Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Um 72% af dreifikerfi Rarik eru komin í jarðstrengi eða hátt í sjö þúsund kílómetrar. Áætla má að kostnaður við það sem eftir er sé um 15 milljarðar króna, á verðlagi í dag. Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri Rarik, segir að fyrirtækið hafi fundið það vel í stórviðrum á allra síðustu árum hversu mikilvægt sé að hafa stóran hluta kerfisins í jörð. Tjón hefði að öðrum kosti orðið mun meira.
Meira
Um 72% af dreifikerfi Rarik eru komin í jarðstrengi eða hátt í sjö þúsund kílómetrar. Áætla má að kostnaður við það sem eftir er sé um 15 ma. kr. á verðlagi í dag.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bensín hefur aldrei verið dýrara í krónum talið en nú, að sögn Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). Í gær var bensínið dýrast á mörgum stöðvum N1 eða 281,90 kr./l og 280,80 kr.
Meira
Landsréttur sýknaði í gær íslenska ríkið af kröfu innflutningsfyrirtækis um að úrskurði tollgæslustjóra um tollflokkun innflutts mozzarella-osts yrði hnekkt. Danól ehf.
Meira
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti í vikunni ályktun þar sem lýst er furðu á þeirri stöðu sem kom upp í byrjun vikunnar þegar vegurinn um Hellisheiði var lokuður fyrir allri umferð í þrjá sólarhringa.
Meira
Greining er hafin á Landspítalanum á leghálssýnum. Undirbúningsvinna hefur staðið yfir undanfarna mánuði, bæði á greiningu HPV-veiru og smásjárskoðun frumusýna. Komið hefur verið upp tækjakosti og starfsfólki.
Meira
Sviðsljósið á Vetrarólympíuleikunum í Peking hefur síðasta sólarhringinn verið á rússnesku skautastjörnunni Kamilu Valievu, sem er aðeins 15 ára gömul.
Meira
Viðtal Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Þegar múrar milli háskólastarfs, vísinda, nýsköpunar og atvinnulífs eru felldir skapast óteljandi tækifæri,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Meira
Fresta þurfti aðgerðum við Ölfusvatnsvík í gær þar sem ísilagt Þingvallavatn kom í veg fyrir að hægt væri að hífa upp flak flugvélarinnar TF-ABB sem fórst á fimmtudag í síðustu viku.
Meira
Logi Sigurðarson logis@mbl.is Að minnsta kosti átta íslenskir ríkisborgarar eru nú staddir í Úkraínu. Þetta staðfestir Sveinn H. Guðmarsson upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins.
Meira
Ljósbrot Íshellar, sem myndast og hverfa eftir högum móður náttúru, geta skapað skemmtilegar ljósasýningar eins og þessi hellir í Breiðamerkurjökli gerir...
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Komið hefur í ljós að mygluna, sem fundist hefur í húsnæði félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins í Skógarhlíð 6, er víða að finna í kjallara hússins og mælst hefur hækkaður raki í botnplötu byggingarinnar.
Meira
Cressida Dick, lögreglustjóri Lundúna, hefur neyðst til að segja af sér embætti eftir að Sadiq Khan borgarstjóri lýsti því yfir að hann bæri ekki lengur traust til hennar.
Meira
Runólfur Pálsson, nýskipaður forstjóri Landspítala, segir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra hafa mikið til síns máls þegar hann veltir fyrir sér hvort lausnin á vanda Landspítalans sé ekki endilega fólgin í auknum fjárveitingum, heldur betri nýtingu...
Meira
Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga mótmæla harðlega tillögum sem feli í sér skerðingu á skipulagsvaldi sveitarfélaga yfir flugvöllum í umsögn við frumvarp innviðaráðherra um loftferðir.
Meira
Hallfríður Nanna Franklínsdóttir lést á sjúkrahúsinu á Siglufirði í gær, 105 ára að aldri. Hún hafði verið elst núlifandi Íslendinga eftir að Dóra Ólafsdóttir féll frá 4. febrúar síðastliðinn, á 110. aldursári. Nanna fæddist 12.
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Myndavélabúnaði, sem gerir lögreglu kleift að greina númeraplötur ökutækja og í sumum tilfellum að rekja leiðir ökutækja ef þörf krefur, hefur nýlega verið bætt við á götum á höfuðborgarsvæðinu.
Meira
Viktor Orbán, hinn hægrisinnaði forsætisráðherra Ungverjalands, er sagður vonast til þess að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, komi í heimsókn til sín til að styrkja sig og flokk sinn í baráttunni fyrir þingkosningarnar sem þar fara fram...
