Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Á nýrri plötu tónskáldsins Maríu Huldar Markan Sigfúsdóttur, Kom vinur, sem bandaríska útgáfan Sono Luminus gefur út, eru tvö kórverk eftir Maríu samin við ljóð eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur skáld sem varð níræð á liðnu ári. Verkin tvö, „Kom vinur“ og „Maríuljóð“, eru flutt af Schola Cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar en upptökunum, sem fóru fram í Hallgrímskirkju í haust sem leið, stýrði Kjartan Sveinsson.
Meira