir um utanvegaakstur við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi á sunnudag og í friðlandinu við Grafarlönd á Öskjuleið á mánudag, greiddi samtals 1,4 milljónir í sekt í gær. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 131 orð | 1 mynd

Framgangan sögð einstök

Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Sérfræðingar í opinberri stjórnsýslu, sem rætt var við í gær, telja framgöngu borgarritara og skrifstofustjóra Reykjavíkurborgar, þegar þeir sökuðu kjörinn borgarfulltrúa um að hafa brotið trúnað, vera einstaka. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 38 orð | 1 mynd

Framtíðarstjörnur í Norðurljósum Hörpu

Orkester Norden heldur tónleika í dag, miðvikudag, kl. 19.30 í Norðurljósasal Hörpu. Sinfóníuhljómsveit þessi er skipuð efnilegasta tónlistarfólki Norðurlandanna og er sígild tónlist í forgrunni. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 204 orð | 1 mynd

Fyrsta lundapysja ársins komin til Eyja

„Hún sást í sjónum við bryggjuna í fyrradag. Þetta er fyrsta lundapysjan sem við fréttum af í ár,“ segir Guðrún Ósk Jóhannesdóttir, starfsmaður sædýrasafnsins Sæheima í Vestmannaeyjum, í samtali við Morgunblaðið. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 209 orð

Góð byrjun á gæsaveiðitímabilinu

„Það voru veiddar um fimmtán gæsir á mann fyrsta daginn,“ sagði Áki Ármann Jónsson, formaður Skotveiðifélags Íslands, um byrjun gæsaveiðitímabilsins sem hófst í fyrradag. Gæsastofninn í ár er í sögulegu hámarki. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 36 orð | 1 mynd

Grúska Babúska í Hannesarholti

Hljómsveitin Grúska Babúska leikur á lokatónleikum tónleikaraðarinnar KÍTÓN Sumar í Hannesarholti á morgun, fimmtudag, kl. 20. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 81 orð

Gömlu Hringbrautinni verður lokað

Samið hefur verið við Íslenska aðalverktaka um jarðvinnu vegna byggingar meðferðarkjarna nýs Landspítala ásamt götum, veitum og lóð. Vinnur ÍAV verkið fyrir 2,8 milljarða króna á 20 mánaða framkvæmdatíma. Framkvæmdir eru hafnar. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 542 orð | 1 mynd

HG sækir að nýju um eldi í Djúpinu

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hraðfrystihúsið-Gunnvör (HG) hefur sótt að nýju um starfs- og rekstrarleyfi fyrir mikla aukningu heimilda til fiskeldis í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi, aðallega á regnbogasilungi. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 403 orð | 2 myndir

Hraður vöxtur Völku

Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tæknifyrirtækið Valka hefur vaxið hratt á síðustu árum og er þessa dagana að bæta við tug starfsmanna; tæknifólki, smiðum og skrifstofufólki. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 191 orð

Hægir á sölu lúxusíbúða

Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vísbendingar eru um að sala nýrra íbúða í miðborginni gangi hægar en fjárfestar bundu vonir við. Nú eru til sölu, eða eru að koma í sölu, minnst 500 íbúðir á svæðinu. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 221 orð | 1 mynd

Iðkendur fái öruggt umhverfi

Starfshópur um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi kynnti í gær tillögur sínar í mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 301 orð | 2 myndir

Jarðvinna vegna nýs Landspítala hafin

Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir eru hafnar á Landspítalalóðinni vegna byggingar nýs hátæknisjúkrahúss. Nýr Landspítali ohf. (NLSH) hefur í samvinnu við Framkvæmdasýslu ríkisins, samið við lægstbjóðanda, Íslenska aðalverktaka hf. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 38 orð | 1 mynd

Kórperlur í Hallgrímskirkju

Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, syngur í dag, miðvikudag, kl. 12 íslenskar og erlendar kórperlur, m.a. eftir Jón Ásgeirsson, Jón Nordal, Sigvalda Kaldalóns, Händel, Byrd og Þorkel Sigurbjörnsson. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 299 orð | 5 myndir

Krakkarnir hafa sterkar skoðanir á skólatöskunum

Lísbet Sigurðardóttir lisbet@mbl.is Þessa dagana eru grunnskólar landsins að opna dyr sínar á ný eftir sumarleyfi. Eftirvænting ríkir á meðal skólabarna sem eru ýmist að snúa aftur í skólana eða að taka sín fyrstu skref í yngstu bekkjum grunnskólanna. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 33 orð | 1 mynd

