Staðfest er að 190 manns eru látnir og tuga er enn saknað í Þýskalandi og Belgíu vegna mikilla flóða í Evrópu að undanförnu. Í Þýskalandi eru 159 hið minnsta látnir og 31 í Belgíu.
Meira
Skafti Harðarson, formaður Samtaka skattgreiðenda, bendir á að hinn almenni launþegi virðist ekki skilja að gjöld sem lögð eru á vinnuveitendur skerða í reynd hlut launþegans.
Meira
Stjórn Miðflokksins í Reykjavík hefur tekið ákvörðun um að boða til oddvitakjörs í Reykjavíkurkjördæmi suður eftir að tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista flokksins í kjördæminu var felld á félagsfundi síðastliðinn fimmtudag.
Meira
19. júlí 2021
| Innlendar fréttir
| 144 orð
| 1 mynd
Húnavaka var haldin nú um helgina, en dagskrá stóð yfir frá fimmtudegi og fram á sunnudag. Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, skipuleggjandi hátíðarinnar, segir hana hafa heppnast afar vel. „Þetta gekk eiginlega vonum framar,“ segir hún.
Meira
19. júlí 2021
| Innlendar fréttir
| 121 orð
| 1 mynd
Framkvæmdir standa nú yfir ofan við íþróttamiðstöð Golfklúbbs Garðabæjar og Kópavogs, GKG. Þar verða byggðar upp æfingaflatir með sandglompum sem eiga að koma í stað æfingasvæðisins sem klúbburinn missir vestan megin við Vetrarbrautina.
Meira
Dagur íslenska fjárhundsins var haldinn hátíðlegur í Árbæjarsafni í gær, í sjötta sinn. Vel fór á með hundum og mönnum. Að venju er 18. júlí ár hvert tileinkaður Degi íslenska fjárhundsins. Hann hefur verið haldinn hátíðlegur hér á landi og víðar.
Meira
Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Veiði á hreindýrstörfum hófst sl. fimmtudag. Meðal þeirra sem lögðu leið sína austur um helgina voru hjónin Ólafur Vigfússon og María Anna Clausen. Veiði á hreindýrskúm hefst 1. ágúst nk. og stendur til 20. september. Veiði á törfum lýkur fimm dögum fyrr.
Meira
Björgunarsveitir Landsbjargar höfðu í nægu að snúast í gær og fram á kvöld. Göngukona lenti í vanda og tveir bátar þurftu aðstoð. Senda þurfti þyrlu Gæslunnar á vettvang þegar kona fótbrotnaði á göngu í Jökultungum á gönguleiðinni Laugavegi í gær.
Meira
Ekkert lát virðist vera á hitabylgjunni sem geisað hefur á Fljótsdalshéraði síðustu daga. Í gær fór hitinn hæst í 26,7 gráður á Hallormsstað. Fólk hefur notið veðursins og margir hafa kælt sig í ám og vötnum, m.a. í Atlavík.
Meira
19. júlí 2021
| Innlendar fréttir
| 102 orð
| 1 mynd
Hjólhýsi brann til kaldra kola á sjötta tímanum í gær. Mikinn reyk lagði yfir stórt svæði vegna brunans og mátti sjá reykjarmökk víða að. Tveir slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang og náðu að ráða niðurlögum eldsins.
Meira
19. júlí 2021
| Innlendar fréttir
| 228 orð
| 2 myndir
Orkustofnun (OS) hefur sett flestar hleðslustöðvar á landinu sem opnar eru almenningi inn á kortavefsjá sína. Þar má finna bæði hraðhleðslustöðvar og minni stöðvar á landinu. Alls eru þetta um 350 stöðvar, eins og kortið lítur út, með um 670 tenglum.
Meira
19. júlí 2021
| Innlendar fréttir
| 551 orð
| 3 myndir
Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is „Hvernig heldurðu að mér hafi liðið eitt dimmt vetrarkvöld úti í fjárhúsi þegar ég heyri hann allt í einu kalla mamma? Ég hélt fyrst að þetta væri dóttir mín.
Meira
19. júlí 2021
| Innlendar fréttir
| 727 orð
| 2 myndir
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Viðbrögð fólks sem hefur komið hingað í nýja miðbæinn á Selfossi síðustu daga eru sterk og jákvæð. Við lítum á þessa opnun sem eins konar generalprufu, eins og sagt er í leikhúsum. Hún heppnaðist vel. Ýmis frágangur á svæðinu er þó eftir og formleg opnun verður þegar nær dregur hausti,“ segir Vignir Guðjónsson, framkvæmdastjóri Sigtúns þróunarfélags.
Meira
19. júlí 2021
| Innlendar fréttir
| 163 orð
| 1 mynd
Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt sunnudags og að morgni stóðu allir fangaklefar fullir. Meðal annars voru tilkynnt tvenn slagsmál þar sem menn voru vopnaðir hnífum.
