Alls sótti 1.441 einstaklingur um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun dagana 28. mars, þegar WOW air fór í þrot, og fram til 8. apríl. Af þessum hópi eru 740 fyrrverandi starfsmenn WOW air.
Meira
Fréttaskýring Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Samtals höfðu 740 fyrrverandi starfsmenn Wow air sótt um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun (VMST) frá 28. mars þegar félagið fór í gjaldþrot og fram í byrjun seinustu viku eða 8. apríl. Þetta kemur fram á nýbirtu yfirliti Vinnumálastofnunar um ástandið á vinnumarkaði. Af þessum 740 einstaklingum búa 610 á höfuðborgarsvæðinu, 108 á Suðurnesjum og 22 á öðrum svæðum.
Meira
ÁTVR seldi áfengi og tóbak auk sölu umbúða fyrir tæpa 35,3 milljarða kr. í fyrra og nam hagnaður ársins um 1.111 milljónum króna. Það er nokkru minni hagnaður en á árinu á undan þegar hann var 1.367 milljónir kr.
Meira
Í byrjun þessa árs hélt togarinn Victoria til tilraunaveiða á Arabíuhafi, innan lögsögu Óman. Er það í fyrsta sinn frá árinu 1992 sem togveiðar eru stundaðar á þessu svæði, að undanskildum stuttum tíma upp úr aldamótum.
Meira
Rósa Margrét Tryggvadóttir rosamargrett@gmail.com Enn hefur ekkert spurst til Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf sporlaust í Dublin á Írlandi en síðast sást til hans rétt fyrir hádegi 9. febrúar síðastliðinn.
Meira
Tenórsöngvarinn Ari Ólafsson kemur fram á Kúnstpásu Íslensku óperunnar í hádeginu í dag ásamt Hrönn Þráinsdóttur píanóleikara. Ari er þekktastur sem flytjandi Eurovision-lagsins Our Choice. Hann hlaut 1.
Meira
Benedikt Jónsson, sendiherra Íslands í Danmörku, afhenti í gær Listasafni Reykjavíkur átján áður óþekkt verk eftir Sölva Helgason. Verkin koma í fyrsta sinn fyrir sjónir almennings á sýningu á verkum Sölva sem opnuð verður á Kjarvalsstöðum 25. maí.
Meira
Mannfjöldi fylgdist í gærkvöldi með baráttu slökkviliðsmanna við mikinn eld í Notre-Dame dómkirkjunni í París. Sumir grétu, aðrir báðust fyrir og sungu Ave Maria á latínu.
Meira
Magnús Heimir Jónasson Guðmundur Sv. Hermannsson Þórunn Kristjánsdóttir „Hún er hjarta Parísar og þess vegna er þjóðin svona sorgmædd. Hjartað er að brenna og þegar hjartað brennur þá hrynur allt,“ segir Laufey Helgadóttir, listfræðingur og leiðsögumaður, um stórbrunann í Notre-Dame kirkjunni í París. Eldur kviknaði í þaki kirkjunnar síðdegis í gær og var hún í ljósum logum alveg fram á tíunda tímann í gærkvöldi.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Veiðifélag Laxár í Dölum hyggst lengja uppeldis- og veiðisvæði árinnar á Laxárdal með því að láta gera fiskveg fram hjá Sólheimafossi.
Meira
Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is „Þegar ég skrifaði þetta bréf leit út fyrir að hún fengi enga kennslu og yrði hvergi í skóla, staðan var rosalega óljós.
Meira
Eldur kom upp í fiskibátnum Æsi síðdegis í gær. Þrír voru um borð í bátnum þegar eldurinn kom upp, en hann var þá staddur vestur af Flatey á Breiðafirði. TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var þegar kölluð út og flugvél Gæslunnar, TF-SIF, sömuleiðis.
Meira
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Komu mjaldra-systranna, Litlu-Gráar og Litlu-Hvítar, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er líklegt að mjaldrarnir komi ekki fyrr en í maí eða jafnvel júní.