Kristinn

Horft á síma Síminn þótti eitt sinn undratæki og margir áttu það til að hlusta eftir að hringing heyrðist á bæjum. Nú er öldin önnur og síminn gegnir mun viðameira hlutverki en... Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 77 orð | 1 mynd

Lauk löngu tónleikaferðalagi sínu á Íslandi

Margmenni var í Laugardalshöll í gærkvöldi þegar kanadíska indírokksveitin Arcade Fire hélt þar tónleika. Íslenska hljómsveitin Kiriyama Family hitaði upp. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 253 orð

Lítið fé í héraðsvegina

Talsvert vantar upp á viðhald ýmissa landsbyggðarvega, sér í lagi heimreiða upp að gistiheimilum, veitingahúsum og öðrum þjónustumiðstöðvum, að sögn ferðaþjónustunnar. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 136 orð

Móðir og börn fá dvalarleyfi

Kærunefnd útlendingamála veitti einstæðri móður og þremur börnum hennar frá Gana dvalarleyfi í gær á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Upphaflegri umsókn fjölskyldunnar var synjað en breyttar aðstæður, eftir að fjölskyldufaðirinn hvarf sporlaust í mars sl. Meira
22. ágúst 2018 | Erlendar fréttir | 221 orð | 1 mynd

Nota sprengjur við fiskveiðarnar

Trípólí. AFP. | Íbúar strandbæja í grennd við Trípólí, höfuðborg Líbíu, vakna oft á morgnana við sprengingar þegar sjómenn nota dínamítsprengjur við fiskveiðar, þótt þær valdi tjóni á sjávarlífi. Meira
22. ágúst 2018 | Erlendar fréttir | 229 orð

Nýjar netárásir vestra

Rússneskir hakkarar, sem reyndu að hafa áhrif á kosningarnar í Bandaríkjunum árið 2016, hafa nú gert árásir á hugveitur repúblikana, að sögn Microsoft í gær. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 355 orð | 1 mynd

Ný lög í takt við tækniþróun

Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Frumvarp sem byggja mun á nýrri skýrslu um skattlagningu ökutækja og eldsneytis verður sett á þingmálaskrá að sögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 299 orð | 1 mynd

Sala á engiferöli fimmfaldast

Vinsældir engiferöls hér á landi aukast með hverju ári. Sést það vel á sölutölum á engiferöli í verslunum Hagkaupa, en salan þrefaldaðist milli áranna 2016 og 2017, segir í skriflegu svari frá Hagkaupum. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 102 orð | 1 mynd

Skilyrði sett um reynslu

Öryggisreglur í Silfru voru hertar í mars í fyrra. Í reglunum felst m.a. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 737 orð | 3 myndir

Sprenging í framboðinu

Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vísbendingar eru um að sala nýrra íbúða í miðborg Reykjavíkur sé hægari en áætlað var. Minnst 500 nýjar íbúðir eru nú til sölu eða á leið í sölu. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 292 orð | 1 mynd

Stefán Karl Stefánsson leikari

Stefán Karl Stefánsson leikari er látinn, 43 ára að aldri. Hann var þekktastur fyrir túlkun sinni á Glanna Glæp í sjónvarpsþáttaröðinni Latabæ. Banamein hans var gallgangakrabbamein sem hann greindist með fyrir tveimur árum. Meira
22. ágúst 2018 | Erlendar fréttir | 511 orð | 2 myndir

Stefnir í að mjög erfitt verði að mynda næstu ríkisstjórn

Bogi Þór Arason bogi@mbl. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 616 orð | 1 mynd

Tvöfaldur járnkarl á einu ári

Lísbet Sigurðardóttir lisbet@mbl.is Einar Sigurjónsson, 37 ára þríþrautarkappi, lauk á sunnudag við sinn annan járnkarl á innan við ári. Meira
22. ágúst 2018 | Innlendar fréttir | 183 orð

Útboð á ræstingu kært

Einn bjóðandi hefur kært útboð Kópavogsbæjar á ræstingu í grunnskólum. Bærinn er búinn að skrifa undir samninga við lægstbjóðanda um þessa þjónustu. Bæjarráð ákvað á fundi sínum 9. ágúst að ganga til samninga við Sólar ehf. Meira

