Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Viðskipta-Monica fór úr hælaháu skónum og breyttist í sveitastelpu þegar hún bauð mér heim til níræðrar ömmu sinnar sem bjó í litlu sveitaþorpi.
Meira
Guðni Einarsson Höskuldur Daði Magnússon Sveitarfélögum gengur misjafnlega vel að manna stöður í skólum og frístundaheimilum. Enn skortir á að allar stöður hafi verið mannaðar í Reykjavík, t.d.
Meira
Sviðsljós Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Undirritaður var um síðustu helgi í Flatey á Breiðafirði samningur þar sem Reykhólahreppur gaf bókhlöðuna í eynni til ríkisins og verður hún framvegis í umsjón Þjóðminjasafnsins.
Meira
Pósturinn hefur á undanförnum árum boðið upp á SMS-frímerki þar sem númer er skrifað á umslögin í stað þess að líma á þau frímerki. Hægt er að póstleggja bréfin þannig merkt.
Meira
Kyrrð Það getur verið notalegt að grípa með sér bók á leiðinni út í von um að finna þægilegan stað til að lesa á. Það má þó búast við meira fjöri á Arnarhóli í kvöld í tengslum við...
Meira
Erna Finnsdóttir lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni í gærmorgun, 95 ára að aldri. Hún fæddist í Reykjavík 20. mars 1924, dóttir Finns Sigmundssonar, landsbókavarðar í Reykjavík, og konu hans Kristínar Aðalbjargar Magnúsdóttur húsfreyju.
Meira
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Skortur á meðferðarúrræðum og heilbrigðisþjónustu fyrir fanga sem eru langt leiddir af fíknisjúkdómum er „alvarlegt mál og aðkallandi“, að sögn Páls Winkel fangelsismálastjóra.
Meira
Polar Pelagic-hátíð Hróksins í Tasiilaq, höfuðstað Austur-Grænlands, lauk með glæsibrag sl. fimmtudagskvöld þegar Máni Hrafnsson tefldi fjöltefli við 60 nemendur grunnskólans í bænum.
Meira
Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Fyrsta barn ársins í Vestmannaeyjum fæddist þriðjudaginn 20. ágúst. Það var stúlka, 16 merkur og 53 cm. Að sögn móður stúlkunnar gekk fæðingin vel og heilsast þeim mæðgum vel.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mikil og vaxandi eftirspurn er eftir lambakjöti í Evrópu, að sögn Ágústs Andréssonar, forstöðumanns kjötafurðastöðvar KS. Skapar það tækifæri fyrir kjötútflytjendur að velja sér betri markaði en áður.
Meira
„Ég hef fyrst og fremst áhyggjur af því hvernig enskuáhrifin eru yfirgnæfandi. Maður sér þess víða merki, til dæmis í töluðu máli og í skrifum fólks á netinu.
Meira
Starfsmenn Náttúrufræðistofu Kópavogs voru í gær úti á Tjörninni í Reykjavík að rannsóknarstörfum. Samkvæmt upplýsingum frá Náttúrufræðistofunni hefur hún annast vöktun á lífríki Tjarnarinnar og er þetta þriðja árið í röð.
Meira
Jón Magnússon, skipstjóri og útgerðarmaður, lést á Sjúkrahúsinu á Patreksfirði 22. ágúst sl. á 90. aldursári. Jón fæddist á Hlaðseyri við Patreksfjörð 3. mars, 1930. Foreldrar hans voru Magnús Jónsson og Kristín Finnbogadóttir.
Meira
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur lýst sig reiðubúna til að funda með Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, að lokinni Svíþjóðarferð sinni, geti varaforsetinn framlengt Íslandsdvöl sína.
Meira
Moskvu. AFP. | Fyrsta fljótandi kjarnorkuver heimsins hóf í gær um 5.000 kílómetra siglingu meðfram norðurströnd Rússlands þrátt fyrir viðvaranir umhverfisverndarsamtaka sem óttast að kjarnorkuverið stefni viðkvæmu lífríki norðurskautssvæðisins í hættu.
