Móðir, sem rætt hefur mál dóttur sinnar sem er á einhverfurófi, í nokkur skipti í Morgunblaðinu, síðast í sumar, hefur verið tilkynnt til barnaverndarnefndar.
Meira
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Móðir sem rætt hefur mál dóttur sinnar, sem er á einhverfurófi, í nokkur skipti í Morgunblaðinu, síðast í sumar, hefur verið tilkynnt til barnaverndarnefndar. Það er BUGL sem er á bak við tilkynninguna en móðirin hefur átt í deilum við deildina vegna þjónustu sem hún segir dóttur sína eiga rétt á en fái ekki.
Meira
Snorri Másson snorrim@mbl.is Staðfest riðusmit greindist í upphafi vikunnar hjá einum þriggja vetra sauði á Stóru-Ökrum í Akrahreppi í Skagafirði og í kjölfarið voru tekin sýni á bæjum í sveitinni, þangað sem fé af Stóru-Ökrum hafði ratað nýlega.
Meira
Dýrafjarðargöng verða opnuð á morgun, sunnudag. Nemendum Grunnskóla Þingeyrar verður fyrstum ekið í gegnum göngin ásamt Gunnari Gísla Sigurðssyni, sem hefur mokað Hrafnseyrarheiði í 46 ár.
Meira
Samkomulag hefur náðst í kjaradeilu Eflingar og Samtaka sjálfstæðra skóla (SSSK) um kjör nálægt 300 félagsmanna Eflingar hjá einkareknum leik- og grunnskólum. Var nýr kjarasamningur undirritaður í gær.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Gera þarf endurbætur á Landeyjahöfn til þess að markmið um stóraukna nýtingu hennar náist. Mótvægisaðgerðir hafa ekki dugað og ætla má að erfitt sjólag utan hafnar muni áfram takmarka siglingar til og frá höfninni.
Meira
Félagar í Félagi grunnskólakennara samþykktu nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Úrslit atkvæðagreiðslu um samninginn, sem lauk klukkan ellefu í gærmorgun, urðu þau að 73,23% sögðu já en 25,07% sögðu nei. 3.
Meira
Fjárveitingar til málefna sem falla undir mennta- og menningarmálaráðuneytið hækka um 11% á milli ára og verða 127,2 milljarðar kr. á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Meira
Verulega hefur að undanförnu dregið úr því að komið sé með nytjahluti á endurvinnslustöðvar Sorpu. Á tímabilinu 1. janúar til 30. september á þessu ári er þessi samdráttur um alls 32,1% miðað við sama tímabil á fyrra ári.
Meira
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Við metum það svo að skipstjóri og útgerð hafi farið þarna alvarlega á svig við öryggisreglur og við munum skoða málið áfram.
Meira
Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Alls hafa 22 kórónuveirusmit greinst meðal sjúklinga og starfsmanna á Landakotsspítala, að sögn Önnu Sigrúnar Baldursdóttir, aðstoðarmanns forstjóra Landspítala.
Meira
Álft að snyrta á sér fæturna eftir kuldabað í tjörninni. Í dag er fyrsti vetrardagur og menn og dýr bíða þess sem í vændum er. Hvernig ætli veturinn verði?
Meira
Baksvið Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fyrsti vetrardagur er í dag, laugardag. Hvernig ætli veturinn verði er gjarnan spurt í vetrarbyrjun og þá minnast margir þess aflaust hve síðasti vetur var illviðrasamur og leiðinlegur. Einn mesti illviðravetur í manna minnum. Vonandi upplifa landsmenn ekki það sama á komandi vetri.
Meira
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Nafn Íslands verður fjarlægt af gráum lista FATF, alþjóðlegs fjármálaaðgerðahóps ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Meira
Jakob Jakobsson, fiskifræðingur og fyrrverandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar, lést á Landspítalanum 22. október, 89 ára gamall. Jakob fæddist 28. júní 1931 í Neskaupstað. Foreldrar hans voru Sólveig Ásmundsdóttir húsmóðir og Jakob Jakobsson...