Ritstjórnargreinar

22. ágúst 2018 | Leiðarar | 347 orð

Dregur úr lifrarbólgu C

Tekist hefur að fækka sýkingum um 72% og ná til 90% smitaðra Meira
22. ágúst 2018 | Staksteinar | 184 orð | 1 mynd

Sláandi lýsing

Styrmir Gunnarsson beinir kastljósinu að því að ESB þvælist með öllum ráðum gegn útgöngu Breta og vonist til að úlfúð og erfiðleikar tryggi uppgjöf þeirra. Hann segir að þau vinnubrögð sé umhugsunarefni fyrir Íslendinga. Meira
22. ágúst 2018 | Leiðarar | 264 orð

Treyst á töfralausnir

Brjálæðið heldur áfram í Venesúela Meira

Menning

22. ágúst 2018 | Leiklist | 2613 orð | 2 myndir

„Verk sem ætlað er að örva hug og hjarta“

Við erum stolt af því að sjá hverju þetta ræktarstarf okkar við íslenska höfunda hefur skilað. Það skiptir miklu máli að eiga gott samtal við höfunda, styðja við þá og gefa þeim tíma og rými til að þróa verk sín. Meira
22. ágúst 2018 | Fólk í fréttum | 171 orð | 1 mynd

Ein forsprakka #MeToo sökuð um kynferðisofbeldi

Ítalska leikkonan og leikstjórinn Asia Argento var með fyrstu konum í kvikmyndabransanum til að ásaka Harvey Weinstein opinberlega um kynferðislegt ofbeldi. Í kjölfarið varð hún leiðandi í #MeeToo-byltingunni og hélt t.a.m. Meira
22. ágúst 2018 | Kvikmyndir | 138 orð | 1 mynd

Kvikmyndir tilnefndar til verðlauna

Kvikmynd Benedikts Erlingssonar leikstjóra, Kona fer í stríð , verður fulltrúi Íslands í keppninni um Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Benedikt og Ólafur Egill Egilsson skrifuðu handritið. Meira
22. ágúst 2018 | Kvikmyndir | 197 orð | 1 mynd

Ríkir Asíubúar, brúðumorð og kvíðaköst

Slender Man Vinir í litlum bæ í Massachusetts eru heillaðir af netþjóðsögunni um hina hávöxnu og grönnu fígúru Slender Man og leitast við að sanna að hún sé ekki til í alvöru, þar til einn af þeim hverfur með dularfullum hætti. Meira
22. ágúst 2018 | Tónlist | 91 orð | 1 mynd

Skálmöld og Sinfó snúa aftur

Skálmöld og Sinfóníuhljómsveit Íslands taka höndum saman á ný og halda alls ferna tónleika í vikunni í Eldborgarsal Hörpu. Samstarf þeirra komst fyrst í hámæli árið 2013 þegar sveitirnar héldu nokkra tónleika saman við frábærar undirtektir. Meira
22. ágúst 2018 | Fjölmiðlar | 183 orð | 1 mynd

Stærri skammt af vísindum

Þeir byrjuðu vel nýir þættir á RÚV sem Felix Bergsson og Margrét Blöndal halda utan um og bera heitið Veröld sem var. Ætlunin er að fara yfir sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á síðustu öld, upp úr og fram úr henni miðri. Meira
22. ágúst 2018 | Tónlist | 428 orð | 1 mynd

Tónlistarhátíð söngvaskálda

Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Alþjóðlega tónlistarhátíðin Melodica Festival Reykjavík fer fram um næstu helgi á Kex Hostel í Reykjavík. Meira
22. ágúst 2018 | Tónlist | 513 orð | 3 myndir

Verk við texta rappara

Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Systkinin Guðfinnur og Kristín Sveinsbörn munu á morgun, fimmtudag, syngja saman á sínum fjórðu Systkinatónleikum og verða þeir í Fella- og Hólakirkju kl. 20. Meira

Umræðan

22. ágúst 2018 | Pistlar | 444 orð | 1 mynd

Aðgerðir gegn misnotkun lyfja

Misnotkun lyfja sem valdið geta ávana og fíkn hefur verið mikið í umræðunni og fréttir um alvarlegar afleiðingar af notkun ungmenna á ávanabindandi lyfjum hafa upp á síðkastið verið alltof margar. Meira
22. ágúst 2018 | Aðsent efni | 259 orð | 2 myndir

„Grónar þúfur sem svefninn vefur“

Eftir Þuríði Sigurðardóttur: "Bæjarhóllinn og kirkjugarðurinn í Laugarnesi eru friðlýstir samkvæmt þjóðminjalögum ásamt hluta af túninu með beðasléttum. En fyrr má nú vera friðurinn! Á friðlýsingin að svæfa söguna, jarða hana í illgresi og óþrifnaði?" Meira
22. ágúst 2018 | Aðsent efni | 475 orð | 1 mynd

Karlkyns eða kvenkyns?

