7 til 10 Ísland vaknar Kristín Sif og Jói G rífa hlustendur K100 fram úr ásamt Yngva Eysteins. Skemmtilegasti morgunþáttur landsins í sumar! 10 til 14 Þór Bæring Þór og besta tónlistin í vinnunni eða sumarfríinu. Þór hækkar í gleðinni á K100.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Arnarlax hefur á undanförnum mánuðum haldið áfram að þróa og aukið útflutning á ferskum laxi með skipum til Bandaríkjanna.
Meira
Andrés Magnússon andres@mbl.is Mikill fjöldi framkominna framboða eykur mjög óvissuna um það hvaða frambjóðendur eygja von um þingsæti í komandi alþingiskosningum, sem fram fara hinn 25. september.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Eldgosið og umhverfið breytist stöðugt. Mér finnst gaman að fylgjast með þeirri þróun auk þess sem ég hef alltaf mikla þörf fyrir hreyfingu. Þetta tvennt hef ég náð að sameina í göngum að gosinu,“ segir Eiríkur Óli Dagbjartsson, útgerðarstjóri í Grindavík. Eins og aðrir þar í bæ hefur Eiríkur eldgosið við Fagradalsfjall fyrir augunum og fylgist því vel með þróun þess.
Meira
Menntun Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Vankantar eru á inntökufyrirkomulagi í bæði lækna- og tannlæknadeild Háskóla Íslands. Nám við deildirnar tvær er dýrt og komast færri að en vilja. Það getur haft bæði neikvæð áhrif á fjárhag og andlega heilsu nemenda. Þá ríkir mikið kynjaójafnvægi innan þessarar æðstu menntastofnunar landsins þar sem 70% nemenda sem brautskrást frá skólanum eru konur en 65% prófessora sem starfa við skólann eru karlar, samkvæmt tölum frá 2019.
Meira
Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, heiðraði í gær þá Jan Kubis og Josef Gabcik, tékkóslóvösku fallhlífahermennina sem drápu Reinhard Heydrich, foringja í SS-sveitum nasista og einn af arkitektum helfararinnar gegn gyðingum.
Meira
Huga þarf betur að geðheilsu háskólanema sem og að jafna kynjahlutfall innan stærstu menntastofnunar landsins, Háskóla Íslands. Þetta er meðal þess sem Helga Hannesdóttir gæðlæknir kemur inn á í grein í Læknablaðinu.
Meira
Skrafað Mennirnir á bak við tjöldin, ráðherrabílstjórarnir, biðu þolinmóðir, eins og vant er, eftir því að ríkisstjórnarfundi lyki í gær. Þeir styttu sér stundir með góðu spjalli við...
Meira
Að minnsta kosti 60 Afganar og tólf bandarískir hermenn létust í hryðjuverkaárás í Kabúl. Þá særðust í það minnsta 150 manns. Sprengingarnar voru tvær.
Meira
Andrés Magnússon andres@mbl.is Smávægilegar fylgisbreytingar í kjördæmum og mismikil kjörsókn getur haft mikil áhrif á það hverjir veljast á þing í kosningum, ekki síst þegar framboð eru mörg og flest með fylgi um og undir 10%.
Meira
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Talið er að 60 manns hið minnsta hafi látist og 150 særst þegar tvær sprengjur sprungu með skömmu millibili í hryðjuverkaárás á alþjóðaflugvöllinn í Kabúl, höfuðborg Afganistans.
Meira
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Á miðvikudag var greint frá því að skrifstofa Landspítalans hefði blásið út síðasta áratuginn. Þannig sýndu opinberar tölur að starfsfólki sem heyrði undir hana hefði fjölgað um 115% á árabilinu 2010-2020. Vísaði blaðið þar til svara heilbrigðisráðuneytisins til Alþingis við fyrirspurn sem laut að rekstri stofnunarinnar.
Meira
Stjórnendur hins 160 ára gamla Albright-Knox-listasafns í Bandaríkjunum kynntu á norrænu CHART-listkaupstefnunni í Kaupmannahöfn í gær afar metnaðarfulla áætlun um að sýna, rannsaka og safna norrænni samtímamyndlist á næstu sex áratugum.
