Anna Sóley Ásmundsdóttir söngkona kemur fram á tónleikum í Björtuloftum Hörpu á sunnudagskvöld kl. 20 en þeir eru í tónleikaröðinni Velkomin heim.
Meira
Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar voru 9.618 manns án atvinnu í lok janúarmánuðar, og fjölgaði þeim um rúmlega þúsund manns frá því í lok desember 2019. Hafa ekki jafnmargir verið án atvinnu í mánaðarlok skv. tölum stofnunarinnar síðan í maí 2012.
Meira
Rok Vegfarendur í miðbæ Reykjavíkur reyndu hvað þeir gátu að komast leiðar sinnar í rokinu í gær. Hér er einn nánast að takast á loft og næsti maður tilbúinn að ná...
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Dansskólinn Bíldshöfða tók til starfa 1. febrúar síðastliðinn í sérhönnuðu húsnæði fyrir dansskóla á Bíldshöfða 10.
Meira
Öldugangurinn í Reykjavíkurhöfn var óhemjumikill í óveðrinu sem gekk yfir landið í gær. Bátarnir gengu upp og niður í takt við öldurnar og til beggja hliða í takt við vindinn líkt og um þaulæfðan dans til heiðurs veðurguðunum væri að ræða.
Meira
Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, segist í samtali við Morgunblaðið í dag ekki vera viss um að leyst hafi verið rétt úr þeim vandamálum sem leiddu til stofnunar Landsréttar.
Meira
Veðurofsinn sem gekk yfir landið í gær olli landsmönnum víða um land miklum vandræðum. Björgunarsveitum bárust rúmlega 800 útköll sem 803 björgunarsveitarmenn fóru í samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Meira
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Reykjavíkurborg hefur krafið Jöfnunarsjóð sveitarfélaga um sex milljarða króna vegna vangoldinna framlaga á árunum 2015-2018. Krafan var send fjármála- og efnahagsráðuneytinu 20.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég hef ekkert á móti því að Hæstiréttur fjalli um þetta mál. Það eina sem ég hef áhyggjur af í því sambandi er að dómurinn sem fjalli um þetta verði hlutlaust skipaður,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson, fv.
Meira
Elísabet Guðný Hermannsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 8. febrúar síðastliðinn. Hún var fædd 16. júní 1928, dóttir þeirra Guðnýjar Vigfúsdóttur (1893-1984) og Hermanns Vilhjálmssonar (1984-1967).
Meira
„Sveitarstjórnarmenn hvísla því sín á milli að þetta gæti sprengt upp samband sveitarfélaga,“ segir Bjarni Jónsson við Morgunblaðið í dag um kröfu Reykjavíkurborgar á hendur Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, en borgin vill að sjóðurinn greiði sér...
Meira
Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Hitastig á Suðurskautslandinu mældist í fyrsta sinn yfir 20 gráður á sunnudaginn. Það var veðurstöð á Seymour-eyju sem mældi 20,75 gráður, en eyjan er á 64.
Meira
Bernie Sanders, hugsanlegt forsetaefni Demókrataflokksins í Bandaríkjunum, las svokölluðum nettröllum pistilinn í gær, netnotendum sem ganga fram með gífuryrðum, rógburði og almennum leiðindum í garð annarra á lýðnetinu.
Meira
Baksvið Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Það var handagangur í öskjunni þegar veiðimenn sæbjúgna kepptust við að ná sem mestum afla í Aðalvík á Hornströndum í upphafi fiskveiðiársins.
Meira
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Undirliggjandi markmið draga frumvarps um fasteignir og fleira, sem forsætisráðherra hefur kynnt í samráðsgátt stjórnvalda, er að hindra jarðasöfnun erlendra jafnt sem innlendra einstaklinga og fyrirtækja.
Meira
Verkfallsaðgerðir allt að 18 þúsund félagsmanna BSRB sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum gætu hafist 9. mars verði verkfallsboðun samþykkt í atkvæðagreiðslu, sem stendur frá 17. til 19. febrúar. Samkvæmt upplýsingum frá BSRB mun m.a.