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mikil óánægja er með ákvörðun matvælaráðuneytisins um að greiða sérstakan stuðning við matvælaframleiðslu vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði á áburði út sem álag á jarðræktarstyrki og landgreiðslur á síðasta ári. Forysta Bændasamtaka Íslands lagði til að bændur fengju endurgreiddan hluta af kostnaði við áburðarkaup ársins í ár, þannig að stuðningurinn nýttist örugglega þeim sem verða fyrir barðinu á áburðarverðshækkun.
Meira
Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hefur ákveðið að gefa kost á sér til þess að leiða lista sjálfstæðismanna í borginni fyrir kosningar í vor.
Meira
Baksvið Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Íslensk stjórnvöld hafa hafnað málaleitan Norðmanna um framlengingu á þeim tíma sem þeir hafa til loðnuveiða hér við land. Sömuleiðis verður þeim ekki heimilt að fjölga skipum, sem hverju sinni eru við loðnuveiðar við landið.
Meira
Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Viðamikið einkaskjalasafn Ólafs Ragnars Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, alþingismanns og ráðherra, sem hann afhenti Þjóðskjalasafninu fyrir tæpum sex árum, er enn lokað almenningi og fræðimönnum.
Meira
Hólmfríður María Ragnhildardóttir Gunnhildur Sif Oddsdóttir Verulegar afléttingar á samfélagslegum takmörkunum vegna heimsfaraldurs Covid-19 tóku gildi á miðnætti.
Meira
Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður Fylkis, sækist eftir þriðja sæti á lista flokksins í prófkjörinu sem haldið verður í næsta mánuði.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þegar nýjasta markaskráin var í vinnslu átti að taka markið „sýlt og gagnfjaðrað vinstra“ af Friðgeiri Smára Stefánssyni, bónda á Laugardalshólum í Bláskógabyggð. Hann varði sitt mark og hélt því hreinu. „Í úrskurði landbúnaðarráðuneytisins kom fram að enginn bóndi á Íslandi hefði getað rakið mark sitt eins langt aftur og ég gerði og þar með hélt ég markinu.“
Meira
Joe Biden Bandaríkjaforseti hvatti í gær bandaríska ríkisborgara til að yfirgefa Úkraínu tafarlaust því allt gæti farið þar í bál og brand á hverri stundu. Benti forsetinn á gríðarlegan liðsafnað rússneska hersins við landamærin máli sínu til stuðnings.
Meira
Úr bæjarlífinu Sigmundur Sigurgeirsson Selfossi Kynning stendur nú yfir á drögum að nýju aðalskipulagi í Árborg, sem gilda á til ársins 2036. Er þar ýmislegt að finna svo sem um þéttingu byggðar, áætlanir um fjölgun íbúða og byggingarþörf.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Í byrjun febrúar undirrituðu Þörungaverksmiðjan hf. og Reykhólahreppur stofnsamning vegna Þörungamiðstöðvar Íslands á Reykhólum við Breiðafjörð.
Meira
Macron Frakklandsforseti hefur greint frá áætlunum um að byggja sex ný kjarnorkuver í landinu. Þannig geti þjóðin orðið óháð orku frá erlendum ríkjum og náð loftslagsmarkmiðunum fyrir árið 2050.
Meira
Fjáraustur meirihluta borgarstjórnar vegna Borgarlínu er byrjaður þó að enn liggi ekkert fyrir um rekstrarkostnað eða útfærslu. Á fundi borgarráðs í fyrradag var samþykkt að kaupa fasteign í Knarrarvogi 2 fyrir 460 milljónir króna til að „Borgarlína komist leiðar sinnar óháð annarri umferð“, eins og segir í rökstuðningi.
Meira
Því er haldið fram, að helstu snillingsmenni á leikvelli diplómatíunnar, geti sagt viðmælanda sínum, í löngu máli, að fara til andskotans, með þeim árangri að þeim sama vöknar um augu af þakklæti og hann hlakkar til fararinnar.
Meira
Kvartettinn Amaconsort kemur fram í 15:15-tónleikasyrpunni í Breiðholtskirkju í dag og eru liðsmenn hans „innblásnir af hinni aldagömlu hefð að músísera góða tónlist í notalegu stofuumhverfi“, eins og því er lýst í tilkynningu.
