Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Lífið er stutt, en listin er löng og hún sigrar alltaf. Eða svona yfirleitt. Ég staðnæmist ekki við hið liðna eða erfi mál,“ segir Páll Guðmundsson í Húsafelli. Þegar komið er niður í Borgarfjörð um Kaldadal er mynd Páls af Johann Sebastian Bach sem útvörður héraðsins; andlitsdrættir hoggnir í stein af listfengi. Fjölda verka er einnig að finna heima við gamla bæinn í Húsafelli, þar sem heimili Páls og vinnustofa eru.
Meira