Meira
27. ágúst 2021
| Innlendar fréttir
| 1040 orð
| 2 myndir
Viðtal Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Fyrirtækið er ekki orðið tveggja ára gamalt en okkur hefur þegar tekist að breyta ferðahegðun þúsunda íbúa á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Við ætlum okkur stærri hluti og stefnum á að breyta ferðahegðun fólks um allan heim,“ segir Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík.
Meira
Tveir erlendir ferðamenn sem gerðu sér ferð upp að steinskipinu á Fagradalsheiði í Mýrdal voru með heiðna helgiathöfn á staðnum. Þeir helltu niður mörgum flöskum af dýru koníaki og skildu eftir hrúgu af ávöxtum, brauðhleif og hálsfesti á bak við stein.
Meira
Byggingar- og skipulagsyfirvöld í Reykjavík samþykktu á þriðjudag að leyfa Félagi múslima á Íslandi að byggja tveggja hæða bænahús við Suðurlandsbraut 76. Þetta kemur fram í fundargerð byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa borgarinnar frá 24. ágúst.
Meira
Baldur S. Blöndal baldurb@mbl.is Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins segir að hans flokkur sé í raun eini raunverulegi miðjuflokkurinn. Sigurður segir Miðflokkinn hafa lítið með miðjuflokksstefnu að gera þrátt fyrir nafnið.
Meira
Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is Vinirnir Bergþór Sverrisson og Daníel Darri Arnarsson hafa síðustu daga selt gamlar fótboltatreyjur af knattspyrnumanninum Eiði Smára Guðjohnsen á Facebook-síðunni Brask og Brall.
Meira
Reykjavíkurskákmót Kviku og EM einstaklinga í skák var sett á Hótel Natura í gær. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lék fyrsta leikinn á fyrsta borði í viðureign stórmeistarans Gawains Jones, sem er jafnframt stigahæstur í mótinu, og Iulians Baltags.
Meira
Ragnhildur Þrastardóttir Oddur Þórðarson Óverulegar breytingar á núverandi sóttvarnaaðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins taka gildi á laugardag. Þær gilda í þrjár vikur. Frekari breytingar taka svo gildi 3. september næstkomandi.
Meira
Hrefna Gísladóttir, sem dvelur á hjúkrunarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka, fagnar aldarafmæli í dag. Hrefna fæddist 27. ágúst 1921 á Ingveldarstöðum í Skagafirði, er elst þriggja systkina en átti eina fóstursystur.
Meira
Fjölmargir skólar norðanlands og eystra hafa síðustu daga brugðið á það ráð að færa kennsluna úr skólastofum út undir bert loft. Hitinn hefur víða verið á bilinu 25-28 gráður og verið nær ólíft innandyra. Í gær var nemendum í 5.
Meira
Fyrr í vikunni slitnaði upp úr kjaraviðræðum Félags íslenskra flugumferðarstjóra og SA fyrir hönd Isavia. Flugumferðastjórar hafa boðað vinnustöðvun næstkomandi þriðjudag en fram að þeim tíma má vænta þess að reynt verði að koma málinu farsællega í höfn þó að ekki blási byrlega sem stendur.
Meira
Í tilefni af 10+1 árs afmæli Menningarhússins Hofs verður vídeóverkið „Catalysis #2“ frumsýnt í kvöld kl. 21 en það var gert með afmælið í huga og er eftir Heimi Hlöðversson.
Meira
Opnuð hefur verið ljósmyndasýning á verkum Áskels Þórissonar í Gallerí Göngum í Háteigskirkju. „Um langt árabil hefur Áskell haft mikinn áhuga á ljósmyndun og þá ekki síst nærmyndum á íslenskri náttúru.
Meira
Sænski rithöfundurinn Gunilla Bergström er látin, 79 ára að aldri. Samkvæmt upplýsingum frá útgefanda hennar lést höfundurinn í svefni eftir langvarandi veikindi. Þessu greinir SVT frá.
Meira
Í frétt í blaðinu í gær kom fram að samsýning Sigurðar Ámundasonar og Jónatans Grétarssonar, Formlag , yrði opnuð í Midpunkt-galleríinu í Hamraborg í Kópavogi en hið rétta er að sýningin var opnuð í Tan & Tar, Hamraborg 1.
