Ágúst Þór Árnason, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri, lést á heimili sínu hinn 11. apríl eftir snarpa baráttu við krabbamein. Hann fæddist í Reykjavík 26. maí 1954.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Húsið sem hýsa á starfsemi Hafrannsóknastofnunar við Fornubúðir í Suðurhöfninni í Hafnarfirði er óðum að taka á sig mynd. Byggingin er orðin þrjár hæðir, en hún verður á fimm hæðum.
Meira
Rósa Margrét Tryggvadóttir rosamargrett@gmail.com Brandarar sem 6-10 ára börn á frístundaheimilum innan Kringlumýrar söfnuðu saman hafa verið gefnir út í rafbókarformi. Er bókin gefin út í tengslum við Barnamenningarhátíð sem haldin er í Reykjavík...
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Uppsetning á djúpgámum fyrir sorp við Bríetartún 9-11 í Reykjavík var langt komin um hádegisbilið í gær. Eins og ljósmyndin hér til hliðar ber með sér bera gámarnir nafn með rentu. Þeir eru djúpir og langir.
Meira
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Fundir samflots iðnaðarmanna og Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara halda áfram eftir helgi. „Það er skipulagður fundur á mánudaginn.
Meira
Við mikla kátínu viðstaddra undirrituðu ráðherrar viljayfirlýsingu í gær á málþingi Geðhjálpar og Bergsins um að veita 60 milljónir króna til Bergsins næstu tvö árin.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Annir hafa verið frá mánaðamótum við merkingar á skógarþröstum í Einarslundi við Höfn í Hornafirði. Þeir félagarnir Björn G.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur, segir uppbyggingu nýs íbúðahverfis í Skerjafirði geta hafist fyrir áramót. Ætlunin sé að ljúka nýju deiliskipulagi í haust. Það sé unnið í samstarfi við aðila sem hafa fengið vilyrði fyrir lóðum.
Meira
Fimm umferðir eru að baki í GAMMA Reykjavíkurskákmótinu, sem fram fer í Hörpu þessa dagana. Efstu menn eru með 4 ½ vinning og síðan koma nokkrir keppendur með 4 vinninga.
Meira
Ákvörðun var tekin í gær um að fresta komu tveggja mjaldra til Vestmannaeyja, sem áttu að koma hingað með sérútbúinni flutningavél Cargolux næstkomandi þriðjudag. Ástæðan er veðurspáin og sú staðreynd að Landeyjahöfn hefur verið lokuð að undanförnu.
Meira
Krónan ehf. hefur áfrýjað til Landsréttar dómi Héraðsdóms Suðurlands frá 4. mars síðastliðnum í máli sem fyrirtækið höfðaði á hendur sveitarfélaginu Árborg og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands.
Meira
„Ég held að allir séu nú að klára að henda dóti í töskur fyrir markaðinn. Það er búið að fara góður tími í að skipuleggja þetta og nú er allt að smella,“ segir Kristín Lea Sigríðardóttir við Morgunblaðið.
Meira
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Yngvi Ólafsson, yfirlæknir á bæklunarskurðdeild Landspítalans, telur að þröngur húsakostur og skortur á læknum og legurými séu helstu ástæður biðlista sem myndast hafa eftir liðskiptaaðgerðum.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum núna að taka saman öll gögn sem Ferðamálastofa hefur beðið um og búa til skýrslu. Starfsfólk Ferðamálastofu mun svo hafa samband við alla viðskiptavini okkar, klára málin með kúnnunum.
Meira
Skúli Halldórsson sh@mbl.is Þó úti blési mikill vindur þá væsti ekki um fólk inni í nýrri hausaþurrkunarverksmiðju Lýsis, sem opnuð var í grennd við Þorlákshöfn síðdegis í gær.
Meira
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti samhljóða í bókun á fundi sínum í fyrradag að fara fram á það við Vegagerðina að unnið verði minnisblað þar sem því verði lýst hvernig stofnunin hyggist koma í veg fyrir að þær aðstæður sem nú eru uppi í Landeyjahöfn...
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Raforkuvinnsla á landinu jókst um 591 gígavattstundir (GWh) í fyrra eða um 3,1% milli ára og er aukningin álíka mikil og öll raforkunotkun á Suðurlandi. Um helmingurinn af aukinni raforkuvinnslu fór til gagnavera. Þessar upplýsingar koma fram í greinargerð Orkuspárnefndar um raforkunotkunina á seinasta ári sem Orkustofnun hefur nú birt. Samanlögð raforkuvinnsla í fyrra var 19.830 GWh.
