Allur gangur er á því hvort sveitarfélög veita stjórnmálasamtökum fjárframlög líkt og þeim ber samkvæmt 5. grein laga nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka.
Meira
Við Reykjavíkurtjörn Mikið mannlíf var við ísilagða Tjörnina í gær. Notuðu sumir tækifærið til þess að skauta á meðan aðrir renndu sér bara á sínum venjulegu...
Meira
Baksvið Viðar Guðjónsson vidargudjons@gmail.com Fyrir sex árum hófu óstýrilátar risaeðlur að vera með óvænt uppátæki í aðdraganda jóla á heimili þeirra Óla Arnar Atlasonar og Karenar G. Elísabetardóttur á Rekagranda í Reykjavík.
Meira
Útgáfu viðamikillar bókar um myndlistarferil Sigríðar Björnsdóttur, sem einnig er kunn sem brautryðjandi í listþerapíu, verður fagnað í Ásmundarsal í dag kl. 18. Í bókinni er fjöldi verka frá árunum 1950-2019.
Meira
Giftusamlega tókst til með björgun þegar tvær ungar konur frá Kína voru í reiðileysi eftir að hafa misst smábíl út af veginum í Grímsnesi í fyrrinótt. Þæfingur var á veginum sem bíllinn rann út af en skemmdist ekki.
Meira
Matvælastofnun hefur veitt Samherja fiskeldi ehf. rekstrarleyfi til framleiðslu á 3.000 tonnum af laxi og bleikju á Stað við Grindavík. Fyrirtækið var áður með rekstrarleyfi fyrir 1.600 t.
Meira
Aðventugleði lá í loftinu á jólatónleikum Valskórsins sem haldnir voru í Friðrikskapellu á Hlíðarenda á laugardaginn var. Voru þar flutt bæði íslensk og erlend aðventu- og jólalög sem ungir jafnt sem aldnir gátu notið á aðventunni.
Meira
Afli togara hefur ekki verið sérstakur að undanförnu, en annað slagið hafa þó komið ágæt skot eins og greint er frá á vef Síldarvinnslunnar. Smáey VE fékk í upphafi síðustu viku fullfermi af karfa og ufsa á skömmum tíma.
Meira
Veðurstofan sendi í gær frá sér gula viðvörun, en gert er ráð fyrir að það muni ganga í norðan- og norðvestan storm eða rok á morgun, þriðjudag. Munu vindhviðurnar verða á bilinu 20-28 m/s.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stækkun Sultartangastöðvar sem Landsvirkjun er að undirbúa getur aukið afl virkjunarinnar um 8 megavött án nokkurs jarðrasks eða framkvæmda við mannvirki. Áætlað er að aðgerðin kosti undir 40 milljónum kr.
Meira
Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Bragi Guðbrandsson, stofnandi Barnahúss og fulltrúi í barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna, er einn tíu aðila sem voru sérstaklega heiðraðir af samtökunum Save the Children vegna framlags í þágu barna.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Lýðheilsumál taka til flestra þátta samfélagsins og inntakið að skapa umhverfi sem gerir fólki kleift að blómstrar í leik og starfi,“ segir Guðrún Magnúsdóttir lýðheilsu- og hjúkrunarfræðingur sem nýlega var ráðin sérfræðingur Reykjanesbæjar í lýðheilsumálum. Í samstarfssamningi þeirra stjórnmálaafla sem nú mynda meirihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar var stofnað sérstakt lýðheilsuráð og er hlutverk þess að efla heilsu íbúa með forvörnum, heilsueflingu og snemmtækri íhlutun.
Meira
Mikið var um dýrðir þegar Skógræktarfélag Mosfellsbæjar opnaði jólaskóginn í Hamrahlíð og hóf um leið sölu fyrstu jólatrjánna. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri sagaði niður fyrsta tréð.
Meira
Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Sagnfræðilegar heimildir benda til þess að sjálfstæðishetjan Jón Sigurðsson hafi verið undir áhrifum þýskra ríkisvísinda fremur en frjálslyndisstefnu og þannig verið fylgjandi auknum ríkisafskiptum. Þetta segir Sveinn Máni Jóhannesson, nýdoktor í sagnfræði, en hann færir rök fyrir þessu í grein sinni Farsældarríki Jóns Sigurðssonar, sem birtist í nýjasta hefti tímaritsins Sögu. Ríkisvísindi eru að sögn Sveins akademískt fag sem Jón tileinkaði sér í Kaupmannahafnarháskóla og snerist um það hvernig stýra ætti ríkjum með skilvirkum hætti með sérstakri áherslu á að hið opinbera bæri ábyrgð á að efla hamingju, velferð og farsæld þegnanna.
