Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Skömmu eftir að Norræna húsið var opnað í Vatnsmýrinni í Reykjavík 1968 byrjuðu ungir háskólanemar og samstúdent þeirra, sem var næturvörður í Árnagarði, að venja þangað komur sínar í kaffi á laugardögum. Þeir hafa haldið uppteknum sið síðan, eða í 52 ár. „Vissulega hefur kvarnast úr hópnum og nýir bæst við en við erum nokkrir sem höfum staðið vaktina allan tímann,“ segir Páll Sigurðsson, prófessor emeritus, en hann kenndi við lagadeild Háskóla Íslands í 41 ár.
Meira