Meira
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirritaði um helgina yfirlýsingu um alþjóðlegan samstarfsvettvang fjármálaráðherra um aðgerðir í loftslagsmálum.
Meira
Vísindamenn við Háskólann í Tel Aviv sýndu í gær þrívíddarprentað hjarta sem innihélt mannlegan vef og æðar. Sögðu þeir hjartað, sem er á stærð við hjörtu í kanínum, vera hið fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
Meira
Kosningu er lokið í sex aðildarfélögum Landssambands íslenskra verslunarmanna um nýgerðan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda, svokallaðan lífskjarasamning. Á kjörskrá um samning VR og SA voru 34.070 og greiddu 7.
Meira
Leikur Fátt gleður vegfarendur höfuðborgarinnar meira en að rekast á vinalega kisu sem er til í að láta leika við sig og mynda í bak og fyrir. Þessi guli köttur var mjög...
Meira
Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað kröfu Andrúms arkitekta ehf. um að felld verði úr gildi ákvörðun forsætisráðuneytisins og Framkvæmdasýslu ríkisins um að veita arkitektastofunni Kurt og Pí ehf.
Meira
Umhverfisráðherra hyggst ekki leggja fram frumvarp um breytingar á náttúruverndarlögum á vorþinginu. Þetta staðfestir Sigríður Víðis Jónsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra.
Meira
Skóla- og frístundaráð hefur samþykkt tillögu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar um stofnun stoðdeildar vegna móttöku barna í leit að alþjóðlegri vernd sem þurfa sértækan stuðning við að hefja nám í grunnskólum Reykjavíkur.
Meira
Hópferðabifreið sem ekið var aftan á fólksbifreið á Suðurlandsvegi vestan Hunkubakka í desember 2017 með þeim afleiðingum að tveir farþegar létu lífið og nokkrir slösuðust alvarlega var ekið of hratt og hemlageta hennar var of lítil.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sólin var í hátíðarskapi á heiðskírum himni og bílrúðurnar hömuðust við að ramma inn landslagsmyndirnar sem hvarvetna blöstu við á Holtavörðuheiði og í Hrútafirði.
Meira
Magnús Heimir Jónasson Anna Lilja Þórisdóttir „Það er orðið augljóst að það gætir mikils pirrings í baklandinu að vera ekki komin lengra með samninga,“ segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, eftir fund með fólki...
Meira
Embætti héraðssaksóknara vinnur nú að því að reyna að fá sem gleggsta mynd af því sem gerðist aðfaranótt þriðjudags í síðustu viku, er kona á þrítugsaldri lést skömmu eftir að lögregla hafði afskipti af henni.
Meira
Hæstiréttur Íslands hefur tekið til greina beiðni þrotabús Saga Capital hf. um leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar frá 5. mars sl. í máli nr. 66/2019: Þrotabú Saga Capital hf. gegn Hildu ehf., á grundvelli 2. mgr. 179. gr. laga nr.
Meira
Ekkert bólar á tillögum frá starfshópi sem umhverfisráðherra skipaði í lok desember um það hvort og þá með hvaða hætti takmarka ætti notkun flugelda og hvernig hægt væri að tryggja að slík takmörkun hefði sem minnst neikvæð áhrif á fjármögnun þeirra...
Meira
Afskekkt fjallasvæði, sem talið var laust við plastmengun, er í raun þakið örplastögnum sem hafa borist þangað með vindum. Er mengunin svipuð og í stórborgum á borð við París, að sögn vísindamanna.
Meira
Skrítnustu upplýsingar síðustu vikna um orkupakkamálið voru þær, að spjall íslenskra yfirvalda við einn af kommissörum ESB hefði einungis verið innantómt hjal, að vísu uppáskrifað.
Meira
„Það er einstaklega ánægjulegt að flytja fallega kammertónlist í góðum hópi meðleikara í skemmtilegu umhverfi,“ segir Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari, sem í 22. sinn stendur fyrir tónlistarhátíðinni Músík í Mývatnssveit um bænadagana.