Eftir Halldór Leví: "Eigum við þó það öll sameiginlegt að vera spendýr og skipta má okkur niður í tvær tegundir, konur og karla." Meira
22. ágúst 2018 | Aðsent efni | 526 orð | 1 mynd

Um hvað var samið 1918?

Eftir Kristján Hall: "Það var því lítið að semja um 1918. Þjóðfélagið var að breytast og hið forna kerfi liðinna alda var að hrynja til grunna." Meira
22. ágúst 2018 | Aðsent efni | 918 orð | 1 mynd

Við erum í minnihluta

Eftir Óla Björn Kárason: "Í samkeppninni um atkvæði freistast sumir stjórnmálamenn til að lofa því sem þeir geta ekki staðið við og gefa út víxla sem aðrir eiga að greiða." Meira

Minningargreinar

22. ágúst 2018 | Minningargreinar | 1343 orð | 1 mynd

Ásdís Lucinda Hjálmtýsdóttir Callaghan

Ásdís Lucinda Hjálmtýsdóttir Callaghan fæddist í Reykjavík 23. júlí árið 1921. Hún lést á Saint Francis Hospital í Connecticut í Bandaríkjunum 1. júlí 2018. Ásdís var dóttir hjónanna Lucindu Francisku Wilhelmínu Hansen húsmóður, f. í Reykjavík 13. Meira  Kaupa minningabók
22. ágúst 2018 | Minningargreinar | 1163 orð | 1 mynd

Berent Theodór Sveinsson

Berent Theodór Sveinsson fæddist 21. ágúst 1926. Hann lést 29. júlí 2018. Útför hans fór fram 15. ágúst 2018. Meira  Kaupa minningabók
22. ágúst 2018 | Minningargreinar | 1855 orð | 1 mynd

Edda Önfjörð Magnúsdóttir

Edda Önfjörð Magnúsdóttir fæddist á Akureyri 15. júlí 1944. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 8. ágúst 2018. Foreldrar Eddu voru Friðgeir Marías Magnús Friðriksson, f. 28. apríl 1919, d. 27. apríl 1974, og kona hans Anna Jónsdóttir, f. 26. Meira  Kaupa minningabók
22. ágúst 2018 | Minningargreinar | 492 orð | 1 mynd

Guðbjörg Jóna Guðmundsdóttir

Guðbjörg Jóna Guðmundsdóttir fæddist 5. desember 1935. Hún lést 31. júlí 2018. Útför Guðbjargar Jónu fór fram 15. ágúst 2018. Meira  Kaupa minningabók
22. ágúst 2018 | Minningargreinar | 1314 orð | 1 mynd

Guðmundur Eyjólfsson

Guðmundur Kristján Eyjólfsson fæddist á Hömrum í Grímsnesi hinn 29. maí 1945. Hann lést á líknardeild Landspítalans 9. ágúst 2018. Foreldrar Guðmundar voru Eyjólfur Guðmundsson, bóndi á Hömrum í Grímsnesi, f. 29.12. 1896, d. 27.10. Meira  Kaupa minningabók
22. ágúst 2018 | Minningargreinar | 234 orð | 1 mynd

Jósep Matthíasson

Jósep Matthíasson bakari fæddist í Króatíu 19. febrúar 1939. Hann lést 14. ágúst 2018. Hann starfaði lengst af hjá varnarliðinu í Keflavík en síðustu ár við bakstur í Reykjavik. Jósep kvæntist Sigurbjörgu Ólöfu Guðjónsdóttur, hún lést 22. desember 2000. Meira  Kaupa minningabók
22. ágúst 2018 | Minningargreinar | 147 orð | 1 mynd

Kristín Guðmundsdóttir

Kristín Guðmundsdóttir fæddist 19. desember 1957. Hún lést 2. ágúst 2018. Útför Kristínar fór fram 16. ágúst 2018. Meira  Kaupa minningabók
22. ágúst 2018 | Minningargreinar | 955 orð | 1 mynd