Meira
Allt að 50 manns hafa í þessari viku komið á dag í sýnatökur vegna kórónuveirunnar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, en þær fara nú fram í kjallara verslunarhúss Krónunnar á Selfossi. Hægt er að aka inn í húsið og aldrei þarf fara út úr bílnum.
Meira
Úr bæjarlífinu Gunnlaugur Árnason Stykkishólmi Covid, codvid, covid er daglega á vörum flestra Íslendinga síðustu vikur og mánuði. Smit barst í Stykkishólm um miðjan september. Strax var brugðist við með einangrun sjúkra og sóttkví annarra.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Polio plús dagurinn er í dag, 24. október. Þá leggja félagar í rótarý-hreyfingunni um allan heim sérstaka áherslu á mikilvægi þess að útrýma lömunarveiki í heiminum. Fjallað er um veikina í klúbbunum, upplýsingum dreift og almenningur hvattur til að styrkja málefnið. „Þetta er einn mikilvægasti dagur alþjóðahreyfingarinnar,“ segir Soffía Gísladóttir, umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi.
Meira
Fulltrúar beggja stríðandi fylkinga í Líbíu undirrituðu í gær nýtt vopnahlé á vegum Sameinuðu þjóðanna, eftir fimm daga viðræður sem fóru fram í Genf.
Meira
Áformuð er tilfærsla póstmála frá Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) til Byggðastofnunar, þ.e.a.s. bæði stjórnsýsla og eftirlit með póstþjónustu í landinu.
Meira
Samkomulagið sem náðist í vikunni milli verkalýðsfélaga starfsmanna álversins í Straumsvík og Rio Tinto, eiganda verksmiðjunnar, um skammtímasamning felur í sér að hann gildi í eitt ár frá 1. júní sl. til 1. júní á næsta ári.
Meira
Stjórnvöld í Svíþjóð og Danmörku hafa samþykkt nýja fjárveitingu til norræna flugfélagsins SAS, sem á að hjálpa því að komast út úr núverandi erfiðleikum.
Meira
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Seinni kappræður forsetaframbjóðandanna í Bandaríkjunum fóru fram í Nashville í Tennessee í fyrrinótt, og skiptust þeir Joe Biden, frambjóðandi demókrata, og Donald Trump Bandaríkjaforseti á ásökunum um spillingu og rasisma, auk þess sem Biden gagnrýndi harðlega frammistöðu forsetans í baráttunni gegn kórónuveirunni.
Meira
Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins varaði við því í gær að fjöldi nýrra tilfella í 23 af 27 aðildarríkjum þess, sem og í Bretlandi, ylli nú „þungum áhyggjum“.
Meira
Jökull SK 16 sökk við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn um miðjan ágúst í sumar. Fram kemur í lokaskýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa, siglingasviðs, um málið að þegar búið var að taka bátinn upp og dæla úr honum reyndist enginn leki vera að honum.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Árið 1995 náði tré 20 metra hæð í fyrsta sinn á Íslandi, rússalerki í Atlavíkurlundi. Það þótti svo merkilegt að forsætisráðherra var kallaður til. Fáum árum seinna bættust svo alaskaösp og sitkagreni í 20 m hópinn.
Meira
Eins og staðan er í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum hefði Trump í kappræðunum í fyrrinótt þurft að geta veitt Biden þungt högg, helst pólitískt náðarhögg, til að tryggja sér fjögur viðbótarár í Hvíta húsinu. Trump gekk ágætlega í kappræðunum, en þó varla betur en svo að Biden má nokkuð vel við kappræðurnar una. Þær eru ekki líklegar til að breyta miklu um kosningaúrslitin.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbli.is Daði Guðbjörnsson myndlistarmaður hefur afhent Listasafni Reykjanesbæjar að gjöf 400 grafíkverk frá árabilinu 1978 til 2020. Af því tilefni hefur verið opnuð í safninu vegleg sýning á úrvali þessara verka, um helmingi myndanna, undir heitinu „Gjöf Daða“.
Meira
Eivör Pálsdóttir er hæglega einn af helstu popplistamönnum Norðurlanda í dag og vegur hennar fer vaxandi. Segl, nýjasta plata hennar – og sú níunda – treystir hana enn frekar í sessi.