Meira
VIÐTAL Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Miklar breytingar standa nú yfir á einu elsta listasafni Bandaríkjanna, Albright-Knox-safninu í Buffalo-borg í New York-ríki en frá stofnun hefur það hvort tveggja safnað og sýnt samtímamyndlist hvers tíma.
Meira
Ný sýning hefur verið opnuð í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur og nefnist hún Endurfundur . Á henni má sjá ljósmyndir eftir Önnu Elínu Svavarsdóttur, sem fæddist árið 1961 og lést árið 2019.
Meira
Á liðnum árum hafa orðið gífurlegar framfarir í umhverfisvænum lausnum, betri nýtingu á auðlindum og sóun hefur minnkað. Á sama tíma hefur hugarfar og almenn þekking fólks á umhverfismálum gjörbreyst, þá sérstaklega á meðal yngri kynslóða.
Meira
Eftir Vilhjálm Bjarnason: "Með því að maðurinn ber ábyrgð á eigin lífi er verið að vísa til þess að lífsstílstengdir sjúkdómar koma oftar en ekki af ólifnaði."
Meira
Eftir Hrein S. Hákonarson: "Þjóðkirkjufólki gefst tækifæri til að móta kirkjuna á næstu misserum með virkri þátttöku á safnaðargrundvelli um skipulag kirkjunnar og framtíð."
Meira
Eftir Örn Gunnlaugsson: "Ef fólk smitast ekki í komusal Leifsstöðvar er tæplega nokkur von til að geta náð sér í afleggjara af veirunni huggulegu nokkurs staðar annars staðar."
Meira
Eftir Katrínu Þorsteinsdóttur: "Um hvernig breytingar á leiðakerfi strætó koma við okkur hér í Grafarvogi; Engjahverfi og Borgahverfi – hugleiðing notanda."
Meira
Anna Lilja Pálsdóttir fæddist í Kópavogi 29. maí 1955. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 20. ágúst 2021. Foreldrar hennar voru Páll Merkúr Aðalsteinsson bifreiðastjóri, f. 15.5. 1927, d. 3.12. 2014, og Guðrún Ester Björnsdóttir, f. 22.11.
MeiraKaupa minningabók
Ásmundur Jakobsson fæddist í Reykjavík 5. júlí 1946. Hann lést á Landspítalanum 17. ágúst 2021. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Ásmundsdóttir, f. 6.8. 1919 á Gilsbakka í Hvítársíðu, d. 24.12. 2005, og Jakob Gíslason orkumálastjóri, f. 10.3.
MeiraKaupa minningabók
Erla Björk Daníelsdóttir fæddist í Borgarnesi 2. október 1928. Hún lést í Brákarhlíð í Borgarnesi 20. ágúst 2021. Foreldrar hennar voru hjónin Ingiríður Gunnlaugsdóttir húsmóðir, f. 28.2. 1902 í Selárdal í Hörðudal í Dalasýslu, d. 10.6.
MeiraKaupa minningabók
Jens Jónsson fæddist í Reykjavík 2. janúar 1935. Hann lést á Landspítalanum Fossvogi 9. ágúst 2021. Foreldrar hans voru Jón Bjarnason, f. 4. maí 1909, d. 14. apríl 1975, og Þóra Lára Grímsdóttir, f. 3. júlí 1916, d. 17. mars 1988. Hinn 31.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Kristjánsson fæddist á Löndum í Stöðvarfirði 11. febrúar 1931. Hann lést á líknardeild Landspítalans 17. ágúst 2021. Sigurður var sonur hjónanna Kristjáns Þorsteinssonar, f. 19. febrúar 1905, d. 19.
MeiraKaupa minningabók
Sjávarútvegsfyrirtækið Síldarvinnslan var rekið með rúmlega fjögurra milljarða króna hagnaði á öðrum fjórðungi ársins. Á sama tíma á síðasta ári var félagið rekið með níu hundruð milljóna króna hagnaði og hækkunin milli tímabila nemur því 346%.
Meira
Upplýsingatæknifyrirtækið Origo hagnaðist um tæpar 84 milljónir króna á öðrum fjórðungi ársins. Það eru umskipti frá sama tímabili í fyrra, en þá var félagið rekið með 53 mkr. tapi.
