Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt keppnistímabil sem gekk vonum framar,“ segir markadrottning Olís-deildar kvenna, Martha Hermannsdóttir, þriggja barna móðir, tannlæknir og handknattleikskona á Akureyri, sem lét svo sannarlega til sín taka með samherjum sínum í liði KA/Þórs í deildarkeppninni sem lauk á þriðjudagskvöldið. „Í upphafi var ekki til mikils ætlast af okkur sem nýliðum í deildinni. Við létum það ekki á okkur fá og náðum að koma á óvart,“ sagði Martha þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hennar í vikunni.
Meira