Viðtal Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Mér þykir gríðarlega vænt um þessa viðurkenningu,“ segir Ingibjörg Björnsdóttir sem í gærkvöldi hlaut heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands árið 2020. Í samtali við Morgunblaðið segir hún verðlaunin hafa komið sér ánægjulega á óvart. „Ég hef gegnum tíðina aðallega verið upptekin af því að njóta þess að sinna dansinum frá ansi mörgum hliðum,“ segir Ingibjörg sem starfað hefur sem dansari, danshöfundur, kennari, skólastjóri og fræðimaður á löngum og farsælum ferli.
Meira