Meira
Kristmundur Bjarnason, rithöfundur og fræðimaður á Sjávarborg í Skagafirði, lést á Dvalarheimilinu á Sauðárkróki 4. desember sl., 100 ára að aldri. Kristmundur fæddist á Reykjum í Tungusveit 10. janúar 1919.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Allur gangur hefur verið á því að sveitarfélög veiti stjórnmálasamtökum fjárframlög eins og þeim ber að gera lögum samkvæmt og fá sveitarfélög hafa sett sér reglur um framlögin. Þetta má lesa út úr minnisblaði Sigurðar Á.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég fagna þessum breytingum. Allt smátt hjálpar,“ segir Þorgerður María Þorbjarnardóttir, gjaldkeri félagsins Ungir umhverfissinnar.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Í tilefni 60 ára afmælis Þóris Jökuls Þorsteinssonar, sóknarprests og aðstoðarprófasts í Larvíkurprófastsdæmi í Noregi, kom út afmælisritið Jökla með greinum sem nokkrir samferðamenn hans og kollegar skrifuðu.
Meira
Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Gleði og þakklæti í anda aðventunnar lá í loftinu í Lindakirkju í gær þegar góðgerðarfélagið Bumbuloní veitti tólf fjölskyldum langveikra barna styrk upp á 233 þúsund krónur fyrir hverja fjölskyldu.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Um 200 manns búa á um 40 bæjum og húsum í Svarfaðardal, sem gengur inn í Tröllaskagann til suðvesturs frá Dalvík. Landslagið hér er líkt því sem gerist víða norðanlands; Svarfaðardalsá fellur um miðjan dalinn sem er umlukinn háum hlíðum fjalla. Undir þeim standa bæirnir og almennt er vel hýst í þessari sveit. Í dalnum eru mörg myndarleg bú og félags- og menningarlíf í blóma. Fyrirmyndarsveit, eins og blaðamaður Morgunblaðsins komst að þegar hann kynnti sér staðhætti þarna nú í haust.
Meira
Viðar Guðjónsson vidargudjons@gmail.com Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, sé Sjálfstæðisflokknum þungt.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hart var tekist á um Hvalárvirkjun á fjölmennum fundi Íslendinga á Kanaríeyjum síðastliðinn laugardag þar sem framtíð Árneshrepps var umræðuefnið.
Meira
Flestir sem fjalla um kosningarnar sem fara fram í Bretlandi eftir þrjá daga eru sammála um að þær séu meðal þeirra þýðingarmestu sem fram hafa farið þar í landi. Boris Johnson forsætisráðherra bendir í grein í Telegraph á þrennar aðrar markverðar; þær fyrstu árið 1906 þegar frjálslynd ríkisstjórn hafi náð meirihluta og valdajafnvægið hafi færst mjög í átt að auknu lýðræði, aðrar árið 1945 þegar Íhaldsflokkurinn hafi farið út af sporinu og ríkisstjórn Attlee hafi stofnað breska heilbrigðiskerfið, NHS, og þær þriðju þegar Thatcher sigraði árið 1979 og „dró Bretland út úr martröð áttunda áratugarins“.
Meira
Skáldsagan Ungfrú Ísland eftir Auði Övu Ólafsdóttur kom nýverið út í Danmörku í þýðingu Eriks Skyum-Nielsen við mikla hrifningu þarlendra gagnrýnenda.
Meira
Eftir Sveinbjörn Jónsson: "Áætlunarbúskapur fjármagnsins og vísindanna, aflamarksisminn, er ekki fyrsti isminn sem skilar annarri niðurstöðu en til var ætlast."
Meira
Eftir Hallgrím Sveinsson, Guðmund Ingvarsson og Bjarna G. Einarsson: "Opið bréf úr sveitinni til Guðna Ágústssonar: Ætli það fari ekki að styttast í að unga fólkið segi hingað og ekki lengra. Hver fjölskylda fái að aka ákveðinn kílómetrafjölda á ári."
Meira
Sögur af daglegri spillingu eru almennt séð slúður. En kannski kannast þú við svipaða sögu, hefur kannski orðið vitni að einhverju álíka. Það þýðir að sagan er líklega ekki slúður.
