Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við erum í rauninni að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. Aðgerðir okkar eru í samræmi við það sem landlæknir hefur gefið út,“ segir Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundar, dvalar- og hjúkrunarheimila. Vísar hann í máli sínu til greinar sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Í greininni er rætt við Birgi Guðjónsson, fv. yfirlækni á Hrafnistu og fv. aðstoðarprófessor við Yale-háskóla. Segir Birgir að heimsóknarbann á hjúkrunarheimili hér á landi standist ekki skoðun, hvorki læknisfræðilega skoðun né út frá heilbrigðri skynsemi.
Meira