Ástin er í forgrunni hjá bresku konungsfjölskyldunni og virðast meðlimir hennar keppast við að binda sig með formlegum hætti. Eugenie prinsessa gifti sig í síðustu viku og er önnur í röðinni á þessu ári sem gengur í heilagt hjónaband.
Meira
Fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir er í forsíðuviðtali í nýjasta tölublaði Sportveiðiblaðsins, sem Gunnar Bender ritstýrir. Eggert Skúlason ræðir við Ingu Lind en hún hefur stundað stangveiði frá unga aldri.
Meira
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Laxeldisfyrirtækin hafa sótt um bráðabirgðaleyfi til viðkomandi ráðuneyta til að stunda áfram laxeldi í Patreksfirði og Tálknafirði, þrátt fyrir ógildingu úrskurðarnefndar á leyfunum.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nú í vikunni var í Amtsbókasafninu á Akureyri sett upp til sýningar listaverkið 2,34 eftir Guðlaug Arason; hornsúla eða skápur með eftirlíkingum eða smækkaðri mynd af bókum.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Byggðastofnun eignaðist farþegaskipið Sailor á nauðungaruppboði sem fram fór hjá sýslumanninum í Stykkishólmi í fyrradag. Sailor hefur verið notað til hvalaskoðunar frá Reykjavík undanfarin ár.
Meira
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Pétur Magnússon, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, segir dagdvalarheimili á Íslandi ekki vera nægjanlega mörg til að mæta fjölgandi hópi eldri borgara hér á landi.
Meira
Sjómannafélag Eyjafjarðar og Sjómannafélagið Jötunn í Vestmannaeyjum hafa dregið sig út úr viðræðum um sameiningu við þrjú önnur félög sjómanna. Ástæðan er ásakanir sem fram hafa komið á forystu Sjómannafélags Íslands.
Meira
Flókið gatnakerfi Það getur verið þrautin þyngri að finna út úr öllum þeim örvum sem eru á umferðarskiltum við Lækjargötu og ekki að undra að ferðamenn reki upp stór...
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Hvorki stéttarfélögin í Starfsgreinasambandi Íslands og VR né Samtök atvinnulífsins hafa enn birt mat á kostnaði við kjarakröfur félaganna vegna endurnýjunar kjarasamninga.
Meira
Viðtal Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Tvær vikur eru nú í að ný bók spennusagnahöfundarins Arnaldar Indriðasonar komi í verslanir og eftirvænting aðdáenda hans fer að líkindum vaxandi.
Meira
Ferillinn hefur í raun verið tvískiptur milli starfa á fjölmiðlum og fyrir hjálparsamtök. Í byrjun þessa árs sneri ég aftur á Stöð 2, Vísi og Bylgjuna eftir að hafa verið í allmörg ár hjá Rauða krossinum og kann þeirri breytingu vel.
Meira
Bergþór Ólason, formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, segir nefndina hafa óskað eftir því að fulltrúi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins mæti á fund nefndarinnar í dag og svari spurningum um málefni Samgöngustofu.
Meira
K100 er fyrsta útvarpsstöðin sem hefur dagskrá klukkan sex að morgni og munu Jón Axel Ólafsson, Ágeir Páll Ásgeirsson og Kristín Sif Björgvinsdóttir stýra þættinum Ísland vaknar.
Meira
„Það er ekki óeðlilegt að biðja um að mál sé fellt niður þegar búið er að ganga að öllum okkar kröfum,“ sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness (VLFA).
Meira
Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og eiginmaður Öldu Lóu Leifsdóttur, er í fyrirtækjaskrá skráður stjórnarformaður félagsins Nýr kafli ehf., sem tilgreint er í tilkynningu stéttarfélagsins Eflingar um verkefnið „Fólkið í Eflingu“ frá 12.
Meira
Sviðsljós Sigurður Ægisson sae@sae.is Stytta af Gústa guðsmanni, hinum landsþekkta fiskimanni og kristniboða, var afhjúpuð á Ráðhústorgi á Siglufirði laugardaginn 13. október síðastliðinn að viðstöddu fjölmenni.