Meira
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Hugmyndin að þessari bók kviknaði fyrir mörgum árum þegar fólk sem var í heimsókn hjá mér fór að tala um lífið í götunum, eins og það var áður en allir lögðust yfir tölvur og síma.
Meira
Sýning Hrafns Hólmfríðarsonar Jónssonar, „Skrölt III“, verður opin í Gallerí Porti að Laugarvegi 23b um helgina, frá kl. 12 til 18. Hrafn er myndlistarmaður sem vinnur með ljósmyndir og er sýningin á vegum listahátíðarinnar List án...
Meira
Af bókmenntum Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í áttunda sinn þriðjudaginn 27. október.
Meira
Á Netflix-rápi mínu um daginn fann ég kvikmyndina The Trial of the Chicago 7, sem fjallar um stórmerkileg réttarhöld er fóru fram eftir Chicago-óeirðirnar frægu árið 1968.
Meira
Einar Kárason og sænskur þýðandi hans, John Swedenmark, hljóta alþjóðleg bókmenntaverðlaun Menningar- og Borgarleikhúss Stokkhólms (Kulturhuset Stadsteatern) fyrir skáldsöguna Stormfugla .
Meira
Sýning á verkum eftir bandarísku listakonuna Roni Horn verður opnuð í i8 galleríinu við Tryggvagötu í dag og verður opið frá kl. 12 til 17. Á sýningunni eru skúlptúr og ljósmyndaverk.
Meira
Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur: "Engin rannsókn eða heildarúttekt er til á sérkennslumálum í skólum borgarinnar og því er ekki vitað hvort sérkennsla skilar tilætluðum árangri."
Meira
Eftir Ólöfu S. Sigurðardóttur, Sigríði Árnu Gísladóttur og Þóru Gunnlaugsdóttur: "Það er einn helsti styrkleiki deildarinnar að búa yfir svo mikilli reynslu og þekkingu sem miðlað er áfram til yngri kynslóða."
Meira
Eftir Braga Kristjónsson: "Nokkru síðar fór ég á miðilsfund hjá Hafsteini miðli á Laugaveg 74. Þangað kom Ari Jósefsson og greip þéttingsfast í olbogann á mér og var svo farinn."
Meira
Eftir Salvöru Nordal: "Niðurstöðurnar gefa til kynna eindreginn vilja til úrbóta og áhuga á að bæta aðgengi barna og efla þátttöku þeirra í starfsemi stofnana."
Meira
Orð fá nýja merkingu við nýjar aðstæður, sbr. merkingu orðanna: grímulaus (í Bónus); heimavinnandi ; og „Móðir mín í kví, kví“ . Gott er að finna fyrir samstöðu manna í plágunni sem nú geisar.
Meira
Ísland er ekki lengur á „gráum lista“ FATF (Financial Action Task Force) yfir þau ríki sem sæta auknu eftirliti vegna ófullnægjandi varna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Það eru ánægjuleg og mikilvæg tíðindi.
Meira
Eftir Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur: "Í lok október fer fram þing Norðurlandaráðs sem haldið er ár hvert og hefði að þessu sinni átt að halda með veglegum hætti í Hörpunni."
Meira
Árni Böðvarsson fæddist á Görðum í Önundarfirði 24.10. 1818. Foreldrar hans voru Böðvar Þorvaldsson, f. 16.6. 1787, d. 12.12. 1862, prófastur á Mel í Miðfirði og fyrri kona hans, Þóra Björnsdóttir, f. 2.10. 1787, d. 2.8. 1839, húsfreyja.
Meira
Eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur: "Það er von mín að með þeim aðgerðum sem ráðist verður í á grundvelli þessarar stefnu verði sjávarútvegur leiðandi afl jákvæðra breytinga í samfélaginu."
Meira
Furðu sætir, að í öllum umræðunum um lýðveldisstjórnarskrána, sem samþykkt var með 98% atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu 1944, hefur ekkert verið minnst á eina grein hagfræðinnar, stjórnarskrárhagfræði (constitutional economics), sem spratt upp úr...
