Mike Pompeo veldur umferðartöfum í Reykjavík, sagði fréttin á textavarpi „RÚV“ og stóð þar langtímum saman. Vissulega var þetta upplýsandi frétt. Sjálfsagt hafa einhverjir verið að velta fyrir sér hvers vegna þessi ágæti utanríkisráðherra vinaþjóðar okkar og fyrrverandi hæstráðandi CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna sem var, þegar seinast fréttist, með rúmlega 300 þúsund starfsmenn í vinnu, eða svipaðan fjölda og hér býr, þótt starfmannalisti liggi ekki fyrir, hafi verið að valda hér umferðartöfum.
Meira