Ólafur Ragnar Magnússon

Ólafur Ragnar Magnússon fæddist 15. ágúst 1924 í Söðulsholti í Hnappadal. Hann lést 10. ágúst 2018. Foreldrar hans voru Magnús Brynjólfsson, bóndi og síðar smiður í Reykjavík, f. 26. maí 1895 í Miðhúsum í Biskupstungum, d. 31. jan. 1971, og k.h. Meira  Kaupa minningabók
22. ágúst 2018 | Minningargreinar | 1126 orð | 1 mynd

Þorsteinn Matthíasson

Þorsteinn Matthíasson fæddist í Reykjavík 8. janúar 1966. Hann lést á heimili sínu, Hraunbæ 158, 12. ágúst 2018. Móðir hans er Halldóra Sigríður Gunnarsdóttir, f. á Álafossi 1. nóvember 1946. Faðir hans var Matthías Jón Þorsteinsson, f. á Hólmavík 29. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

22. ágúst 2018 | Viðskiptafréttir | 220 orð

Brim hf. hagnaðist um 1,7 milljarða

Hagnaður af rekstri samstæðu útgerðarfyrirtækisins Brims hf. nam tæpum 1,7 milljörðum króna á árinu 2017, en til samanburðar var hagnaður af rekstri félagsins 116 milljónir árið á undan. Meira
22. ágúst 2018 | Viðskiptafréttir | 397 orð | 2 myndir

Indlandsflug vegur þungt

Baksvið Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Í fréttatilkynningu frá flugfélaginu WOW air sem dagsett er 14. Meira
22. ágúst 2018 | Viðskiptafréttir | 98 orð | 1 mynd

Skeljungur hækkar í kjölfar viðvörunar

Hlutabréf olíufélagsins Skeljungs hækkuðu um 8,59% í viðskiptum í Kauphöll Íslands í gær. Námu viðskipti með bréf félagsins tæpum hálfum milljarði króna. Meira

Daglegt líf

22. ágúst 2018 | Daglegt líf | 1076 orð | 3 myndir

Ólst upp við mikla nýtni í æsku

Henni var kennt í bernsku að fara sparlega með allt og hún var í sveit þar sem allt var vel nýtt. Kristín Inga lætur sig umhverfið varða. Meira

Fastir þættir

22. ágúst 2018 | Fastir þættir | 168 orð | 1 mynd

1. Rf3 c5 2. c4 Rc6 3. Rc3 g6 4. g3 Bg7 5. Bg2 e6 6. d3 Rge7 7. Bg5 h6...

1. Rf3 c5 2. c4 Rc6 3. Rc3 g6 4. g3 Bg7 5. Bg2 e6 6. d3 Rge7 7. Bg5 h6 8. Bd2 b6 9. 0-0 Bb7 10. a3 d6 11. Hb1 Dd7 12. b4 0-0 13. b5 Rd4 14. Rxd4 cxd4 15. Bxb7 Dxb7 16. Ra2 Hac8 17. Bb4 Hfd8 18. Dd2 Rf5 19. a4 h5 20. e4 dxe3 21. fxe3 Bh6 22. Hbe1 d5 23. Meira
22. ágúst 2018 | Í dag | 80 orð | 1 mynd

50 Cent í mál

Á þessum degi árið 2005 höfðaði tónlistarmaðurinn 50 Cent mál gegn bandarískri bílasölu fyrir að nota nafnið hans í augýsingu án leyfis. Þeir birtu einnig mynd af honum og við myndina stóð „Bara eins og 50 segir“. Meira
22. ágúst 2018 | Í dag | 96 orð | 2 myndir

6.45 til 9 Ísland vaknar Logi Bergmann, Rikka og Rúnar Freyr vakna með...