Meira
Hagnaður samstæðu Kviku banka hf. á fyrri helmingi ársins nam rúmlega fimm milljörðum króna samanborið við rúmlega níu hundruð mkr. hagnað á sama tímabili í fyrra. Breytingin er 446% milli ára. Hagnaður félagsins fyrir skatta var rúmlega 4,6 ma.kr.
Meira
Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og skíðaleiðsögumaður ræðir um undirbúning að gerð alþjóðlegrar sjónarpsþáttaseríu sem byggist á bók hennar Fjallaverksmiðja Íslands.
Meira
Tölvuleikjarisinn Nintendo á í góðu samstarfi við óhagnaðardrifin samtök að nafni Starlight Children's Foundation, sem sérhæfa sig í því að gleðja veik börn og fjölskyldur þeirra.
Meira
30 ára Lilja Rúriksdóttir fæddist og ólst upp í Reykjavík. Hún byrjaði í dansi aðeins þriggja ára í Ballettskóla Eddu Scheving og níu ára fór hún í Listdansskóla Íslands og var þar til 2008.
Meira
Guðlaugur Helgi Guðlaugsson fæddist 27. ágúst 1961 í Keflavík og hefur alla tíð búið þar. „Það var mikið um að vera hérna í Keflavík. Það var alltaf mikið að gerast í kringum bryggjuna og alltaf líf og fjör í bænum, enda margir krakkar.
Meira
Staðan kom upp á ofurskákmótinu Sinquefield Cup sem lýkur á morgun í St. Louis í Bandaríkjunum. Bandaríski stórmeistarinn Fabiano Caruana (2.806) hafði hvítt gegn kollega sínum og landa, Sam Shankland (2.709) . 28. Rg4!
Meira
Baráttan í neðri hluta Pepsí Max-deildar kvenna í knattspyrnu verður áhugaverðari með hverjum leiknum sem er leikinn. Keflavík er með 13 stig í 8. sæti, Fylkir 12 stig í 9. sæti og Tindastóll 11 stig í neðsta sæti þegar þrjár umferðir eru eftir.
Meira
Í Tókýó Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Íslenska frjálsíþróttafólkið sem mætt er til keppni á Ólympíumót fatlaðra í Tókýó tekur þátt í sínum greinum um helgina.
Meira
Hið kunna svissneska lið Basel réð lítið við miðvörðinn Jón Guðna Fjóluson þegar Hammarby og Basel mættust í síðari leik liðanna í 4. umferð Sambandsdeildar UEFA. Hammarby var yfir 2:0 að loknum venjulegum leiktíma eftir tvö mörk frá Jóni Guðna á 48.
Meira
Víðir Sigurðsson í Tókýó vs@mbl.is Sundkonan Thelma Björg Björnsdóttir er reyndasti keppandi Íslands á Ólympíumótinu í Tókýó og í nótt keppir hún í fyrri grein sinni á mótinu, 100 metra bringusundi.
Meira
Í Tókýó Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Talsverð eftirvænting ríkir meðal Íslendinganna í Tókýó fyrir 100 metra baksund blindra á morgun en þar hefur Már Gunnarsson verið í fremstu röð í heiminum.
Meira
Óskar Örn Hauksson, fyrirliði KR-inga og leikjahæsti leikmaðurinn í sögu efstu deildar karla í fótbolta, var besti leikmaður 7. umferðar deildarinnar sem lauk í fyrrakvöld, að mati Morgunblaðsins.
Meira
Alexia Putellas og Jorginho voru útnefnd knattspyrnufólk ársins í Evrópu fyrir tímabilið 2020-2021 í verðlaunahófi Knattspyrnusambands Evrópu og Samtaka evrópskra íþróttafjölmiðla.
Meira
* Shelly-Ann Fraser-Pryce frá Jamaíka náði í gærkvöldi þriðja besta tíma sögunnar í 100 metra hlaupi á Demantamóti í Sviss. Tími Frase-Preyce var stórkostlegur en hún hljóp á 10,60 sekúndur. Hið lífsseiga met Florence Griffith-Joyner er 10,49 sekúndur.