Meira
Iðnaðarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, tók á móti köku ársins á skrifstofu sinni í atvinnuvegaráðuneytinu í fyrradag. Höfundur kökunnar er Sigurður Alfreð Ingvarsson, bakari hjá bakaríinu Hjá Jóa Fel.
Meira
Fornleifaskráning þjóðgarðsins á Þingvöllum verður kynnt á fyrirlestri sem verður í dag, 15. febrúar, í Þjóðminjasafni Íslands og hefst klukkan 13.
Meira
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ljóst er að sauðfé hefur fækkað umtalsvert í haust. Fjöldinn er nú kominn niður í 411-412 þúsund, samkvæmt bráðabirgðatölum.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Því er haldið fram í lesendabréfi í Fiskeribladet/Fiskaren í Noregi að Íslendingar hafi lengi stundað óábyrgar veiðar á alþjóðlegum hafsvæðum og úr deilistofnum.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þessi verk eru valin á grundvelli ástandsmats. Það er farið þangað sem við teljum mestu þörfina fyrir hendi,“ segir Ámundi V. Brynjólfsson, skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er kominn virkilegur vígahugur í okkar fólk,“ segir Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
Meira
Hundruð franskra bænda gengu fylktu liði um götur Reims í Norðaustur-Frakklandi á fimmtudag og efndu til mótmælastöðu fyrir utan dómhús borgarinnar.
Meira
Teitur Árnason sigraði í slaktaumatölti í Meistaradeildinni í hestaíþróttum. Hann sat Brúneyju frá Grafarkoti og var efstur bæði í A-úrslitum og forkeppni. Keppnin fór fram í TH-höllinni hjá Fáki í Reykjavík á fimmtudagskvöldið.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Efnahagslægðin heldur áfram að birtast í atvinnuleysistölum. Nálgast fjöldi atvinnulausra nú 10 þúsund í fyrsta sinn í tæp átta ár. Vinnumálastofnun (VMST) heldur utan um fjölda fólks á atvinnuleysisskrá.
Meira
Úr bæjarlífinu Jón Sigurðsson Blönduósi „ Blönduós er helsta þjónustumiðstöð landbúnaðar og ferðamennsku á Norðurlandi vestra. Staðsett á einu stórbrotnasta bæjarstæði landsins, umvafin fallegri náttúru.
Meira
Í frétt í Morgunblaðinu í dag eru sögð þau válegu tíðindi að atvinnuleysi nálgist nú 10.000 manns og að það hafi ekki náð slíkum hæðum frá því árið 2012. Þá bætir ekki úr skák að aukningin er mjög hröð, sem sést af því að fjölgun atvinnulausra í janúar var um eitt þúsund.
Meira
Skýrsla Borgarskjalasafns Reykjavíkur um skjalavörslu í tengslum við Braggann í Nauthólsvík var birt í fyrradag. Athygli vekur að skýrslan er dagsett 20. desember og var þá send borgarstjóra. Þetta þýðir að nær tveir mánuðir liðu frá því að borgarstjóri tók við skýrslunni og þar til að hún var birt. Sá seinagangur rímar vel við annað í Braggamálinu, meðal annars allt utanumhald um upplýsingar því tengdar.
Meira
Því er haldið fram að fólk sé hætt að lesa bækur. Þetta er orðalag um að fólk hafi dregið úr bóklestri, og er þá iðulega átt við bækur í hinu hefðbundna formi.
Meira
Andríki fjallaði á dögunum um ráðningar hins opinbera og rifjaði upp að nýverið hefðu bæði borg og ríki samið um „háar greiðslur við umsækjendur um starf borgarlögmanns og þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum. Ekki þó um laun fyrir sjálft starfið heldur um milljónir í bætur fyrir að hafa ekki verið ráðnir til starfans. Í bæði skiptin hafði kærunefnd jafnréttismála talið að brotið hefði verið á umsækjendum.“
Meira
Eins og þessar sjálfspilandi stiklur á Netflix, sem mér skilst reyndar að nú sé hægt að slökkva á, eru óþolandi þá voru þær heldur til góðs síðastliðið föstudagskvöld þegar ég opnaði aðganginn minn, sem ég borga að sjálfsögðu ekki fyrir sjálf, og hófst...
