Frá og með 1. febrúar 2020 hækkar verð á áskrift að Morgunblaðinu. Full mánaðaráskrift, sem felur í sér sjö blöð í viku, aðgang að vefútgáfu Morgunblaðsins og aðgang að Hljóðmogganum, auk snjalltækjaútgáfu, kostar þá 7.530...
Meira
Guðni Einarsson Jóhann Ólafsson Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilu Eflingar við Reykjavíkurborg á mánudagsmorgun. Verkfallsaðgerðir Eflingar hjá borginni eiga að hefjast 4. febrúar.
Meira
Meirihluti þingmanna öldungadeildar Bandaríkjaþings felldi tillögu demókrata um að kalla til vitni í réttarhöldum fulltrúadeildarinnar gegn Donald Trump til embættismissis. 51 þingmaður greiddi atkvæði á móti tillögunni en 49 með.
Meira
„Ljóst er á tímum loftslagsbreytinga að ekki er í boði að halda áfram að setja meira fjármagn í framkvæmdir sem skapa aukið rými fyrir bílaumferð þar sem þær framkvæmdir munu bæði skapa aukna bílaumferð og auka losun á CO2 frá samgöngum.
Meira
Fimm starfsmönnum Þjóðskrár Íslands var sagt upp nú um mánaðamótin. Uppsagnirnar ná til starfsfólks á þremur sviðum stofnunarinnar; þjóðskrársviði, fasteignaskrársviði og þjónustusviði, en tæplega hundrað manns vinna nú hjá Þjóðskránni.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Félagsstofnun stúdenta er að taka í notkun nýjan stúdentagarð, þann stærsta sem byggður hefur verið á Íslandi. Hann hefur hlotið nafnið Mýrargarður og stendur við Sæmundargötu 21 í Vísindagarðahverfinu í Vatnsmýri.
Meira
Kór Langholtskirkju flytur Náttsöngva eftir Sergej Rakhmanínov undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar í Langholtskirkju í dag kl. 16. Verkið telst eitt glæsilegasta tónverk rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Friðlýsingin í Þjórsárdal er löngu tímabær,“ segir Sigþrúður Jónsdóttir náttúrufræðingur í Eystra-Geldingaholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Meira
„Mánuðurinn hefur verið heldur illviðrasamur. Það er ekki alveg auðvelt að bera saman mánuði hvað þetta varðar, en hann er samt í hópi 10 illviðrasömustu mánaða síðustu 70 ár að ég tel.
Meira
Söfnun undirskrifta undir kröfu um íbúakosningu um skipulag í Elliðaárdal er hafin. Tilefnið er ákvörðun borgarstjórnar um skipulag á þróunarreit við Stekkjarbakka þar sem gert er ráð fyrir gróðurhvelfingu.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fyrir um hundrað árum lögðu 4.000-5.000 manns leið sína til Þingvalla á hverju sumri. Á síðasta ári sýndu talningar að um 1,3 milljónir gesta gengu um Almannagjá, stór hluti þeirra erlendir ferðamenn.
Meira
„Við tölum meðal annars um vaxandi gyðingahatur á okkar dögum og skilaboð mín eru skýr: Lítum aldrei niður á aðra manneskju! Eins og við vitum þá myrtu nasistar ekki bara gyðinga, heldur líka fatlaða, samkynhneigða, pólitíska andstæðinga og...
Meira
Boðið er upp á þrenna tónleika í Kaldalóni Hörpu í dag fyrir börn á tónlistarhátíðinni Myrkrabörnum sem haldin er samhliða Myrkum músíkdögum. Klukkan 14 flytja Aurora og eldri stúlkurnar í Stúlknakór Reykjavíkur tónlist eftir m.a.
Meira
Umhverfisstofnun hefur óskað eftir fundi með sérfræðingum Veðurstofu Íslands og Náttúrufræðistofnunar Íslands til ræða viðbrögð við gliðnun stóru sprungunnar í Eldey.
