Alls hafa nú 24 sýni verið rannsökuð af sýkla- og veirufræðideild Landspítalans vegna viðbúnaðar gegn kórónuveirunni COVID-19. Reyndust þau öll neikvæð.
Meira
Um 7.900 manns höfðu í gærkvöldi skrifað nafn sitt á undirskriftalista Hollvinasamtaka Elliðaárdals og mótmælt breytingum á deiliskipulagi við Stekkjarbakka í Reykjavík.
Meira
„Vinsældir Arnaldar í Frakklandi hafa verið og eru með algerum ólíkindum. Það er magnað að sjá viðtökurnar í hvert sinn sem ný bók er gefin út,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins.
Meira
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Angela Merkel Þýskalandskanslari fordæmdi í gær „eitur“ rasisma og haturs, eftir að níu manns voru skotnir til bana í þýsku borginni Hanau í fyrrakvöld.
Meira
Verkföll BSRB sem ná til um 15.400 manns sem sinna í almannaþjónustu hefjast 9. mars náist samningar ekki fyrir þann tíma. Alls 87,6% þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslu samþykktu boðun verkfalls og lágu niðurstöður fyrir undir hádegi í gær.
Meira
Einn farþegi slasaðist lítils háttar í fjögurra bíla árekstri í Melasveit milli Akraness og Borgarness í fyrrakvöld. Hann dvelur nú á Heil-brigðisstofnun Vesturlands á Akranesi.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hrygningar- og uppeldissvæði fyrir lax í Hítará á Mýrum skertust um tæplega 34% við berghlaupið sem féll úr Fagraskógarfjalli í byrjun júlí 2018 og stíflaði farveg Hítarár. Einnig lokuðust veiðistaðir.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vinnumálastofnun gaf í fyrra út 1.427 leyfi til að fara í atvinnuleit til EES-landa í allt að þrjá mánuði og fá atvinnuleysisbætur greiddar frá Íslandi á meðan.
Meira
Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Sandgerðisbótar sem í felst að bætt er við íbúðarhúsalóð á svæði þar sem húsið Byrgi stendur.
Meira
Tónlistarkonan Adda kemur fram á tónleikum í menningarhúsinu Mengi við Óðinsgötu í kvöld og hefjast þeir klukkan 21. Adda er sögð spila tónlist sem á sér rætur í hetju- og andhetjuleiðangri hennar um innra landslag sjálfsins.
Meira
Karlmaður var handtekinn í verslun úrsmiðsins Georgs V. Hannah í Reykjanesbæ í hádeginu í gær eftir að hafa reynt að ræna búðina. Samkvæmt upplýsingum mbl.
Meira
Þótt daginn sé vel farið að lengja er enn víða kuldalegt yfir að líta svo hafa þarf hesta á húsi. Margir hestamenn sleppa klárunum þó út yfir daginn og gefa tugguna þar.
Meira
Baldur Arnarson Þorsteinn Ásgrímsson Willum Þór Þórsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, segir að með örvandi aðgerðum og arðbærum innviðafjárfestingum geti ríkissjóður brugðist við efnahagslægðinni og um leið stuðlað að aukinni spurn eftir...
Meira
Dregið hefur úr landrisi við fjallið Þorbjörn í Grindavík en landið rís enn. Í gær mældist landrisið um 5 sentimetrar frá því jarðskjálftahrinan hófst í janúar. Jarðskjálftavirkni mælist enn á Reykjanesi. Færri skjálftar eru þó við Grindavík.
Meira
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þótt tjón á innviðum samfélagsins hafi verið mun minna í febrúaróveðrinu en óveðrinu í desember lítur út fyrir að meira tjón hafi orðið hjá einstaklingum í febrúar.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Skattframtöl ársins 2019 bera vitni um mikinn uppgang árið 2018. Þetta kemur fram í yfirliti Páls Kolbeins rekstrarhagfræðings í Tíund, blaði Ríkisskattstjóra.
Meira
Ef gefa á hagkerfinu innspýtingu til að sporna gegn samdrætti í efnhagslífinu er mikilvægt að velja fjárfestingarverkefni sem skila samfélaginu raunverulegum arði.
Meira
Stjórnmálaskýrendur vestanhafs eru flestir á því að Michael Bloomberg, fyrrverandi borgarstjóri New York-borgar, hafi komið illa undan kappræðum forsetaefna Demókrataflokksins, sem fram fóru í Las Vegas í Nevada-ríki í fyrrinótt.
Meira
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) efna til opins fundar um gagnsæi í sjávarútvegi miðvikudaginn 26. febrúar. Fundurinn markar upphaf fundaraðar SFS, Samtal um sjávarútveg, en fjórir fundir verða haldnir.