Meira
Eftir Jón Steindór Valdimarsson: "Frá þessari reglu hafa verið gerðar veigamiklar undantekningar sem vert er að gefa gaum og velta fyrir sér hvort séu í samræmi við þær forsendur sem voru lagðar til grundvallar."
Meira
Eftir Margréti Hallgrímsdóttur: "Sameiginleg sýn allra sem að málaflokknum koma er þó að sjálfsögðu sú að tryggja örugga og markvissa varðveislu menningarminja."
Meira
Minningargreinar
24. október 2020
| Minningargrein á mbl.is
| 1443 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Ásgeir Ingi Þorvaldsson fæddist á Blönduósi 16.Júlí 1948. Hann lést á heimili sínu á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 16. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þorvaldur Ásgeirsson , f. 7. febrúar 1921, d. 29. júlí 2003, og Sigurborg Gísladóttir, f. 27.
MeiraKaupa minningabók
Ásgeir Ingi Þorvaldsson fæddist á Blönduósi 16. júlí 1948. Hann lést á heimili sínu á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 16. október 2020. Foreldrar hans voru Þorvaldur Ásgeirsson , f. 7. febrúar 1921, d. 29. júlí 2003, og Sigurborg Gísladóttir, f. 27.
MeiraKaupa minningabók
Sigfríð Stella Ólafsdóttir fæddist á Seyðisfirði 26. júní 1941. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 16. október 2020. Foreldrar hennar voru Ólafur Þórsteinsson, f. 20.9. 1913 á Seyðisfirði, d. 17.9. 1968 og Hulda Sigurjónsdóttir, f. 15.10.
MeiraKaupa minningabók
Sigurbjörg Kristjánsdóttir fæddist á Stöng í Mývatnssveit 28. febrúar 1929. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 15. október 2020. Foreldrar hennar voru Kristján Ásmundsson f. 17.5. 1901, d. 18.5. 1963, og Lára Sigurðardóttir, f. 7.7. 1905, d....
MeiraKaupa minningabók
Svanur Kristófer Kristófersson bifreiðarstjóri frá Hellu á Hellissandi fæddist 29. desember 1953. Hann lést af slysförum 23. september 2020. Foreldrar hans voru Kristófer Sigvaldi Snæbjörnsson, f. 6.5. 1918, d. 1.10.
MeiraKaupa minningabók
Þorbjörg Svava Auðunsdóttir fæddist 27. október 1928 á Baldursgötu 20 í Reykjavík. Hún lést 15. október 2020. Foreldrar Svövu voru Margrét Eyleif Bjarnadóttir og Auðunn Magnússon. Svava var gift Jakobi Magnússyni, dáinn 9.8.
MeiraKaupa minningabók
Hagnaður Múlakaffis nam 341 milljón króna í fyrra og jókst verulega frá árinu 2018 þegar hagnaðurinn nam 75 milljónum. Umsvifin jukust að sama skapi verulega. Seldar vörur og þjónusta jókst um 17% og nam 1.853 milljónum króna.
Meira
Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Aukin vitund almennings um eigið kolefnisfótspor hefur leitt Meniga á nýjar slóðir í vöruþróun. Jón Heiðar Þorsteinsson vörustjóri segir að fyrirtækið hafi nú lokið þróun á nýrri hugbúnaðarlausn sem kallast „Carbon Insight“ sem vinnur samhliða þeim hugbúnaði sem setti Meniga á kortið og gerir notendum kleift að fylgjast með persónulegum fjármálum sínum í gegnum snjallforrit.
Meira
Á niðurdrepandi veirutímum veitir ekki af að standa saman og hafa gaman. Þrír vinir keyrðu af stað með verkfæri til að hjálpa vinkonu sem bráðvantaði aðstoð og ákváðu að gera skemmtan góða úr öllu saman.
Meira
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rf3 Bg7 4. e3 0-0 5. Be2 c6 6. Rc3 d5 7. 0-0 Bg4 8. Db3 b6 9. cxd5 Rxd5 10. e4 Rxc3 11. bxc3 e5 12. Ba3 He8 Staðan kom upp í A-flokki Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum félagsins í Faxafeni 12.