Meira
Almannavarnadeild ríkislögreglustjórans virkjaði í gær samhæfingarmiðstöðina í Skógarhlíð vegna kórónaveirunnar. Þar er nú unnið að því að samræma viðbrögð allra aðila og afla upplýsinga.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Nemendur sem voru í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi fyrir um hálfri öld hafa ákveðið að dusta rykið af minningunum og boða til dansleiks í Félagsheimili Seltjarnarness laugardaginn 8. febrúar.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í fjórtán af 36 grunnskólum í Reykjavík er í nokkrum árgöngum engin tónmennt kennd. Tónmennt er valgrein í tveimur unglingaskólum af þremur og í einum unglingaskóla er alls engin tónmenntakennsla.
Meira
Snörp jarðskjálftahrina varð við Grindavík í gærkvöldi og stóð hún enn þegar Morgunblaðið fór í prentun. Stærstu skjálftarnir voru 4 og 4,3 að stærð rúmlega tuttugu mínútur yfir tíu og áttu upptök 4-5 kílómetra norðaustur af Grindavík.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Unnið er að undirbúningi þverfaglegrar rannsóknar á Odda á Rangárvöllum sem ritmenningarstað. Á vegum Oddafélagsins er unnið að endurreisn höfuðbólsins Odda og eru rannsóknirnar grundvöllur þess.
Meira
Vegagerðin mun vinna í hönnun og undirbúningi tvöföldunar Reykjanesbrautar í Straumsvík og nágrenni. Fjármögnun er núna á öðru tímabili samgönguáætlunar, þ.e. árin 2025-2029, þannig að það þarf að sjá fjármögnun fyrr ef flýta á verkinu. Þetta segir G.
Meira
Björn Leifsson, stofnandi og einn eigenda World Class á Íslandi, segir lág æfingagjöld eiga þátt í vaxandi vinsældum keðjunnar síðustu árin. Veltan hafi aukist um 20% árið 2018 og um 10% í fyrra og það sem af er ári.
Meira
Úr bæjarlífinu Björn Björnsson Sauðárkróki Hér í Skagafirði gengur nú yfir hin árlega þorrablótatíð, þar sem borð svigna í hverju samkomuhúsi undan þungum trogum með hvers kyns góðmeti, allt í anda siða og hefða.
Meira
Baksvið Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is „Það er nú eiginlega algjör tilviljun að við séum með þetta umboð,“ segir Kristján Jónas Svavarsson, sölustjóri og einn af eigendum Klifs ehf.
Meira
Í fyrradag var á Alþingi rædd furðutillaga til þingsályktunar „um Alþingi sem fjölskylduvænan vinnustað“. Tillagan gengur út á að þingið feli forseta þings að skipa starfshóp sem skili tillögum, eigi síðar en í árslok, um að gera þingstörfin fjölskylduvæn.
Meira
Kórónaveiran heldur áfram að breiðast út. Í gær var tala smitaðra farin að nálgast 10 þúsund manns og var talað um að fjöldinn hefði tífaldast á einni viku. Nýja kórónaveiran átti upptök sín í Kína fyrir áramót og má ætla að tilfellin séu mun fleiri, bæði vegna þess að einkenni eru lengi að koma fram og eins þar sem ekki er gefið að allir þeir sem eru smitaðir gefi sig fram.
Meira
Kvikmyndaverðlaun Sólveigar Anspach voru veitt í fyrrakvöld við hátíðlega athöfn í Bíó Paradís og voru þau liður í Franskri kvikmyndahátíð sem lýkur á morgun.
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Alþjóðlega samsýningin Línur verður opnuð á fjórðu hæð Listasafnsins á Akureyri í dag kl. 15. Á henni koma saman átta myndlistarmenn frá sex löndum og fjórum heimsálfum.
Meira
„Frumkvöðlar úr fortíð og nútíð“ er yfirskrift tónleika sem haldnir verða í Norðurljósum Hörpu á morgun kl. 16 og eru hluti af tónleikaröðinni Sígildum sunnudögum í Hörpu.
Meira
Ingvar E. Sigurðsson vann til verðlauna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason á kvikmyndahátíðinni Premiers plans d'Angers sem fór fram í Angers í Frakklandi 17.-26. janúar.