Meira
Eftir Guðm. Jónas Kristjánsson: "Allt ber því að sama brunni. Glóbalistar og EES ógna nú þjóðfrelsi og fullveldi Íslands sem aldrei fyrr, nú síðast með orkupökkum ESB."
Meira
Eftir Albert Þór Jónsson: "Mikil tækifæri liggja í því að efla innviði sem eru til staðar... og styðja þannig betur við strandsiglingar, útflutning sjávarafurða og landbúnaðarafurða og aukna nýsköpun."
Meira
Auður Stefánsdóttir fæddist á Akureyri 28. mars 1946. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu 23. nóvember 2019. Foreldrar hennar voru Hólmfríður Hólmgeirsdóttir, f. 3. nóvember 1926, d. 3. apríl 2003, og Stefán Sörensson, f. 24. október 1926, d.
MeiraKaupa minningabók
Ágústína Sveinsdóttir fæddist í Dal í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi 22. febrúar 1919. Hún andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 16. nóvember 2019.
MeiraKaupa minningabók
Eðvarð H. Vilmundarson fæddist í bænum Löndum í Staðarhverfi, Grindavík, 2. október 1932. Hann lést 30. nóvember 2019. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir, f. 12.7. 1891, d. 4.8. 1958, og Vilmundur Árnason, f. 12.3. 1884, d. 23.1. 1975. Hann var 11.
MeiraKaupa minningabók
Einar Bjarni Guðmundsson var fæddur í Holtahólum 23. janúar 1956. Hann lést á Höfn í Hornafirði 26. nóvember 2019. Foreldrar hans voru Guðmundur Bjarnason, f. 9 júlí 1927, d. 6. nóvember 2001, og Sigríður Ólafsdóttir, f. 13. desember 1928, d. 23.
MeiraKaupa minningabók
Nanna Þórhallsdóttir fæddist á Djúpavogi 16. júní 1924. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í Reykjavík 2. desember 2019. Foreldrar hennar voru hjónin Kristbjörg Sveinsdóttir húsmóðir, f. 1886, d.
MeiraKaupa minningabók
Pálína Bjarnadóttir fæddist á Ytra-Hrauni í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu 9. janúar 1926. Hún var dóttir hjónanna Bjarna Bjarnasonar bónda og Sigrúnar Þorkelsdóttur húsfreyju. Þau eru látin. Pálína er þriðja í hópi fjögurra systkina.
MeiraKaupa minningabók
Sigurvin Gestur Gunnarsson fæddist 27. mars 1945 í Gíslabæ á Hellnum. Hann lést á Landspítalanum Fossvogi 27. nóvember 2019. Foreldrar Sigurvins voru Málfríður Einarsdóttir frá Þóroddsstöðum í Ölfusi, f. 30. mars 1900, d. 12.
MeiraKaupa minningabók
Bandaríski raðfrumkvöðullinn Elon Musk var á föstudag sýknaður í meiðyrðamáli sem björgunarkafarinn Vernon Unsworth hafði höfðað gegn honum vegna ummæla á Twitter.
Meira
Fréttaskýring Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Af hverju er Alþjóðabankinn að lána Kína peninga? Fær þetta staðist? Kína á meira en nóg af peningum, og ef þá vantar meira geta þeir prentað þá. STOPP!“ Þannig hljóðaði tíst Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á föstudagskvöld.
Meira
Jeff Bezos hefur áhyggjur af að helstu tæknifyrirtæki Bandaríkjanna vilji ekki starfa með varnarmálaráðuneyti landsins og óttast hann að það leiði til þess að öðrum þjóðum takist að standa jafnfætis og jafnvel fara fram úr Bandaríkjunum á sviði...
Meira
Hver man ekki eftir gæludýraspæjaranum Ace Ventura sem leikinn var af hinum bráðfyndna Jim Carrey? Myndirnar um Ace Ventura eru tvær nú þegar og fyrir aðdáendur Ace Ventura eru gleðifréttir því að þriðja myndin er á leiðinni.
Meira
40 ára Ásgeir er Reykvíkingur, ólst upp í Breiðholtinu en býr í Bústaðahverfinu. Hann er verkefnastjóri á markaðsdeild Stöðvar 2 og Vodafone. Maki : Unnur María Guðmundsdóttir, f. 1978, kennari í Barnaskóla Hjallastefnunnar. Börn : Júlía Anja, f.
