Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ekkert verður samt eftir COVID-19. Allt leitar í nýjan farveg; samskipti fólks, atvinnuhættir, verslun, ferðalög, menning og svo framvegis. Við stöndum á þröskuldi mikilla þjóðfélagsbreytinga,“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania. „Samkomubann með öllu sem því fylgir hefði sjálfsagt orðið mun erfiðara í framkvæmd en reynst hefur ef ekki væru hér til staðar sterkir innviðir og öflug fjarskipti. Samfélagið heldur áfram að virka þótt fólk sé í stórum stíl heima við. Samskipti fólks hafa núna á allra síðustu dögum færst að stórum hluta yfir á netið. Allt það sem við höfum tileinkað okkur á þeim tíma sem faraldurinn gengur yfir tökum við með okkur inn í framtíðina.“
Meira