Meira
Bárujárn beygði af og það skrölti í keðjum enda söguleg stund þegar við, málmhausar þessa lands, fengum loksins okkar fulltrúa í stétt fréttaþula í sjónvarpi. Óvænt og skyndilega.
Meira
Íslenski dansflokkurinn hefur í tvo mánuði unnið með norska dansflokknum Nagelhus Schia Productions í Ósló að sviðsetningu á verkinu DuEls eftir Ernu Ómarsdóttur og Damien Jalet.
Meira
Árlegir styrktartónleikar Rótarý verða haldnir í Salnum í Kópavogi á morgun, sunnudag, klukkan 16. Árlega hljóta einn eða tveir tónlistarmenn í framhaldsnámi veglegan styrk úr Tónlistarsjóði Rótarý og koma þá fram á tónleikunum.
Meira
Tohoku – Með augum japanskra ljósmyndara er heiti sýningar með verkum níu japanskra ljósmyndara og ljósmyndahóps sem verður opnuð í Listasafni Árnesinga í dag, laugardag, klukkan 14.
Meira
Eftir Herdísi Kjerulf Þorgeirsdóttur: "Í níutíu ára sögu ríkisútvarpsins hefur engin kona gegnt stöðu útvarpsstjóra. Ellefti karlinn var ráðinn útvarpsstjóri í vikunni andspænis flóru fremstu fjölmiðlakvenna landsins."
Meira
Eftir Rósu Guðbjartsdóttur: "Íbúar Hafnarfjarðar eru ánægðir með bæinn sinn og þá þjónustu sem bæjarfélagið veitir. Ánægjan hefur aukist umtalsvert milli ára"
Meira
Vald yfir því hvort og hvernig talað er um viðburði hefur áhrif á skoðanir á þjóðfélagsmálum. Fréttamenn telja sig eingöngu segja frá því sem gerist – en líta framhjá því að þeir velja frá hverju er sagt og hvernig.
Meira
Fyrir flesta kjósendur skipta heilbrigðismálin einna mestu máli. Síðustu alþingiskosningar snerust fyrst og fremst um heilbrigðismálin og allir stjórnmálaflokkar lofuðu upp í rjáfur þegar kom að þessum málaflokki.
Meira
Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson: "Þjóðin bar gæfu til þess fyrir 30 árum að taka upp skynsamlegri vinnubrögð en áður við gerð kjarasamninga. Það bar á endanum ríkulegan ávöxt sem 85% kaupmáttaraukning launa, og 150% aukning kaupmáttar lágmarkslauna frá árinu 1990 ber órækt vitni um."
Meira
Halldór Hermannson fæddist á Svalbarði í Ögurvík í Ísafjarðardjúpi 2. janúar 1934 og var níundi í röð ellefu systkina. Hann lést á heimili sínu á Ísafirði 22. janúar 2020.
MeiraKaupa minningabók
Hanna Guðrún Pétursdóttir fæddist á Siglufirði 19. febrúar 1939. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar 18. janúar 2020. Foreldrar Hönnu voru Pétur Friðrik Baldvinsson frá Dalvík, f. 14.4. 1909, d. 14.12.
MeiraKaupa minningabók
Kyndilmessa var fyrr á tíðum síðasti helgidagurinn sem bar birtu af jólunum. Þá var rifjuð upp frásögn Lúkasarguðspjalls af því þegar barnið Jesús var borið á móðurörmum í helgidóminn samkvæmt lögmáli þjóðar sinnar.
MeiraKaupa minningabók
Jón Valmundsson fæddist í Vík í Mýrdal 9. júní 1929 og bjó þar fjölskyldu sinni heimili á Austurvegi 4. Hann lést á dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík 19. janúar 2020. Foreldrar hans voru Valmundur Björnsson, Vík, f. 4. desember 1898, d. 17.
MeiraKaupa minningabók
Maria Teresa Jover Carrera fæddist 26. ágúst 1937. Hún lést 22. janúar 2020. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
MeiraKaupa minningabók
MÓÐIR I Horfi á ljósmynd. Það er andlit móður minnar sem lýsir lengra en fjallið svarta. Hárið bærist í vindinum. Aldrei kyrrist vindurinn í hári hennar, aldrei hættir að lýsa af andliti hennar lengra en fjallið svarta. II Móðir mín er í blárri kápu.