Meira
Tveir veirusjúkdómar hafa greinst í kjúklingum á Rangárbúinu á Hólavöllum í Landsveit. Búið er í einangrun með það að markmiði að útrýma sjúkdómunum áður en þeir ná fótfestu hérlendis. Þetta kemur fram í tilkynningu Matvælastofnunar.
Meira
Verktakar eru þessa dagana að leggja lokahönd á framkvæmdir við byggingu og lóð fræðslumiðstöðvar Kópavogsbæjar og Skógræktarfélags Kópavogs í Guðmundarlundi í Vatnsendaheiði.
Meira
Vatnsborð Langavatns á Hólmsheiði ofan við Reykjavík stendur óvenjulega lágt um þessar mundir. Telur fólk sem er kunnugt staðháttum á svæðinu að vatnið hafi lækkað um allt að 1,5 metra á síðastliðnum þremur vikum.
Meira
Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Ólykt verður ekki sterkari þótt kjúklingabú Matfugls á Hurðarbaki í Hvalfjarðarsveit verði stækkað að sögn Sveins Jónssonar, framkvæmdastjóra Matfugls.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hinrik Haraldsson, rakari á Akranesi, hefur starfað við iðnina í nær 60 ár en er farinn að draga saman seglin.
Meira
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í fjögurra mánaða fangelsi vegna ítrekaðs búðarhnupls. Maðurinn hefur setið óslitið í gæsluvarðhaldi frá 10. júlí sl.
Meira
Niels Jensen, útgerðarmaður og ræðismaður Íslands í Hirtshals í Danmörku, lést sl. miðvikudag 76 ára að aldri. Niels fæddist í Hirsthals 29. apríl 1943. Hann útskrifaðist sem skipamiðlari í Kaupmannahöfn árið 1965.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Staðan er góð núna en það er mikilvægt að halda vöku sinni. Það þarf að endurnýja áætlanir á fimm ára fresti,“ segir Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar.
Meira
Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Næmi í samþættu líkindamati, skimunarprófi sem metur líkur á því að fóstur beri litningagalla, var óvenju lítið árið 2017 eða einungis 69,2%.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Skeiða- og Gnúpverjahreppur mun á næstu vikum auglýsa bann við umferð bíla og annarra vélknúinna ökutækja upp Gaukshöfða við Þjórsá. Lokunin er gerð að kröfu landeigenda og vegna skemmda og sóðalegrar umgengni ferðafólks.
Meira
Hann virtist skríða löturhægt framhjá, risinn sem sást frá Grafarvogi nýverið, en skemmtiferðaskip þetta var þá á leið til hafnar á höfuðborgarsvæðinu.
Meira
Baksvið Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Spennuþrungið ástand var fram eftir sumri 2018 þegar reynt var að ná samkomulagi við ríkið um hvernig staðið yrði að afhendingu ganganna í lok september.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Leiðtogar Frakklands, Þýskalands og Bretlands sögðu í gær að miklir eldar í Amason-regnskógunum væru „alvarlegt alþjóðavandamál“ sem þyrfti að ræða á leiðtogafundi G7-ríkjanna í franska bænum Biarritz um helgina.
Meira
Guðni Einarsson Guðrún Erlingsdóttir Arnar Þór Ingólfsson Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) er bjartsýnt á að nær allir samþykki aukagreiðslu vegna íbúða í nýbyggingunum í Árskógum 1-3.
Meira
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni í vikunni. Hann er þar með annar fanginn sem lætur lífið í fangelsi þessu það sem af er ári.
Meira
Dómararnir Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson hafa beðist lausnar frá störfum við Hæstarétt Íslands og munu þeir láta af störfum 1. október nk.
Meira
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, gerir stimpilgjald að umtalsefni í grein í Viðskiptablaðinu í vikunni.
Meira
Suðurafríska hipphopptvíeykið Die Antwoord, skipað Ninju og Yoland Visswe, hefur verið afbókað á tvær stórar tónlistarhátíðir í Kentucky og Las Vegas í Bandaríkjunum eftir að á netinu var birt myndband af Ninju og Yoland þar sem þau veitast að...
