Á árinu 2018 unnu á skrifstofu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og Stefáns Eiríkssonar borgarritara að meðaltali 55 starfsmenn í 51 stöðugildi, að stjórnendum og embættismönnum meðtöldum.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Blaðvespum hefur fjölgað hérlendis á síðustu árum og sumir nýliðanna skemma garðagróður. Lirfurnar nærast á laufi plantna og geta valdið umtalsverðum skemmdum. Á Facebook-síðu sinni, Heimur smádýranna, fjallar Erling Ólafsson, skordýrafræðingur, um tvær þessara tegunda; rifsþélu og hindberjaþélu. Hann segir að báðar séu átvögl mikil sem vaxi hratt og þroskist.
Meira
Árlega veitir Íslensk málnefnd viðurkenningar fyrir það sem vel er gert á sviði málræktar eða til eflingar íslenskri tungu. Á Málræktarþingi, sem haldið var 26.
Meira
Umhverfishetjan, Norræna húsið og Landvernd standa fyrir verkstæði í Norræna húsinu í dag kl. 11-14. Þar fá börn tækifæri til að fræðast um ýmis málefni og leiðir sem þau geta nýtt sér til að hlúa betur að jörðinni.
Meira
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, greindi í gær í vikulegum pistli sínum til starfsfólks frá fyrirhuguðum breytingum á skipuriti spítalans sem taka gildi 1. október.
Meira
Framkvæmdir við endurheimt votlendis eru að hefjast á vegum Votlendissjóðs. Framkvæmdir næstu vikna jafnast á við að slökkt væri á rúmlega 1.000 fólksbílum, segir í frétt frá sjóðnum.
Meira
Gengið var í tilefni Alþjóðlega hjartadagsins í Elliðaárdalnum í gærkvöldi, en hann verður haldinn hátíðlegur á morgun, sunnudag. Gengu þátttakendur um fjóra kílómetra en þátttaka var ókeypis.
Meira
„Við erum ekki komin á þann stað að útfæra þessa gjaldtöku heldur erum við einmitt að segja að gjaldtaka á umferð, ökutæki og eldsneyti sé til heildarendurskoðunar og við sjáum fyrir okkur í framtíðinni að gjald verði frekar tekið af notkun...
Meira
Úr bæjarlífinu Björn Björnsson Sauðárkróki Um helgina reka Skagfirðingar stóð til Laufskálaréttar í Hjaltadal og ef að vanda lætur verður þar fjöldi glæsihesta sem verða nú að yfirgefa frelsið í sumarhögum.
Meira
Örn Kaldalóns Magnússon var 19 ára að aldri þegar hann greindist með DM-sjúkdóminn, sem er vöðvarýrnunarsjúkdómur og hefur áhrif á mörg kerfi líkamans. Örn verður fertugur á morgun, sunnudag, en hann hefur verið veikur meira og minna alla ævi.
Meira
Mikil og vaxandi umsvif eru hjá Stefnu hugbúnaðarhúsi á Akureyri sem er ört vaxandi fyrirtæki. Á síðasta ári voru þar fimm forritarar ráðnir til starfa, strax eftir að þeir luku námi í tölvunarfræðum við hugbúnaðardeild Háskólans á Akureyri.
Meira
Kristín Þorsteinsdóttir, útgefandi og fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, hefur látið af störfum hjá miðlinum. Frá þessu greindi hún í færslu á Facebook-síðu sinni.
Meira
Íslensk ferðaþjónusta á að vera leiðandi í sjálfbærri þróun. Þetta er megináherslan í nýrri framtíðarsýn og leiðarljósum ferðaþjónustunnar til ársins 2030 sem kynnt voru í gær.
Meira
Jöfn og góð síldveiði hefur verið fyrir austan land undanfarið. Skipin voru framan af vertíð í Héraðsflóa, en síldin hefur fært sig utar síðustu daga. Síldin hefur verið stór og hráefnið hið besta til manneldisvinnslu.
