Íslendingar bera höfuð og herðar yfir aðra Evrópubúa í notkun netsins til náms samkvæmt frétt Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, sem byggð er á könnunum í 30 Evrópulöndum.
Meira
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hróp og góðar hugsanir í borðsalnum á Jóni Kjartanssyni SU 111 dugðu ekki til að Ísland næði stigi gegn liði Króatíu á EM í handbolta í gær. „Við gerðum það sem við gátum,“ sagði Grétar Rögnvarsson skipstjóri þegar rætt var við hann skömmu eftir leik. Dagurinn var skipulagður þannig að mannskapurinn gæti horft á leikinn á loðnumiðunum 60-70 austur af Langanesi. Sjálfsagt hefur stemningin verið svipuð um borð í öðrum skipum loðnuflotans, sem mörg hver voru á sömu slóðum í gær.
Meira
Ísland á enn möguleika á að komast í undanúrslit Evrópumóts karla í handknattleik þrátt fyrir beiskan ósigur gegn Króötum í Búdapest í gær, 22:23. Í lokaumferðinni á morgun þarf íslenska liðið að sigra Svartfjallaland í leik sem hefst kl. 14.
Meira
Birkir Ingibjartsson, arkitekt og verkefnastjóri hjá borgarskipulagi Reykjavíkur, gefur kost á sér í 5. sætið í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Nýr forseti verður kjörinn á ársþingi Bridgesambands Íslands (BSÍ) 20. febrúar næstkomandi, en þá hættir Jafet Ólafsson eftir að hafa stýrt sambandinu í nær 13 ár. „Ég held að það sé ekki hollt að vera of lengi í svona starfi og bridshreyfingin þarf nýtt blóð auk þess sem ákvörðunin um að hætta er liður í að hægja á mér, fækka trúnaðarstörfunum, enda er ég orðinn sjötugur.“ Ólöf Þorsteinsdóttir hættir á sama tíma sem framkvæmdastjóri eftir 15 ára starf og Matthías Imsland tekur við af henni.
Meira
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, lýsti því yfir um helgina að hún gæfi áfram kost á sér sem oddviti flokksins í borginni. Þar með hafa allir oddvitar meirihlutaflokkanna í borgarstjórn ákveðið að gefa kost á sér áfram.
Meira
Miðbærinn Þær gengu um miðborgina í gær með bros á vör þessar konur, enda veðrið hið ágætasta þótt langt sé liðið á janúarmánuð. Líklega vissu þær ekki af tapinu gegn...
Meira
Ung kona lést og þrír aðrir særðust þegar byssumaður hóf skothríð í einum fyrirlestrasal háskólans í Heidelberg. Árásarmaðurinn flúði af vettvangi og framdi sjálfsmorð skömmu eftir árásina.
Meira
Býfluga sem á ensku kallast Carpenter Bee barst Erling Ólafssyni skordýrafræðingi nýverið. Hún mun ekki áður hafa verið greind hér á landi, en Erling hefur gefið henni heitið trjáholubý.
Meira
Héraðsdómur Norðurlands eystra sakfelldi fyrir helgi karlmann fyrir brot gegn valdstjórninni en maðurinn hafði hótað vitni í sakamáli. Var maðurinn dæmdur í 60 daga óskilorðsbundið fangelsi.
Meira
Helga Jóhannesdóttir, varabæjarfulltrúi og nefndarmaður í skipulagsnefnd, sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ sem fer fram laugardaginn 5. febrúar.
Meira
Guðni Einarsson Jóhann Ólafsson Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur rétt að létta á sóttvarnaaðgerðum og einfalda þær. Hann var í gær að leggja lokahönd á tillögur þar að lútandi. Tíu manna samkomutakmarkanir gilda til 2. febrúar.
Meira
Einar Hermannsson sagði í gær af sér formennsku í SÁÁ. Í yfirlýsingu sagði hann ástæðuna fyrir því að hann segði af sér formennsku þá að hann svaraði auglýsingu á netinu fyrir nokkrum árum þar sem í boði var kynlíf gegn greiðslu.
Meira
Vegagerðin braut ekki gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna við ráðningu í starf forstöðumanns stoðdeildar á mannvirkjasviði stofnunarinnar. Þetta varð niðurstaða kærunefndar jafnréttismála 8. desember 2021 í máli konu gegn Vegagerðinni.