Meira
60 ára Jóhanna er fædd og uppalin Keflvíkingur og býr þar. Hún lærði skrifstofutækni og er starfsmaður hjá Landsbankanum. Maki : Einar Haraldsson, f. 1956, framkvæmdastjóri Keflavíkur – íþrótta- og ungmennafélags. Börn : Þóra Guðrún, f.
Meira
Fyrirtæki reyna oft að vera svo persónuleg í máli að hverjum lesanda eða áheyranda finnist hann ávarpaður sérstaklega. En það getur mislánast: „Heimsóttu okkur á síðuna okkar.“ Slíkt heyrist stundum. Heimsæktu var meiningin.
Meira
Arndís Halla Ásgeirsdóttir er fædd 9. desember 1969 í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hún dvaldi í sveit Glæsibæ í Skagafirði. „Ég kom með mömmu þangað á hverju sumri frá að ég man eftir mér. Síðan var ég þar í sveit þar til ég var 15 ára. Það var alltaf mikið sungið í Skagafirði og þegar ég kom heim þá kunni ég víst allar drykkjuvísurnar.“
Meira
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, hafnaði í 71. sæti á stigalista Evrópumótaraðarinnar í golfi. Hún verður þar af leiðandi með takmarkaðan keppnisrétt á mótaröðinni á næsta ári.
Meira
Meistararnir frá 2016, Leicester City, halda sínu striki í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hefur spilað frábærlega síðustu tvo mánuðina eða svo og um helgina vann liðið sinn áttunda leik í röð í deildinni.
Meira
Samúel Kári Friðjónsson varð í gær norskur bikarmeistari í knattspyrnu þegar Viking vann 1:0-sigur gegn Haugesund í úrslitaleik á Ullevaal, þjóðarleikvangi Norðmanna í Ósló. Það var Zlatko Tripic sem skoraði sigurmarkið á 51. mínútu úr vítaspyrnu.
Meira
*Bjarki Már Elísson , landsliðsmaður í handknattleik, átti enn einn stórleikinn á tímabilinu er Lemgo vann 29:24-sigur á Nordhorn í þýsku 1. deildinni.
Meira
England Everton – Chelsea 3:1 • Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn með Everton. Tottenham – Burnley 5:0 • Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla.
Meira
Fram hefur þriggja stiga forskot á toppi Olís-deildar kvenna í handknattleik eftir góðan sigur á Íslands- og bikarmeisturum Vals í Safamýri í gær, 24:19. Sigur Fram var sannfærandi en forföll settu svip sinn á Valsliðið.
Meira
Gott gengi Keflvíkinga í körfuknattleik karla heldur áfram. Liðið er komið í 8-liða úrslit í Geysis-bikarnum eftir sigur á erkifjendunum í Njarðvík á útivelli 73:68.
Meira
Anton Sveinn McKee, úr SH, lauk EM í Glasgow á viðeigandi nótum og tók þátt í því að setja Íslandsmet í boðsundi, 4x50 metra fjórsundi, ásamt Kolbeini Hrafnkelssyni, Kristni Þórarinssyni og Dadó Fenri Jasmínusyni. Syntu þeir á 1:36,97 mínútum.
Meira
Þórir Hergeirsson og hans konur eru í harðri baráttu um að komast í undanúrslitin á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik sem fram fer í Kumamoto.
Meira
Í Safamýri Kristján Jónsson kris@mbl.is Lið Fram hefur verið afar sannfærandi í Olís-deild kvenna í handknattleik sem af er tímabilinu. Framarar undirstrikuðu það með sannfærandi sigri á Íslands- og bikarmeisturum Vals 24:19 á heimavelli í laugardag.
Meira
Tveir ævintýramenn, Mike Horn frá Sviss og Berge Ousland frá Noregi, luku í gær ferðalagi sínu þvert yfir Norður-Íshafið eftir nærri fjögurra mánaða bið. Þeir lögðu upp í förina á báti frá Nome í Alaska 25. ágúst sl. og komu að ísjaðrinum 12.
Meira
Emmanuel Macron forseti boðaði ráðherra, sem koma að breytingum á lífeyriskerfinu, til sín í gærkvöldi til að móta framhald málsins sem valdið hefur lamandi verkföllum um allt land síðustu daga og raskað samgöngum stórlega.
Meira
Aung San Suu Kyi, leiðtogi Búrma, hélt í gær til Hollands til að svara til saka fyrir alþjóðadómstólnum í Haag sem rannsakar meint þjóðarmorð á róhingjum í Búrma.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.