6.45 til 9 Ísland vaknar Logi Bergmann, Rikka og Rúnar Freyr vakna með hlustendum K100 alla virka morgna. 9 til 12 Siggi Gunnars Skemmtileg tónlist og góðir gestir reka nefið inn. Meira
22. ágúst 2018 | Í dag | 301 orð

Af fangi sjávar og grafarró

Kötturinn Jósefína Meulengracht Dietrich mjálmaði: „Meðan fólkið þvældist til borgarinnar gekk ég fram á marbakkann“: Föngulegan feng ég greip úr fangi sjávar, ýsu sem ég ætla að éta enda kann ég gott að meta. Meira
22. ágúst 2018 | Árnað heilla | 54 orð | 1 mynd

Andri Hugo Runólfsson

40 ára Andri er Vestmannaeyingur og er með BA í hljóð- og upptökuverkfræði frá SAE í Amsterdam. Hann er verslunarstj. og tæknimaður hjá Tölvun ehf. Foreldrar : Runólfur Gíslason, f. 1950, d. Meira
22. ágúst 2018 | Árnað heilla | 286 orð | 1 mynd

Á afmæli á skólasetningardeginum

Þuríður Óttarsdóttir, skólastjóri Vættaskóla, á 50 ára afmæli í dag. Meira
22. ágúst 2018 | Árnað heilla | 468 orð | 4 myndir

Elsti Lions-félaginn

Ásta Sigurrós Sigmundsdóttir fæddist 22. ágúst 2017 á Ísafirði og ólst þar upp. Ásta fór kornung í sveit norður á Stað í Grunnavík til prestshjónanna þar. Síðar var hún hjá skyldfólki sínu í Mýrartungu í Reykhólasveit. Meira
22. ágúst 2018 | Árnað heilla | 57 orð | 1 mynd

Grímur Snorrason

30 ára Grímur er frá Ísafirði en býr í Kópavogi. Hann er smiður. Maki : Julie Björk Gunnarsdóttir, f. 1988, dagmamma. Börn : Christian Jökull, f. 2017. Stjúpbörn: Sebastian Örn, f. 2008, og Freyja Kirstine, f. 2012. Foreldrar : Snorri Grímsson, f. Meira
22. ágúst 2018 | Árnað heilla | 56 orð | 1 mynd

Guðmundur F. Kristbergsson

30 ára Guðmundur er úr Reykjavík en er ferðaþjónustubóndi á Háafelli í Hvítársíðu. Hann er með BS í umhverfisskipulagi. Maki : Elsa Þorbjarnardóttir, f. 1990, deildarstj. á leikskólanum Hnoðrabóli í Reykholtsdal. Börn : Þorbjörg Ásta, f. Meira
22. ágúst 2018 | Í dag | 89 orð | 2 myndir

Kom brúðhjónum á óvart

Söngkonan Kelly Clarkson gerði brúðkaupsdag aðdáenda sinna enn eftirminnilegri fyrir skömmu. Þegar brúðhjónin ætluðu að dansa brúðarvalsinn dróst tjald frá sviði þar sem Clarkson stóð ásamt hljómsveit. Meira
22. ágúst 2018 | Í dag | 50 orð

Málið

Blaðamaður hefur eftir landa sínum búsettum erlendis: „Markaðssetning kemur náttúrulega til mín.“ Þ.e.a.s. „... er mér eiginleg / í blóð borin“; „... lætur mér vel / liggur (vel) fyrir mér“; „... Ég hef lag á... Meira
22. ágúst 2018 | Árnað heilla | 27 orð | 1 mynd

Njarðvík Adrian Matusiak fæddist 10. ágúst 2017 kl. 8.59. Hann vó 3.546...

Njarðvík Adrian Matusiak fæddist 10. ágúst 2017 kl. 8.59. Hann vó 3.546 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Fariba Ayazi og Artur Matusiak... Meira
22. ágúst 2018 | Árnað heilla | 27 orð | 1 mynd

Njarðvík Rayan Matusiak fæddist 10. ágúst 2017 kl. 9.00. Hann vó 2620 g...

Njarðvík Rayan Matusiak fæddist 10. ágúst 2017 kl. 9.00. Hann vó 2620 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Fariba Ayazi og Artur Matusiak... Meira
22. ágúst 2018 | Í dag | 24 orð

Og þetta er traustið sem við berum til hans: Ef við biðjum um eitthvað...

Og þetta er traustið sem við berum til hans: Ef við biðjum um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann okkur. (Fyrsta Jóhannesarbréf 5. Meira
22. ágúst 2018 | Fastir þættir | 166 orð

Svíðingur. N-NS Norður &spade;D1098 &heart;KG72 ⋄D97 &klubs;76...