Meira
Landsréttur hefur sýknað Ríkisútvarpið af kröfum Steinars Bergs Ísleifssonar, en Steinar Berg krafði RÚV um miskabætur og afsökunarbeiðni vegna endurvarps á ummælum tónlistarmannsins Bubba Morthens í þættinum Popp- og rokksaga Íslands.
Meira
Norska fiskeldisfyrirtækið SalMar hefur bætt við sig tæplega 9% hlutafjár í Arnarlaxi, stærsta íslenska laxeldisfyrirtækinu, og á nú rúm 63% hlutafjár félagsins.
Meira
Landsréttur hefur þyngt dóm yfir Kjartani Adolfssyni, sem Héraðsdómur Austurlands dæmdi í fjögurra ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn tveimur barnungum dætrum sínum. Niðurstaða Landsréttar er að hann skuli sæta 7 ára fangelsivist.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Síaukin skattheimta og gjaldtaka undanfarinna ára og hækkandi rekstrarkostnaður eru farin að taka verulega í hjá mörgum sjávarútvegsfyrirtækjum,“ sagði Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, á aðalfundi samtakanna í gær.
Meira
Sviðsljós Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Hrein skattbyrði einstaklings með meðallaun sem er í sambúð eða hjónabandi og með tvö börn á framfæri sínu lækkaði hér á landi á síðasta ári frá árinu á undan.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Gera má ráð fyrir að barátta Julians Assange fyrir breskum dómstólum gegn framsalskröfu yfirvalda í Bandaríkjunum taki nokkur ár, að sögn breskra lögspekinga. Fréttaveitan AFP hefur eftir þeim að hugsanlega verði málinu að lokum skotið til Evrópudómstólsins.
Meira
Talsvert tjón varð á handfærabátnum Hring GK 18, tólf tonna plastbáti, þegar talið er að hann hafi siglt á hval út af Höfnum á Reykjanesi í maí í fyrra. Málið var afgreitt frá siglingasviði rannsóknanefndar samgönguslysa á mánudag.
Meira
Ekki er komin lausn í deilur Vegagerðarinnar og pólsku skipasmíðastöðvarinnar Crist um lokauppgjör vegna smíði nýju Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs. Ferjan bíður fullbúin í Gdansk eftir niðurstöðu málsins.
Meira
Vanmat á aðstæðum var orsök þess að farþegaskipið Ocean Diamond rakst utan í endann á Norðurgarði í innsiglunni til Reykjavíkur í lok maí á síðasta ári, samkvæmt áliti siglingasviðs rannsóknanefndar samgönguslysa, en málið var afgreitt frá nefndinni á...
Meira
Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við höfum mjög lengi haft af því áhyggjur að grunnskólanemendur séu í skipulögðu starfi eða vinnu allt frá því þau eru lítil.
Meira
Á ársfundi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, sem haldinn var í gær, sagði sjávarútvegsráðherra að það væri „frumskylda stjórnvalda að tryggja sem best stöðugleika í rekstrarumhverfi íslensks sjávarútvegs til lengri tíma og búa greininni samkeppnishæft starfsumhverfi. Tryggja að þau verði ekki undir í harðri alþjóðlegri samkeppni. Þar hefur gjaldtaka mikið vægi en ekki síður þarf að róa að því öllum árum að útflutningur á sjávarafurðum til Evrópusambandsins og annarra mikilvægra markaða verði sem greiðastur og að fullu tollfrjáls. Sú vinna stendur yfir.“
Meira
Þáverandi ríkisstjórn kokgleypti dellubréf þar sem aðildarumsókn Jóhönnustjórnarinnar að ESB var að sögn embættismanna afturkölluð. Það sýnir hvað menn eru bíræfnir þegar þeir senda ráðherra sinn með slíkt bréf inn á fund ríkisstjórnar. En þeim til láns þá virtist ekki neinn læs maður vera staddur þar á fundi þegar svo mikilvægt mál var til afgreiðslu. Nú tala ráðherrar um mál dagsins eins og páfagaukar um „fyrirvara sem breyti málinu“.