Meira
Danski kammerkórinn Det Unge Vokal Ensemble er á ferðalagi um Ísland og Grænland og heldur tónleika í Háteigskirkju á morgun, 25. ágúst, kl. 19.30. Kórfélagar eru á aldrinum 19-32 ára og eru flestir í söng- eða hljóðfæranámi.
Meira
Blái liturinn einkennir uppfærslu Yuvals Sharon á Lohengrin á Wagner-hátíðinni í Bayreuth þetta sumarið. Í seinni umfjöllun sinni beinir greinarhöfundur sjónum að Lohengrin og Meistarasöngvurunum.
Meira
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í Reykjavík og að vanda er dagskráin þéttskipuð og boðið upp á viðburði sem heyra undir allar listgreinar og hönnun. Hér verða nokkrir viðburðir af dagskránni nefndir.
Meira
Páll Stefánsson ljósmyndari opnar ljósmyndasýninguna 1958 m í dag kl. 17 í nýju galleríi á neðri hæð verslunarinnar nomad sem er á horni Laugavegar og Frakkastígs.
Meira
Sinfóníuhljómsveit Íslands býður landsmönnum á tvenna tónleika í dag á Menningarnótt undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar. Klukkan 15 heimsækir Maxímús Músíkús hljómsveitina og kl.
Meira
Samsýningin Valheimur verður opnuð í Hverfisgalleríi í dag kl. 16. Á henni sýna saman tveir ungir myndlistarmenn, Matthías Rúnar Sigurðsson og Sigurður Ámundason.
Meira
Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju lýkur á morgun með tónleikum í kirkjunni sem hefjast kl. 17. Á þeim leikur Mattias Wager, organisti í Dómkirkjunni í Stokkhólmi, og verða á efnisskránni verk eftir Oskar Lindberg, Johann Sebastian Bach, Florence...
Meira
Óperan The Raven's Kiss , eftir Evan Fein og Þorvald Davíð Kristjánsson, var frumflutt í Herðubreið á Seyðisfirði í gær og verður önnur sýning á henni í dag.
Meira
Dreifingarfyrirtækið Myrkfælni hefur stutt veglega við íslenska jaðartónlist síðan 2017. Þriðja tónlistarsafn þess er nú komið út auk þess sem fimm íslenskir listamenn léku á þess vegum í Svíþjóð nú um helgina.
Meira
Í gær voru rétt 80 ár liðin frá því að Stalín og Hitler gerðu griðasáttmála. Þar skiptu þeir með sér Mið- og Austur-Evrópu. Stalín fékk í sinn hlut Eystrasaltsríkin, Finnland og austurhluta Póllands en Hitler vesturhluta Póllands.
Meira
Eftir Njál Trausta Friðbertsson og Ara Trausta Guðmundsson: "Allir varavellir landsins eru alþjóðaflugvellir og eiga að vera nothæfar gáttir miðað við fyllsta öryggi og stefnu í ferðaþjónustu og samgöngumálum."
Meira
Ríkisstjórnir undanfarinna ára hafa sett lög um rétt þeirra sem veikjast, slasast eða fæðast með þroska- eða hreyfihömlun. Til að auðvelda þessum einstaklingum lífið eiga þeir rétt á styrkjum og endurgreiðslum vegna kostnaðar vegna veikinda sinna.
Meira
Eftir Önnu Kolbrúnu Árnadóttur: "Það verður áhugavert að fylgjast með gangi mála í Noregi og eðlilegast er að bíða eftir niðurstöðu þar áður en Alþingi Íslendinga afgreiðir málið."
Meira
Eftir Ole Anton Bieltvedt: "Svo, hvaða fjárans röfl og rugl er þetta þá eiginlega með þriðja orkupakkann? Hann er löngu samþykktur, það vantar bara endanlegt form á samþykktina."
Meira
Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is: "Stundum er sagt að sannleikurinn sé fyrsta fórnarlambið í stríði. Mér er nær að halda að í hagsmunabaráttu sé tungutakið fyrsta fórnarlambið."
Meira
Eftir Helga Seljan: "Sárastar af öllu eru nauðganirnar, afbrotin skelfilegu sem skilja eftir sig svo djúp og oftast varanleg sár á sálinni, svo sem margt annað óafturkallanlegt."