Meira
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sala á mjólkurvörum jókst á síðasta ári, eftir samdrátt á árinu á undan. Hún hefur þó ekki náð sömu stöðu og var áður en kórónuveirufaraldurinn byrjaði að herja á samfélagið.
Meira
Liðsinni Klíníkurinnar við Landspítalann lýkur í lok þessarar viku. Samstarfið gekk vel fyrir sig en vegna gangs faraldursins reyndi minna á það en óttast var.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Minnst fimm pör hafa þegar skráð sig og vilja verða gefin saman í Grafarvogskirkju hinn 22. febrúar næstkomandi.
Meira
Margrét Sanders gefur áfram kost á sér í oddvitasæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, en ákveðið var í fulltrúaráði nýverið að halda prófkjör.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Stjórn Herjólfs og framkvæmdastjóri fengu kvartanir eftir áramótin um óeðlileg vinnubrögð eins af þremur skipstjórum ferjunnar um hátíðarnar.
Meira
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Atlantshafsbandalagið tilkynnti í gær að það hygðist senda herskip og þotur til bækistöðva sinna í austurhluta Evrópu, auk þess sem nokkur af bandalagsríkjunum, þar á meðal Holland, ætla að auka þann fjölda hermanna sem eru til taks fyrir svonefndar hraðsveitir bandalagsins.
Meira
Von er á flugsveit portúgalska hersins hingað til lands í vikunni, sem kemur með fjórar F-15-orrustuþotur og um 85 liðsmenn sem munu hafa aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Meira
Áhugi er fyrir því að kaupa frá Færeyjum til Íslands ferjuna Teistuna , sem sl. tuttugu ár hefur verið notuð til siglinga til Sandeyjar frá Skopun á Sandey, skammt frá Þórshöfn.
Meira
Sölvi Blöndal, teymisstjóri útgáfufyrirtækisins Öldu Music, sem í gær var selt til stærsta tónlistarfyrirtækis heims, Universal Music Group, vill að íslenski tónlistarbransinn hætti að vera „bransi“ og verði iðnaður, líkt og annars staðar á...
Meira
Amir Khan Muttaqi, utanríkisráðherra talíbanastjórnarinnar í Afganistan, fagnaði því í gær að þeim hefði verið boðið til Noregs til viðræðna við fulltrúa vestrænna ríkja.
Meira
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Innlán hjá íslenskum innlánsstofnunum uxu um ríflega 184 milljarða króna á nýliðnu ári. Þetta má lesa úr nýbirtum tölum Seðlabankans yfir efnahag þeirra.
Meira
Embættismenn frá Rússlandi og Úkraínu munu halda til Parísar á morgun til viðræðna við franska og þýska embættismenn og freista þess að lægja öldurnar og draga úr spennu á landamærum Úkraínu og Rússlands.
Meira
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða nam 10,3% á nýliðnu ári. Þetta er mat Landssamtaka lífeyrissjóða sem þó gera fyrirvara við upplýsingarnar og segja að endanleg niðurstaða liggi ekki fyrir fyrr en ársreikningar sjóðanna fyrir árið 2021 liggja fyrir.
Meira
Umhverfisstofnun telur að eina raunhæfa aðgerðin sem geti komið í veg fyrir mikil og neikvæð umhverfisáhrif vegna nýs vegar um Mýrdal sé að velja veginum annan stað en gert er ráð fyrir í áætlunum.
Meira
Á útboðsþingi Samtaka iðnaðarins sem haldið var fyrir helgi flutti innviðaráðherra athyglisvert erindi þar sem meðal annars kom fram að bregðast þyrfti við þungu skipulagsferli og lóðaskorti. Ráðherra sagði að ríkið bæri ábyrgð á að einfalda regluverk „en sveitarfélögin þurfa að tryggja skjóta afgreiðslu“. Ráðherra benti einnig á að jafnvægi þyrfti að vera á húsnæðismarkaði, eftirspurn og framboð þyrftu að haldast í hendur. Hann sagði enn fremur að skortur á húsnæði hefði leitt til þenslu á húsnæðismarkaði með fordæmalausum verðhækkunum sem hefðu haft víðtæk áhrif.
Meira
Sýning um Valgerði Jónsdóttur stendur nú yfir í Landsbókasafni Íslands í Þjóðarbókhlöðunni í tilefni af því að liðin voru 250 ár frá fæðingu hennar 14. desember síðastliðinn.