Meira
Sönghópurinn Alumni, skipaður söngvurum úr kór Clare College í Cambridge, verður gestur Listvinafélags Hallgrímskirkju um helgina og kemur fram á tónleikum í Hallgrímskirkju í dag kl. 17 og syngur í messu á Pálmasunnudag kl. 11.
Meira
Bandarískur unglingakór frá einkaskólanum Lake Worth Christian School í Boynton Beach á Flórida heldur tónleika í Kaldalóni Hörpu á morgun, sunnudag, kl. 17.30.
Meira
Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt íslenskrar menningarsögu sem lýtur að hönnun, einkum frá aldamótunum 1900 til samtímans.
Meira
Arkitektinn Paolo Gianfrancesco verður með leiðsögn um sýninguna Borgarlandslag á morgun, sunnudag, kl. 13 í Hönnunarsafni Íslands. Á sýningunni má sjá 100 borgarkort sem hann hefur útfært og hannað.
Meira
Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Ég kynntist konunni minni í kvikmyndanámi og við elskum bæði sögulegar og dulrænar kvikmyndir. Sóley er þannig mynd.
Meira
Guðrún Óskarsdóttir semballeikari heldur tónleika í Ásmundarsal á Freyjugötu 41 annað kvöld kl. 20. Þar leikur hún verk eftir De la Guerre, Couperin, Önnu Þorvaldsdóttur og Kolbein Bjarnason.
Meira
Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Með ást á tónlist og frábærum vinskap höfum við spilað saman í 25 ár og erum hvergi hættar,“ segir Auður Hafsteinsdóttir, fiðluleikari sem skipar Tríó Nordica ásamt Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara og Íslandsvininum Monu Kontra, píanóleikara sem búsett er í Svíþjóð. Tríó Nordica heldur síðustu Tíbrártónleika vetrarins í Salnum í Kópavogi annað kvöld kl. 20.
Meira
Ekki er það gæfulegt að þykjast eiga einhver áhugamál til að ganga í augun á þeim sem maður lítur hýru auga. Eins og þegar ég hitti minn heittelskaða fyrir að verða 14 árum.
Meira
Leikstjóri og handritshöfundur: Jordan Peele. Aðalleikarar: Lupita Nyong'o, Winston Duke, Elisabeth Moss, Evan Alex, Shahadi Wright Joseph og Tim Heidecker. Bandaríkin og Japan, 2019. 116 mín.
Meira
Þorleifur Örn Arnarsson tekur við nýrri stöðu sem yfirmaður leikhúsmála við Volksbühne-leikhúsið í Berlín frá og með næsta hausti. Frá þessu var greint í fréttatilkynningu frá leikhúsinu í gær.
Meira
[ Gestaþraut sem er ætlað að minna á mikilvægi greinarmerkja: Setjið kommu í eftirfarandi setningu og gjörbreytið þar með merkingu hennar: Hann drakk ekki sér til vansa (lausn í lok pistils).] Allt breytist, sbr.
Meira
Eftir Valgerði Sigurðardóttur: "Reykjavíkurborg, sem á að vera leiðandi í því að veita góða þjónustu, er með þessu að marka ákveðin spor sem ekkert annað sveitarfélag hefur stigið. Að loka hverfisskóla í fullum rekstri."
Meira
Tveir kunnustu hugsuðir nútíma jafnaðarstefnu eru sem kunnugt er John Rawls og Thomas Piketty. Ég hef bent hér á nokkra galla á kenningu Rawls og mun á næstunni snúa mér að boðskap Pikettys.
Meira
Þegar verðbólgan var að sækja í sig veðrið, mjakaði sér úr tíu prósentum yfir hundraðið á rúmum áratug, var ég sannfærður um að léleg efnahagsstjórn á Íslandi væri lélegum hagfræðingum að kenna.
Meira
Jón Helgason fæddist í Seglbúðum 4. október 1931. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum á Kirkjubæjarklaustri 2. apríl 2019. Foreldrar hans voru Helgi Jónsson, f. 1894, d. 1949, og Gyðríður Pálsdóttir, f. 1897, d. 1994.