Meira
Sænska leikkonan Bibi Andersson lést á sunnudag, 83 ára að aldri. Andersson hóf kvikmyndaferil sinn aðeins 15 ára gömul þegar hún lék í auglýsingu sem Ingmar Bergman leikstýrði.
Meira
Heimavöllur er norsk þáttaröð sem RÚV sýndi sumarið 2018. Aðalpersóna þáttanna er Helena Mikkelsen, knattspyrnuþjálfari sem tekur fyrst kvenna að sér að þjálfa meistaraflokk karla í norsku úrvalsdeildinni.
Meira
Bassaleikarinn Róbert Þórhallsson var við setningu Blúshátíðar útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur. „Róbert er einn af okkar allra bestu og eftirsóttustu rafbassaleikurum.
Meira
Hið nýja myndbandsverk Ragnars Kjartanssonar, Dauðinn er annarsstaðar , sem verður frumsýnt í Metropolitan-safninu í New York 30. maí næstkomandi, verður á sjö skjám og er 77 mínútna langt. Verður það sýnt í safninu í allt sumar, til 2. september.
Meira
Eftir Friðrik Árna Friðriksson Hirst: "SPRON-málið veitir vísbendingu um að dómstólar gæti varfærni við að fella viðskiptalegar ákvarðanir undir umboðssvik þótt áhættusamar séu."
Meira
Eftir Gunnar Björnsson: "Passíusálmarnir eru tilvalið lestrarefni til uppbyggingar í kristinni trú, sem er „siguraflið, sem sigrað hefur heiminn“ (I. Jóh. 5.4)."
Meira
Eftir Kolbrúnu G. Þorsteinsdóttur: "Mikilvægt er að við tökum höndum saman, fækkum slysum með því að leiðbeina ungum vegfarendum um notkun og öryggi á léttum bifhjólum."
Meira
Eftir Sigurð Hr. Sigurðsson: "Spurningin er hvort þau sem helst óttast áhrif og afleiðingar þriðja orkupakkans þurfi ekki að endurskoða afstöðu sína í stjórnarskrármálinu."
Meira
Í síðustu viku bárust enn á ný fréttir af vandræðagangi með Brexit þegar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu var frestað fram á haust með tilheyrandi óvissu. Pólitíkin sem leiddi til þessara vandræða var pólitík sundrungar og hræðsluáróðurs.
Meira
Anna Guðrún Garðarsdóttir fæddist í Keflavík 12. nóvember 1960. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í faðmi fjölskyldunnar 1. apríl 2019. Foreldrar hennar eru Helga Auðunsdóttir, f. 1. ágúst 1935, og Garðar Brynjólfsson, f. 12. júní 1939, d. 2.
MeiraKaupa minningabók
16. apríl 2019
| Minningargrein á mbl.is
| 1545 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Magnús Georg Siguroddsson fæddist í Reykjavík 1. desember 1941. Hann lést 9. apríl, 2019 á Landspítalanum. Foreldrar hans voru Fanney Long Einarsdóttir frá Seyðisfirði, f. 4.7. 1919, d. 13.11. 2002, og Siguroddur Magnússon, f. í Reykjavík 27.8.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Georg Siguroddsson fæddist í Reykjavík 1. desember 1941. Hann lést 9. apríl, 2019 á Landspítalanum. Foreldrar hans voru Fanney Long Einarsdóttir frá Seyðisfirði, f. 4.7. 1919, d. 13.11. 2002, og Siguroddur Magnússon, f. í Reykjavík 27.8. 1918, d.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur Björgvin Valgeirsson fæddist 20. janúar 1955 á Akureyri. Hann andaðist á heimili sínu 6. apríl 2019. Ólafur var sonur Helgu Bjargar Jónsdóttur frá Þorvaldsstöðum í Breiðdal, d. 1.
MeiraKaupa minningabók
16. apríl 2019
| Minningargrein á mbl.is
| 1319 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Sigurður Magnússon fæddist á Heiðarseli í Hróarstungu 1. júlí 1930. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Dyngju á Egilsstöðum 6. apríl 2019.Hann var sonur Svanfríðar Björnsdóttur, f. 1894, d. 1965, og Magnúsar Björnssonar, f. 1883, d. 1955.