Meira
Tónlistarkonan Hera Hjartardóttir kemur fram á tónleikum í Bæjarbíói í Hafnarfirði í kvöld kl. 20.30. Á efnisskránni verður nýtt efni í bland við eldra. Þetta verða einu tónleikarnir með Heru hér á landi á þessu ári.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, áætlar að sala nýrra fólksbíla hafi dregist saman um 30% síðustu 3-4 vikur. Samdrátturinn hafi hafist eftir að gengi krónu fór að gefa eftir í sumarlok.
Meira
Árið 2013 var mjólkurgerðin Arna formlega stofnuð á Ísafirði. Síðan þá hefur fyrirtækið rutt sér til rúms á íslenskum markaði með laktósafríum mjólkurafurðum sem hafa gjörbreytt lífi margra. Færri vita söguna á bak við fyrirtækið og hvaðan nafnið er komið.
Meira
Söngkonan Ingrid Örk Kjartansdóttir kemur fram á tónleikaröðinni Freyjujazzi í Listasafni Íslands í dag kl. 17.15 ásamt tríói Gunnars Hilmarssonar. Auk Gunnars á gítar skipa tríóið þeir Jóhann Guðmundsson á gítar og Leifur Gunnarsson á kontrabassa.
Meira
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hörður Torfason, söngvaskáld og einn forsprakka búsáhaldabyltingarinnar, skrifar í nýrri bók sinni, Bylting , að mótmælendur hafi íhugað að gera allsherjar byltingu á Íslandi eftir efnahagshrunið 2008.
Meira
Sumarið 2007 kynntu Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir sf. hugmyndir um uppbyggingu í Örfirisey. Róttækasta tillagan gerði ráð fyrir allt að 156 hektara landfyllingu.
Meira
Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þær aðgerðir sem við sjáum hér eru forsmekkur að mun stærri heræfingu sem haldin verður í Noregi og munu þessir landgönguliðar einnig æfa þar,“ segir Stephen M.
Meira
Heildarmagn loðnu í leiðangri Hafrannsóknastofnunar í september mældist 337 þúsund tonn og þar af var metin stærð veiðistofns vertíðarinnar 2018/2019 um 238 þúsund tonn.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Gjörbreyta þarf verkefnum sem Reykjavíkurborg hefur hrundið af stað á undanförnum árum til að auka samráð og þátttöku borgaranna.
Meira
Guðrún Sigríður Ágústsdóttir, Sirrý, er 44 ára. Hún segir lífið núna enda talar hún af reynslu. Hún greindist með leghálskrabbamein 2010 og aftur 2015 og þá voru henni gefin eitt til þrjú ár. Á næstu dögum nær hún í grunnbúðir Everest.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mál Verkalýðsfélags Akraness (VLFA) gegn Hval hf. fyrir Félagsdómi var fellt niður að kröfu VLFA sem upphaflega stefndi Hval hf. Málskostnaður féll niður. Þetta kemur fram í úrskurði Félagsdóms frá 8. október.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Lýðræðisgáttir Reykjavíkurborgar á netinu eru í lamasessi. Gjörbreyta þarf verkefnum sem borgin hefur hrundið af stað á undanförnum árum til að auka samráð og þátttöku borgaranna.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við fengum tvö úr starfshópnum til okkar og þau fóru yfir skýrsluna og þau sjónarmið sem starfshópurinn lagði áherslu á þar.
Meira
Rafvædd, bætt og einfölduð þjónusta er markmið nýrrar þjónustustefnu sem borgarstjórn samþykkti að innleiða á fundi sínum í fyrradag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Meira
Ein svalasta eldhústækjalína sögunnar er eftir meistara Philippe Starck og hönnuð í samstarfi við Gorenje. Línan er hreint ótrúlega fögur svo ekki sé fastar að orði kveðið enda Starck þekktur fyrir að kunna sitt fag.
Meira
„Á meðan mér finnst ég hafa eitthvað fram að færa sem rithöfundur og fæ hugmyndir til þess að vinna úr held ég áfram,“ segir Arnaldur Indriðason rithöfundur. Ný bók hans er sú 22. í röðinni á jafn mörgum árum og nefnist Stúlkan hjá brúnni.
Meira
Spænsk-íslenska viðskiptaráðið stendur fyrir hádegisfyrirlestri nk. mánudag. Þar mun Juan Lama Arenales hagfræðingur flytja erindi um spænska fasteignamarkaðinn, en þar hafa fjölmargir Íslendingar fjárfest að undanförnu.
