Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Heimsiglingin gekk vel og báturinn lofar góðu. Á leiðinni frá Færeyjum lentum við í bræluskít en þegar kom að suðurströndinni var ládeyða og alveg í höfn,“ segir Pétur Pétursson á Arnarstapa, skipstjóri á Bárði SH 81. Margir voru á bryggjunni í Hafnarfirði á laugardagsmorgun þegar nýr bátur Péturs kom þangað, stærsti plastbátur vertíðarflotans. Báturinn, sem gerður verður út frá Ólafsvík, er 154 tonn, 26,9 metra langur, sjö metrar á breidd og djúpristan 2,5 metrar.
Meira