Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ronja var farin að fela örið sitt, hún vildi ekki að neinn sæi það. Hún var orðin óörugg út af þessu og talaði um að sér þætti þetta ljótt. Ég ákvað þá að fá mér eins ör, til að standa með henni og sýna henni að mér þykir þetta flott. Ég ber örið með stolti og vil að hún geri það líka, þetta eru hennar flottu og óvenjulegu sérkenni,“ segir Hrafnhildur Tinna Sveinsdóttir sem lét flúra á sig samskonar ör og sjö ára dóttir hennar, Ronja Mary Sigurjónsdóttir, hefur á hægri öxl og niður á upphandlegg, eftir tvær skurðaðgerðir.
Meira