Baksvið Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Stjórnir tveggja af þremur stóru bönkunum íslensku eru með mál Samherja, sem tengjast ásökunum um meintar brotalamir í starfsemi útgerðarfyrirtækisins í Namibíu, til skoðunar. Stjórnarformaður Arion banka, Brynjólfur Bjarnason, segir að „stjórnin hefur beðið um ítarlega athugun á þessum málum,“ en að öðru leyti hyggist stjórnin ekki tjá sig um mál einstakra viðskiptavina bankans. Stjórn Íslandsbanka mun funda í dag, að sögn Friðriks Sophussonar, stjórnarformanns Íslandsbanka. Hann segir að mál Samherja verði „væntanlega rædd“ á fundinum.
Meira