Meira
Ágúst Gunnar Oddgeirsson fæddist á Grjótagötu 10 í Reykjavík 9. nóvember 1957. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 16. ágúst 2019. Foreldrar hans voru Oddgeir Sigurberg Júlíusson, f. 6. febrúar 1928, d. 16.
MeiraKaupa minningabók
Nói Alexander Marteinsson fæddist á Siglunesi á Barðaströnd 16. nóvember 1934. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítala 13. ágúst 2019. Nói var sonur hjónanna Marteins Ólafs Þórðar Gíslasonar frá Siglunesi, f. 5. desember 1908, d. 25.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Sigurðsson var fæddur á Brenniborg í Lýtingsstaðahreppi, Skagafirði, 16. júní árið 1936. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 14. ágúst 2019. Foreldrar Sigurðar voru Sigurlaug Guðmundsdóttir, f. 2.6. 1911, d.
MeiraKaupa minningabók
Sævar Sigbjarnarson fæddist í Rauðholti í Hjaltastaðaþinghá 27. febrúar 1932. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Norðfirði 10. ágúst 2019. Foreldrar hans voru Sigbjörn Sigurðsson bóndi og oddviti í Rauðholti, f. 14. maí 1892, d. 27.12.
MeiraKaupa minningabók
Hagnaður sjóða Íslandssjóða nam 262 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Það er ríflega 140% aukning frá sama tímabili árið áður. Þetta má lesa í árshlutauppgjöri Íslandssjóða fyrir fyrri helming ársins.
Meira
Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Samanlagður hagnaður stóru tryggingafélaganna þriggja fyrir skatta, TM, Sjóvá og VÍS, nær áttfaldast á milli ára, sé horft til fyrstu sex mánaða þessa árs í samanburði við fyrstu sex mánuði síðasta árs.
Meira
Svo virðist sem líbran, rafmynt Facebook, verði háð strangari reglusetningu en margir af þeim fjárfestum sem fyrst skuldbundu sig til þess að taka þátt í verkefninu um rafmyntina bjuggust við.
Meira
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Við klipptum heila áhöfn á flutningaskipi, skipstjórinn fékk klippingu í skipstjórnarklefanum en aðrir í vélasal skipsins. Þeir komu allir nýklipptir heim til sín eftir mánaðar túr,“ segja þeir félagar Sigurður og Gabríel sem bjóða körlum upp á að koma hvert sem er til að klippa þá eða raka.
Meira
10 til 14 100% helgi á K100 Stefán Valmundar rifjar upp það besta úr dagskrá K100 frá liðinni viku, spilar góða tónlist og spjallar við hlustendur. 14 til 18. Algjört skronster Partíþáttur þjóðarinnar í umsjá Ásgeirs Páls.
Meira
Jósef Ólafsson læknir er níræður í dag, 24. ágúst. Jósef hefur lengst af verið búsettur í Hafnarfirði og stærstan hluta starfsævinnar starfaði hann sem læknir við St. Jósefsspítala þar.
Meira
60 ára Ásgerður ólst upp í Reykjavík og Kópavogi og býr í Kópavogi. Hún er viðskiptafræðingur frá HÍ og er með MS-gráðu í heilsuhagfræði við HÍ. Hún er framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá SÁÁ. Maki : Böðvar Héðinsson, f.
Meira
Í dag býður Nettó upp á diskósúpu í Hljómskálagarðinum í tilefni menningarnætur. Með henni er vakin athygli á matarsóun en talið er að þriðjungur af öllum mat sem við kaupum endi í tunnunni.
Meira
Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Nauðstöddum hún lífið lér. Líka nafn er svanni ber. Fyrir stungu fingur ver. Fæða góð er handa þér. Eysteinn Pétursson segist hafa þetta svona: Þegar bölið er stærst er björgin næst.
Meira
Helgi Konráðs Hjálmsson er fæddur 24. ágúst 1929 í Bjarma í Vestmannaeyjum. Hann flutti á Hverfisgötu 98 í Reykjavík 1934 og á Seltjarnarnes í kringum árið 1940.