MeiraKaupa minningabók
Steingrímur Gíslason fæddist á Torfastöðum í Grafningi 22. september 1921. Hann lést á Ljósheimum á Selfossi 8. apríl 2019. Foreldrar hans voru Árný Valgerður Einarsdóttir, f. 1885 á Litla-Hálsi í Grafningi, d. 1966, og Gísli Snorrason, f.
MeiraKaupa minningabók
Þorvaldur Kristinn Friðriksson Hafberg fæddist á Flateyri 19. júlí 1932. Hann lést 30. mars 2019. Foreldrar hans voru Friðrik Einarsson Hafberg, f. 13.1. 1893, d. 2.8. 1966, og Vilborg Ágústa Þorvaldsdóttir Hafberg, f. 7.8. 1897, d. 18.1. 1998.
MeiraKaupa minningabók
Landaður afli íslenskra skipa í mars var 118.448 tonn sem er 25% minni afli en í mars 2018. Aflasamdrátturinn skýrist nær eingöngu af minni loðnuafla en engin loðna veiddist í mars, samanborið við tæp 82 þúsund tonn í mars 2018.
Meira
Vergur gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands nam 765 milljörðum króna í lok marsmánaðar og hækkaði um 12,8 milljarða milli mánaða. Hreinn gjaldeyrisforði , þ.e.
Meira
Kvika banki hækkaði um 8,74% í Kauphöll Íslands í gær í kjölfar þess að hafa í gærmorgun sent frá sér jákvæða afkomuviðvörun. Þar kom fram að frumdrög að uppgjöri samstæðu Kviku banka vegna fyrsta ársfjórðungs 2019 lægju nú fyrir.
Meira
Baksvið Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Bandarísku flugfélögin American Airlines og Southwest Airlines hafa ákveðið að kyrrsetja Boeing 737 Max-vélar í flota sínum til ágústmánaðar næstkomandi.
Meira
6 til 9 Ísland vaknar Ásgeir Páll, Jón Axel og Kristín Sif rífa landsmenn á fætur með gríni og glensi alla virka morgna. Sigríður Elva les traustar fréttir á hálftíma fresti. 9 til 12 Siggi Gunnars Skemmtileg tónlist og góðir gestir reka nefið inn.
Meira
Eggert Claessen er fæddur í Reykjavík 16. apríl 1959 og ólst upp í miðbæ Reykjavíkur að Fjólugötu 13 þar sem hann bjó til 24 ára aldurs, en hefur búið í Seljahverfinu eftir það.
Meira
40 ára Hafdís er Hvanneyringur og vinnur við ræstingar í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Maki : Eðvarð Jón Sveinsson, f. 1984, rútubílstjóri. Börn : Kristján Snær, f. 2000, og Maren Eir, f. 2003. Foreldrar : Jón Halldórsson, f.
Meira
Það er vel meint að „vara við því að menn fari ekki framúr sér“. En hér er hin góða meining svo sterk að hún fer sjálf fram úr sér. Að vara (e-n) við e-u er að ráða (e-m) frá e-u .
Meira
Reykjavík Steinar Snær Helgason fæddist laugardaginn 5. maí 2018 kl. 17.35 á Landspítalanum við Hringbraut. Hann vó 4.130 g og var 53 cm að lengd. Foreldrar hans eru Ágústa Dóra Kristínardóttir og Helgi Hákonarson...
Meira
50 ára Sólveig ólst upp í Keflavík, Svíþjóð og á Akureyri en býr í Keflavík. Hún er aðstoðarframkvæmdastjóri á rekstrarsviði hjá Isavia. Börn : Þorsteinn Viðar, f. 1988, Sara Lind, f. 1995, og Jenný Elísabet, f. 2002. Foreldrar : Þorsteinn Ólafsson, f.
Meira
Eftir góða pásu frá sviðsljósinu steig Selena Gomez aftur á svið um helgina á tónlistarhátíðinni Coachella. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar söngkonan birtist óvænt með DJ Snake, Cardi B og Ozuna og söng með þeim lagið „Taki Taki“.