MeiraKaupa minningabók
Níels A. Ársælsson skipstjóri fæddist á Bíldudal 17. september 1959. Hann lést á heimili sínu að Skógum, Tálknafirði, þann 14. janúar 2020. Foreldrar hans voru Ársæll Egilsson, f. 1931 á Steinanesi í Arnarfirði, d.
MeiraKaupa minningabók
Símon Oddgeirsson var fæddur í Eyvindarholti, Vestur-Eyjafjöllum, 2. desember 1927. Hann lést 17. janúar 2020. Foreldrar hans voru Þórunn Einarsdóttir frá Miðey, f. 24.10. 1889, d. 11.12. 1968, og Oddgeir Ólafsson frá Dalsseli, f. 24.5. 1891, d. 31.10.
MeiraKaupa minningabók
Gengi bréfa Eimskips lækkaði í gær um 4,76% í 89 milljóna króna viðskiptum, en rekja má ástæðu lækkunarinnar til afkomuviðvörunar sem félagið sendi frá sér í gær.
Meira
Viðtal Baldur Arnarson baldura@mbl.is Í byrjun maí er áformað að opna World Class-líkamsræktarstöð í Grósku í Vatnsmýri. Það verður 16. stöðin í keðjunni, sem stækkar ört.
Meira
Í fyrra fluttu Íslendingar út vörur fyrir 641,2 milljarða króna. Inn voru fluttar vörur fyrir 752,7 milljarða. Því var halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 111,6 milljörðum króna.
Meira
„Minn ásetningur er að vekja athygli á hvernig líf þessa fólks var í raun og veru. Þegar nútímafólk hugsar um líf alþýðufólks í fortíðinni bregður stundum fyrir fortíðarglýju; fólk vill slá rómantískum blæ á hið einfalda líf sem var til komið af því að fólk átti ekkert.“
Meira
Áslaug Ágústsdóttir fæddist 1. febrúar 1893 á Ísafirði. Foreldrar hennar voru hjónin Anna Teitsdóttir og Ágúst Benediktsson verslunarstjóri. Áslaug ólst upp á Ísafirði en missti föður sinn 1901.
Meira
Leikarinn Ray Romano hefur nú staðfest að hann komi fram í þáttunum One day at a time sem gestaleikari en þættirnir eru sýndir á stöðinni Pop TV. Ray Romano kemur fram í fyrsta þætti fjórðu þáttaraðar sem karakter að nafni Brian.
Meira
Katastaðir Sóley Ómarsdóttir fæddist 19. mars 2019 kl. 1.30. Hún vó 14½ mörk og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Halldís Gríma Halldórsdóttir og Ómar Gunnarsson...
Meira
„Flótti brast á í liðinu“ var sagt og skilst í praktískum atriðum, en samkvæmt venju brestur flótti bara í lið eða liði , ekki „á í“. Bylur brestur á og stríð brestur á .
Meira
Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Sjávarbára býsna há. Broddur skeifuhælnum á. Hörð og saman fokin fönn. Feikna öflug hákarlstönn. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Skafl er alda skelfing há. Skafl er hestajárnum á. Skafl er fönnin skafin þá.
Meira
Þó að ein umferð sé eftir hefur Sigurbjörn Björnsson tryggt sér sigur á Skákþingi Reykjavíkur 2020. Frammistaða Sigurbjörns er einkar glæsileg því hann hefur unnið allar skákir sínar, átta talsins, og m.a.
Meira
60 ára Sigurður er Ísfirðingur og rekur sorphirðufyrirtækið Kubb ásamt eiginkonu sinni. Hann situr í stjórn Skógræktarfélags Ísafjarðar. Maki : Sigríður Laufey Sigurðardóttir, f. 1972, framkvæmdastjóri Kubbs. Börn : Dagný Ósk, f.