Meira
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Um leið og ég las bókina varð ég gagntekin af henni, enda sterk samtímasaga sem er að takast á við spennandi viðfangsefni.
Meira
Brynhildur Guðjónsdóttir hefur verið ráðin leikhússtjóri Borgarleikhússins. Hún hefur yfir tuttugu ára reynslu sem leikari, höfundur, listrænn ráðunautur og leikstjóri.
Meira
Tónlistarkonurnar Hulda Jónsdóttir fiðluleikari og Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari halda tónleika í Norðurljósasal Hörpu á sunnudag kl. 16. Eru þeir á dagskrá tónleikaraðarinnar Sígildir sunnudagar.
Meira
Myndlistarkonan Laufey Arnalds Johansen hefur opnað sýningu á verkum eftir sig í verslunarrými á 2. hæð Kringlunnar, við hliðina á verslun Nova, og mun hún standa yfir í nokkrar vikur.
Meira
Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Tónlistarmaðurinn Ásgeir, fullu nafni Ásgeir Trausti Einarsson, sendi í byrjun febrúar frá sér nýja plötu í tveimur útgáfum, aðra á ensku og hina á íslensku.
Meira
Leikstjórn: Cathy Yan. Handrit: Christina Hodson. Aðalleikarar: Margot Robbie, Rosie Perez, Mary Elizabeth Winstead, Jurnee Smollett-Bell, Ewan McGregor og Ella Jay Basco. Bandaríkin og Bretland, 2020. 109 mín.
Meira
Hin margreyndu söngvarar Anna Sigríður Helgadóttir og Gísli Magna Sigríðarson koma fram á tónleikum í Háteigskirkju í dag, laugardag, kl. 17. Um er að ræða tónleika í röð til styrktar orgelsjóði Háteigskirkju.
Meira
Ein sýning nema í meistaranámi í myndlistardeild Listaháskóla Íslands var opnuð í gær, föstudag, og önnur verður opnuð í dag. Hugo Llanes opnaði í gær sýninguna Monumental í Kubbnum í húsnæði LHÍ á Laugarnesvegi 91.
Meira
Átta af tíu höfundum sem tilnefndir eru til Viðurkenningar Hagþenkis kynna verk sín í Borgarbókasafninu, Grófinni, í dag. Dagskráin hefst kl. 13 og stendur til 14.30. Hver höfundur hefur tíu mínútur til að kynna verk sitt.
Meira
Eftir Halldór S. Magnússon: "Alvarlegast er þó að bankastjórn Landsbanka Íslands freistar þess að telja þjóðinni trú um að með þessum hætti sparist stórar fjárhæðir."
Meira
Franski rithöfundurinn Frédéric Bastiat er einn snjallasti talsmaður viðskiptafrelsis fyrr og síðar. Ein ritgerð hans heitir „Það, sem við sjáum, og það, sem við sjáum ekki.“ Þar bendir hann á, að athafnir okkar hafa margvíslegar...
Meira
Eftir Jón Sveinsson: "Það þarf varla að taka fram að árlegur kostnaður af notkun þessa kerfis er hverfandi miðað við þau útgjöld sem nú eru í gangi."
Meira
Vindurinn gnauðar og ólmast, það hvín í trjánum og sjórinn gengur á land – og þá er gott að kúra inni og íhuga orðin sem ná utan um veðurhaminn. Óveður, illviðri, aftakaveður, rosi, foráttuveður, manndrápsbylur, stormur og öskurok.
Meira
Eftir Sigurþór C. Guðmundsson: "Öll aðstaða á stofnuninni miðast við að dvalargestir geti fundið aðhlynningu við sitt hæfi og eru sérfræðingar til ráðgjafar fyrir hvern og einn."
Meira
Eftir Pál Ægi Pétursson: "Það er ekki eðlilegt fyrir sjálfstætt og fullvalda eyríki að ekki eitt einasta flutningaskip sé í millilandasiglingum undir þjóðfána okkar."