Meira
Ingimar Ingimarsson fæddist á Þórshöfn 24. ágúst 1929. Foreldrar hans voru Ingimar Baldvinsson og Oddný Friðrika Árnadóttir. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1949 og embættisprófi í guðfræði frá HÍ 1953.
Meira
„Nú er orðið ljóst að millistjórnendurnir frömdu brotin að upplagi æðstu yfirmanna sinna.“ Þ.e.a.s. að undirlagi þeirra. Undirlag þýðir í slíku samhengi áeggjan , hvatning ; yfirmennirnir áttu frumkvæði að því að undirmennirnir fremdu...
Meira
Adam Árni Róbertsson og Rúnar Þór Sigurgeirsson hafa framlengt samninga sína við knattspyrnudeild Keflavíkur. Gera leikmennirnir þriggja ára samning en þeir hafa leikið stórt hlutverk með liðinu í 1. deildinni, Inkasso-deildinni, í sumar.
Meira
Þau mistök urðu í blaðinu í gær að Arna Sif Ásgrímsdóttir, miðvörður Þórs/KA og leikmaður 14. umferðar, var ekki inni í liði umferðarinnar. Arna á þar auðvitað skilið sæti og fær það á kostnað Lilju Daggar Valþórsdóttur úr KR.
Meira
Al Arabi, undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, byrjar nýtt tímabil í Katar vel og vann 3:1-sigur á Al Ahli í fyrstu umferð deildarinnar þar í landi í gær. Staðan í hálfleik var 1:1, en Al Arabi skoraði tvö mörk í síðari hálfleik og tryggði sér sigurinn.
Meira
ÓL 2020 Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Nú þegar nákvæmlega 11 mánuðir eru þar til eldurinn verður tendraður á ólympíuleikvanginum í Tókýó í Japan er vert að velta vöngum yfir því hvaða Íslendingar koma til með að njóta þar sviðsljóssins á því sem kalla má stærsta svið íþróttanna. Einn íslenskur íþróttamaður og tveir íslenskir þjálfarar eru þegar öruggir um farseðilinn á Ólympíuleikana en hversu margir gætu bæst í hópinn?
Meira
„Þetta er liðsíþrótt,“ heyrir maður þjálfara oft segja í viðtölum eftir tapleiki. „Við spiluðum ekki sem lið hérna í dag,“ er líka frasi sem heyrist mjög oft.
Meira
Danmörk Bikarkeppni 16-liða úrslit: Kolding – Aalborg 19:25 • Árni Bragi Eyjólfsson skoraði eitt mark fyrir Kolding en Ólafur Gústafsson var ekki í leikmannahópi liðsins að þessu sinni.
Meira
England Aston Villa – Everton 2:0 • Gylfi Þór Sigurðsson fór af velli eftir klukkutíma hjá Everton. Þýskaland B-deild: Darmstadt – Dynamo Dresden 0:0 • Guðlaugur Victor Pálsson spilaði allan leikinn með Darmstadt.
Meira
Nú þegar nákvæmlega 11 mánuðir eru þar til eldurinn verður tendraður á ólympíuleikvanginum í Tókýó í Japan er vert að velta vöngum yfir því hvaða Íslendingar koma til með að njóta þar sviðsljóssins á því sem kalla má stærsta svið íþróttanna.
Meira
Körfubolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Eftir útreiðina í Sviss á miðvikudagskvöldið varð ljóst að íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik myndi ekki leika í undankeppni EM 2021.
Meira
Nýliðar Aston Villa unnu sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni þegar liðið fékk Gylfa Þór Sigurðsson og lið Everton í heimsókn í fyrsta leik þriðju umferðar í gær. Lokatölur urðu 2:0 fyrir Villa.
Meira
Ólafur Bjarki Ragnarsson, leikmaður Stjörnunnar í úrvalsdeild karla í handknattleik, verður ekki með liðinu í fyrstu leikjum tímabilsins að samkvæmt Vísi.is. Ólafur fingurbrotnaði í æfingaleik með Stjörnunni á dögunum en deildin hefst 8. september.