MeiraKaupa minningabók
Sigurbjörg Gunnarsdóttir fæddist á Bangastöðum í Kelduhverfi í Norður- Þingeyjarsýslu 27. september 1940. Hún lést á Dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík 1. apríl 2019. Foreldrar hennar voru Gunnar Jónatansson, f. 5.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Magnússon fæddist á Heiðarseli í Hróarstungu 1. júlí 1930. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Dyngju á Egilsstöðum 6. apríl 2019. Hann var sonur Svanfríðar Björnsdóttur, f. 1894, d. 1965, og Magnúsar Björnssonar, f. 1883, d. 1955.
MeiraKaupa minningabók
Skúli Magnússon fæddist í Feitsdal í Arnarfirði 25. september 1934. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í Reykjavík 14. febrúar 2019. Foreldrar hans voru Rebekka Þiðriksdóttir, húsmóðir og kennari, f. 27.10. 1890, d. 11.4.
MeiraKaupa minningabók
Baksvið Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is JetBlue tilkynnti á miðvikudag að félagið hygðist hefja beint flug frá New York og Boston til London árið 2021.
Meira
Fasteignafélagið Reginn hefur undanfarið eitt og hálft ár átt í viðræðum við fulltrúa lúxusvörumerkjanna Gucci, Louis Vuitton og Prada, um opnun verslana í húsnæði fasteignafélagsins að Hafnartorgi í Reykjavík. Að sögn Helga S.
Meira
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Varðveist hefur handrit í sjálfsævisögubroti um ævi Guðrúnar Ketilsdóttur sem var vinnukona allt sitt líf. Hún fæddist 1759 og starfaði frá unga aldri á yfir 30 bæjum í Eyjafjarðarsveit. Guðrún segir í ævisögubrotinu á mjög beinskeyttan og einlægan hátt frá lífi sínu, samskiptum við húsbændur og annað fólk, frá áreitni karlmanna og frá hjónabandi með eiginmanni sem var ótrúr.
Meira
10 til 14 100% helgi á K100 Stefán Valmundar rifjar upp það besta úr dagskrá K100 frá liðinni viku, spilar góða tónlist og spjallar við hlustendur. 14 til 18 Algjört skronster Partíþáttur þjóðarinnar í umsjá Ásgeirs Páls.
Meira
Armenarnir Sergei Movsesian og Robert Hovhannisjan deila efsta sæti með 15 ára gömlum Írana, Firouzja Alireza, þegar fimm umferðir eru búnar. Eins og kom fram í pistli sem ég skrifaði sl. laugardag er þessum unga Írana spáð miklum frama í skákinni.
Meira
Garðabær Heimir Hyldahl Erlingsson fæddist 9. ágúst 2018 kl. 10.20. Hann vó 3.364 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Andrea Björnsdóttir og Erling Þorgrímsson...
Meira
50 ára Gnúpur er Reykvíkingur og er forstöðumaður upplýsingadeildar Air Atlanta. Maki : Valborg Stefánsdóttir, f. 1968, fulltrúi hjá Sjúkratryggingum. Börn : Júlía, f. 1992, Diljá, f. 1995, Dagur, f. 2002, og Hilmir, f. 2005.
Meira
Hermann Jón Tómasson fæddist 13. apríl 1959 á Dalvík og ólst þar upp. „Leiksvæðið var allur bærinn og nágrenni hans, fjaran, bryggjan, áin, fjöllin og auðu svæðin sem við krakkarnir gerðum að leiksvæðum.
Meira
40 ára Hrönn er Reykvíkingur og Seltirningur og býr í Reykjavík. Hún er smíðakennari í Grunnskóla Seltjarnarness. Sonur : Birkir, f. 2012. Foreldrar : Hjörtur Emilsson, f. 1950, skipatæknifræðingur hjá Navis, og Ágústa Unnur Gunnarsdóttir, f.
Meira
Jóninna Sigurðardóttir fæddist 11. apríl 1879 á Þúfu í Fnjóskadal. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurður Jónsson, bóndi á Draflastöðum, og Helga Sigurðardóttir.
Meira
Dæmi um nokkuð algenga gildru: „[É]g tel óhjákvæmilegt annað en að launahækkanirnar skili sér út í verðlagið.“ Þarna snýr „annað en“ merkingunni við.
Meira
Vegna veðurs frestast páskaeggjaleit K100 í Hádegismóum fram á fimmtudag, skírdag. Klukkan 10 hitar Leikhópurinn Lotta krakkana upp og Ásgeir Páll ræsir leitina. Mörg hundruð ungar verða faldir á svæðinu og fyrir hvern unga fæst páskaegg frá...