Meira
Eftir Jón Gunnarsson: "Nú er tímabært að þau verkefni sem að þessu lúta og fullyrða má að mörg hver snerti þjóðaröryggi, fái flýtimeðferð í stjórnkerfinu."
Meira
Eftir Örn Þórðarson: "Vont er þegar lítið eða ekkert er hlustað á áhyggjur borgarbúa, sérstaklega þegar mikið og fjálglega er talað um íbúasamráð og íbúalýðræði."
Meira
Við endurreisn þjóðríkisins var Íslendingum afar mikilvægt að landið væri stjórnarfarslega sjálfstætt. Árið 1919 tóku Íslendingar æðsta dómsvald þjóðarinnar í sínar hendur og Hæstiréttur Íslands tók til starfa 16. febrúar 1920.
Meira
Ásmundur S. Guðmundsson fæddist 16. október 1937 að Auðstöðum í Hálsasveit og ólst þar upp. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 26. janúar 2020.
MeiraKaupa minningabók
Gerður Guðbjörnsdóttir fæddist 29. nóvember 1931 að Reykjum í Hrútafirði. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Fellaskjóli, Grundarfirði, 2. febrúar 2020. Foreldrar hennar voru Guðbjörn Benediktsson, f. 29. ágúst 1898, d. 20.
MeiraKaupa minningabók
Hanna Björg Felixdóttir var fædd í Reykjavík 23. júlí 1929. Hún andaðist í Sóltúni í Reykjavík 12. janúar 2020. Foreldrar Hönnu voru Felix Jónsson yfirtollvörður, f. 26. apríl 1895, d. 29. mars 1978 og k.h. Guðmunda Jóhannsdóttir, f. 28. mars 1898, d....
MeiraKaupa minningabók
Kristinn Jón Reynir Kristinsson fæddist í Reykjavík 2. október 1937. Hann lést á Landspítalanum 7. febrúar 2020. Foreldrar hans voru Svava Árnadóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 16.4. 1914, d. 17.11.
MeiraKaupa minningabók
Ósk Ásgeirsdóttir fæddist 6. október 1946 í Naustakoti á Vatnsleysuströnd. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 5. febrúar 2020. Foreldrar Óskar voru Guðríður Gísladóttir og Ásgeir Júlíus Ágústsson.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Sigríður Geirsdóttir fæddist 29. maí 1938 í Reykjavík. Hún lést 1. febrúar 2020. Foreldrar Geir Stefánsson stórkaupmaður, f. 22. júní 1912 á Vopnafirði, d. 25. maí 2001, og kona hans Birna Hjaltested, f. 4. apríl 1904 í Reykjavík, d. 19.
MeiraKaupa minningabók
Sigurjón Ragnarsson fæddist í Hafnarfirði 16. júlí 1929. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 12. janúar 2020. Foreldrar hans voru Guðrún Guðmundsdóttir frá Skáholti í Reykjavík, húsfreyja, f. 7. nóvember 1899, d. 29.
MeiraKaupa minningabók
Fasteignafélagið Eik hagnaðist um 2.968 milljónir króna í fyrra. Jókst hagnaðurinn um 396 milljónir frá árinu 2018. EBITDA nam 5.562 milljónum og jókst um 344 milljónir milli ára. Leigutekjur jukust talsvert og námu 7.393 milljónum, samanborið við 6.
Meira
Strætó bs. hefur sett af stað nafnasamkeppni um nýtt rafrænt greiðslukerfi. Fyrirmynd kerfisins er þekkt í almenningssamgöngum um allan heim þar sem kort eða farsími er settur upp við skanna þegar fargjaldið er greitt í vagninum.
Meira
Langt er í land að fjármögnun Háskóla Íslands og annarra hérlendra háskóla standist samanburð við fjármögnun háskóla á hinum löndunum á Norðurlöndum.
Meira
Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Sala nýrra tengiltvinn- og tvinnbíla verður bönnuð í Bretlandi frá og með árinu 2035, til að draga úr sótspori landsins.
Meira
Hagnaður Skeljungs í fyrra eftir skatta nam 1.409 milljónum króna og dróst saman um tæp 11% frá fyrra ári þegar hagnaðurinn nam 1.573 milljónum. Arðsemi eigin fjár var 15$ og lækkaði úr 19% frá fyrra ári.