Meira
Tökur á væntanlegri kvikmynd um Leðurblökustúlkuna, Batgirl , eru hafnar og um helgina fóru þær fram í Glasgow í Skotlandi sem í myndinni á að vera Gotham-borg, sú hin sama og Leðurblökumaðurinn býr í. Stendur til að frumsýna myndina á þessu ári.
Meira
Taugatitringur og blóðþrýstingur hefur verið allsvakalega hátt uppi undanfarið hjá mér og er það í beinum tengslum við leiki íslenska handboltaliðsins úti í Búdapest.
Meira
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Okkur fannst vanta bókmenntasögu sem væri sniðin að þörfum nemenda okkar í Háskólanum, sem flestir eru fæddir á tuttugustu og fyrstu öld.
Meira
Í nýrri heimildarmynd, sem frumsýnd er á Sundance-kvikmyndahátíðinni sem hófst 20. janúar, er tónlistarmaðurinn Marilyn Manson sakaður um nauðgun á tökustað tónlistarmyndbands.
Meira
Eftir Sigríði Huldu Jónsdóttur: "Það er áskorun á tímum heimsfaraldurs fyrir einstaklinga, stofnanir og samfélög að efla og rækta velvild og bjartsýni. Öll getum við lagt lið."
Meira
Eftir Hólmgeir Baldursson: "Við gömlu „vídeókarlarnir“, sem erum enn að kaupa sýningarréttindi og reyna að setja upp eitthvert lífsviðurværi, erum ofurseldir kostnaði við textun."
Meira
Eftir Knút Bruun og Helga Hjálmarsson: "Loksins, loksins kominn ráðherra með einföld og skýr skilaboð um framtíð íslenskrar myndlistar og byggingu alvörulistasafns í landinu."
Meira
Í greinaröð Stundarinnar „Plastið fundið“ kemur í ljós að í júlí 2020 vissi framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs af plastplatinu mikla, hvernig íslenskt plast endaði í raun í vöruskemmu í Svíþjóð en ekki í endurvinnslu.
Meira
Eftir Jónas Elíasson: "Nýjar tæknilegar forsendur í stað þeirra sem nú eru notaðar eru nauðsynleg forsenda fyrir skilvirkri stefnumörkun á hinu pólitíska sviði í Reykjavík."
Meira
Eftir Þorgrím Þráinsson: "Við getum múrað upp í skemmdir samfélagsins á tímum Covid með tuga milljarða framlagi en náum ekki að brauðfæða börn á skólatíma."
Meira
Aðalbjörg fæddist á Stóruvöllum í Bárðardal 3. september 1928. Hún lést í Reykjavík 30. desember 2021. Foreldrar Aðalbjargar voru hjónin Jón Baldur Jónsson og Þuríður Pálsdóttir. Systkini hennar eru Jónína María, f. 1930, Sigríður, f. 1933 og Steinar,...
MeiraKaupa minningabók
Edda Alice Kristjánsdóttir fæddist á Akureyri 11. júlí 1935. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 17. janúar 2022. Foreldrar hennar voru Svafa Friðriksdóttir húsmóðir, f. 29. janúar 1904, d. 27.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Ingi, eða Ingi eins og hann var alltaf kallaður, fæddist í Hafnarfirði 5. maí 1938. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut 15. janúar 2022. Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson, sjómaður í Hafnarfirði, f. 3. ágúst 1905, d. 26.
MeiraKaupa minningabók
Ólína Ragnheiður Jónsdóttir fæddist á Sauðárkróki 7. október 1929. Hún lést 92 ára að aldri á Landspítalanum í Fossvogi 16. janúar 2022.
MeiraKaupa minningabók
Sigurdór Sigurdórsson fæddist 24. nóvember 1938 á Akranesi. Hann lést á Landspítalanum 26. desember 2021. Foreldrar hans voru Guðrún Tómasdóttir, f. 1909, d. 1951, og Sigurdór Sigurðsson, f. 1895, d. 1963. Sigurdór á eina alsystur, Ragnhildi Jónínu, f.
MeiraKaupa minningabók
Aðallisti Kauphallar Íslands lækkaði eins og hann lagði sig í viðskiptum gærdagsins. Mest nam lækkun Skeljungs eða 4,31% í 19 milljóna viðskiptum. Þá lækkuðu bréf Origo um 4,29% í 29 milljóna viðskiptum.
Meira
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Útlán bankakerfisins til fyrirtækja jukust um 44,3 milljarða króna á nýliðnu ári. Er í tölunum tekið tillit til upp- og umframgreiðslna eldri lána.