Meira
Staðan kom upp í A-flokki MótX-skákhátíðarinnar sem stendur yfir þessa dagana í Stúkunni við Kópavogsvöll. Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2.411) hafði hvítt gegn Bárði Erni Birkissyni (2.186) . 25. Bxh6! og hvítur gafst upp enda t.d.
Meira
50 ára Þorsteinn er frá Grenivík en býr í Garðabæ. Hann er með BS-gráðu í líffræði frá HÍ og á og rekur Handverkshúsið. Hann varð Íslandsmeistari með KR í fótbolta. Maki : Lovísa Halldórsdóttir, f. 1981, gullsmiður og eigandi By Lovísa skartgripir.
Meira
Bourg-De-Péage vann dýrmætan 22:21-sigur á Chambray á útivelli í frönsku A-deildinni í handbolta í gærkvöld. Með sigrinum fjarlægðist Bourg-De-Péage fallsætin.
Meira
Eftir að nýr áratugur rann upp í tímatali sem margir jarðarbúar miða við hafa verið tínd til dæmi um íþróttafólk sem náð hefur áföngum á fjórum mismunandi áratugum.
Meira
Handbolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Sænska handknattleiksliðið Guif í Eskilstuna greindi frá því í gær að það hefði nælt í markvörðinn Daníel Frey Andrésson fyrir næsta keppnistímabil.
Meira
HK er komið upp í fjórða sæti Olísdeildar kvenna í handbolta eftir 32:28-sigur á Stjörnunni á heimavelli í fyrsta leik 14. umferðarinnar í gærkvöld. Staðan í hálfleik var 16:12. Tókst Stjörnunni að minnka muninn í eitt mark skömmu fyrir leikslok, 29:28.
Meira
Holland AZ Alkmaar – Waalwijk 4:0 • Albert Guðmundsson hjá AZ er frá keppni vegna meiðsla. B-deild: Excelsior – Breda 2:2 • Elías Már Ómarsson lék fyrstu 84 mínúturnar með Excelsior.
Meira
Tveir Íslendingar komust í úrslit í sprettgöngu á norska meistaramótinu í skíðagöngu í Konnerud við Drammen í gær. Isak Stianson Pedersen varð í 24. sæti í tímatöku í karlaflokki og Kristrún Guðnadóttir í 30.
Meira
Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með Burnley gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á morgun vegna meiðsla í læri. Jóhann varð fyrir meiðslunum í bikarleik gegn Peterborough í byrjun árs.
Meira
Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Mike Di Nunno sem varð Íslandsmeistari með KR-ingum á síðasta tímabili er kominn með félagaskipti til Vesturbæjarfélagsins á nýjan leik og er löglegur með þeim frá og með næsta leik.
Meira
Nígerski knattspyrnumaðurinn Odion Ighalo leikur með Manchester United út leiktíðina hið minnsta. Enska félagið fær hann að láni frá Shanghai Shenhua í Kína þar sem hann hefur skorað tíu mörk í sautján leikjum á tímabilinu.
Meira
Körfuknattleiksdeild Tindastóls gerði í gær nýja tveggja ára samninga við sex leikmenn meistaraflokks karla, sem og Jen Bezica, aðstoðarþjálfara liðsins.
Meira
Körfubolti Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Stjörnumenn eru komnir í kjörstöðu í Dominos-deild karla í körfubolta eftir 89:84-sigur á Njarðvík á heimavelli í 16. umferðinni í gærkvöld.
Meira
Hilmar Snær Örvarsson úr Víkingi vann sín þriðju gullverðlaun í Slóvakíu í gær á Evrópumótaröð IPC, Alþjóðaólympíuhreyfingar fatlaðra. Hilmar keppti í svigi og samanlagður tími hans eftir báðar ferðirnar var 1:50,49 mínútur.
Meira
Áhrif Fyrir um áratug, meðan þættirnir The L Word, sem fjölluðu um samkynhneigðar konur, gengu sem best í sjónvarpi, komu tvær konur á sjötugsaldri að máli við aðalleikkonuna, Jennifer Beals, á götu og þökkuðu henni fyrir innblásturinn.