Meira
Fjölmenni var á Austurvelli í Reykjavík í gær á síðasta degi allsherjarverkfalls þar sem vakin var athygli á loftslagsvánni og krafist var varnaraðgerða stjórnvalda.
Meira
Stokkseyri | Hjólastígur með fjörunni milli Stokkseyrar og Eyrarbakka hefur verið á dagskrá bæjaryfirvalda frá því um aldamótin, eða fljótlega eftir sameiningu sveitarfélaga í vestanverðum Flóa. En góðir hlutir gerast hægt.
Meira
Icelandair hefur ákveðið að færa MAX-vélarnar sem staðið hafa á Keflavíkurflugvelli frá mars sl. í betra loftslag. Verður vélunum væntanlega flogið strax eftir helgi til Toulouse í Suður-Frakklandi þar sem þær verða geymdar.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Boeing 737 MAX 8-farþegaþotum Icelandair sem staðið hafa ónotaðar á Keflavíkurflugvelli frá því um miðjan mars verður flogið ferjuflugi til Toulouse í Suður-Frakklandi þar sem þær verða geymdar þar til leyfi fæst til að taka þær í notkun á ný. Ekki hefur verið ákveðið hvenær vélunum verður flogið út en það verður væntanlega strax eftir helgi.
Meira
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Aðsókn á sjávarútvegssýninguna í Laugardalshöll hefur verið meiri en áður, að sögn Ólafs M. Jóhannessonar, framkvæmdastjóra sýningarinnar.
Meira
Baksvið Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Á mánudaginn verður liðið eitt ár síðan Vegagerðin tók við rekstri Hvalfjarðarganga. Spölur hafði byggt göngin og rekið þau frá opnun sumarið 1998.
Meira
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur boðað til opins íbúafundar nk. mánudag til að kynna ákvörðun um uppgjör á vangoldnum lífeyrissjóðsiðgjöldum hluta starfsmanna sinna.
Meira
Ómari Ragnarssyni voru í gær veitt verðlaunin Græni lundinn á RIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Þetta er í fyrsta sinn sem Græni lundinn er afhentur og var það Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra sem afhenti Ómari verðlaunin.
Meira
Árvekniátakinu Plastlaus september er að ljúka, eðli málsins samkvæmt. Um helgina verður haldið svonefnt Plastaþon, í samstarfi við Umhverfisstofnun.
Meira
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir messósópran og Edda Erlendsdóttir píanóleikari koma fram á hádegistónleikum í Hannesarholti á morgun, sunnudag, kl. 12.15. Þar frumflytja þær m.a.
Meira
Eydís Arna Líndal og Hreinn Loftsson hafa verið ráðin aðstoðarmenn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Frá þessu er greint í frétt á vef dómsmálaráðuneytisins í gær.
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa skýrt frá því að uppljóstrarinn, sem lagði fram kvörtun í tengslum við símasamtal Donalds Trumps við forseta Úkraínu, sé starfsmaður leyniþjónustunnar CIA og hafi starfað um tíma í Hvíta húsinu í Washington.
Meira
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ákvörðun sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps um uppgjör á vangreiddum lífeyrissjóðsiðgjöldum hluta starfsmanna hreppsins veldur enn deilum í sveitarfélaginu.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Nýlega gaf Ugla út bókina Bobby Fischer – The Final Years eftir Garðar Sverrisson í þýðingu Maríu Helgu Guðmundsdóttur, en íslenska útgáfan, Yfir farinn veg með Bobby Fischer, fór í dreifingu 2015. „Ég segi frá mörgu sem hvergi hefur komið fram um ævi hans og viðhorf, ásamt því hvernig hann brást við erfiðum veikindum undir það síðasta,“ segir Garðar.
Meira
Um 4.500 nemendur í 4. bekk og um 4.200 nemar í 7. bekk tóku samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði undanfarna daga, en óvenju fjölmennur árgangur er í 4. bekk að þessu sinni. Nemendur í 155 skólum tóku prófin.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson Þór Steinarsson Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gærmorgun að frumvarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um sanngirnisbætur í kjölfar sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu á síðasta ári yrði lagt fram...