Meira
Gott gengi Gróttu í 1. deild karla í knattspyrnu, Inkasso-deildinni, heldur áfram en liðið endurheimti annað sætið með 3:1-sigri á Fram á Seltjarnarnesi í gærkvöld.
Meira
Þróttur Reykjavík tryggði sér í gærkvöld sæti í efstu deild kvenna í knattspyrnu með 4:0-sigri á ÍA þegar liðin mættust í 15. umferð 1. deildar kvenna, Inkasso-deildarinnar, á Akranesi.
Meira
14 til 16 Tónlistinn Topp40 Eini opinberi vinsældalisti Íslands er sendur út á K100 alla sunnudaga. Siggi Gunnars telur niður 40 vinsælustu lög landsins. 16 til 19 Pétur Guðjóns Góð tónlist og spjall á sunnudags síðdegi.
Meira
Valur Valsson er stórmeistari Frímúrarareglunnar á Íslandi. Á ári hverju bætast um 100 nýir félagar í Regluna og hún telur í dag um 3.600 bræður. Valur segir starfið gefa mönnum tækifæri til að horfast í augu við sjálfa sig. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is
Meira
Leikkonan Laura Dern fór með eitt af aðalhlutverkum þáttanna Big little lies 2 sem sýndir voru í sumar. Dern er einstaklega glæsileg kona með fágaðan stíl.
Meira
Ég held að þessi tilfinning sé það fullorðins/miðaldralegasta sem maður gengur í gegnum á ævinni. Að gleðjast á einhvern hátt yfir því að skólinn byrji aftur. Ég, sem fyrrverandi unglingur, á mjög erfitt með að tengja við það.
Meira
Hvað er Improv Ísland? Improv Ísland er spunahópur þar sem fókusinn er á grín. Við erum búin að þjálfa aðferð til að búa til sögur sem eiga að vera fyndnar og skemmtilegar. Hópurinn er orðinn fimm ára og er alltaf að stækka.
Meira
Það hefur alltaf verið mín skoðun að stjórnmálamenn eigi að hlusta á tilfinningar, bæði sínar eigin og annarra, án þess auðvitað að víkja rökum til hliðar. Í rauninni held ég að við gerum það flest, hvort sem við viðurkennum það eða ekki.
Meira
Quentin Tarantino lónar á landamærum skáldskapar og veruleika í nýjustu mynd sinni, Once Upon a Time...in Hollywood. Meðal þess sem á sér stoð í sögunni er Spahn-búgarðurinn, þar sem Manson-fjölskyldan kom sér makindalega fyrir. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Svar: Eyktarás er hvergi til á Þingvöllum. Er aðeins skáldskapur þar sem textahöfundur vísar í eyktirnar, sem hver er þrjár klukkustundir hver og því átta á einum sólarhring. Hins vegar er Eyktarásinn til sem götuheiti í Selárhverfi í Árbæjarhverfi í Reykjavík.
Meira
Ráðgáta Áhangendur Slipknot brjótast nú um á hæl og hnakka vegna þess að ekkert gengur að finna út úr því hver hin dularfulli slagverksleikari Tortilla Man er en hann gekk til liðs við Des Moines-málmbandið fyrir þremur mánuðum.
Meira
Inniplöntur hafa aukist mikið að vinsældum á síðustu árum, enda lífga þær upp á heimilið og hafa þann eiginleika að auka loftgæði og binda eiturefni í andrúmslofti.
Meira
Sigursælasti ruðningsleikmaður sögunnar, leikstjórnandinn Tom Brady, varð 42 ára á dögunum. Hann hefur sagt tímanum stríð á hendur og hyggst setja met og spila til 45 ára aldurs. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Meira
Sigurmyndir ljósmyndakeppni ferðavefjar mbl.is voru tilkynntar í síðustu viku, en tæplega fjögur hundruð myndir bárust í keppnina sem fór fram á Instagram. Pétur Magnússon petur@mbl.is
Meira
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðil með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausnum í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila krossgátu 25.