Meira
Fastafulltrúi Íslands hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) gagnrýndi á fundi í Genf í vikunni að Evrópusambandsríkin legðu tolla á íslenskan fisk á meðan önnur ríki fengju tollfrjálsan aðgang fyrir sínar sjávarafurðir.
Meira
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til næstu 5 ára. Jóhanna Fjóla hefur gegnt embætti forstjóra stofnunarinnar um skeið.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Íslenska kokkalandsliðið kom gulli slegið til landsins síðdegis í gær eftir frækilegan árangur á Ólympíuleikum matreiðslumanna í Stuttgart í Þýskalandi um helgina.
Meira
Gjaldfærni Sorpu bs. er alltaf tryggð þó að til þess geti komið að sveitarfélögin sem að fyrirtækinu standa geti þurft að leggja því til fjármuni svo reksturinn haldist gangandi.
Meira
Ekki höfðu borist margar kvartanir í gær vegna skorts á sorphirðu í Reykjavík, að sögn Sigríðar Ólafsdóttur, rekstrarstjóra sorphirðu hjá Reykjavíkurborg. Sorp er ekki hirt vegna verkfalls Eflingar.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Nemendur 8. og 9. bekkjar Réttarholtsskóla eru boðaðir á fundi í skólanum kl. 10 og 11 í dag. Þar munu umsjónarkennarar kynna hvernig fyrirkomulag kennslu verður.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fyrstu niðurstöður Hafrannsóknastofnunar og fimm veiðiskipa í loðnumælingum í vikunni hafa dregið úr líkum á ráðgjöf um að heimila loðnuveiðar. Reyndar hefur minna mælst en í leiðangri í byrjun mánaðarins.
Meira
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur snúið aftur úr tónleikaferð um Bretland þar sem hún kom fram á átta tónleikum við mjög góðar viðtökur. Sveitin heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu í kvöld, föstudag, undir stjórn hins finnska Hannu Lintu.
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Myndlistarmaðurinn Guðjón Ketilsson hlaut í gær Íslensku myndlistarverðlaunin 2020 fyrir sýningu sína Teikn sem haldin var í fyrra í Listasafni Reykjanesbæjar.
Meira
Gunnar Kvaran sellóleikari og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari halda tónleika í Hannesarholti á sunnudaginn kemur kl. 16 til heiðurs John A. Speight vegna 75 ára afmælis hans í næstu viku.
Meira
Skáldsagan Lifandilífslækur eftir Bergsvein Birgisson og smásagnasafnið Kláði eftir Fríðu Ísberg hafa verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2020 fyrir Íslands hönd. Þetta var tilkynnt í gær.
Meira
Góðir sakamálaþættir hitta alltaf í mark. Á Stöð2 er verið að sýna bresku sakamálaþættina Silent Witness, sem fjalla um liðsmenn réttarrannsóknardeildar lögreglunnar í London sem kölluð er til þegar morð hafa verið framin.
Meira
The Brogan Davison Show nefnist sýning sem sviðslistahópurinn Dance for me sýnir í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20. Höfundur og flytjandi er Brogan Davison en um dramatúrgíu sá Pétur Ármannsson.
Meira
Tríó Rebekku Blöndal kemur fram á djasstónleikum í Friðheimum í Reykholti í kvöld, föstudagskvöld, og hefjast þeir kl. 20. Í tilkynningu segir að tónleikarnir verði á ljúfum og notalegum nótum.
Meira
Dýraverndunarsamband Íslands hefur mörg undanfarin ár verið spurt að því hvort ekki ætti að skylda útigangshrossaeigendur til að reisa þeim skjólveggi, hólfaða og með þaki vegna úrkomu sem frýs oft á baki hestanna og myndast þá kýli með vondum...
Meira
Eftir Björn Bjarnason: "Landfræðilega og pólitískt á ógnarmyndin sem norska leyniþjónustan dregur upp af umsvifum Rússa beint erindi við Íslendinga."
Meira
Eftir Auðbjörgu Reynisdóttur: "Öryggi sjúklinga verður til í samvinnu okkar allra með heilbrigðisstarfsmönnum og við verðum að taka virkan þátt í því."
Meira
Karl Gauti Hjaltason: "Flestir þeirra sem hafa notið þjónustu leigubifreiða hér á landi vita að þeir geta treyst bæði bílstjórunum og bifreiðum þeirra. Ef eitthvað kemur upp á geta þeir leitað til stöðvarinnar og borið upp erindi sín eða kvartanir, t.d."