Meira
VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Leikfélag Akureyrar frumsýnir í dag hið góðkunna leikrit Matthíasar Jochumssonar, Skugga-Svein, í Samkomuhúsinu. Verkið er í nýrri útgáfu og fjallar um hinn þekkta útilegumann Skugga-Svein og lið hans sem Lárensíus sýslumann dreymir um að klófesta. Babb kemur í bátinn þegar dóttir Lárensíusar verður ástfangin af einum útlaganna og gerir allt hvað hún getur til að frelsa hann frá fangelsun og dauða, eins og því er lýst á vef leikhússins. Hefst þá spennandi atburðarás og barátta á milli ástar og haturs, réttlætis og ranglætis.
Meira
Regína Magdalena opnar í dag kl. 14 til 16 sýninguna Gáttir II – Englar í Galleríi göngum sem er í göngum sem liggja milli safnaðarheimilis Háteigskirkju og kirkjunnar sjálfrar.
Meira
Bíóklúbburinn Svartir sunnudagar vaknar aftur til lífsins í Bíó Paradís á morgun með sýningu á kvikmyndinni Scarface frá árinu 1932 með Paul Muni og Ann Dvorak í aðalhlutverkum.
Meira
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Auga í naglafari er yfirskrift sýningar sem verður opnuð í Portfolio galleríi á Hverfisgötu 71 í dag, laugardag, klukkan 16 á verkum sem Helgi Þorgils Friðjónsson vann á árunum 1977 til 1987.
Meira
„Yrsa Sigurðardóttir hefur skrifað framúrskarandi sögu um morð, draugagang og furðulega gerninga,“ skrifar Bo Tao Michaëlis, rýnir Politiken , um bók hennar Under sneen ( Bráðin ) og gefur henni fimm hjörtu af sex mögulegum.
Meira
Af nýjum rannsóknum sagnfræðinga á sögu Íslands á átjándu og nítjándu öld er yfirskrift málþings sem Félag um átjándu aldar fræði heldur í Þjóðarbókhlöðu í dag, laugardag, kl. 13.30.
Meira
Cranioplasty er heiti innsetningar á sýningu sem Selma Hreggviðsdóttir opnar í dag, laugardag, kl. 16 í sýningarsalnum Gallerí Kverk í Garðastræti 37 í Reykjavík.
Meira
Myndlistarkonan Þóra Sigurðardóttir opnar í dag kl. 14 til 17 sýningu í sal félagsins Íslensk grafík í Hafnarhúsinu, hafnarmegin, og stendur sýningin til 6. mars.
Meira
Eftir Sigurbjörgu Söru Bergsdóttur: "Yfir 90% af öllum gerendum voru áður þolendur. Ræður kerfið ekki við að finna úrlausnir fyrir bæði þolendur og gerendur?"
Meira
Eyjólfur Kársson frá Breiðabólstað í Vatnsdal er ein ævintýralegasta persóna Sturlungaaldar. Hann „sló á marglæti“ við ekkju frá Reykjum í Miðfirði. Bræðrum hennar líkaði það illa, og hófst af þessu „ófagnaður og orðasukk“.
Meira
Eftir Árna Sigurjónsson og Sigurð Hannesson: "Ólík öðrum iðnbyltingum þá eru lausnirnar ekki til og þær þarf að finna til þess að ná metnaðarfullum markmiðum."
Meira
Fjármálaráðherra segir að hvergi á Norðurlöndunum sé betur gert og heimilin hafi aldrei haft það betra. En er það rétt? Frá því fyrir eftir hrun hefur verðbólgan verið um rúmlega 37%. Það sem kostaði einu sinni 100 kr. kostar núna 137 kr.
Meira
Eftir Eyjólf Ármannsson: "Vaxtamunur á Íslandi er allt of mikill og bönkunum ber skylda til þess að lækka vexti á heimilin í landinu og fyrirtækja."
Meira
Á Söguþingi 2012 kvartaði Skafti Ingimarsson undan því, að ég hefði í bók minni, Íslenskum kommúnistum 1918-1998, sem Almenna bókafélagið gaf út 2011, verið að skrifa sögu sigurvegaranna í kalda stríðinu og afgreitt íslenska kommúnista (og vinstri...
Meira
Þrátt fyrir góða stöðu þjóðarbúsins anda þó ekki allir léttar. Þvert á móti telja ýmsir þingmenn sem kjörnir voru á þing 25. september 2021 að sagan hafi hafist með þeim.
Meira
Ástríður Gréta Pálsdóttir, oftast kölluð Ásta, fæddist 27. nóvember 1931 í Laugarási í Biskupstungum. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Seltjörn 27. janúar 2022.