Meira
Í vikunni barst tilkynning frá FIDE þess efnis að áskorendamótinu, sem hálfnað var, yrði ekki haldið áfram hinn 1. nóvember nk., eins og stefnt hafði verið að, heldur frestað fram á vor.
Meira
Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Í hringi gjarnan gengur sú. Goðvera í Ásatrú. Sæll í henni situr þú. Söngkona, og gettu nú. Eysteinn Pétursson á þessa lausn: Sólin gengur heims um hjarn. Hét Sól Mundilfara barn.
Meira
90 ára Þorbjörg Jónatansdóttir , Obba, fæddist 24. október árið 1930 á Blikalóni á Melrakkasléttu, ólst upp á Ytra-Krossanesi í Eyjafirði og flutti til Reykjavíkur á táningsaldri.
Meira
Menningarnám þýðir nú a.m.k. þrennt: aðlögun barns að menningarháttum samfélagsins; aðlögun að nýju menningarumhverfi ; og að fólk í yfirburðastöðu tekur sér þætti úr menningu undirskipaðra hópa og gerir að sínum .
Meira
DJ Dóra Júlía hrósar þeim Finna Karlssyni og Geoffrey, gjarnan kenndum við Prikið, fyrir skemmtilegt og uppbyggilegt verkefni sem þeir voru að setja af stað.
Meira
Handbolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Þýsk handknattleiksfélög sem eru með íslenska landsliðsmenn í sínum röðum hafa sent Handknattleikssambandi Íslands bréf þar sem óskað er eftir upplýsingum um sóttvarnir hérlendis áður en þau samþykkja að hleypa þeim í landsleikina í Reykjavík í nóvember.
Meira
Fréttaskýring Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Úrslitaleikurinn við Ungverja um sæti í lokakeppni Evrópumóts karla í fótbolta nálgast dag frá degi. Nú eru aðeins nítján dagar þar til flautað verður til leiks í Búdapest, fimmtudagskvöldið 12. nóvember.
Meira
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur í samvinnu við sérsambönd sín skilgreint 27 manna ólympíuhóp en hann er skipaður því íslenska íþróttafólki sem stefnir markvisst að þátttöku í Ólympíuleikunum í Tókýó 2021 og er talið eiga möguleika á að komast...
Meira
Elías Már Ómarsson var hetja Excelsior er liðið vann útisigur á Den Bosch í hollensku B-deildinni í fótbolta í gærkvöld, en lokatölur urðu 1:0. Skoraði Elías sigurmarkið á fjórðu mínútu uppbótartímans og tryggði Excelsior annan deildarsigurinn í röð.
Meira
Körfuknattleikssamband Íslands hefur tilkynnt um útgáfu á nýju keppnisdagatali fyrir Íslandsmótið í meistaraflokkum karla og kvenna, ásamt breyttu fyrirkomulagi í bikarkeppninni.
Meira
Undankeppni EM kvenna F-riðill: Ungverjaland – Slóvakía 1:2 Staðan: Svíþjóð 651032:216 Ísland 541021:213 Slóvakía 52124:107 Ungverjaland 721411:197 Lettland 70072:370 *Svíþjóð og Ísland mætast í Gautaborg á þriðjudaginn. Ísland mætir Slóvakíu 26.
Meira
Körfuknattleiksdeild Þórs á Akureyri hefur ráðið Bjarka Ármann Oddsson sem þjálfara karlaliðs félagsins og tekur hann við starfinu af Andrew Johnston.
Meira
Ég hef það sem „princio“ að setja mér sjaldnast áramótaheit. Ég lít svo á að ætli ég yfir höfuð að setja mér markmið þá geti ég alveg eins gert það á venjulegum tíma, einhvern annan af hinum 364 dögum ársins.
Meira
Líftölfræðingurinn Thor Aspelund er í hringiðu kórónuveirufaraldursins. Hann er maðurinn á bak við spálíkön, gröf og súlurit sem landinn rýnir vandlega í um þessar mundir. Thor telur að þjóðin þurfi að venjast sambúð við veiruna í ár í viðbót. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Meira
Það gladdi okkur foreldra, afa og ömmur og aðra aðstandendur að fylgjast með börnunum leika á hljóðfæri á tónleikunum hjá Allegro og skynja af hve mikilli næmni og velvild þau voru leidd áfram.