Meira
Sjávarútvegsfyrirtækið G.Run í Grundarfirði fékk Forvarnaverðlaun VÍS á ráðstefnu sem tryggingafélagið hélt nú í vikunni. G.Run, sem er rótgróið fjölskyldufyrirtæki, er bæði í veiðum og vinnslu á bolfiski.
Meira
Ull er gull! Svo miklu meira en bara lopi. Ferðast má um áhugaverða ullarstaði austanfjalls þar sem fólk litar, prjónar og spinnur – og skapar fegurstu flíkur og nytjamuni.
Meira
Vetraráskorun Crean, samstarfsverkefni írskra og íslenskra skáta, stendur yfir þessa dagana og um sl. helgi tóku íslensku þátttakendurnir þátt í útilífsnámskeiði í nágrenni Akureyrar. „Íslenski hópurinn er vel undirbúinn.
Meira
Guðmundur Kjartansson og Dagur Ragnarsson eru jafnir í efsta sæti þegar ein umferð er eftir í A-flokki Skákhátíðar MótX sem staðið hefur yfir frá janúarbyrjun en teflt hefur verið einu sinni í viku í Stúkunni á Kópavogsvelli.
Meira
Heimildarmaður greindi frá því að dögunum að Harry Bretaprins hefði farið í meðferð til að hylja skallann á sér. Sagt er að prinsinn sé með áhyggjur af hárvextinum og hafi farið í meðferðir til að gera hárið á hvirflinum þykkara.
Meira
Sigurður Sæmundsson fæddist 15. febrúar 1950 í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hann var í sveit í nokkur sumur hjá móðurbróður sínum á Hóli á Tjörnesi.
Meira
„Hvað heitir það þegar maður trommar með puttunum á borðið?“ Ja, maður getur vel haldið áfram að tromma : „berja létt, taktföst högg“, með puttunum, blýanti eða öðru.
Meira
40 ára Rakel er fædd í Óðinsvéum, Danmörku, ólst upp í Reykjavík og Reykjanesbæ og býr í Reykjanesbæ. Hún er grunnskólakennari að mennt og kennir íslensku sem annað mál í Njarðvíkurskóla og er verkefnastjóri yfir því. Maki : Gunnlaugur Kárason, f.
Meira
Reykjavík Sara Rós Smáradóttir fæddist 14. desember 2019 kl. 11.37. Hún vó 3.700 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Hugrún Lind Júlíusdóttir og Smári Jón Hauksson...
Meira
Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Prakkarar það gjarnan gera. Gata mun sú í Köben vera. Yfir það stundum ýmsir fara. Ég ætla að halda mínu bara.
Meira
Sigsteinn Pálsson fæddist í Tungu í Fáskrúðsfirði 16. febrúar 1905. Hann var sonur hjónanna Elínborgar Stefánsdóttur og Páls Þorsteinssonar, bónda og hreppstjóra í Tungu. Eiginkona Sigsteins var Helga Magnúsdóttir, f. 1906, d. 1999.
Meira
50 ára Benedikt fæddist í Reykjavík, ólst upp á Núpi á Berufjarðarströnd en býr í Grafarvogi í Reykjavík. Hann er stofnandi, framkvæmdastjóri og eigandi Sendibíla Reykjavíkur ehf. sem var stofnað árið 2001. Benedikt er mikill útivistarmaður.
Meira
EM 2020 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eftir fjörutíu daga er komið að lokaslagnum um sæti í lokakeppni Evrópumóts karla í fótbolta þegar Rúmenar mæta á Laugardalsvöllinn fimmtudagskvöldið 26. mars.
Meira
Körfubolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Úrslitin ráðast í Geysisbikarnum í körfuknattleik í Laugardalshöllinni í dag. Úrslitaleikur karla á milli Stjörnunnar og Grindavíkur fer fram klukkan 13.30 og klukkan 16.
Meira
Enska knattspyrnufélagið Manchester City má ekki leika í Meistaradeild Evrópu á næstu tveimur árum vegna brota á fjárhagsreglum UEFA. Þá var félagið sektað um 30 milljónir evra.