Meira
„Nei, ég skálaði ekki við hana, ég hitti hana ekki einu sinni,“ segir Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, um ummæli Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem féllu undir liðnum störf þingsins við upphaf þingfundar í gær.
Meira
Útlit er fyrir það að öll vötn falli til Dýrafjarðar í apríl ef gangagröfturinn gengur jafn vel og til þessa. Eru um það bil 25 vikur þangað til gangamenn slá í gegn, þangað sem vinnu lauk Arnarfjarðarmegin. Byrjað var að sprengja Dýrafjarðarmegin í...
Meira
Samningur var undirritaður í vikunni á milli Samtaka fjármálafyrirtækja og Landspítala um að vátryggingafélögin Sjóvá, TM, VÍS og Vörður styrki hjartadeild spítalans um 18 milljónir króna á næstu þremur árum.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Að minnsta kosti fjórir af fimmtán Sádum, sem hafa verið bendlaðir við hvarf sádiarabíska blaðamannsins Jamals Khashoggis, eru taldir tengjast krónprins Sádi-Arabíu, að sögn dagblaðsins The New York Times .
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Láglendisleiðin sem Vegagerðin hefur lengi unnið að, svokölluð Teigsskógarleið (ÞH), kemur betur út en leiðin sem norsku sérfræðingarnir lögðu til, í öllum þeim þáttum sem Vegagerðin kannaði í frumathugun sinni.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Árleg íbúakosning um framkvæmdir í Reykjavík, Hverfið mitt, er nú hafin. Borgarbúum gefst kostur á að kjósa á milli verkefna í sínu hverfi sem valin voru úr tillögum íbúa.
Meira
Einungis tveir aðilar hafa fengið skattskrá allra Íslendinga yfir 18 ára afhenta frá ríkisskattstjóra og koma þannig til greina sem aðilarnar á bak við vefsíðuna tekjur.
Meira
Að minnsta kosti nítján manns biðu bana og tugir særðust í skotárás í tækniháskóla í borginni Kerch á Krímskaga í gær. Átján ára nemi við skólann hóf skothríð á skólafélaga sína og fyrirfór sér síðan, að sögn lögreglumanna sem rannsaka árásina.
Meira
Hópur þingmanna hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að ríkisstjórninni verði falið að skipa starfshóp til þess að kanna með heildrænum hætti stöðu barna á Íslandi tíu árum eftir hrun.
Meira
Óli Björn Kárason fjallaði um málfrelsi og hatursorðræðu í grein hér í blaðinu í gær. Þar kom hann inn á nýlegt mál háskólakennara og benti líka á ummæli annarra háskólakennara sem hefðu ekki kallað á viðbrögð háskólayfirvalda.
Meira
„Við ættum að taka oftar upp hanskann hvert fyrir annað,“ skrifaði Gerður Kristný rithöfundur við listræna ljósmynd eftir Guðrúnu Auðunsdóttur af nokkrum kvenhönskum. Fallega mælt eins og skáldsins er von og vísa.
Meira
Hver myndi vilja fá löggur í heimsókn, spyrjandi hvort þú hefðir verið í partíi í tilteknu húsi fyrir 26 árum? Tala nú ekki um ef tilefnið er að maður hafi mögulega verið drepinn í því partíi. Ljósvaki hefur ekki upplifað þetta, þ.e.
Meira
Lilja Guðmundsdóttir sópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari koma fram á hádegistónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag kl. 12 og flytja sönglög eftir Tsjajkovskíj og...
Meira
Eftir Johann Sebastian Bach (1685-1750) voru flutt Adagio úr Orgelsónötu r. 4 í e-moll BWV 528 í umritun Augusts Strandal (1860-1930); Prelúdía og fúga í e-moll BWV 855 Das Wohltemperierte Klavier, bók 1, nr.
Meira
Guðrún Óla Jónsdóttir gudruno@mbl.is „Ég er að verða voða spennt,“ segir myndlistarkonan Hildur Ásgeirsdóttir þegar blaðamaður slær á þráðinn til hennar yfir Atlantshafið.
Meira
„Frá drengjakollum til #MeToo: Líkamsbyltingar í eina öld“ nefnist fyrirlestur sem dr. Þorgerður H. Þorvaldsdóttir flytur á vegum RIKK í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands í dag kl. 12.