Meira
Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Andinn, sem í brjósti býr. Í biblíunni kóngur dýr. Sést ei nokkur hræða hér. Hjarta í brjóskfiskunum er. Helgi R. Einarsson svarar: Andi, kóngur, ekkert lið. Einnig tengist hjörtum.
Meira
Staðan kom upp á lokuðu ofurskákmóti sem lauk fyrir skömmu í Shamkir í Aserbaídsjan en mótið var haldið til minningar um aserska stórmeistarann Vugar Gashimov.
Meira
Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, mun spila hreinan úrslitaleik um sigur í Evrópukeppninni, Eurocup, eftir sigur Alba Berlín á spænska liðinu Valencia í hinni glæsilegu Mercedes Benz-höll í Berlín í gærkvöldi.
Meira
KA jafnaði metin gegn HK í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í blaki á Akureyri í gærkvöld en KA vann leikinn 3:0. Jafnfræði var með liðunum í fyrstu hrinunni en KA vann 25:22 og þá næstu 25:21.
Meira
Dominos-deild karla Undanúrslit, þriðji leikur: Stjarnan – ÍR 68:62 *Staðan er 2:1 fyrir ÍR. 1. deild karla Umspil, þriðji úrslitaleikur: Fjölnir – Hamar 102:94 *Staðan er 2:1 fyrir Fjölni.
Meira
Fjölnir er kominn í lykilstöðu í úrslitaeinvígi sínu gegn Hamri um laust sæti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik eftir 102:94-sigur liðsins í þriðja leik liðanna í Grafarvoginum í gærkvöld.
Meira
Fylkir og HK mætast í úrslitaeinvígi um sæti í úrvalsdeild kvenna í handknattleik. Fylkir vann eins marks sigur gegn ÍR í Árbænum í undanúrslitum umspilsins, 33:32.
Meira
Volda, liðið sem Halldór Stefán Haraldsson þjálfar í norsku B-deild kvenna í handknattleik, var hársbreidd frá að komast í umspil um sæti í úrvalsdeild. Volda hafnaði í 4. sæti deildarinnar sem lauk í fyrrakvöld með 31 stig í 22 leikjum.
Meira
Körfubolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Bakvörðurinn Michele DiNunno hefur vakið athygli í liði KR að undanförnu í úrslitakeppni Dominos-deildar karla í körfuknattleik. DiNunno kom til KR-inga í byrjun árs og hafði hægt um sig til að byrja með.
Meira
Í Garðabæ Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is ÍR er komið í 2:1-forystu í einvíginu gegn Stjörnunni í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta eftir 68:62-útisigur í framlengdum leik í gærkvöldi.
Meira
ÍR vann afar góðan 68:62-sigur á Stjörnunni í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta í gærkvöldi og er nú með 2:1-forskot í einvíginu eftir tvo sigra í röð.
Meira
*Körfuknattleiksmaðurinn Brynjar Þór Björnsson hefur rift samningi sínum við Tindastól en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu í gær. Brynjar Þór gekk til liðs við Tindstól frá KR síðasta sumar en hann yfirgefur félagið af persónulegum ástæðum.
Meira
Mjólkurbikar karla Bikarkeppni KSÍ, 1. umferð: Fenrir – Ægir 0:2 *Ægir mætir KB eða Snæfelli. Vængir Júpíters – Kóngarnir 9:0 *VJ mætir Kórdrengjum eða KM. KFG – Reynir S 1:2 *Reynir mætir Þrótti R.
Meira
Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is Deildarmeistarar Hauka í handknattleik karla eiga tvo leikmenn í úrvalsliði Olís-deildar karla sem Morgunblaðið hefur valið og birt er hér til hliðar. Grannar Haukanna, FH-ingar, eru einnig með tvo menn í liðinu.
Meira
NBA Gunnar Valgeirsson Los Angeles Úrslitakeppnin í NBA-deildinni hefst í dag og að venju þykir rétt í þessum dálkum að rýna í styrkleika liðanna eftir deildarkeppnina.
Meira
Fagnaðarlætin voru gífurleg þegar næstsigursælasti kylfingur sögunnar, Tiger Woods, lét að sér kveða á öðrum hring Masters-mótsins á Augusta National-vellinum í gær. Tiger Woods er á samtals sex höggum undir pari þegar mótið er hálfnað.