Meira
Matarprentari, syngjandi skál, vatnabjöllur, tónsköpun með gervigreind, jafnvægisstjórn, barmmerkjavél, vínylskeri, rauntímarennsli í jökulám og jarðskjálftamælar eru tæknilausnir og verkefni sem kynnt verða á Vísindavöku Rannís í Laugardalshöll í dag...
Meira
Hundruð þúsunda manna tóku þátt í mótmælum í borgum víða í Evrópu í gær til að krefjast aðgerða til að stemma stigu við loftslagsbreytingum í heiminum. Mótmæli fóru m.a. fram í 180 borgum og bæjum á Ítalíu, þau fjölmennustu í Mílanó og Róm.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Landgerð utan Klettagarða í Sundahöfn er í fullum gangi en hún hófst síðastliðið vor. Hver vörubíllinn af öðrum kemur akandi með grjót úr grunni nýja Landspítalans og sturtar í sjóinn.
Meira
Arctic Fish er komið af stað með útflutning á ferskum laxi til Kína, eftir að síðustu hindrunum í framkvæmd samnings um fríverslun vegna innflutnings á laxi til Kína var rutt úr veginum.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Vörður ÞH 44, nýr togari Gjögurs hf. sem kom til landsins sl. miðvikudag, fer til veiða síðari hlutann í október ef allt gengur upp.
Meira
Viðskiptablaðið fjallar í pistli undir heitinu Óðinn um fjárlögin og er ekki hrifið af því sem þar er að finna. Gagnrýnin snýr einkum að því hve mjög fjárlögin hafa blásið út á síðustu árum og hve mjög hefur skort á fyrirstöðu gegn þeirri þróun. Bent er á að það sé „stórfenglegt áhyggjuefni hversu umfang ríkisins mun vaxa milli áranna 2019 og 2020 eða um 7,8%“.
Meira
Bréfritari ákvað aldrei að gera stjórnmál að ævistarfi, þótt hann nyti þess að sitja og dunda sér við dót og hlusta á konurnar sem skýldu honum, móður og móðurömmu annars vegar og föðurömmu og föðursystur hins vegar.
Meira
Einar Kárason rithöfundur frumsýnir sýningu sína Stormfugla í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld kl. 19.30 og er sýningin á vegum Þjóðleikhússins. Sýninguna byggir Einar á samnefndri bók sinni sem kom út í fyrra.
Meira
Fyrri lesendur mínir í þessum dálki hafa eflaust tekið eftir dálæti mínu á streymisveitunni Netflix. Ah, Netflix, þú hefur gefið mér svo margar góðar stundir, en vitanlega hlaut að koma að þeirri stundu að ég yrði fyrir vonbrigðum.
Meira
Jeremy Denk, einn fremsti píanóleikari Bandaríkjanna, heldur tónleika í Norðurljósasal Hörpu annað kvöld, sunnudag, kl. 20. Verða það fyrstu tónleikar hans hér á landi.
Meira
Leikstjóri: Adrian Grunberg. Handrit: Matthew Cirulnick og Sylvester Stallone, byggt á sögu Dan Gordon og Sylvester Stallone og karakterum David Morrell.
Meira
Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Stór yfirlitssýning á verkum Magnúsar Pálssonar verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, í dag, laugardag, klukkan 16.
Meira
Litabækur og litir nefnist fyrsta einkasýning Önnu Bjarkar Bjarnadóttur sem hún opnar í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar í dag kl. 13. Í tilkynningu kemur fram að Anna Björk sé fædd og uppalin í Borgarnesi og þangað sæki hún meginmyndefni sitt.
Meira
Listahátíðin Nuuk Nordic Culture Festival er tvíæringur sem ýtt var úr vör í fyrsta skipti árið 2015. Nú, í þriðja sinn, verður heil vika undirlögð af alls kyns menningaruppákomum. Hátíðin hefst 7. október og mun greinarhöfundur sækja hátíðina og greina frá því helsta.