Meira
Sigurjón Ólafsson var meðal brautryðjenda abstraktlistar á Íslandi og talinn einn helsti portrettlistamaður sinnar samtíðar. Hann gerði fjölda opinberra verka og eru á annan tug útilistaverka og veggskreytinga eftir hann í Reykjavík.
Meira
Anna Burns hlaut í vikunni Man Booker-bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Milkman . Burns er fyrst írskra rithöfunda til að fá þessi virtu verðlaun og hlýtur hún 50 þúsund pund að launum. Verðlaunin eru ætluð enskumælandi höfundum.
Meira
Viðtal Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það var ævintýraþráin sem varð til þess að sautján ára norskur piltur afréð að ferðast til Íslands snemma á 6. áratugnum.
Meira
Bandaríkjadeild PEN, sem eru alþjóðleg samtök rithöfunda, þýðenda og ritstjóra, hefur höfðað mál á hendur Donald Trump sökum þess að þeir telja Bandaríkjaforseta hafa notað stjórnsýslulegt vald sitt til að ráðast á fjölmiðla sem stríði gegn 1.
Meira
Af leiklist Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Oft er langlífi ákveðinna leiksýninga dásamað, þegar þær hafa verið færðar upp nokkur leikár í röð – erlendis þekkist að sýningar gangi jafnvel í einhverja áratugi.
Meira
Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Mikið verður um dýrðir í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi um helgina þegar 30 ár eru liðin frá því safnið var opnað almenningi og 110 ár frá fæðingu myndhöggvarans, sem safnið er kennt við.
Meira
Bíó Paradís, í samvinnu við Nordisk Film og TV Fond, sýnir allar myndirnar fimm sem tilnefndar eru til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs dagana 18.-21. október. Myndirnar verða allar sýndar með enskum texta.
Meira
Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran og Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari halda tónleika í Hannesarholti til heiðurs Jóni Ásgeirssyni níræðum laugardaginn 20. október kl. 16.
Meira
Fjórir höfundar halda upplestrarkvöld í Gunnarshúsi á Dyngjuvegi 8 kl. 20 í kvöld og lesa upp úr fjórum nýjum og nýlegum bókum. Linda Vilhjálmsdóttir les upp úr nýútkominni ljóðabók sinni, Smáa letrinu.
Meira
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson: "Nærum sjálfselskuna ásamt því að rækta það að elska aðra. Það er ekki sama og að vera sjálfhverf, sjálfmiðuð, sjálfumglöð, sérhlífin eða eigingjörn."
Meira
Ég hef veitt því athygli að undanförnu að bílstjórar á höfuðborgarsvæðinu virða ekki þá eðlilegu reglu að á vinstri akrein skuli aksturshraði meiri en á þeirri hægri.
Meira
Eftir Hjörleif Guttormsson: "Spurningin er hvort stjórnmálamenn og aðrir taki boðskapinn alvarlega og hefji nú þegar sókn í umhverfismálum að settu marki."
Meira
Eftir Jónas Haraldsson: "Við eigum þó alltaf að geta huggað okkur við það og glaðst yfir því að geta eftir sem áður notið tónlistar, sem aðrir spila eða syngja."
Meira
Eftir Skúla Sveinsson: "Meginmarkmið að koma í veg fyrir einkarekstur með öllum tiltækum ráðum og þá að önnur markmið, svo sem velferð sjúklinga, verði að víkja."
Meira
Fríða Gestrún Gústafsdóttir fæddist í Reykjavík 25. júní 1935. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 7. október 2018. Foreldrar hennar voru Jóhanna Ásgeirsdóttir, f. 14.10. 1905, d. 25.5. 1982, húsfreyja í Reykjavík, og Gústaf Adolf Gestsson, f. 8.6.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Laugi Guðlaugsson fæddist í Reykjavík 14. júlí 1959. Hann lést 25. september 2018 á Spáni. Foreldrar hans eru Guðlaugur J. Guðlaugsson bifreiðasmiður frá Dalvík, f. 10. maí 1931, og Fjóla Sigurðardóttir frá Hruna í Vestmannaeyjum, f. 17.
MeiraKaupa minningabók
Ingibjörg Guðjónsdóttir fæddist á Hvolsvelli í Rangárvallasýslu 16. febrúar 1953. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi eftir erfið veikindi 6. október 2018. Foreldrar hennar voru Kristín Ísleifsdóttir húsmóðir, f. 3. desember 1927, d. 23.