Meira
Knattspyrnumaðurinn Guðjón Pétur Lýðsson er á förum frá KA en þetta staðfesti félagið í gær. Guðjón samdi við félagið í nóvember á síðasta ári en af fjölskylduástæðum sér miðjumaðurinn sér ekki fært að leika með Akureyrarliðinu í sumar.
Meira
Umspil kvenna Undanúrslit, annar leikur: Fylkir – ÍR 33:32 *Fylkir áfram 2:0 samanlagt. FH – HK 19:27 *HK áfram 2:0 samanlagt. Þýskaland Dortmund – Thüringer 23:26 • Hildigunnur Einarsdóttir leikur með...
Meira
Sigurður Sigmannsson segir farir sínar ekki sléttar af biðtíma eftir hnéskiptaaðgerð. Á meðan hann beið versnaði staðan til muna. Hann er ósáttur við heilbrigðiskerfið og telur brotið á rétti sínum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Meira
Yngvi Ólafsson, yfirlæknir á bæklunarskurðdeild Landspítalans, telur að þröngur húsakostur, skortur á læknum og legurými sé helsta ástæða biðlista sem myndast hafa í liðskiptaaðgerðir.
Meira
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Hjálmar Þorsteinsson bæklunarlæknir hjá Klíníkinni telur að biðlista í liðskiptaaðgerðir megi stytta eða útrýma ef Sjúkratryggingar Íslands semdu við Klíníkina um greiðslu fyrir þessar aðgerðir, þótt ekki væri nema tímabundið. Á síðustu tveimur árum hafa verið gerðar þar 200 liðskiptaaðgerðir á kostnað sjúklinganna sjálfra. Án þessara aðgerða væri bið í aðgerðir á spítölum landsins enn lengri en hún er í dag.
Meira
Blúshátíð í Reykjavík hefst um helgina með Blúsdegi í miðborginni 13. apríl og stendur hátíðin til 18. apríl. 16.-18. apríl verða stórtónleikar á Hilton Reykjavik Nordica, kl. 20, þar sem fjöldi listamanna koma fram.
Meira
Hvernig hefurðu það? „Alveg rosalega gott, er í banastuði og er að upplifa skemmtilega daga þar sem allt gengur upp.“ Hvaða áhrif hefur blús á fólk?
Meira
Allt leikur í lyndi hjá hinu víðfræga knattspyrnuliði Barcelona sem er þungvopnað á þrennum vígstöðvum á þessu vori. Ekki er sveitin þó að heilla alla sparkspekinga með framgöngu sinni. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Fuglatónleikar Valgeirs Guðjónssonar verða haldnir á skírdag og laugardag í Hveragerði og á Eyrarbakka. Innblástur er sóttur til Jóhannesar úr Kötlum.
Meira
Almenningur veit að þegar orkugeirinn hefur verið markaðsvæddur mun hann fyrr eða síðar hafna í klóm fjárfesta sem eru staðráðnir í að færa þann hagnað sem nú rennur til samfélagsins í eigin vasa.
Meira
Framundan er páskafrí, sem sumir ætla að verja í sumarbústaðnum. Um leið og slakað er á í sveitasælunni er gefandi að huga aðeins að kotinu, nostra við litla heimilið og bæta jafnvel einhverju við sem gleður augað. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Meira
Brúin er yfir Mjóafjörð og var smíði hennar hluti af verkefni sem fólst í gerð nýs vegar um vestanverðan Ísafjörð, innst í Djúpinu, og þaðan um Reykjanes, þá kemur brúin yfir fjörðinn. Fljótlega eftir að brúnni sleppir að vestanverðu, er komið í Ögursveit.
Meira
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Skandall, glæný heimildarmynd í fjórum hlutum um Geirfinnsmálið, kemur inn í Sjónvarp Símans Premium á þriðjudaginn. Höfundur hennar, þýski blaða- og kvikmyndagerðarmaðurinn Boris Quatram, segir í samtali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins, mörgum spurningum ósvarað og veltir fyrir sér hvers vegna maður sem lögregluskýrslur staðfesta að hafi haldið við eiginkonu Geirfinns hafi ekki verið rannsakaður betur. Við gerð myndarinnar fann Boris þennan Íslending í Þýskalandi.
Meira
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðil með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausnum í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila lausn krossgátu 14.