Meira
Tónlistarkonan Ólöf Arnalds heldur tónleika í Mengi í kvöld kl. 21. Húsið verður opnað kl. 20.30. „Ólöf hefur gefið frá sér fjórar hljómplötur sem allar hlutu frábærar viðtökur hér á landi sem ytra. Hún vinnur nú að þeirri fimmtu.
Meira
Snúin mynd Þau leiðu mistök urðu í blaðinu í gær að mynd af verkinu „True North“ eftir Önnu Jóa sneri ekki rétt. Af þeim sökum er myndin birt rétt hér til hliðar og beðist velvirðingar á mistökunum.
Meira
Heimildarmyndin The Seer & The Unseen verður frumsýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF, í Bíó Paradís í dag kl. 16.45 og verður Sara Dosa, leikstjóri hennar, viðstödd sýninguna.
Meira
Tveir píanókvintettar, eftir þá Johannes Brahms og Sergei Taneyev, verða fluttir á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Norðurljósasal Hörpu á morgun kl. 16. Eru það fyrstu tónleikarnir í sex tónleika röð sem klúbburinn stendur fyrir á starfsárinu 2019-20.
Meira
Lulu Yee og Daði Guðbjörnsson opna sýninguna Undur í Galleríi Fold í dag, laugardag, kl. 14. „Daði er þekktur fyrir litríkar myndir sínar; skraut, flúr og fantasíukennt landslag.
Meira
Eftir Svein Guðmundsson: "Lögreglumenn gegna mikilvægu hlutverki sem fyrstu viðbragðsaðilar á vettvang. Þeir vita oft ekki við hverju á að búast eða hvernig aðstæðurnar hafa þróast þegar þeir koma á vettvang."
Meira
Á fimmtudaginn boðaði Íslensk málnefnd til málræktarþings um þau rafrænu gögn um íslenskt mál sem almenningur hefur opinn aðgang að. Þar ber hæst málið.
Meira
Eftir Finnboga Hermannsson: "Þegar tvennt er haft í huga, hæpinn ávinningur af virkjanagerð í Hvalá og eyðilegging náttúruvéa, er þá ekki kominn tími til að slá þessa virkjun af?"
Meira
Þeim var nær, hröfnunum hans Flóka, að vísa honum á landið þó að það hafi litið þokkalega út í flugsýn. Þeir hefðu betur látið það ógert og haft víðernin og landgæðin fyrir sig og annað fiðurfé og kannski stöku ref.
Meira
Ég hlustaði á Útvarp Sögu þegar atkvæðagreiðsla Alþingis fór fram í sambandi við afgreiðslu orkupakkans og varð fyrir miklum vonbrigðum með alþingismenn, sem ég hafði haft mætur á, sem svöruðu með já-i.
Meira
Eftir Guðjón Sigurbjartsson: "Um 30% af lambakjötsframleiðslunni eru flutt úr landi. Skattgreiðendur styðja þá umhverfisskaðandi starfsemi um 1,5 ma.kr. á ári. Þetta er alger tímaskekkja."
Meira
Eftir Þorstein Sæmundsson: "Þeir sem gefa kost á sér til forystu verða að hafa kjark til þess að taka ákvarðanir sem til skamms tíma eru ekki til vinsælda fallnar."
Meira
Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson: "Til að safna fjármagni svo borgarstjórinn geti framkallað hin langsóttu kosningaloforð sín mun ríkið selja verðmætasta byggingarland Íslands og taka gjald af fólki fyrir að nota vegi höfuðborgarsvæðisins."
Meira
Jón Þorláksson lýsti viðhorfi samstarfsmanns síns, Hannesar Hafsteins ráðherra, til utanríkismála svo í Óðni 1923, að „hann vildi afla landinu þeirra sjálfstæðismerkja og þess sjálfstæðis, sem frekast var samrýmanlegt þeirri hugsun að halda...