MeiraKaupa minningabók
Jón Þórarinn fæddist í Vík í Mýrdal 10. maí 1930. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 2. október 2018. Foreldrar hans voru Bárður Jónsson, f. í Kárhólmum í Mýrdal 28. mars 1895, hvarf í lok árs 1963, og Þórey Sverrisdóttir, f. í Hraunbæ í Álftaveri 4.
MeiraKaupa minningabók
Lilja Friðbertsdóttir fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 21. október 1940. Hún lést á Selfossi 26. september 2018. Lilja var níunda í röð ellefu barna Friðberts Guðmundssonar, f. 1900, d. 1973, og Jónu Magnúsdóttur, f. 1906, d. 1991.
MeiraKaupa minningabók
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins voru afhent í dag við hátíðlega athöfn á umhverfisdegi atvinnulífsins. Umhverfisfyrirtæki ársins er Toyota en framtak ársins á sviði umhverfismála á Skinney-Þinganes.
Meira
„Biblían kemur víða við sögu og flestir eiga sér einhverja persónulega minningu um hana. Persónur eða viðburðir Biblíunnar eiga sér afleggjara í bókmenntum, listum og sögu heimsins.
Meira
6 til 9 Ísland vaknar Ásgeir Páll, Jón Axel og Kristín Sif rífa landsmenn á fætur með gríni og glensi alla virka morgna. Sigríður Elva les traustar fréttir á hálftíma fresti. 9 til 12 Siggi Gunnars Skemmtileg tónlist og góðir gestir reka nefið inn.
Meira
Hjónin Guðlaug Wium og Ragnar Stefán Magnússon eiga demantsbrúðkaup í dag. Þau voru gefin saman í Dómkirkjunni 18. október 1958 af séra Jóni Auðuns. Þau ætla að njóta dagsins með...
Meira
Elizabeth Anne Unger hlaut BS-gráðu í fyrirtækjastjórnun og hagfræði frá University of North Carolina í Wilmington með láði árið 2002; hún lauk MS-gráðu í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands árið 2009.
Meira
Þegar ég var strákur á Laugaveginum var sýnd revían „Haustrigningar“ með þeim Alfreð Andréssyni, Haraldi Á. og Soffíu Karlsdóttur ef ég man rétt, svo að haustrigningarnar núna ættu ekki að koma okkur í opna skjöldu.
Meira
30 ára Kristín ólst upp í Reykjavík, býr í Hafnarfirði, lauk stúdentsprófi frá Keili og starfar á auglýsingadeild Árvakurs. Dætur: Sunna Dís Sturludóttir, f. 2013, og Snædís Lilja Sturludóttir, f. 2015. Foreldrar: Ari Þór Jóhannesson, f.
Meira
Þorgeir fæddist á Siglufirði 18.10. 1968 en ólst upp á Húsavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MA og BA-prófi í heimspeki frá HÍ. Þorgeir var ritari á skrifstofu Bandalags íslenskra leikfélaga 1993-99, texta- og hugmyndasmiður á ýmsum auglýsingastofum,...
Meira
„Hvert er lengsta jarðgang sem þú hefur keyrt í gegnum?“ Sá sem spyrði þessa (hans er leitað) mundi líklega ekki hvá þótt svarað yrði: „Ég er ekki viss, en tvö voru rosalega löng.
Meira
30 ára Olga ólst upp í Kópavogi, býr í Reykjavík, lauk stúdentsprófi frá HR og starfar við LSH. Dóttir: Viktoría Klara, f. 2013. Bróðir: Viktor Ellertsson, f. 1980, mannauðsstjóri rekstrarsviðs LSH. Foreldrar: Klara Sigurmundadóttir, f.
Meira
Það var afar sérstakur morgunverður á borðum í Ísland vaknar í morgunsárið þegar Kristín Sif, einn þáttarstjórnenda, mætti með mjölorma úr Dýraríkinu í nestisboxinu.
Meira
30 ára Ragnheiður ólst upp á Þóroddsstöðum, býr á Laugarvatni, lauk viðskiptafræðiprófi og er fjármálastjóri ML. Maki: Haraldur Helgi Hólmfríðarson, f. 1983, rekstrarstjóri við ferðaþjónustu. Stjúpdætur: Aldís Þóra, f. 2005, og Bjarney Sara, f. 2011.