Meira
19. júlí 2021
| Innlendar fréttir
| 288 orð
| 1 mynd
Kanna á upptök og eðli gosa í Strokki á Geysissvæðinu með rannsóknum sem hefjast þar í dag. Umhverfisstofnun gefur leyfi til þessa vísindastarfs, sem Gylfi Páll Hersir, jarðeðlisfræðingur hjá Íslenskum orkurannsóknum, tekur þátt í.
Meira
19. júlí 2021
| Innlendar fréttir
| 138 orð
| 1 mynd
Hestbak Í tilefni af degi íslenska fjárhundsins var fjölbreytt dagskrá í Árbæjarsafni í gær og börnin gátu m.a. farið á hestbak og höfðu mikla ánægju...
Meira
19. júlí 2021
| Erlendar fréttir
| 540 orð
| 2 myndir
Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Ítölsk stjórnvöld hafa ákveðið að banna stórum skemmtiferðaskipum að sigla inn í miðborg Feneyja frá og með 1. ágúst en lengi hefur verið varað við því að stór skemmtiferðaskip kunni að valda óbætanlegum skemmdum á borginni.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Ársreikningar 63 af 69 sveitarfélögum sýna að nærri níu milljarða króna tap varð af rekstri A-hluta sveitarfélaganna á síðasta ári, borið saman við nærri 15 milljarða hagnað þeirra árið 2019.
Meira
19. júlí 2021
| Innlendar fréttir
| 314 orð
| 1 mynd
Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Gosóróinn tók sér tvær „kríur“ nú um helgina. Þannig lýsti Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, stöðunni á gosinu í samtali við blaðamann.
Meira
19. júlí 2021
| Innlendar fréttir
| 575 orð
| 3 myndir
Baksvið Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Sveitarfélögin fengu að kenna á því í rekstri sínum á síðasta ári, þar sem útgjöld jukust mun meira en tekjurnar.
Meira
19. júlí 2021
| Innlendar fréttir
| 607 orð
| 2 myndir
Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is Samtals greindist 21 með kórónuveiruna innanlands á föstudag og laugardag og 19 á landamærunum, alls 40. Á föstudaginn greindust 12 með veiruna innanlands og þar af voru fimm í sóttkví.
Meira
Enn bætast við atriði á dagskrá Þjóðhátíðar í Eyjum sem fram fer að vanda um verslunarmannahelgina og er dagskrá kvöldvökunnar á sunnudegi líka fullmótuð. Nýir flytjendur á dagskrá eru XXX Rottweiler, JóiPéxKróli, Sprite Zero Klan, Hipsumhaps og Háski.
Meira
Eftir Nancy Qian: "Á sama hátt og ákvarðanir stjórnmálaleiðtoga eru oft affarasælar eru kínversk stefnumál svo mikil að umfangi og framkvæmd, að þegar ákvarðanir reynast rangar geta afleiðingarnar orðið skelfilegar."
Meira
Eftir Benedikt S. Lafleur: "Draga má reynslu greinarhöfundar saman í eftirfarandi formúlu: Um 15 prósent allra lögmanna eru strangheiðarleg, 45 prósent heiðarleg, 35 prósent óheiðarleg og um 5 prósent afar óheiðarleg."
Meira
Minningargreinar
19. júlí 2021
| Minningargreinar
| 1727 orð
| 1 mynd
Ásdís Jónasdóttir fæddist í Stykkishólmi 4. júní 1941. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi í Reykjavík 24. júní 2021. Foreldrar hennar voru Jónas Pálsson, f. 24.9. 1904, d. 13.9. 1988, og Dagbjört H. Níelsdóttir, f. 6.2. 1906, d. 14.5. 2002.
MeiraKaupa minningabók
19. júlí 2021
| Minningargreinar
| 3719 orð
| 1 mynd
Elísabet Guðmundsdóttir fæddist 5. nóvember árið 1967 á Djúpavogi. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 10. júlí 2021. Elísabet var gift Emil Karlssyni, f. 6. janúar 1966, og áttu þau saman tvær dætur, Guðmundu Báru Emilsdóttur, f.
MeiraKaupa minningabók
19. júlí 2021
| Minningargreinar
| 1060 orð
| 1 mynd
Gísli Garðar Óskarsson fæddist í Reykjavík 3. maí 1942. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. júlí 2021. Foreldrar hans voru Óskar Gíslason, bóndi í Húnakoti, f. 4.2. 1918, d. 16.6. 2001, og Lovísa Anna Árnadóttir húsfreyja, f. 24.11. 1920, d. 6.1.
MeiraKaupa minningabók
Inga ísaksdóttir fæddist í Ási í Ásahreppi 19. júlí 1927. Hún andaðist 9. júlí 2021. Foreldrar hennar voru Kristín Þuríður Sigurðardóttir frá Selalæk, f. Helli í Ásahreppi 25.12. 1905, d. 6.3.
MeiraKaupa minningabók
Sigrún Guðjónsdóttir, Greniteig 9, Reykjanesbæ, fæddist 11. febrúar 1932 á Lyngum í Meðallandi, Vestur-Skaftafellssýslu. Hún lést 5. júlí 2021, á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Reykjanesbæ.