Meira
Elsku Hrúturinn minn, það er ekkert annað í boði í stöðunni en að halda áfram á fullri ferð og til þess að breyta lífinu þarf oft bara eina ákvörðun, en það þarf að taka hana og standa við hana, og þú verður svo aldeilis feginn þegar þú sérð þetta og...
Meira
Í dag, laugardag 1. febrúar klukkan 13, verður opinn fræðslufundur um offitu í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar. Þar munu valinkunnir læknar og erfðafræðingar ræða offitu, erfðaþætti og fíkn. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Meira
Aldur David Coverdale, söngvari Whitesnake, rifjar upp í viðtali við ástralska rokktímaritið Heavy að hann hafi ekki gert ráð fyrir því að málmbandið kunna, sem hann setti á laggirnar árið 1978, myndi lifa lengi.
Meira
Hvað er Hringleikur? Hringleikur er hópur sirkuslistafólks sem var stofnaður fyrir tveimur árum. Mörg okkar hafa líka verið í Sirkus Íslands. Við viljum byggja upp sirkusmenningu á landinu og markmið okkar er að byggja upp breiðari sirkussenu.
Meira
Einhverjir hafa brugðið á það ráð að flytja til láglaunasvæða til að hafa það aðeins betra í ellinni. Auðvitað er það skiljanlegt. Jafnvel þótt ekki væri nema bara til að losna við endalausar lægðir í janúar.
Meira
Auðvitað á hver maður að geta iðkað þá trú eða stundað þá lífsskoðun sem hann vill. Sjálfur hef ég hins vegar viljað hafa fyrirkomulag sem dregur úr vægi trúarstofnana í hinu veraldlega lífi en styrkir jafnframt hin hófsömu og velviljuðu öfl innan trúarbragðanna.
Meira
Við hjónin vorum stödd í matarboði hjá vinahjónum okkar, í byrjun árs 2017, þegar hugmyndin um átakið „Lesið um heiminn“ kom til. Við erum öll miklir lestrarhestar og vorum oft í vandræðum með að velja næstu bók.
Meira
Það er ekki talað um annað á kaffistofum landsins en norsku sjónvarpsþáttaröðina Exit, eða Útrás eins og hún kallast á íslensku í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Þættirnir þykja sjokkerandi því þeir sýna heim sem venjulegur borgari er ekki hluti af. Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is
Meira
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðil með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausnum í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 112 Reykjavík. Frestur til að skila krossgátu 2.
Meira
Sjónvarp Senn líður að lokum hinnar vinsælu sjónvarpsþáttaraðar Homeland en áttunda og síðasta serían hefur göngu sína á Showtime um næstu helgi.
Meira
Dauði Í fyrsta viðtalinu eftir að hann upplýsti að hann hefði greinst með parkinsonsveikina viðurkennir málmgoðið Ozzy Osbourne að hann hugsi um dauðann. „Ég hugsa um hann; en ég kvíði honum ekki.
Meira
Sá hörmulegi atburður átti sér stað 30. janúar 1970 að Rúnar Vilhjálmsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, féll niður af svölum Windsor-hótelsins í útjaðri Lundúna, þar sem landsliðið dvaldist vegna vináttulandsleiks gegn Englendingum.
Meira
Elsku Nautið mitt, þú ert að fara inn í tímabil litríkra tilfinninga og þakklætis og þú munt elska af heilum hug og það myndast svo mikil dýpt og skilningur í hjarta þínu á aðstæðum þínum og þinna nánustu.
Meira
Kínverska iðnaðarborgin Wuhan er umtöluð eftir að svokölluð kórónaveira tók að sýkja íbúa og hafa margir látist. Umræðan var ljósmyndara hvatning til að taka fram filmur með myndum sem hann tók í mannmergð Wuhan fyrir nákvæmlega 20 árum. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Meira
Elsku Vogin mín, þú ert svo dásamlega gjafmild og heillandi og allt verður alveg fullkomið ef þú lærir að útiloka sífelld vandamál, erfiðleika eða hávaða annarra, þú þarft að segja nei þegar hugurinn heltekur og lamar þig af neikvæðri orku annarra.