Meira
Víkverji er fróðleiksfús og sífellt að læra eitthvað nýtt. Það nýjasta sem Víkverji lærði er að ef draumar rætast ekki í veruleikanum þá rætast þeir í draumi. Á laugardagsmorgni vaknaði Víkverji við hlátur.
Meira
18. október 1911 Tryggvi Gunnarsson athafnamaður gaf Ungmennafélagi Íslands 45 hektara land við Sog og Álftavatn til að „klæða þessa landspildu í grænt skrúð, sér sjálfum til ánægju og öðrum til fyrirmyndar“, eins og sagði í gjafabréfinu.
Meira
Hinn 21 árs gamli Elvis Presley kom við á bensínstöð í Memphis á þessum degi árið 1956. Fljótt hópaðist fólk að honum sem vildi eiginhandaráritun og öngþveiti myndaðist í kringum bensíndælurnar.
Meira
*Arsene Wenger, fyrrverandi knattspyrnustjóri Arsenal, reiknar með að hefja störf á nýjan leik í janúar. Frakkinn, sem er 68 ára gamall og yfirgaf Arsenal eftir 22 ára starf í sumar, segist hafa fengið fyrirspurnir frá liðum úti um allan heim.
Meira
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG komst inn í mót á Evrópumótaröðinni í golfi sem hefst í dag á hinum kunna Valderrama-velli á Spáni en Sergio Garcia er sérstakur gestgjafi mótsins.
Meira
Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður í körfubolta, hitti vel og var stigahæstur þegar lið hans Nanterre mætti Iberostar Tenerife í Meistaradeild Evrópu í Frakklandi í gærkvöld. Gestirnir frá Spáni fögnuðu þó öruggum sigri, 75:58.
Meira
Varmá Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Afturelding og ÍBV skildu jöfn, 28:28, er þau mættust í 5. umferð Olísdeildar karla í handbolta í Mosfellsbæ í gærkvöldi.
Meira
Landsliðsmennirnir Aron Pálmarsson og Bjarki Már Elísson mætast í úrslitaleik í heimsmeistarakeppni félagsliða í handknattleik í Doha í Katar á morgun en annað árið í röð spila Barcelona og Füchse Berlín til úrslita í þessari keppni.
Meira
Meistaradeild UEFA kvenna 16-liða úrslit, fyrri leikir: Lilleström – Bröndby 1:1 Guro Reiten 30. – Emilie Henriksen 35. • Sigríður Lára Garðarsdóttir sat á varamannabekk Lilleström allan leikinn.
Meira
Norðmenn, undir stjórn Svíans Lars Lagerbäcks, eru heldur betur á flugi þessa dagana en norska landsliðið í knattspyrnu hefur unnið sjö af síðustu átta leikjum sínum.
Meira
José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, er efstur á blaði hjá breska veðbankanum William Hill um að verða fyrsti stjórinn í ensku úrvalsdeildinni sem verður látinn taka poka sinn á tímabilinu.
Meira
Sara Björk Gunnarsdóttir lék að vanda allan leikinn þegar Wolfsburg vann Atlético Madrid 4:0 í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær.
Meira
Ingibjörg Sigurðardóttir, landsliðsmiðvörður í knattspyrnu, skaut Djurgården áfram í sænsku bikarkeppninni í gærkvöld með sigurmarki í 2:1-sigri á B-deildarliði Västerås. Markið skoraði Ingibjörg beint úr aukaspyrnu þegar um korter var til leiksloka.
Meira
Snæfell er með fullt hús stiga á toppi Dominos-deildar kvenna í körfubolta eftir sigur í spennandi toppslag við Stjörnuna í Garðabæ í gærkvöld, 62:53.
Meira
Úff, hvað mér finnst dapurlegt að José Mourinho hafi verið kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir að bæra varirnar framan í sjónvarpsvél eftir 3:2-sigur Manchester United á Newcastle á dögunum.
Meira
Thierry Henry tók formlega við þjálfun franska knattspyrnuliðsins Mónakó í gær en hann var ráðinn þjálfari liðsins á dögunum eftir að félagið rak Leonardo Jardim frá störfum.
Meira
Verði niðursveiflan harkaleg er ráðrúm fyrirtækja til að bregðast við lítið og skyndilega getur komið upp sú staða að tekjur standi ekki undir skuldsetningu og þá er á pappírunum fátt annað til ráða en að skala niður reksturinn, selja eignir og nýta...