Meira
Bára Ágústsdóttir fæddist í Grindavík 7. ágúst 1940. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík 10. febrúar 2020, eftir skammvinn veikindi. Foreldrar Báru voru Matthildur Sigurðardóttir húsmóðir, f. á Akrahóli í Grindavík 1. júní 1914, d. 10.
MeiraKaupa minningabók
Gísli Ragnar Sigurðsson fæddist í Reykjavík 19. september árið 1943. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 9. febrúar 2020. Foreldrar hans voru Sigurður Elías Eyjólfsson, f. 1911, d. 2004 og Ragnhildur Sigurjónsdóttir, f. 1918, d. 2009.
MeiraKaupa minningabók
Guðríður Árnadóttir fæddist í Reykjavík 22. október 1930. Hún andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 14. febrúar 2020. Foreldrar Guðríðar voru Sigurborg Þórkatla Jóhannesdóttir húsmóðir, f. 7. sept. 1894 á Brimilsvöllum, Snæfellsnesi, d. 23.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Jónasson fæddist á Rifkelsstöðum í Eyjafjarðarsveit 16. ágúst 1939. Hann andaðist á Sjúkrahúsi Akureyrar 11. febrúar 2020. Hann var sonur hjónanna Þóru Kristjánsdóttur og Jónasar Halldórssonar. Systkini hans eru Marselína, f. 1933, Kristján, f.
MeiraKaupa minningabók
Hjálmar Freysteinsson fæddist í Vagnbrekku í Mývatnssveit 18. maí 1943. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 6. febrúar 2020. Foreldrar hans voru Freysteinn Jónsson, f. 17. maí 1903, d. 24. júní 2007, og Guðbjörg Helga Hjálmarsdóttir, f. 5.
MeiraKaupa minningabók
Júlíus G. Bjarnason fæddist í Reykjavík 20. september 1939. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. febrúar 2020. Foreldrar Júlíusar voru frá Suðurnesjum, þau Ragnheiður Þóra Kristín Eiríksdóttir, f. 8. mars 1915, d. 5.
MeiraKaupa minningabók
Margrét Jóna Jónasdóttir fæddist í Vetleifsholti í Ásahreppi 15. nóvember 1927. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð 14. febrúar 2020. Foreldrar hennar voru hjónin Jónas Kristjánsson, f. 19.5. 1894 í Stekkholti, Biskupstungum, d. 4.12.
MeiraKaupa minningabók
Óskar Veturliði Grímsson fæddist 11. apríl 1934 í Kollsvík, Rauðasandshreppi í V-Barðastrandarsýslu. Hann lést á Landspítalanum í Reykjavík 12. febrúar 2020. Foreldrar hans voru hjónin María Jónsdóttir húsmóðir, f. 11.4. 1893, d. 1.11.
MeiraKaupa minningabók
Sölvi Jónsson fæddist í Reykjavík 26. ágúst 1975. Hann lést 9. febrúar 2020. Foreldrar hans eru Jón Hjaltalín Stefánsson, f. 5. janúar 1945, og Birna Kjartansdóttir, f. 19. febrúar 1949. Systkini Sölva eru Kjartan Jónsson, f. 24.
MeiraKaupa minningabók
Þórdís Todda Ólafsdóttir fæddist í Reykjavík 24. mars 1936. Hún lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu Boðaþingi 10. febrúar 2020. Foreldrar hennar voru hjónin Sólrún Anna Jónsdóttir húsfreyja, f. 22. ágúst 1915 í Reykjavík, d. 11.
MeiraKaupa minningabók
Hagnaður Símans nam 3.070 milljónum króna. Jókst hagnaðurinn verulega frá fyrra ári þegar hagnaðurinn nam einungis 282 milljónum króna. Það rekstrarár litaðist mjög af stórri virðisrýrnun í bókum félagsins upp á tæpa þrjá milljarða króna.
Meira
Framboð gistirýmis á hótelum hefur aukist mikið að undanförnu og í desember sl. voru 9% fleiri herbergi í boði en í sama mánuði ári fyrr. Þetta kemur fram í skammtímahagvísum ferðaþjónustu í febrúar, sem Hagstofa Íslands birti í gær.
Meira
Noruðrál hefur kynnt til sögunnar nýja vörulínu sem fyrirtækið nefnir Natur-Al og er það skráð vörumerki. Þar er um að ræða ál sem er rekjanlegt frá upphafi til enda framleiðsluferlisins og vottað af óháðum aðilum.
Meira
Gunnar Kristinn Gunnarsson er fæddur 21. febrúar 1950 í Reykjavík og ólst upp í Vesturbænum, á Tómasarhaga og Reynimel. Gunnar var í sveit í Borgarfirði, fyrst að Hurðarbaki í Reykholtsdal og síðar á Auðsstöðum í Hálsasveit.
