Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Karl Jóhannsson, einn besti handboltamaður landsins á árum áður, hætti að spila 45 ára, sinnti dómarastörfum til fimmtugs og sneri sér þá alfarið að golfinu, sem hann byrjaði að æfa um þrítugt. Hann er enn að á golfvellinum, 85 ára gamall, og fer níu holur á Korpuvellinum nánast á hverjum degi, en á veturna skipuleggur hann og sér um bingó fyrir eldri kylfinga í GR.
Meira