Meira
Sérfræðingar hafa bent á að tæknin geti komið að góðum notum þegar skráning hugverkaréttinda er annars vegar, svo sem fyrir vörumerki, einkaleyfi og eftir atvikum hönnun.
Meira
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Samrunaferli N1 og Festar hefði getað tekið mun skemmri tíma og heppilegra hefði verið ef Samkeppniseftirlitið hefði gefið út frá upphafi hvaða markmiðum það vildi ná.
Meira
Nám: Lærði leiklist í Bretlandi og hef tekið námskeið í alls konar fræðum, m.a. viðskipta-, jarðvegs-, efna-, og grasafræðum og setið hina og þessa mannlega kúrsa.
Meira
Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Gengi krónunnar hefur lækkað um 11% gagnvart evru frá því er best lét í sumar. Grunnstoðirnar eru þó ágætar að mati hagfræðings.
Meira
Peningamál Allir nefndarmenn peningastefnunefndar studdu tillögu seðlabankastjóra um að halda stýrivöxtum óbreyttum við síðustu vaxtaákvarðanatöku 3. október. Þetta kemur fram í fundargerð peningastefnunefndar sem birt var í gær.
Meira
Upplýsingatækni Origo hf. hefur sent frá sér afkomuviðvörun en þar segir að rekstrarhagnaður (EBITDA) félagsins verði allt að 62% hærri á þriðja ársfjórðungi en fyrri tilkynningar höfðu gefið til kynna.
Meira
Jafnt og þétt hefur rekstur snyrtivörufyrirtækisins Sóley Organics vaxið og dafnað og væntir Sóley Elíasdóttir þess að umsvifin fimmtugfaldist á næstu fimm árum. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin?
Meira
SVÞ ásamt Rannsóknasetri verslunarinnar stóðu að morgunverðarráðstefnu um íslenska netverslun á dögunum, en ráðstefnan var haldin í kjölfar útgáfu nýrrar skýrslu um efnið.
Meira
„Það gekk brösuglega í fyrstu,“ segir Guðmundur Hallvarðsson, formaður Hollvinasamtaka Óðins, sem tekinn var í slipp í Reykjavíkurhöfn á mánudag frá sínum stað við Sjóminjasafnið.
Meira
Í Morgunblaðinu í gær kom fram að lífeyrissjóðurinn Lífsverk hefði ákveðið að taka að sér fjármögnun á stórframkvæmd í Mörkinni í Reykjavík. Um er að ræða veðtryggða skuldabréfaútgáfu upp á 1,6 milljarða króna.
Meira
Eftir Richard Milne, fréttaritara á Norðurlöndum Enn syrtir í álinn hjá Danske bank nú þegar dönsk stjórnvöld hafa gripið inn í og komið í veg fyrir að einn af framkvæmdastjórum bankans taki við af hinum brottrekna Thomas Borgen.
Meira
Færsluhirðing Viðskiptavinir Kortaþjónustunnar, m.a. kaupmenn, hafa orðið fyrir því í nokkur skipti að undanförnu að uppgjör til þeirra hafa dregist.
Meira
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Lengi græddu tilteknir fjölmiðlar formúgu á því að hnýsast í tekjuskrár sem Ríkisskattstjóri lagði fram og geymdi á glámbekk um nokkurra daga skeið á hverju ári.
Meira
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Að ná fullkomnustu fiskvinnslutækjum almennilega hreinum getur stundum kallað á að taka þau í sundur, með töluverðri fyrirhöfn.
Meira
Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Hermann Kristjánsson, framkvæmdastjóri og stofnandi fyrirtækisins Vaka, hefur ákveðið að láta af störfum eftir 32 ár við stjórnvölinn.
Meira
Skúli Halldórsson sh@mbl.is „Öðru fremur hefur það verið pólitíkin og þessi pólitíski rétttrúnaður um það að aldrei megi leita að neinu úr smiðju útvegsmanna, sem hefur verið til skaða,“ segir Binni í Vinnslustöðinni.
Meira
Forritið Það er hluti af daglegum rekstri flestra fyrirtækja að þurfa að svara stöðugum flaumi spurninga frá viðskiptavinum. Oftast eru spurningarnar keimlíkar: Hver er afgreiðslutíminn? Hvað kostar þetta og hvað kostar hitt?
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.