Meira
KR skaust á toppinn í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu, þeirri næstefstu, með mikilvægum sigri á Aftureldingu í Mosfellsbænum í gærkvöld. KR vann 3:0 og fór upp fyrir FH og Aftureldingu sem voru í tveimur efstu sætunum. En naumlega þó.
Meira
Helga Guðný Theódórsdóttir flutti til Kaliforníu 2007 og kolféll fyrir Barre-leikfimi sem er sambland af pilates-æfingum, jóga og styrktaræfingum.
Meira
Stefán Ingvar Vigfússon, grínisti og meðlimur í uppistandshópnum VHS, segir hlátur lengja lífið. Draumastarfið hans, fyrir utan uppistand, væri að vera fyndna manneskjan á skrifstofunni.
Meira
Guðrún Bergmann rithöfundur lét ekki sitt eftir liggja þegar Stígamót opnuðu á sínum tíma og fór að panta bækur fyrir konurnar sem þangað þurftu að leita. Lítið vissi hún fyrr en seinna að í raun var hún að flytja inn bækurnar fyrir sjálfa sig. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Meira
Þegar þú hefur sigrast á mjög stórri áskorun þá er fátt í lífinu sem þér þykir mjög erfitt að mati Sigurjóns Ernis Sturlusonar afreksíþróttamanns.
Meira
Sylvía Margrét Cruz missti móður sína úr krabbameini þegar hún var tólf ára. Frá þeim tíma hefur hana dreymt um að verða skurðlæknir svo hún geti lagt sitt af mörkum í baráttunni gegn krabbameini. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Meira
Una Emilsdóttir er læknir og eiturefna-aðgerðasinni. Hún segir að við verðum að fara að hugsa um hvað við borðum, hvað við berum á húðina og hvað við bjóðum börnunum okkar upp á. Marta María | mm@mbl.is
Meira
Það er til fólk sem myndi helst ekki láta sjá sig í flíspeysu úti á meðal fólks. Þessi hópur gæti þó þurft að skipta um skoðun því flíspeysurnar frá Patagonia eru töluvert meira spennandi en gengur og gerist.
Meira
Pjattrófur og snyrtipinnar þessa heims sem leggja mikið upp úr því að líta vel út í ræktinni ættu að geta glaðst heilmikið núna. Íþróttamerkið Nike er komið með splunkunýja Savaleos-lyftingaskó sem eru ekki bara smart heldur líka traustir.
Meira
Áhrifavaldurinn og matarbloggarinn Linda Ben er í frábæru formi enda fær hún kraftinn í gegnum daglega hreyfingu. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Meira
Í fjöldamörg ár hafa heilsugúrúar heimsins lagt ofuráherslu á að fólk nái innri friði. Við mannfólkið eigum að finna okkar innri frið og hugleiða í svo og svo margar mínútur á dag til þess að geta lifað fimm stjörnu lífi.
Meira
Leikfimidrottningin Anna Eiríksdóttir, deildarstjóri í Hreyfingu og eigandi annaeiriks.is, veit að það getur verið eriftt að koma sér af stað eftir sumarfrí. Hér deilir hún góðum ráðum fyrir þá sem þrá að hreyfa sig meira og lifa heilsusamlegra lífi.
Meira
„Þegar fólk áorkar einhverju, setur sér markmið og nær því, þá batnar bæði sjálfstraustið og sjálfsálitið og manneskjan fer að trúa því að hún geti meira. Náð fleiri markmiðum.
Meira
Þegar haustið skellur á með öllum sínum töfrum skiptir máli að næra húðina vel svo hún verði ekki þurr og líflaus. Húð líkamans verður fyrir alveg jafn miklu áreiti og húðin í andlitinu eða allt að 100.000 sinnum á hverjum degi.
Meira
Jón Ívar Einarsson, prófessor við læknadeild Harvard-háskóla, var 37 ára þegar hann fékk stöðu deildarstjóra við læknadeild skólans. Í dag er hann sérfræðingur í legslímuflakki og er án efa réttur maður á réttum stað.
Meira
Sólveig Eiríksdóttir, eða Solla eins og hún er alltaf kölluð, hefur verið í fararbroddi á heilsusviðinu í meira en 30 ár. Nú stendur hún á tímamótum. Búin að selja Gló og hefur sagt skilið við samferðamann sinn til 19 ára.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.