Meira
Valur minnkaði forskot Fram á toppi Olísdeildar kvenna í handbolta niður í eitt stig með öruggum 32:22-sigri á Aftureldingu á heimavelli í gærkvöldi.
Meira
Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í handknattleik, var í gær útnefndur leikmaður 11. umferðar í Meistaradeild Evrópu. EHF, Handknattleikssamband Evrópu, stendur fyrir valinu.
Meira
Spánn Bikarkeppnin, undanúrslit: Unicaja Málaga – Zaragoza 90:86 • Tryggvi Snær Hlinason skoraði 2 stig og tók 4 fráköst á 12 mínútum með Zaragoza.
Meira
Morgunblaðið leitaði til Einars Árna Jóhannssonar, þjálfara Njarðvíkur, til að spá í spilin fyrir úrslitaleik karla. Einar segir að í ljósi frammistöðunnar í vetur sé Stjarnan að sjálfsögðu sigurstrangleg.
Meira
Undanfarna tvo daga hef ég rætt við tvær nýjustu landsliðskonur Íslands í fótbolta. Annars vegar Natöshu Anasi og hins vegar Berglindi Rós Ágústsdóttur. Birtust viðtöl mín við þær báðar á mbl.is.
Meira
Wolves og Leicester skildu jöfn, 0:0, er þau mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi. Stigið nægði Wolves til að fara upp fyrir Everton og Manchester United og í 7. sæti. Leicester mistókst hins vegar að komast upp fyrir Man.
Meira
Hver ert þú? Ég heiti Stefanía Sigurdís og er mikill femínisti og baráttukona. Þessa dagana er ég að fara með fyrirlestra í grunnskóla og menntaskóla um femínisma og stöðu jafnréttis á Íslandi.
Meira
Málmur Steve Harris, bassaleikari Iron Maiden, viðurkennir í viðtali við hlaðvarpið SiriusXM að breska bárujárnsbandið hafi verið undir miklu álagi þegar það gerði sína þriðju breiðskífu, The Number of the Beast, árið 1982.
Meira
Hægri fóturinn var tekinn af Ásgeiri Guðmundssyni, flugstjóra og veiðimanni, fyrir neðan hné í nóvember, vegna þrálátrar sýkingar og blóðeitrunar.
Meira
Ljósmyndarinn Gígja Einarsdóttir er bóndadóttir af Mýrunum. Hún er alin upp eins og indíánastelpa og segir það mikil forréttindi að geta týnt sér í náttúrunni án þess að fólk væri að spá í hvar hún væri niðurkomin. Elínrós Líndal elinros@mbl.is
Meira
Berglind Halla Elíasdóttir er með töffaralegan og klassískan fatastíl. Berglind Halla sækir innblástur að fatavali sínu víða, meðal annars í leikhúsið en hún útskrifaðist sem leikkona frá Listháskóla Íslands síðastliðið vor. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is
Meira
Í áratugi hafa símaframleiðendur keppst við að sýna okkur nýjar útgáfur síma sem búa yfir endingarbetri rafhlöðu, stærri skjá eða betri myndavél; nokkuð sem neytendur hafa kallað eftir. Minna hefur heyrst í röddum að kalla eftir símum sem hægt er að brjóta saman. Þá er bara spurning hvort neytandinn bíti á agnið; viljum við hverfa aftur til samlokusímans, eða breyttrar myndar af honum?
Meira
Leikarar og annað sviðslistafólk trúir því sumt að það boði ógæfu að óska því góðs gengis áður en haldið er á svið. Allnokkur hjátrú virðist vera í leikhúsum t.d.
Meira
Hollenski listhönnuðurinn, kvikmyndagerðarmaðurinn og ljósmyndarinn Martie Dekkers kom hingað fyrst árið 1986 til að mynda íslensk ungmenni fyrir evrópska vetrartísku. Ein fyrirsætanna var Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona sem þá var tólf ára.
Meira
Morgunblaðið spurði áleitinnar spurningar um miðjan febrúar 1960: Eru íslenskar stúlkur þrælar tískunnar? Til að leita svara sneri blaðið sér til þriggja „blómarósa í höfuðborginni“.