Meira
Hjálmar Freysteinsson, læknir á Akureyri, er til moldar borinn í dag. Þegar Friðriki Steingrímssyni barst fregnin um lát hans orti hann: Sáran finn ég söknuðinn, sorgir hugann þvinga. Nú er fallinn frændi minn, fremstur hagyrðinga.
Meira
Iðrandi gróðafíkill gæti e.t.v. fallist á að fyrir hrun hefðu bankarnir verið „gróðastíur“. Gróðrarstía þýðir hins vegar „kjörlendi [...] fyrir útbreiðslu og fjölgun“ (ÍO).
Meira
50 ára Sigga Heimis er borinn og barnfæddur Seltirningur og býr á Seltjarnarnesi. Hún er með BA-gráðu í iðnhönnun frá Istituto Europeo di Design í Mílanó og meistaragráðu í iðnhönnun frá Domus Academy í Mílanó.
Meira
Rapparinn Snoop Dogg hefur beðið fréttakonuna Gayle King afsökunar eftir að hann fór hátt um það hvað honum fannst um viðtal hennar við Kobe Bryant.
Meira
60 ára Snorri ólst upp á Arnarstöðum í Flóa en býr á Möðruvöllum í Hörgársveit. Hann er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og tók diplóma í opinberri stjórnun og stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Snorri er sveitarstjóri í Hörgársveit.
Meira
Bjarki Már Elísson er kominn með ellefu marka forskot á Hans Óttar Lindberg hjá Füchse Berlín í einvíginu um markakóngstitilinn í þýska handboltanum.
Meira
Evrópudeildin Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ensku liðin þrjú geta verið ánægð með framgöngu sína í fyrri leikjum 32ja liða úrslita Evrópudeildarinnar í fótbolta í gærkvöld.
Meira
Evrópudeild UEFA 32ja liða úrslit, fyrri leikir: Wolfsburg – Malmö 2:1 • Arnór Ingvi Traustason fór meiddur af velli hjá Malmö á 22. mínútu. FC K ø benhavn – Celtic 1:1 • Ragnar Sigurðsson lék í 86 mínútur með FC København.
Meira
Forkeppni HM 2023 karla B-riðill: Kósóvó – Ísland 80:78 Slóvakía – Lúxemborg 73:65 Staðan: Slóvakía 11073:652 Kósóvó 11080:782 Ísland 10178:800 Lúxemborg 10165:730 *Á sunnudag leikur Ísland við Slóvakíu og Lúxemborg við Kósóvó. 1.
Meira
Nasser Al-Khelaifi, auðjöfur frá Katar og forseti franska knattspyrnufélagsins París SG, og Jerome Valcke, framkvæmdastjóri FIFA á árunum 2013 til 2015, hafa verið ákærðir af svissneskum saksóknurum í kjölfarið á rannsókn þeirra á úthlutun...
Meira
* Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir léku í nótt annan hringinn á Australian Ladies Classic, fyrsta móti ársins á Evrópumótaröð kvenna í golfi. Á mbl.is/sport/golf má sjá hvernig þeim gekk og hvort þær komust í gegnum niðurskurðinn.
Meira
HM 2023 Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mátti þola naumt 78:80-tap fyrir Kósóvó ytra í fyrsta leik sínum í forkeppni HM 2023 í gærkvöld.
Meira
Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, verður í leikmannahópi Burnley á morgun er lið hans fær Bournemouth í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni. Þetta staðfesti Sean Dyche, knattspyrnustjóri Burnley, á blaðamannafundi í gær.
Meira
Martin Hermannsson fór á kostum með Alba Berlín í Evrópudeildinni í körfuknattleik, Euroleague, á meðan félagar hans í landsliðinu voru í baráttunni í Kósóvó.
Meira
Snorri Einarsson náði í gær besta árangri íslensks skíðagöngumanns frá upphafi þegar hann hafnaði í 18. sæti á móti í Ski Tour-mótaröðinni í Meråker í Noregi. Hún er hluti af heimsbikarmótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi.
Meira
Þýskaland RN Löwen – Lemgo 29:29 • Alexander Petersson skoraði 2 mörk fyrir Löwen og Ýmir Örn Gíslason eitt. Kristján Andrésson þjálfar liðið. • Bjarki Már Elísson skoraði 10 mörk fyrir Lemgo.
Meira
Noregur Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Ingibjörg Sigurðardóttir, landsliðskona í knattspyrnu, tók stórt skref upp á við í vikunni er hún samdi við norska félagið Vålerenga en hún kemur þangað frá Djurgården í Svíþjóð.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.