Svíðingur. N-NS Norður &spade;D1098 &heart;KG72 ⋄D97 &klubs;76 Vestur Austur &spade;KG654 &spade;Á32 &heart;D986 &heart;4 ⋄6 ⋄432 &klubs;D82 &klubs;Á109543 Suður &spade;7 &heart;Á1053 ⋄ÁKG1085 &klubs;KG Suður spilar 5⋄ doblaða. Meira
22. ágúst 2018 | Árnað heilla | 178 orð

Til hamingju með daginn

101 ára Ásta Sigurrós Sigmundsdóttir 95 ára Dagbjört R. Meira
22. ágúst 2018 | Fastir þættir | 316 orð

Víkverji

Víkverji lagði leið sína í Selárdal nýverið og hreifst af því hvernig verk Samúels Jónssonar heitins, sem var bóndi í Brautarholti, hafa verið gerð upp. Samúel var stórhuga með listræna taug. Meira
22. ágúst 2018 | Í dag | 104 orð | 1 mynd

Þetta gerðist...

22. ágúst 1809 Jörgen Jörgensen var hrakinn frá völdum, við lok hundadaga. Hann hafði stjórnað Íslandi í 59 daga. 22. ágúst 1922 Jón Kaldal setti Íslandsmet í 5.000 metra hlaupi, 15 mínútur og 23 sekúndur. Það stóð í áratugi. 22. Meira

Íþróttir

22. ágúst 2018 | Íþróttir | 126 orð

1:0 Guðmunda Brynja Óladóttir 4. potaði boltanum í autt markið eftir...

1:0 Guðmunda Brynja Óladóttir 4. potaði boltanum í autt markið eftir sendingu Katrínar. 2:0 Katrín Ásbjörnsdóttir 12. kláraði vel ein á móti markmanni. 3:0 Guðmunda Brynja Óladóttir 24. skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 60 orð

1:0 Hildur Antonsdóttir 59. var rétt kona á réttum stað þegar boltinn...

1:0 Hildur Antonsdóttir 59. var rétt kona á réttum stað þegar boltinn datt fyrir fætur hennar eftir hornspyrnu Öglu Maríu. 2:0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir 60. með skalla eftir frábæran undirbúning Karólínu Leu. Gul spjöld: Engin. Rauð spjöld: Engin. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 922 orð | 2 myndir

Alfreð vill kveðja með titli

Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is Alfreð Gíslason, þjálfari þýska stórliðsins THW Kiel, er að hefja sitt 22. keppnistímabil sem þjálfari í þýsku 1. deildinni, þar af ellefta tímabilið hjá Kiel og jafnframt síðasta. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 159 orð

Áfram rembihnútur

Toppbaráttan í 2. deild karla í knattspyrnu er áfram í algjörum rembihnút eftir að leikið var í 17. umferð í gærkvöld. Þegar fimm umferðir eru eftir skilja aðeins tvö stig að liðin í 1. og 5. sæti. Fjarðabyggð er einnig með í baráttunni; í 6. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 137 orð | 2 myndir

Breiðablik – KR2:0

Kópavogsvöllur, Pepsi-deild kvenna, 14. umferð, þriðjudag 21. ágúst 2018. Skilyrði : Milt veður og völlur góður. Skot : Breiðablik 17 (13) – KR 5 (4). Horn : Breiðablik 10 – KR 1. Breiðablik : (4-3-3) Mark : Sonný Lára Þráinsdóttir. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 38 orð | 1 mynd

EM U16 ára kvenna A-riðill, B-deild: Makedónía – Ísland 55:64...

EM U16 ára kvenna A-riðill, B-deild: Makedónía – Ísland 55:64 • Hjördís Traustadóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 16 stig. Natalía Jónsdóttir var næst með 14 stig. *Íslenska liðið leikur um 17.- 24. sæti mótsins á... Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 64 orð | 1 mynd

Hafnarfjarðarmót karla Haukar – Valur 35:31 Markahæstir : Atli Már...

