Ívar Pálsson, íbúi í Skerjafirði, skrifar: „Skuldaævintýraæði Dags & Co í Reykjavíkurborg færist nú á nýtt stig, þar sem til stendur að troða 3.000 manna byggð í aflokaðan flugvallarkrikann. Sá Ísafjörður ídealistanna, með allt sitt bílastæðaleysi, þröngar götur og fimm hæða skuggavarpsblokkir, á að rísa í óþökk þeirrar byggðar sem fyrir er og bætir við fjórfalt fjölmennari borgarhluta en notar sömu götuna inn og út úr Skerjafirði, með margföldun umferðar.
Meira