Meira
Sjónleysið veldur því að mér tekst iðulega ekki að lesa það sem mig langar til. Þrátt fyrir viðleitni Hljóðbókasafnsins eru fá fræðirit lesin inn og það sem vinsælast er hverju sinni sætir forgangi.
Meira
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is „Mér er afskaplega mikilvægt að geta alltaf verið að koma einhverju saman. Að vera alltaf að. Þannig líður mér best,“ segir Þórarinn Eldjárn rithöfundur sem hélt upp á sjötugsafmæli sitt í vikunni. Hann hefur engin áform um að rifa seglin þótt hann sé kominn á þennan virðulega aldur; mun sinna ástríðu sinni af sama kappi hér eftir sem hingað til, sköpunarþörfinni, skáldskapnum og ekki síst blessuðu móðurmálinu. Og sem fyrr með húmorinn að vopni.
Meira
Íslendingar sendu kapplið til Essen í Þýskalandi fyrir réttum áttatíu árum. Ekki kemur fram í frétt Morgunblaðsins 25. ágúst 1939 hvaða grein kapplið þetta keppti í en gera má því skóna að það hafi verið knattspyrna.
Meira
Fá herbergi er skemmtilegra að innrétta en barnaherbergi. Plastið er að víkja fyrir náttúrulegum efnum svo sem viði og bómull, sem hafa verið áberandi undanfarið í innanhússtískunni, sérstaklega í barnaherbergjum.
Meira
Einn þekktasti háðfugl Afríkuríkisins Simbabve, Samantha Kureya, er farin í felur eftir að hafa verið numin brott af vopnuðum mönnum í vikunni sem hún telur tengjast ráðamönnum landsins. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Uppruni Breska óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet er komin af sænsku alþýðufólki í móðurætt. Þetta kemur fram í bresku útgáfunni af hinum sívinsæla þætti Hver heldurðu að þú sért?
Meira
Það er kannski ekki að furða að undirskrift mín, þessi tiltekna samsetning stafa, skuli vera léleg þegar efniviðurinn er stafir sem eru upp á sitt eindæmi lélegir.
Meira
Málmur Núverandi og fyrrverandi söngvari Killswitch Engage, Jesse Leach og Howard Jones, sameina krafta sína í einu lagi á nýjustu breiðskífu Massachusetts-málmbandsins, Atonement, sem kom út á dögunum.
Meira
22. ágúst verður hér eftir Layne Staley-dagurinn í rokkborginni Seattle í Bandaríkjunum. Þetta kunngjörði borgarstjórinn, Jenny Durkan, á fimmtudaginn en þá hefði hinn ástsæli söngvari Pearl Jam orðið 52 ára.
Meira
„Ég harma sársaukann og þjáninguna sem ég hef valdið og vona að dauði minn dragi úr kvölum ykkar. Mig langar líka að segja móður minni að ég iðrast gjörða minna. Það er hræðilegt að þurfa að upplifa það að sonur manns sé kallaður ófreskja.
Meira
Takóvagninn Tacoson stendur í mæðragarðinum í miðbænum og býður upp á ósvikin mexíkósk takó. Vagnstjóri segir markmiðið að auka hamingju Íslendinga og kynna þeim mexíkóska matargerð. Pétur Magnússon petur@mbl.is
Meira
Tommy gamli Lee, trommuleikari glysmálmbandsins Mötley Crüe, er vandur að virðingu sinni, eins og menn þekkja og þegar þjónn bað hann að taka ofan hattinn á hinum víðfræga veitingastað Emeril's í New Orleans í Bandaríkjunum í vikunni fauk í okkar mann...
Meira
Hljómsveitin The Knack komst í toppsæti bandaríska smáskífulistans á þessum degi árið 1979 með lagið „My Sharona“. Lagið sat á toppnum samfleytt í fimm vikur en það komst hæst í sjötta sætið í Bretlandi.
Meira
Túlkun Bandaríska leikkonan Michelle Williams kveðst í samtali við breska blaðið The Telegraph hafa þurft að taka á honum stóra sínum þegar hún lék leikkonuna og dansarann Gwen Verdon í nýlegri smáseríu, Fosse/Verdon.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.