Meira
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson: "Þess vegna er svo mikilvægt að vanda samskiptin. Hugsa um hvar og hvernig maður stígur niður og hvað maður vill skilja eftir sig."
Meira
Anna Jónasdóttir fæddist í Reykjarfirði á Hornströndum 19. júlí 1927. Hún lést 16. september 2019. Hún var elsta dóttir hjónanna Jónasar Guðjónssonar og Alexandrínu Benediktsdóttur.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Pálsdóttir (Gugga) fæddist í Hafnarfirði 15. september 1943. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi 14. september 2019. Foreldrar Guggu voru Páll M. Guðmundsson sjómaður, f. á Neistastöðum í Flóa 13. febrúar 1918, d. 17.
MeiraKaupa minningabók
Hallgrímur Helgason fæddist 30. júní 1927 á Hrappsstöðum í Vopnafirði. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sundabúð, Vopnafirði, 18. september 2019. Foreldrar hans voru Helgi Gíslason bóndi og fræðimaður, f. 6.2. 1897, d. 27.7.
MeiraKaupa minningabók
Helga Jónsdóttir fæddist 9. janúar 1932. Hún lést á Dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík 22. september 2019. Foreldrar hennar voru Jón Gunnlaugsson frá Geitafelli og Guðrún Gísladóttir frá Presthvammi, þau bjuggu í Ysta-Hvammi í Aðaldal.
MeiraKaupa minningabók
Jóhann Pétur Sigurbjörnsson fæddist á Akureyri 4. september 1929. Hann lést á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík 16. september 2019. Foreldrar hans voru Sigurbjörn Þorvaldsson og Steinunn Ingibjörg Jónsdóttir.
MeiraKaupa minningabók
Ólöf Erla Árnadóttur fæddist á Akureyri 29. september 1941 og ólst þar upp. Hún lést á sjúkrahúsi í Stokkhólmi 6. apríl, 2019. Foreldrar hennar voru Elísabet Jónsdóttir og Árni Friðriksson.
MeiraKaupa minningabók
Ómar Ármannsson fæddist á Stöðvarfirði 4. september 1956. Hann lést á Landspítalanum 5. september 2019. Foreldrar hans voru Jóhanna Sólmundsdóttir, f. í Laufási á Stöðvarfirði 19. ágúst 1932, og Ármann Jóhannsson, f. á Kirkjubóli í Fáskrúðsfirði 1.
MeiraKaupa minningabók
Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Íslands lækkaði um 1,57% í viðskiptum gærdagsins, en aðeins eitt félag hækkaði í verði, Brim, um 3,37%. Önnur félög, að Heimavöllum undanskildum, sem engin viðskipti voru með, lækkuðu í verði.
Meira
Matvöruverslunin Melabúðin, sem stendur á Hagamel 39 í Reykjavík, var rekin með 15,8 milljóna króna hagnaði á síðasta ári, samkvæmt nýbirtum ársreikningi fyrirtækisins.
Meira
Baksvið Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Dr. Friðrik Larsen heldur ráðstefnuna Charge Energy í fjórða skiptið dagana 30. september og 1. október í næstu viku. Að vanda verður fjallað um vörumerkjastjórnun (e.
Meira
Sigríður segir frá rannsóknum sínum á ómögum sem manntalið 1703 greinir frá nk. mánud. 30. sept. kl. 17:15 á Borgarbókasafninu í Spöng í Grafarvogi. Erindi hennar nefnist „Fluttir, færðir og niðursettir, ómagar við upphaf 18. aldar“.
Meira
Að verða niðursetningur var eitthvað sem fólk forðaðist af öllum mætti, því þá var einstaklingurinn upp á sveitunga sína kominn með framfærslu og meðferðin var ekki alltaf góð. Sigríður Hjördís Jörundsdóttir sagnfræðingur hefur rannsakað ómaga sem sagt er frá í manntalinu frá árinu 1703.