MeiraKaupa minningabók
Bjarnar Ingimarsson fæddist 9. apríl 1935 í Reykjavík. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 24. janúar 2022. Foreldrar hans voru Guðný Jóna Þorbjörnsdóttir bóndi, f. 12. september 1915, d. 26.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Kristjánsson fæddist í Stykkishólmi 2. janúar 1936. Hann lést á líknardeild Landakots 1. febrúar 2022. Foreldrar hans voru hjónin Rannveig Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1909, d. 6. febrúar 2003, og Kristján Rögnvaldsson vélsmiður, f....
MeiraKaupa minningabók
Helgi Marinó Sigmarsson fæddist á Akureyri 21. júní 1932. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunarheimili Hraunbúða í Vestmannaeyjum 31. janúar 2022. Foreldrar hans voru Sigmar Hóseasson, f. 13.5. 1900, d. 22.11.
MeiraKaupa minningabók
Hjörtur Eiríksson Kjerúlf fæddist á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal 11. febrúar 1945. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 15. janúar 2022. Foreldrar Hjartar voru hjónin Eiríkur M. Kjerúlf, bóndi á Vallholti, f. 31.10. 1915, d. 11.5. 1991, og Droplaug J.
MeiraKaupa minningabók
12. febrúar 2022
| Minningargrein á mbl.is
| 1941 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Hjörtur Eiríksson Kjerúlf fæddist á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal 11. febrúar 1945. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 15. janúar 2022.Foreldrar Hjartar voru hjónin Eiríkur M. Kjerúlf, bóndi á Vallholti, f. 31.10. 1915, d. 11.5.
MeiraKaupa minningabók
Hulda Gestsdóttir fæddist í Stykkishólmi 26. september 1943. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sundabúð 5. febrúar 2022. Foreldrar hennar voru hjónin Gestur Guðmundur Bjarnason, f. 22.5. 1904, d. 15.2. 1970, og Hólmfríður Hildimundardóttir, f. 15.11.
MeiraKaupa minningabók
Inger Oddfríður Traustadóttir fæddist í Reykjavík 13. janúar 1951. Hún lést á bráðamóttöku Landspítala – Háskólasjúkrahúss 18. nóvember 2022. Foreldrar hennar voru Steinunn Gróa Bjarnadóttir, f. 9. september 1924, d. 7.
MeiraKaupa minningabók
Ingibjörg Ragnheiður Magnúsdóttir fæddist 23. júní 1923. Hún andaðist 20. janúar 2022. Ingibjörg var jarðsungin 1. febrúar 2022.
MeiraKaupa minningabók
Kristinn Aron Curtis Arnbjörnsson fæddist í Reykjavík 20. apríl 2002. Hann lést af slysförum 2. febrúar 2022. Foreldrar hans eru þau Arnbjörn Jóhann Kristinsson og Guðrún Lilja Curtis.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur Grétar Egilsson fæddist í Reykjavík 11. október 1950. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 6. janúar 2022. Foreldrar hans voru Steinunn Hilma Ólafsdóttir, f. 1923, d. 2019, og Egill Jónsson, f. 1922, d. 1975.
MeiraKaupa minningabók
Rósa Karlsdóttir var fædd 3. nóvember 1934 í Bolungarvík. Hún lést á Hrafnistu Sléttuvegi 10. janúar 2022. Rósa var dóttir hjónanna Jóns Karls Eyjólfssonar bakara, f. á Eskifirði 30. nóvember 1890, d. 24. mars 1943, og Gunnjónu Valdísar Jónsdóttur, f.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Guðmunda Einarsdóttir fæddist á Ytri-Sólheimum í Mýrdal 2. desember 1933. Hún lést á dvalarheimilinu Lundi á Hellu 6. febrúar 2022. Foreldrar Sigríðar voru Einar Einarsson, f. 12. september 1889, d. 9. september 1955, og Ólöf Einarsdóttir, f....
MeiraKaupa minningabók
Stefanía María fæddist 19. ágúst 1947. Hún lést í Færeyjum 14. janúar 2022. Útförin fór fram 23. janúar 2022 í Vesturkirkjunni í Þórshöfn.
MeiraKaupa minningabók
Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Smásölufyrirtækið Skeljungur áætlar að afkoma móðurfélagsins verði jákvæð um 7,6-8,3 milljarða króna eftir skatta að teknu tilliti til vænts söluhagnaðar af fasteignum að fjárhæð 5 milljarðar króna. Þetta kemur fram í kynningu vegna nýbirts ársuppgjörs fyrirtækisins.