Meira
Mikilvægt í þessu samhengi er að vera ekki hræddur við að gera mistök. Allir þeir sem hafa náð góðum árangri hafa gert fjölda mistaka á leiðinni.
Meira
Dr. Kristín Haraldsdóttir gerði í fyrra tíu hlaðvarpsþætti um líf og sjálfsmynd íþróttafólks í Bandaríkjunum eftir að það hættir keppni og á þessu ári munu sextán þættir bætast við. Hún segir viðtökur góðar enda tengi margir við efnið. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Kisueigendur tala gjarnan við ketti sína sem svara þá oft með mjálmi. Heimiliskettir tjá sig á þennan hátt og má oft heyra hátt mjálm þegar svengdin segir til sín, komast þarf inn eða út eða fiskurinn er að sjóða og óþolinmæðin gerir vart við sig.
Meira
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðil með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausnum í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 112 Reykjavík. Frestur til að skila krossgátu 16.
Meira
Dýpt „Enda þótt maður gefi frá sér stjórnina, þá er maður ennþá við stjórnvölinn,“ segir franska söngkonan Jehnny Beth í hressilegu samtali við breska blaðið The Guardian. „Maður getur hrætt sjálfan sig án þess að hljóta af því skaða.
Meira
En hvað er til ráða í þjóðfélagi sem lætur örfáa einstaklinga ráðskast með auðlindir sínar, skattaskjól eru nánast eins og annað heimili auðmanna landsins svo þeir fái komist hjá því að leggja sitt af mörkum við rekstur samfélagsins og standa fyrir...
Meira
Karlotta H. Margrétardóttir, hársnyrtir og förðunarfræðingur, á yfir 100 tegundir af förðunarvörum í töskunni sinni. Hún leggur áherslu á að hreinsa húðina vel og segir einn hluta þess að líta vel út vera að huga að andlegri og líkamlegri heilsu líka. Elínrós Líndal elinros@mbl.is
Meira
„Ekkert vopn er sterkara en þitt eigið fordæmi,“ segir Pepijn Lijnders, hinn hollenski aðstoðarþjálfari Liverpool, í viðtali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins og bætir við að samheldnin sé öðru fremur lykillinn að einstökum árangri liðsins að...
Meira
Svo er hitt að það eru ekki allir jafn skemmtilegir sem maður þarf að tala við. Erindið getur líka verið þess eðlis að það sé hreinlega betra að skrifa en tala.
Meira
Þar sem Forlagið bauð mér sæti í dómnefnd Íslensku barnabókaverðlaunanna annað árið í röð er ég aðallega að lesa handrit að barna- og ungmennabókum þessa dagana.
Meira
Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir fræðir ungmenni um stöðu kynjanna. Norðurorka styrkir verkefnið. Finna má hlaðvarpið hennar á Spotify undir Vaknaðu og á instagram á...
Meira
Fáar brýr á landinu eru jafn svipsterkar og sú sem hér sést á mynd. Hún var reist árið 1949 og kom þá tilsniðin til landsins frá stálsmiðju í Bretlandi. Brúin er við hringveginn, er yfir lengstu á landsins og var í notkun til 2003. Yfir hvaða á er...
Meira
Streð Bandaríska leikkonan Lizzy Caplan viðurkennir í viðtali við breska blaðið The Independent að ekki hafi alltaf verið auðvelt að fá hlutverk í kvikmyndum eða sjónvarpi.
Meira
Sjónvarp Tommy Lee, trommuleikari glysmálmbandsins Mötley Crüe, mun – og haldið ykkur nú fast! – leika háskólaprófessor í væntanlegum þætti úr bandarísku gamanseríunni the Goldbergs.
Meira
Stiklað er á stóru um aðdraganda stofnunar Hæstaréttar, auk þess sem fjallað er um athöfnina hinn 16. febrúar 1920, þegar fyrsta þinghald fór fram í...
Meira
Morgunblaðið fékk fjóra fulltrúa hinna ýmsu þátta lögfræðinnar til þess að rita heillaóskir og afmælishugvekjur í tilefni af hundrað ára afmæli...