Meira
50 ára Eiríkur er Bolvíkingur en býr í Reykjavík. Hann er með BA í bókmenntafræði og MA í íslenskum bókmenntum frá HÍ. Hann er rithöfundur og dagskrárgerðarmaður á Rás 1.
Meira
60 ára Erna er Hornfirðingur og er grunnskólakennari að mennt. Hún er umsjónarkennari í 6. bekk í Grunnskóla Hornafjarðar. Erna er formaður Kvennakórs Hornafjarðar og er trommuleikari í kvennahljómsveitinni Guggurnar. Maki : Haukur Reynisson, f.
Meira
Friðfinnur Lárus Guðjónsson fæddist 25. september 1869 í Hallfríðarstaðakoti í Hörgárdal. Foreldrar hans voru hjónin Guðjón Steinsson og Lilja Gísladóttir.
Meira
Guðmundur Kjartansson vann nauman sigur á Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur sem lauk um síðustu helgi. Hann átti í harðri keppni við Hjörvar Stein Grétarsson, úrslitin réðust í 6. umferð en þeir voru þá jafnir að vinningum.
Meira
Fleirtöluorðið gæði merkir hnoss , hlunnindi og fleira í þá veru, sem sagt það sem gott er – góður eiginleiki . Gæði geta verið mikil og meiri en „góð gæði“ og “betri gæði eru tóm vitleysa sem hefur þó breiðst út eins og lúpína.
Meira
Ellý Ármanns spáði fyrir hlustendum Ísland vaknar í gærmorgun. Hlustandi úr Hafnarfirði hafði samband en hann ætti ekki að hafa áhyggjur af neinum, að sögn Ellýjar.
Meira
Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Hjá bankastjóra hann stunda kann. Stóð ég oft á teignum við hann. Í brjósti mínu hann bifast fann. Blíðvindi megum kalla þann. Helgi R.
Meira
M-gjöfin Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Þetta var kannski svolítið skrýtið tímabil og eiginlega súrsætt. Mér gekk sjálfri ágætlega og er nokkuð sátt við mína frammistöðu en liðinu gekk ekki nógu vel og það var leiðinlegt að falla úr deildinni,“ segir hin átján ára gamla Sveindís Jane Jónsdóttir, framherji kvennaliðs Keflavíkur í knattspyrnu og besti leikmaður úrvalsdeildarinnar 2019, samkvæmt M-einkunnagjöf Morgunblaðsins, sem var kynnt ítarlega í síðasta þriðjudagsblaði.
Meira
Gylfi Þór Sigurðsson og samherjar hans hjá Everton fá verðugt verkefni í ensku úrvalsdeildinni í dag. Everton fær meistarana í Manchester City í heimsókn. Í síðasta leik City í deildinni fyrir viku fóru meistararnir hamförum og rótburstuðu Watford 8:0.
Meira
*Haraldur Franklín Magnús endaði í öðru sæti á Lindbyvätten Masters-mótinu í golfi sem lauk í Svíþjóð í gær en mótið var hluti af Nordic-mótaröðinni. Haraldur Franklín lék þriðja og síðasta hringinn á 70 höggum eða á tveimur höggum undir pari.
Meira
HK og Víkingur hafa slitið samstarfi sínu í knattspyrnunni en félögin hafa verið með þrjá sameiginlega kvennaflokka, meistaraflokk, 2. flokk og 3. flokk, undanfarna tvo áratugi.
Meira
Líklega þyrfti að gera töluverða leit að ensku knattspyrnuliði sem ekki á stuðningsmann á Íslandi. Stuðningur Stefáns Pálssonar sagnfræðings við Luton Town er ekki það eina frumlega sem finna má hérlendis þótt það sé með þekktustu dæmunum.
Meira
Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum hófst í Doha í Katar í gær. Í gærkvöldi hófst maraþonhlaup kvenna og höfðu keppendur ekki skilað sér í mark þegar blaðið fór í prentun.
Meira
Valur Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Benedikt Blöndal, fyrirliði karlaliðs Vals í körfuknattleik, vonast til þess að Valsmenn geti tekið næsta skref á komandi tímabili í úrvalsdeild karla, Dominos-deildinni, í vetur.