Meira
Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Universal Music/InGrooves, stærsta tónlistarfyrirtæki heims, hefur gengið frá kaupum á íslenska útgáfufyrirtækinu Öldu Music. Kaupverð er trúnaðarmál en eigendur Öldu Music voru Sölvi Blöndal, Ólafur Arnalds, Reynir Harðarson og Jón Gunnar Jónsson.
Meira
60 ára Áslaug er fædd og uppalin í Stykkishólmi og hefur búið þar nær alla tíð. Hún er kirkjuvörður í hálfu starfi, meðhjálpari og formaður sóknarnefndar Stykkishólmskirkju.
Meira
Birna Hafstein fæddist 25. janúar 1972 í Reykjavík. Hún var í Ölduselsskóla og Seljaskóla en flutti þá í Fossvoginn þar sem hún bjó lengi vel í foreldrahúsum og var í Fossvogsskóla og Réttarholtskóla og svo lá leiðin í Verzlunarskóla Íslands.
Meira
„Ég og félagi minn stofnuðum Gleðismiðjuna einfaldlega til að búa til gleði og stemningu hjá hópum út um allan bæ,“ sagði Finnbogi Þorkell Jónsson í Ísland vaknar á dögunum.
Meira
Ég fékk fallegan póst frá Ingólfi Ómari Ármannssyni: „Nú er hinn landskunni kaupmaður á Sauðárkróki, Bjarni Har., látinn. Ég kannaðist vel við Bjarna alveg frá því ég var lítill drengur.
Meira
Að ákveða eitthvað fer svona fram: ég ákveð, við ákveðum o.s.frv. og í viðtengingarhætti: (þótt) ég ákvæði , (þótt) við ákvæðum . Þarna finnst sumum eðlilegt að segja „ákveddi“ og „ákveddum“ og skal þeim ekki lagt það til lasts.
Meira
Ísland stendur frammi fyrir gríðarlega harðri alþjóðlegri samkeppni um ferðamenn, ef heimsfaraldrinum er að ljúka, eins og margt bendir til. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, kallar þetta Ólympíuleikana í...
Meira
Selfoss Hekla Sif Haraldsdóttir fæddist 17. apríl 2021 í Reykjavík. Hún vó 3.960 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Haraldur Óli Kjartansson og Gunnhildur Þórðardóttir...
Meira
Enska úrvalsdeildarfélagið Watford þarf nú að ráða sinn áttunda knattspyrnustjóra á aðeins 28 mánuðum eftir að hafa sagt Ítalanum Claudio Ranieri upp í gær. Ranieri tók við í byrjun október og stýrði Watford í aðeins 14 leikjum á 112 dögum.
Meira
* Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður í handknattleik kom inn í hóp Íslands fyrir leikinn gegn Króatíu í gær. Hann var laus úr einangrun eftir að hafa greinst með kórónuveiruna í síðustu viku og misst af leikjunum við Dani og Frakka.
Meira
Hvernig verður liðið sem Guðmundur Guðmundsson stillir upp í lokaumferð milliriðlakeppninnar á EM í Búdapest á morgun þegar Ísland mætir Svartfjallalandi? „Smit dagsins “ hefur verið mesti spennuþátturinn á mótinu.
Meira
Tom Brady og liðsfélagar í meistaraliðinu Tampa Bay Buccaneers féllu úr keppni í átta liða úrslitum NFL-deildar ameríska fótboltans í fyrrinótt. Liðið tapaði þá fyrir LA Rams á heimavelli, 30:27.
Meira
Handknattleiksmaðurinn Oddur Gretarsson hefur framlengt samning sinn við þýska félagið Balingen og leikur með því til vorsins 2023. Oddur, sem er 31 árs hornamaður, hefur leikið með Balingen frá 2017, tvö fyrstu árin í B-deildinni en eftir það í 1.
Meira
Í Búdapest Kristján Jónsson kris@mbl.is Eftir að hafa unnið upp fimm marka forskot í síðari hálfleik var sárt fyrir íslensku landsliðsmennina í handknattleik að þurfa að sætta sig við eins marks tap gegn Króatíu, 22:23, á EM í Búdapest í gær.
Meira
Breiðablik vann ótrúlegan stórsigur á KR, 135:87, þegar liðin mættust í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í Smáranum í gærkvöld. Staðan í hálfleik var 65:50 og Blikar skoruðu 70 stig í seinni hálfleiknum, þar af 47 í þriðja leikhluta.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.