MeiraKaupa minningabók
Stóru bandarísku hlutabréfavísitölurnar þrjár lækkuðu um 0,75 til 0,86% í vikulok meðal annars vegna áhyggja fjárfesta af nýjum tölum sem sýna fjölgun kórónuveirutilvika í Bandaríkjunum.
Meira
19. júlí 2021
| Viðskiptafréttir
| 262 orð
| 2 myndir
Viðtal Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Áhugavert er að fulltrúar atvinnulífsins skulii ekki hafa spyrnt betur fótunum við hugmyndum um hækkun mótframlags launagreiðanda vegna lífeyrissjóðsiðgjalda.
Meira
Þvert á spár markaðsgreinenda lækkaði væntingavísitala bandarískra neytenda í byrjun júlí. Reuters greinir frá þessu og bendir á að bjartsýni neytenda vestanhafs hafi ekki mælst minni í fimm mánuði.
Meira
Akureyri Þær Elsa Kristín Egilsdóttir , Júlía Margrét Siguróladóttir , Rakel Sara Jónatansdóttir og Salka María Sævarsdóttir söfnuðu peningi með því að selja skeljar, steina og popp fyrir utan Nettó á Akureyri og færðu Rauða krossinum ágóðann.
Meira
Brynhildur Guðjónsdóttir borgarleikhússtjóri hefur í gegnum tíðina reynt að halda á lofti sögum sterkra kvenna. Hún er gestur í nýjasta þætti Dagmála og veltir því þar fyrir sér hvort konur þurfi alltaf að deyja til þess að vera skilgreindar sem...
Meira
Guðríður Guðjónsdóttir fæddist 18. júlí 1961 í Reykjavík. Guðríður, sem er alltaf kölluð Gurrý, ólst upp á miklu íþróttaheimili og hún æfði handbolta, fimleika og dans til 12 ára aldurs, en þá valdi hún handboltann.
Meira
Við elskum Ísland og höldum áfram í ferðagírnum í allt sumar og kynnumst allri þeirri upplifun sem Ísland hefur upp á að bjóða en K100 tekur þátt í bæjar- og fjölskylduhátíðinni Mærudögum á Húsavík um helgina. Bein útsending verður frá Hvalasafninu 23.
Meira
Líkamsburðir (fleirtöluorð) eru kraftar líkamans ; mikill að líkamsburðum (eða burðum ): kraftalegur . Orðið sést stundum haft um stöðu, stellingar, hvernig maður hreyfir sig – en um það er til eintalan líkamsburður .
Meira
40 ára Oddrún fæddist 19. júlí 1981 í Reykjavík og ólst upp í Hafnarfirði. „Það var yndislegt að alast upp í Hafnarfirði.“ Oddrún er lögfræðingur og lauk BA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og meistaranámi frá Háskólanum á Bifröst.
Meira
Elísabet Rut Rúnarsdóttir úr ÍR stóð sig vel á EM 20 ára og yngri í frjálsíþróttum í Tallinn á laugardag þegar hún náði sjöunda sæti í úrslitum sleggjukasts.
Meira
EM U19 kvenna B-deild í Norður-Makedóníu: Leikið um 5.-8. sæti: Ísland – Kósóvó 37:23 Leikið um 5. sæti: Ísland – Norður-Makedónía 32:30 Vináttulandsleikur karla Japan – Frakkland 32:47 • Dagur Sigurðsson þjálfar lið...
Meira
*Hin 22 ára gamla Andrea Kolbeinsdóttir setti brautarmet í Laugavegshlaupinu, sem fór fram í 25. sinn á laugardag, er hún hljóp fyrst kvenna undir fimm klukkustundum. Þetta var í fyrsta sinn sem hún tók þátt í hlaupinu.
Meira
„Þetta gerðist hratt. Um leið og ég heyrði í þeim þá var þetta mjög spennandi og þeir sýndu mér mjög mikinn áhuga. Þetta er mjög spennandi verkefni,“ sagði Hjörtur Hermannsson, landsliðsmaður í fótbolta, í samtali við Morgunblaðið.
Meira
Fótboltinn Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Breiðablik og KR náðu ekki að saxa verulega á forskot Vals á toppi Pepsi Max-deildarinnar í fótbolta þar sem þau skildu jöfn, 1:1, á heimavelli KR-inga í Frostaskjóli í gærkvöldi.
Meira
Svíþjóð Gautaborg – Mjällby 3:2 • Kolbeinn Sigþórsson lék fyrstu 88 mínúturnar með Gautaborg, skoraði og lagði upp tvö mörk. Örebro – Hammarby 0:2 • Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með Hammarby.
Meira
Bandaríkjamaðurinn Collin Morikawa heldur áfram að fagna ótrúlegum árangri en hann varð í gær sigurvegari á The Open-risamótinu í golfi á Royal St. George's-golfvellinum í Kent á Englandi.
Meira
Fótbolti Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is „Þetta gerðist hratt. Um leið og ég heyrði í þeim þá var þetta mjög spennandi og þeir sýndu mér mjög mikinn áhuga.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.