Meira
Jean Paul Gaultier, franski fatahönnuðurinn sem hannaði hinn eina og sanna keilubrjóstahaldara Madonnu í byrjun tíunda áratugarins, kom öllum að óvörum þegar hann ákvað að hátískusýning sín í ár yrði sú síðasta.
Meira
Á þessari vetrarlegu loftmynd sést Heggstaðanes sem aðrir kalla Bálkastaðanes. Það er í Húnþingi vestra; grösugt mjög svo þar er gott sauðfjárland og á vorin liggja þar æðarkollur á hreiðrum. Einnig eru hér selalátur, sbr. örnefnið Kópavogur.
Meira
Wauchula, Flórída. AFP | Einn þeirra vann við hlið Clints Eastwoods, aðrir léku í endurgerð klassísku vísindaskáldskaparmyndarinnar Apaplánetan og einn var í uppáhaldi hjá Michael Jackson.
Meira
Pólski gyðingurinn Jozefa Stahl lifði helförina af en missti allt sitt fólk og þurfti að láta frá sér ungbarn til að freista þess að bjarga því undan nasistum; sá það ekki aftur fyrr en tæpum sextíu árum síðar.
Meira
Elsku hjartans Krabbinn minn, það er eins og þú sért að upplifa fæðingu, þú ert að ganga í gegnum tímabil þar sem þú óttast að ekkert sé að virka eins vel og þú vilt og í þessari stöðu sérðu svo miklu skýrar eitthvað nýtt eða gamalt sem þú getur breytt...
Meira
Elsku Vatnsberinn minn, það er hægt að segja með sanni að núna sé allt að gerast og þú sérð svo sannarlega Alheiminn hreyfast fyrir augunum á þér.
Meira
Elsku Ljónið mitt, ég ætla að staðhæfa það að fallegasta fólkið býr í þessu merki, það er alveg með ólíkindum hvað þið standið alltaf upp úr, þið eruð svo tindrandi og tignarleg.
Meira
Elsku Fiskurinn minn, það er eins og merkilegasta fólk í heimi fæðist í Fiskamerkinu og það eru svo margir í þessu merki sem hafa verið áhrifavaldar í mínu lífi og ég ber ómælda virðingu fyrir.
Meira
Elsku Bogmaðurinn minn, það er búið að ganga á ýmsu, en þú ert búinn að ákveða að þetta ár verði margfalt betra en í fyrra og ég get alveg skrifað undir það.
Meira
Austurríski kvikmyndaleikstjórinn Andreas Prochaska er hugfanginn að Íslandi og ætlar að gera hér kvikmynd, þar sem landið verður sýnt í réttu ljósi. Þá er hann í samstarfi við Sjón um gerð myndar, þar sem villta vestrið mætir film noir. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Elsku Sporðdrekinn minn, það er búið að vera ýmislegt að gerast í kringum þig sem þú ert ekki alveg viss um hvernig þú átt að leysa eða hvernig þú átt að haga þér.
Meira
Elsku Steingeitin mín, það er ekkert í lífinu sem kallast að eiga við ofurefli að etja þegar þú átt í hlut, þú ert eins og danska hafmeyjan, það skiptir engu máli hvaða áföll hafa dunið á henni, hún er alltaf á sínum stað og verður til eilífðar.
Meira
Það er margt sem fólk tekur upp á að gera í þágu góðs málefnis en aðdáendur kvikmyndarinnar CATS ætla að horfa á myndina í sólarhring ef þeir ná að safna 15 þúsund dollurum.
Meira
Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Bretar luku rétt fyrir miðnætti tæplega hálfrar aldar aðild að Evrópusambandinu (ESB). Urðu þeir fyrsta þjóðin til að yfirgefa sambandið og ganga á vit nýrrar en sumpart óvissrar framtíðar.
Meira
Þeir sem sýkst hafa af nýju kórónaveirunni frá Kína eru orðnir meiri en þeir sem veiktust af alvarlegu lungnabólgunni HABL (e. SARS) sem dreifði sér frá Kína til tólf ríkja árið 2003. Um 8.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.