Meira
Tónlist Selena Gomez snýr aftur á stóra sviðið 25. apríl næstkomandi en þrír mánuðir eru frá því leik- og söngkonan steig fram og talaði opinskátt um taugaáfall sem hún fékk á síðasta ári.
Meira
Ný fatalína Hildar Yeoman, The Wanderer, var frumsýnd með veglegri tískusýningu í Hafnarhúsinu á Hönnunarmars og er nú komin í verslun hennar á Skólavörðustíg. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Meira
Páskarnir eru á næsta leiti og ekki úr vegi að fara að huga að páskamatnum. Fátt er betra en páskalamb í aðalrétt og pavlova í eftirmat. Og hnetusteikin klikkar seint! Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Meira
Ég hlusta mikið á hljóðbækur, bæði fyrir svefninn, þegar ég fer út að hlaupa og svo þegar ég ek langar vegalengdir, en inn á milli gríp ég líka í prentuð eintök.
Meira
Leikararnir Aron Már og Þuríður Blær, betur þekkt sem Aron Mola og Blær, kíktu í spjall til Sigga Gunnars fyrr í vikunni til að ræða leikritið Kæra Jelena sem frumsýnt var á föstudag í Borgarleikhúsinu.
Meira
Ok, það er víst ekki alltaf eitt epli. Enn kemur gullfiskaminnið við sögu. Man allt í einu að ég stóð í 50 mínútna biðröð í ísbúð Huppu í fyrrakvöld, æ ég var búin að gleyma því!
Meira
„Síðdegis í gær var opnað hér í Reykjavík, nýtt stórglæsilegt veitingahús, sem hlotið hefur hið alþjóðlega heiti: Lido. Fjöldi gesta var viðstaddur opnunina.“ Með þessum orðum hófst frétt í Morgunblaðinu fyrir um sextíu árum, 14.
Meira
Sjónvarp Stranger Things-stjörnurnar David Harbour, sem leikur lögreglustjórann Jim Hopper, og Millie Bobby Brown, sem fer með hlutverk Eleven, eru ekki aðeins feðgin í þáttunum heldur eiga þau í ekki ósvipuðu sambandi utan skjásins.
Meira
Vilhjálmur Andri Einarsson starfar sem lífsþjálfi hjá Andra Iceland og vinnur daglega með fólki m.a. í Sólum þar sem hann notar sömu leiðir og hann fór í að snúa sínu lífi við. Hann gefur lesendum sem hafa áhuga á miklum breytingum góð ráð um páskana. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Meira
Anna María Benediktsdóttir eða Maja eins og hún er vanalega kölluð skreytir fallega hjá sér fyrir páskana. Hér gefur hún nokkur góð ráð, meðal annars hvernig upplifa má góða sykurlausa páska. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Meira
Ljósir rómantískir kjólar eru í tísku þessa páskana. Gulur er að sjálfsögðu vinsæll litur á þessum árstíma. En fleiri litir koma til greina. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Meira
Bjarni Már Gylfason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto á Íslandi, hefur frá því hann man eftir sér borðað mikið af páskaeggjum á páskunum. Hann hjólar hins vegar mikið og kann að meta útiveru um hátíðina.
Meira
Þegar fólk breytir um lífsstíl og mataræði á það stundum erfitt með að takast á við hátíðir eins og páskana, því þá vill það sogast inn í gamlar hefðir og vana. Marta María Jónasdóttir | mm@mbl.is
Meira
Japanski tiltektarsnillingurinn Marie Kondo fer eins og stormur um heiminn með heimspeki sína sem fjallar í stuttu máli um að einfalda lífsstílinn og halda einungis í það sem veitir ánægju.
Meira
Á páskunum er fátt nauðsynlegra en að baka ljúffengar marengstertur. Hér er ein sem er súpergóð en hún kemur úr smiðju Evu Laufeyjar Kjaran Hermannsdóttur.
Meira
Skandinavísk hönnun er vinsæl víða. Páskaskraut á skandinavíska vísu er vinsælt um þessar mundir, sér í lagi á meðal þeirra sem aðhyllast minimalískan lífsstíl. Það er ódýrt og fallegt að setja saman það sem til er á heimilinu og skreyta þannig fyrir páskana. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Meira
Berglind Guðmundsdóttir matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt býr til heimsins bestu eftirrétti. Hér er uppskrift að búðingi með karamellusósu.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.