Meira
Á þessum degi fyrir fimmtíu árum sendi Stabley nokkur Uys Morgunblaðinu þá frétt frá Höfðaborg að suðurafríski prófessorinn og brautryðjandinn í hjartaflutningum, Christiaan Barnard, teldi hugsanlegt að þeir tímar kynnu að koma að hægt yrði að þróa...
Meira
Píanóleikarinn Keith Jarrett, sem á löngum ferli hefur valdið straumhvörfum í djasstónlist, greindi frá því í viðtali við dagblaðið The New York Times í vikunni að hann gerði ráð fyrir að framtíðin bæri í skauti sér líf án píanós.
Meira
Dánaraðstoð hefur ekki verið lögleidd víða, en þó er á nokkrum stöðum komin reynsla á lögleiðingu. Arnar Vilhjálmur Arnarson gerir grein fyrir stöðunni í Hollandi, Belgíu og Sviss, sem lögleiddu dánaraðstoð með ólíkum hætti.
Meira
Rótin, félag um konur, áföll og vímugjafa, vill opna á umræður og bjóða sérstök meðferðarúrræði fyrir konur. Kristín I. Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, segir fylgni milli áfalla og vímuefnaneyslu. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Meira
Prestskapur er hans köllun en eftir 25 ár í starfi treystir séra Óskar Ingi Ingason, sóknarprestur í Ólafsvík, sér ekki til að halda áfram nema róttækar breytingar verði gerðar á verklagi kirkjustjórnarinnar sem hann segir einkennast af samráðsleysi og...
Meira
Aldís Eva Kristjánsdóttir er stafrænn sérfræðingur hjá Kringlunni. Hún er vön því að undirbúa kaup sín vel á netinu en klárar oftast kaupin í versluninni sjálfri.
Meira
Ég held að aldrei í fótboltaumræðusögunni hafi það gerst að einhver hafi sagt: „Já, ég sé það núna. Þú hefur rétt fyrir þér og þetta hefur verið einhver misskilningur hjá mér.“
Meira
Stúlka, nýjasta skáldsaga írska rithöfundarins Ednu O'Brien, er komin út á íslensku en þar er hermt af stúlku sem lendir í klóm hinna hræðilegu skæruliðasamtaka Boko Haram í Nígeríu.
Meira
Bærinn er austur í Fljótshlíð og til hans þekkja margir, sbr. ljóðið fræga eftir Þorstein Erlingsson (1858-1914). Gamall burstabær setur svip sinn á staðinn sem er hömrum og hlíðarbrekku undir.
Meira
Rokkland fer í loftið í 1.200. skipti á Rás 2 í dag á 25 ára afmæli þáttarins. Ólafur Páll Gunnarsson hefur stýrt þættinum frá upphafi og unir hag sínum alltaf jafn vel í útvarpinu enda þótt hann hafi aldrei gert ráð fyrir því að verða útvarpsmaður. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Óvenjumörg börn og unglingar hafa þurft að fara í sóttkví eða einangrun á síðustu vikum. Morgunblaðið bankaði upp á hjá innilokuðum ungmennum. Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Meira
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðil með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausnum í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila krossgátunni 25.
Meira
Hefurðu sýnt áður á Mokka? Já, ég hélt mína allra fyrstu ljósmyndasýningu á Mokka árið 1998. Ég hef lengi verið með það á bak við eyrað að sýna þarna aftur, en það er ekki hvað sem er sem passar þarna inn.
Meira
Vikan hófst í skugga kórónuveirunnar , en vikuna á undan var mikið greint af smitum og 11. maðurinn lést af hennar völdum. 26 lágu á sjúkrahúsi, veikir af veirunni, þar af fjórir í gjörgæslu. Alls voru 2.
Meira
Sprengja Íslandsvinurinn Slash hefur mikið dálæti á tónleikastaðnum goðsagnakennda The Troubador í Hollywood en bandið hans, Guns N' Roses, haslaði sér völl þar um miðjan níunda áratuginn og fékk sinn fyrsta plötusamning eftir að útsendari...