Meira
Davíð Hjálmar í Davíðshaga fór um Krossanesborgir á laugardagsmorgun. Þar var blautt og lítið líf ennþá. Hann sá þó eitt útsprungið blóm á vetrarblómi. En mávarnir voru farnir að stíga í vænginn.
Meira
Arsenal styrkti stöðu sína í hörðum slag um sæti í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í gærkvöld með útisigri gegn Watford, 1:0. Pierre-Emerick Aubameyang skoraði sigurmarkið strax á 10.
Meira
Handbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Þetta var í mínum huga próf. Karakterspróf til að sýna úr hverju maður er gerður,“ segir Ómar Ingi Magnússon eftir hálfgerða rússíbanareið sína með íslenska landsliðinu í leikjunum mikilvægu við Norður-Makedóníu í undankeppni EM.
Meira
*Blakkonurnar Elísabet Einarsdóttir og Berglind Gígja Jónsdóttir hafa ákveðið að taka upp þráðinn í alþjóðlegri keppni í strandblaki á nýjan leik eftir fjögurra ára hlé.
Meira
Breiðablik mætir Val í úrslitaleiknum í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu á skírdag en Blikakonur lögðu Þór/KA að velli eftir vítaspyrnukeppni í Boganum í gærkvöld.
Meira
Vonir Real Madrid um að ná öðru sæti spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu af nágrönnum sínum í Atlético minnkuðu enn í gærkvöld þegar stórveldið mátti sætta sig við jafntefli gegn Leganés á útivelli, 1:1.
Meira
Eins ótrúlega pirrandi og meiðsli eru – þessi órjúfanlegi hluti af íþróttunum sem herjað getur á fólk jafnvel þó að það geri allt „eftir bókinni“ til að forðast hann – þá er jafndásamlegt að sjá fólk vinna sig út úr meiðslum og...
Meira
Fjölnismenn úr Grafarvogi tryggðu sér í gærkvöld sæti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik með því að vinna fjórða úrslitaleik umspilsins gegn Hamri en hann fór fram í Hveragerði og lauk 109:90, Fjölni í vil.
Meira
Karlalið Fram í knattspyrnu leikur heimaleiki sína í sumar á gervigrasvellinum í Safamýri. Fram hefur spilað á Laugardalsvelli um áraraðir, að undanskildu sumrinu 2015, er liðið lék í Úlfarsárdal.
Meira
Israel Martin hefur verið leystur frá störfum sem þjálfari karlaliðs Tindastóls í körfuknattleik. Frá þessu var greint í gærkvöldi og sagði í tilkynningu frá Tindastóli að samkomulag hefði náðst í mestu vinsemd um starfslokin.
Meira
Körfubolti Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Martin Hermannsson náði ekki að jafna afrek Jóns Arnórs Stefánssonar og vera í sigurliði í Evrópukeppni í körfuknattleik.
Meira
Í Breiðholti Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Úrslitin í viðureign Stjörnunnar og ÍR í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta ráðast í oddaleik í Garðabænum á fimmtudaginn kemur.
Meira
Viðar Örn Kjartansson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Hammarby þegar liðið tapaði, 2:1, fyrir Helsingborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Viðar Örn skoraði mark Hammarby á 18. mínútu þegar hann jafnaði metin, í 1:1.
Meira
Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar, segir að ástæða sé til að telja að loðnustofninn snúi aftur. Hrygningin núna virðist hafa verið...
Meira
Einar K. Guðfinnsson, sem starfar að fiskeldismálum hjá SFS, ræðir um tækifærin sem fram undan eru í fiskeldi á Íslandi. Kolefnisfótspor eldisins geti grynnkað enn...
Meira
Gunnar Davíðsson, sjávarútvegsfræðingur sem stýrir atvinnuþróunardeild Troms-fylkis í Noregi, segir að skilvirkara ferli þurfi fyrir fiskeldi í íslenskri...