Meira
Þorgeir Örlygsson, forseti Hæstaréttar, ræddi við Morgunblaðið um feril sinn og framtíð réttarins eftir að hann varð að fordæmisgefandi dómstól árið...
Meira
Guðrún Erlendsdóttir, fyrrverandi hæstaréttardómari, var fyrsta konan til að taka sæti sem dómari við Hæstarétt. Hún segir hina dómarana hafa tekið sig fljótt í sátt og að Hæstiréttur verði áfram traust stoð...
Meira
Morgunblaðið ræddi við Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseta Hæstaréttar, í tilefni af hundrað ára afmælinu, og var farið yfir feril hans í dómnum, þar sem hann sat í rúmlega 25 ár og dæmdi í tæplega 5.000...
Meira
Sjö dómarar sitja nú í Hæstarétti Íslands á hundrað ára afmælinu Þorgeir Örlygsson er forseti réttarins. Hann er fæddur 1952 og var skipaður hæstaréttardómari frá 1. september 2011. Hann tók við forsetaembættinu af Markúsi Sigurbjörnssyni hinn 1.
Meira
Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, lét af störfum í október síðastliðnum eftir að hafa starfað sem hæstaréttardómari í rúm 25 ár. Á þeim tíma dæmdi Markús í 4.885 málum.
Meira
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Þorgeir Örlygsson er núverandi forseti Hæstaréttar og hefur gegnt því embætti frá árinu 2017. Hann segir komu Landsréttar hafa styrkt réttarfar í landinu og að nýtt tímabil í réttarsögunni hafi hafist árið 2018.
Meira
Eftir Hervöru Þorvaldsdóttur, forseta Landsréttar Hæstiréttur Íslands fagnar aldarafmæli sínu og það er full ástæða til þess að samfagna réttinum á þessum miklu tímamótum. Íslenskt þjóðfélag hefur tekið stakkaskiptum á starfstíma réttarins.
Meira
Eftir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra Í þjóðfrelsisbaráttu Íslendinga á 19. öld var ein krafan sú að æðsta dómsvaldið yrði flutt til landsins. Það var eðlileg og rökrétt krafa.
Meira
Eftir Aðalheiði Jóhannsdóttur, forseta lagadeildar Háskóla Íslands Þegar Lagaskólinn var stofnaður á Íslandi árið 1908 náðist fram langþráð takmark og baráttumál sem var samofið sjálfstæðisbaráttu Íslendinga allt frá miðri 19.
Meira
Í nær sextíu ár hefur Guðrún Erlendsdóttir sinnt störfum á sviði laga og dómsmála. Hún var fimmta konan sem lauk lögfræðiprófi á Íslandi og fyrst kvenna til að taka sæti í Hæstarétti.
Meira
Stofnun Hæstaréttar hinn 16. febrúar 1920 markaði tímamót í réttarsögu þjóðarinnar. Í tilefni af hundrað ára afmæli réttarins hefur Morgunblaðið fengið nokkra valinkunna lögfræðinga af hinum ýmsu sviðum til þess að rita kveðjur og afmælishugvekju til Hæstaréttar og eru þær birtar hér.
Meira
Hinn 16. febrúar 1920, kl. eitt eftir hádegi, átti sér stað ein merkasta stund í sögu Íslands, þegar Hæstiréttur var settur í fyrsta sinn. Hér verður stiklað á stóru um aðdraganda þess viðburðar sem og hina hátíðlegu stund sem þar fór fram.
Meira
Morgunblaðið hefur fylgt Hæstarétti allt frá stofnun hans 16. febrúar 1920 og mun gera áfram. Fyrsta myndin sem til er úr réttinum birtist í Morgunblaðinu í júní 1920. Myndina má sjá á blaðsíðu 10 í þessu riti, en hana tók Magnús Ólafsson.
Meira
Hér er upptalning á öllum fyrrverandi dómurum Hæstaréttar ásamt skipunartíma þeirra. Dómurum hefur verið raðað eftir því hvenær þeir voru fyrst skipaðir og hversu lengi þeir sátu.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.