Meira
Þýskaland Leverkusen – Sand 1:2 • Sandra María Jessen kom inn á sem varamaður hjá Leverkusen á 84. mínútu. *Efstu lið: Wolfsburg 12, Hoffenheim 9, Bayern München 9, Frankfurt 9, Sand 7, Potsdam 6, Leverkusen 6, Essen 6.
Meira
Íslensk/bandaríski ljósmyndarinn George Valdimar Tiedemann minntist þess á dögunum að 75 ár eru liðin frá því að hann lagði upp í sína fyrstu langferð, með Goðafossi frá Reykjavík til New York 17. september 1944.
Meira
Elsku hjartans ótrúlega skemmtilegu fiskarnir mínir, það er alltaf talað um fiskana, ekki fiskinn, því í merkinu ykkar syndið þið saman og í sjónum eru fiskarnir í torfum og hjálpa hver öðrum, svo það er eitthvað svo merkilegt að vera svo heppinn að...
Meira
Elsku ljónið mitt, þú þarft að halda áfram á fullum krafti, en hugsaðu aðeins til baka og skoðaðu hvenær þér leið sem best, hvað þú varst að gera og framkvæma þegar þér leið svona vel.
Meira
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is María Ellingsen er landskunn leikkona en hlutverk hennar í lífinu eru mörg. Hún er líka leikstjóri og höfundur, náttúruverndarsinni, kennari, eiginkona og síðast en ekki síst móðir.
Meira
Elsku tvíburinn minn, þér finnst svolítið þú þurfir að ganga frá öllum mögulegum og ómögulegum hlutum, það pirrar andann þinn og orkuna svo skoðaðu bara aðeins betur þá sérðu það er nákvæmlega best fyrir þig að gera ekki neitt.
Meira
Tónlist Tónlistarmaðurinn Lenny Kravits hefur beðið almenning um aðstoð eftir að hafa týnt dýrmætum sólgleraugum. Kravitz lét aðdáendur sína á Twitter vita að eftir tónleika hans 21.
Meira
Leikur KR gegn enska liðinu Hemel Hempstead í Evrópukeppni félagsliða í körfubolta er mörgum enn í fersku minni þótt í gær, laugardag, hafi 30 ár verið liðin frá því að hann fór fram.
Meira
DM-félagið var stofnað árið 2017 af Hauki Svanssyni og öðru ungu fólki sem tengdist sjúkdómnum. Örn var í fyrstu varaformaður en tók við formennsku haustið 2018. Um 120 manns eru með DM-sjúkdóminn á Íslandi og eru félagsmenn um 70.
Meira
Elsku hrúturinn minn, það er svo sérkennilegt valdatafl í kringum þig, hvort sem það tengist fjölskyldu, vinahóp eða hvað svo sem þú ert að fara í gegnum og það er svo mikilvægt í öllu þessu að þú skoðir ofurvel hvernig þú ætlar að takast á við þetta.
Meira
Hjónin Magnea Einarsdóttir, fata- og textílhönnuður og eigandi fatamerkisins MAGNEA, og Yngvi Eiríksson verkfræðingur búa ásamt börnum sínum tveimur, Rökkva, 9 ára, og Eddu Fanneyju, sem er að verða eins árs, á gullfallegu heimili í Laugardalnum. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Meira
Segðu mér aðeins frá áskoruninni Lifðu í gleði? Þetta er vikulöng áskorun í gegnum tölvupóst sem felur í sér lítil dagleg verkefni til að rækta sína innri manneskju.
Meira
„ Enginn slítur þau bönd, sem hann er bundinn heimahögum sínum. Móðir þín fylgir þér á götu, er þú leggur af stað út í heiminn en þorpið fer með þér alla leið .
