Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Snjóþykkt á Hofsjökli eftir nýliðinn vetur er talsvert undir meðallagi, skv. niðurstöðum mælinga vísindamanna Veðurstofu Íslands. Jökullinn nær yfir 1.150 m hæðarbil og er snjósöfnun mest í efstu hjöllum. Í 800 m hæð er snjóþykkt við vetrarlok oftast 1–2 metrar en meðaltalið á hábungu jökulsins í tæplega 1.800 m hæð er 6,5 metrar. Að þessu sinni mældist snjóþykktin þar 5,7 m, sem er talsvert undir meðallagi, að sögn Þorsteins Þorsteinssonar jarðeðlisfræðings hjá Veðurstofu Íslands.
Meira