Meira
Áfram gakk Málmtröllin ólseigu í Quiet Riot hafa staðfest að þau hyggist halda starfi bandsins áfram þrátt fyrir að trymbillinn, Frankie Banali, hafi látist af völdum krabbameins í sumar.
Meira
Alltént auglýsir íslenska heilbrigðiskerfið á tímum kórónuveirunnar hvorki eftir stormsenterum né útherjum með skæri. Það auglýsir eftir bakvörðum.
Meira
Kafarar skipta um og hreinsa botnstykki, skipta um fórnarskaut, pólera skrúfur og hreinsa burtu sjávargróður. Allt gerist þetta neðansjávar og er „venjulegur dagur á...
Meira
Georg Eiður Arnarson er Eyjamaður, trillu- og lundakarl og hefur marga fjöruna sopið á langri útgerðarsögu. Komist í hann krappan oftar en einu sinni. Misst báta, bæði í sjóinn og til bankans en alltaf staðið upp aftur og er enn að.
Meira
Hallveig Karlsdóttir byrjaði ung að vinna í fiski og þegar hún var komin í háskóla ákvað hún að færa sig úr viðskiptafræði yfir í sjávarútvegsfræði. Árið hefur verið krefjandi enda kórónuveirufaraldurinn flækt störf gæðastjóra í sjávarútvegi til muna.
Meira
Það er ekki á færi hvers sem er að munda rafsuðutæki í köldum sjó í lélegu skyggni. Kafarar þurfa að sýna ýtrustu fagmennsku þegar þeir vinna við skip og hafnarmannvirki.
Meira
Sveiflur í sjávarútvegi hafa ávallt verið til staðar og þá er ekki einu sinni farið að ræða kórónuveirufaraldursáhrifin. En hvað sem þessu öllu líður er ljóst að hafsækin starfsemi verður alltaf ein af undirstöðum íslensks efnahagslífs.
Meira
Fiskeldi hefur haft verulega jákvæð áhrif á Vesturbyggð. Ekki bara hefur langvarandi hnignunarskeið verið stöðvað heldur bendir allt til áframhaldandi uppbyggingar og horfir sveitarfélagið fram á skort á íbúðarhúsnæði. Bæjarstjórinn Rebekka Hilmarsdóttir lítur framtíðina björtum augum.
Meira
Mælingar Fiskistofu árin 2015 til 2019 sýna að það sé mjög algengt að afli sem er skráður sem smáfiskur (undirmálsafli) við vigtun og telst þannig aðeins til helmings aflaheimilda sé raunverulega stærri fiskur sem ætti að skrá sem almennan afla.
Meira
Smitvarnir um borð í skipum byggjast á landsáætlun um sóttvarnir hafna og skipa, sem kom út 2017, og er einnig að finna á vef landlæknisembættisins sérstakar leiðbeiningar fyrir hafnir og skip.
Meira
Fyrsta september tóku gildi breytingar sem Alþingi samþykkti í desember í fyrra á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.
Meira
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Fyrr í mánuðinum undirritaði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, breytingu á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla.
Meira
Það kom mörgum sem þekkja Gunnar Gíslason á óvart að hann skyldi flytja ásamt fjölskyldu sinni til Húsavíkur eftir að hafa búið alla ævi á Seltjarnarnesi, en hann var nýverið ráðinn í starf framkvæmdastjóra GPG Seafood og tók til starfa við upphaf nýs fiskveiðiárs, fyrsta september.
Meira
Markaðsstofa norskra sjávarafurða hyggst leggja áherslu á hefðbundna markaði í skugga þess að samkeppnisstaða kann að skerðast þegar afurðir verða óvottaðar.
Meira
Vöxtur í útflutningi á óverkuðum fiski kann að ógna gæðaímynd íslenskra sjávarafurða. Lítil sala er á ufsa eftir mikla niðursveiflu í hótelgeira.
Meira
Í haust kom út ný bók um sjávarútveg og fiskeldi í alþjóðlegu samhengi í ljósi fæðuöryggis framtíðarinnar og ber hún heitið Fisheries and Aquaculture: The Food Security of the Future.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.