Meira
Kvikmynd Nýverið var tilkynnt að leikararnir Jeff Goldblum, Laura Dern og Sam Neill muni koma saman á nýjan leik í nýrri kvikmynd um Jurassic World sem ber vinnuheitið Jurassic World 3 en þau léku í kvikmyndunum um Júragarðinn frá árunum 1993 til 2001.
Meira
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðil með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausnum í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila krossgátu 29.
Meira
Elsku bogmaðurinn minn, margt smátt gerir eitt stórt og það eru pínulítil og falleg kraftaverk í kringum þig sem eiga eftir að skapa fagra heildarmynd, en það hefur búið í þér pínulítill kvíðaköttur sem hefur nagað þig og tengist hinu gamla, en ekkert...
Meira
Elsku steingeitin mín, það er sagt að fall sé fararheill en það hefur ekki verið neitt fall hjá þér, hjartað mitt, heldur bara litlar lægðir sem sveiflast yfir höfðinu á þér eins og á Íslandinu sjálfu.
Meira
Pétur Jóhann Sigfússon kíkti í spjall í Ísland vaknar en framundan er ný uppistandssýning í Hörpu. Tilefnið er að nú eru 20 ár síðan hann vann keppnina „Fyndnasti maður Íslands“.
Meira
Elsku, elsku vogin mín, þú ert á mjög spennandi tímabili og það er eins og þú sért að horfa á bíómynd, spennan er í hámarki og þú getur engan veginn ímyndað þér hvað er að fara að gerast.
Meira
Verkefnið vakti að vonum mikla athygli og vildu helstu blöð og sjónvarpsstöðvar ólm ná tali af mér; þurfti ég að berja helvítin af mér eins og flugur.
Meira
Elsku nautið mitt, það á ekkert eftir að slá þig út af laginu og þó þú hafir færst of mikið í fang og þér finnist þú haldir á of mörgum boltum eins og gyðjan Durga úr hindúatrú sem er með að minnsta kosti átta hendur og hefur öll þau vopn sem þarf til...
Meira
Út er komin bókin Tæpitungulaust eftir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi alþingismann, utanríkisráðherra, sendiherra og formann Alþýðuflokksins, og ber hún undirtitilinn lífsskoðun jafnaðarmanns. Bókin kemur í bókaverslanir í dag, 29.
Meira
Við hin sem lítum á raforku og raforkukerfi sem hluta af innviðum samfélagsins og aðgang að ódýrri raforku sem sjálfsagða þjónustu þar sem ekki eigi að hleypa bröskurum að sem milliliðum, fylgdumst forviða með þingmönnum, sem gefa sig út fyrir að vera...
Meira
Ég er að hlusta á Híbýli vindanna og Lífsins tré eftir Böðvar Guðmundsson en Arnar Jónsson leikari les upp. Ég las þær á sínum tíma en er að rifja þær upp.
Meira
Örn Kaldalóns Magnússon er fæddur 30. september 1979 og verður því fertugur á morgun. Hann greindist 19 ára gamall með DM-sjúkdóminn, sem er vöðvarýrnunarsjúkdómur sem hefur áhrif á mörg kerfi líkamans.
Meira
Krakkar mótmæla á Austurvelli og krefjast aðgerða. Strax. Og maður finnur stundum að þau yngri horfa ásakandi á þau sem eldri eru og skilja ekkert í að þau séu ekki með hjartað í buxunum yfir þessu.
Meira
Elsku vatnsberinn minn, það er eitthvað svo magnað og tilfinningaþrungið lífið þitt, svo það er svo sannarlega hægt að segja þú lifir lífinu lifandi og þó að þú hugsir að þú hafir gert mistök, þá geturðu alltaf skipt um skoðun og breytt stefnu, því sú...
Meira
Það er ávallt erill ferðamanna fyrir utan stúdíóið við Abbey Road þar sem Bítlarnir tóku upp samnefnda plötu. Við sérstök tilefni fjölmenna aðdáendur og allt fyllist af fólki. Már Wolfgang Mixa var á Abbey Road á 50 ára afmæli myndatökunnar fyrir albúm plötunnar Abbey Road.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.