Meira
Gjaldþroti flugfélagsins WOW air fylgja áskoranir fyrir fiskútflytjendur. Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Niceland Seafood, ræðir um þær við 200 mílur auk Sindra Más Atlasonar, sölustjóra hjá HB...
Meira
Verð er mun lægra en það var þegar best lét en sala á þurrkuðum fiskhausum til Nígeríu er í jafnvægi og framleiðendur hafa leitað nýrra leiða til að hagræða og auka afköst
Meira
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Heimurinn er að breytast með þeim hætti að það ætti að hafa jákvæð áhrif á úflutning á íslenskum sjávarafurðum. Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, gerði þessu skil í erindi sem hann flutti á ársfundi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á föstudag.
Meira
Um tíu mánuðir eru liðnir síðan tekin var skóflustunga að nýju frystihúsi Samherja á Dalvík. Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu hjá Samherja, segir í samtali við 200 mílur að verkið hafi unnist ágætlega. Landað á bryggjunni og aflinn beint í húsið.
Meira
Skúli Halldórsson sh@mbl.is Eins og þetta blasir við þá er fiskeldi að verða æ mikilvægari þáttur í matvælaframleiðslu á heimsvísu,“ segir Einar K. Guðfinnsson, sem starfar að fiskeldismálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Meira
Þó loðnubrestur hafi orðið í ár má ætla að loðnan birtist fljótlega á ný, líkt og hún hefur áður gert. Vísbendingar eru um að loðnustofninn verði sterkari eftir tvö ár en þangað til gæti verið mikið álag á rekstri útgerða sem reiða sig á loðnuna
Meira
Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is Það er tekið að rökkva í hafnarborginni Salálah, syðst í Óman, þegar skipstjórinn á Viktoríu fær heimild til að leggjast að bryggju. Fáir sem staddir eru við höfnina gera sér grein fyrir að í brúnni stendur íslenskur skipstjóri og útgerðin sem á skipið er íslensk.
Meira
Hausaþurrkunarverksmiðja Lýsis var opnuð á föstudaginn með hátíð í nýju húsnæði sem byggt var utan um starfsemina í grennd við Þorlákshöfn. Ljósmyndari Morgunblaðsins var á staðnum og myndaði það sem fram fór.
Meira
Ný hátækniverksmiðja Samherja getur afkastað um 5.000 tonnum af bleikju á á ári. Er húsnæðið búið nýjustu tækni sem eykur sjálfvirkni og léttir störfin.
Meira
„Íslenskur sjávarútvegur hefur mjög sterka sögu að segja, við þurfum bara að segja hana með enn sterkari hætti,“ segir Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, sem rætt er við á síðu 12 í blaðinu.
Meira
Með tilkomu kísilvers PCC á Bakka við Húsavík hefur umferð flutningaskipa aukist mjög um Húsavíkurhöfn og oft má orðið sjá skip bíða fyrir utan höfnina eftir að röðin komi að því við Bökugarðinn. Ráðast þurfti í talsverðar framkvæmdir á höfninni vegna þessa.
Meira
Skilvirkara ferli þarf fyrir leyfisveitingar til fiskeldis á Íslandi. Þetta segir Gunnar Davíðsson, sjávarútvegsfræðingur og deildarstjóri atvinnuþróunardeildar Troms-fylkis í Noregi. Löngu ferli fylgi mikill kostnaður, fyrir fyrirtæki en einnig fyrir stjórnsýsluna.
Meira
Gæði og ferskleiki sjávarafurða er eitthvað sem fólk víða um heim getur ekki gengið að sem vísu. Fisksalar Ylfu á Kopar þurfa að vera skjótir að bregðast við ef vantar meiri fisk.
Meira
Vikulega berast 200 mílum myndir af lífinu við hafnir landsins sem og á miðunum, hvort sem er frá fréttariturum Morgunblaðsins og mbl.is eða þeim sem starfa í eða hafa áhuga á sjávarútvegi.
Meira
Sala á ferskum íslenskum sjávarafurðum til Bandaríkjanna er háð flutningum með flugi. Með gjaldþroti WOW kom babb í bátinn og gæti fiskurinn þurft að fara lengri leið á markað vestanhafs.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.