Hafnarfjarðarmót karla Haukar – Valur 35:31 Markahæstir : Atli Már Báruson 9 fyrir Hauka. Agnar Smári Jónsson 7 fyrir Val. FH – Selfoss 28:29 Markahæstir : Ásbjörn Friðriksson 9 fyrir FH. Guðni Ingvarsson 8 fyrir Selfoss. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 195 orð | 1 mynd

Haukar og Selfyssingar með sigra

Hafnarfjarðarmótið í handknattleik karla hófst í gær á Ásvöllum með tveimur leikjum, en mótið er haldið í 150 ára minningu séra Friðriks Friðrikssonar. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 254 orð | 1 mynd

Helgi ætlaði sér þriðja titil þrátt fyrir að vera á leið í aðgerð

„Ég fer heim og „púsla“ núna og kem sterkari í næstu tvö mót,“ sagði Helgi Sveinsson eftir að hafa unnið bronsverðlaun í spjótkasti, í flokki F64, á Evrópumóti fatlaðra í frjálsum íþróttum í Berlín í gær. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 126 orð | 1 mynd

Hulda varð í sjöunda sæti í Berlín

Vestur-Eyfellingurinn Hulda Sigurjónsdóttir hafnaði í 7. og neðsta sæti í kúluvarpi í flokki F20 (þroskahamlaðir) á Evrópumóti fatlaðra í frjálsum íþróttum í Berlín í gær. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 251 orð | 1 mynd

Jafnrétti er knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, ofarlega í huga. Það...

Jafnrétti er knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, ofarlega í huga. Það hlýtur að vera. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 25 orð | 1 mynd

KNATTSPYRNA 3. deild karla: Dalvíkurv.: Dalvík/Reynir– Einherji...

KNATTSPYRNA 3. deild karla: Dalvíkurv.: Dalvík/Reynir– Einherji 18.30 1. deild kvenna, Inkasso-deildin: Hertzvöllurinn: ÍR – Haukar 18 4. deild karla: Þróttarvöllur: Kóngarnir – Afríka 18. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 237 orð | 3 myndir

*Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo vekur áhuga fólks hvert sem hann...

*Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo vekur áhuga fólks hvert sem hann fer í heiminum. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 764 orð | 3 myndir

Lítið mál að rífa menn upp eftir Evrópuleikinn

17. umferð Kristján Jónsson kris@mbl.is Landsliðsmaðurinn Birkir Már Sævarsson lét mjög að sér kveða í toppslagnum gegn Breiðabliki og lagði upp tvö mörk fyrir Val í mikilvægum 3:1 sigri á Kópavogsvellinum. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 160 orð | 1 mynd

Luku keppni í a-riðli á góðum nótum

Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik skipað leikmönnum 16 ára og yngri lauk riðlakeppninni í b-deild Evrópukeppninnar í Svartfjallalandi á góðum nótum í gær. Ísland mætti þá Makedóníu og hafði betur 64:55 og hafnaði í 5. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 298 orð | 1 mynd

Pepsi-deild kvenna Breiðablik – KR 2:0 Stjarnan &ndash...

Pepsi-deild kvenna Breiðablik – KR 2:0 Stjarnan – HK/Víkingur 7:1 Staðan : Breiðablik 14121133:837 Þór/KA 14112143:835 Stjarnan 1491437:2328 Valur 1482432:1326 ÍBV 1453618:1918 Selfoss 1444612:1916 HK/Víkingur 1441916:3613 KR 14401016:2812... Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 289 orð | 2 myndir

Skrúðgræn einstefna

Í KÓPAVOGI Edda Garðarsdóttir eddagardars@gmail.com Blikar komu sér fyrir á toppi Pepsi-deildar kvenna eftir öruggan 2-0 sigur á KR í gærkvöldi. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 305 orð | 2 myndir

Stjarnan hristi af sér vonbrigðin

Í GARÐABÆ Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Stjarnan gaf HK/Víkingi aldrei möguleika er liðin mættust í Pepsi-deild kvenna í fótbolta í gærkvöldi og vann 7:1-sigur. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 117 orð | 2 myndir

Stjarnan – HK/Víkingur7:1

Samsungvöllurinn, Pepsi-deild kvenna, 14. umferð, þriðjudaginn 21. ágúst 2018. Skilyrði : Svolítill vindur, gervigrasið flott að vanda. Skot : Stjarnan 22 (10) – HK/Víkingur 4 (3). Horn : Stjarnan 9 – HK/Víkingur 1. Meira
22. ágúst 2018 | Íþróttir | 495 orð | 2 myndir

Yrði leiðinlegt að hætta út af einhverju svona

Fótbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Ég fann það strax hvað hafði gerst. Ég heyrði einhvern smell og var búin að búa mig undir þessa niðurstöðu,“ segir Harpa Þorsteinsdóttir, markahrókur Stjörnunnar og landsliðsframherji í knattspyrnu. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.