Meira
Byggingarfélagið MótX og BM Vallá undirrituðu í gær samstarfssamning um uppbyggingu íbúða við Hamranes í Hafnarfirði. Alls fimm fjölbýlishús með 170 íbúðum.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Skömmu fyrir síðustu jól var þinglýst kaupsamningi einnar stærstu þakíbúðar sem komið hefur í sölu í miðborg Reykjavíkur. Um var að ræða 482 fermetra íbúð á 12. hæð í Bríetartúni 9 en hún er öll hæðin.
Meira
Í tilefni af Valentínusardeginum verður efnt til kaffikviss eða barsvars á Borgarbókasafninu í Árbæ. Þar verður þemað Valentínus og ýmislegt honum tengt. Spurningakeppnin fer fram mánudaginn 14. febrúar kl. 17-18.
Meira
Elsa Albertsdóttir var valin skyndihjálparmaður ársins 2021. Elsa bjargaði lífi föður síns þegar hann fór í hjartastopp þegar fjölskyldan horfði saman á fótboltaleik. Hún hafði farið á þrjú skyndihjálparnámskeið og kunni réttu handtökin.
Meira
Gönguskíðadagurinn svokallaði verður haldinn í dag milli kl. 12 og 15. Börnum og fullorðnum gefst þá kostur á að fá lánuð gönguskíði til að prófa. Einnig býðst börnum að taka þátt í skíðaleikjum sem félagar í Skíðagöngufélaginu Ulli stýra.
Meira
40 ára Eva fæddist í Espoo í Finnlandi og ólst þar upp. Hún stundaði tónlistarnám við Sibeliusar-akademíuna í Helsinki og hreppti fyrstu verðlaun í Panula-keppninni fyrir unga hljómsveitarstjóra árið 2003.
Meira
Guðmundur Magnússon, þekktastur undir skáldaheitinu Jón Trausti, fæddist 12. febrúar 1873 á Rifi á Melrakkasléttu. Foreldrar hans voru Magnús Magnússon, f. 1837, d. 1877, og Guðbjörg Guðmundsdóttir, f. 1834, d. 1913.
Meira
Stefanía Svavarsdóttir mun flytja hugljúfa lagið „Hjartað mitt“ eftir Halldór Gunnar Pálsson Fjallabróður í fyrri undankeppni Söngvakeppninnar í ár, sem fer fram 26.
Meira
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju synga. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón Sonja Kro og Hólmfríður Hermannsdóttir.
Meira
Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Veiðidýri veldur þján. Vígfimur hann sveigði Án. Líta þann í lofti má. Lætur tóninn hljóma sá. Þessi er lausn Hörpu á Hjarðarfelli: Af boga flaug örin í bráð. Bogann Án sveigði þá vel.
Meira
Hjörvar Steinn Grétarsson hefur unnið allar skákir sínar eftir fimm umferðir á Skákþingi Reykjavíkur sem hófst 2. febrúar. Mótinu var frestað í byrjun janúar en 40 skákmenn hófu keppni. Hjörvar vann einn helsta keppinaut sinn, Davíð Kjartansson, í 5.
Meira
Gunnar Þór Jónsson fæddist 12. febrúar 1947 á Skeiðsfossvirkjun í Fljótum og ólst þar upp til átta ára aldurs, fluttist þá á Akranes og bjó þar til 1967. Hann flutti í Búrfell í Gnúpverjahreppi 1967 og síðan að Stóra-Núpi 1969.
Meira
* Aaron Rodgers , leikstjórnandi Green Bay Packers, hefur verið valinn besti leikmaður bandarísku NFL-deildarinnar í fjórða sinn á ferlinum. Rodgers er 38 ára gamall og hlýtur þennan heiður annað árið í röð.
Meira
Á vetrarólympíuleikum má finna margar mjög áhugaverðar greinar. Íþróttagreinar sem maður á ekki kost á að sjá í sjónvarpi með auðveldum hætti nema á þessum leikum.
Meira
Grill 66-deild karla Selfoss U – Berserkir 42:25 Staðan: ÍR 131201458:36724 Hörður 131003440:37720 Fjölnir 13904394:36518 Selfoss U 14905441:40018 Þór 12903362:32518 Haukar U 12705341:33214 Kórdrengir 13418342:3649 Afturelding U 14419366:4219...
Meira
Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir komst áfram í gegnum niðurskurðinn á Magical Kenya Ladies Open-golfmótinu sem nú stendur yfir í Kenía en mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna í golfi.
Meira
Knattspyrnumaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Val. Hólmar, sem er 31 árs gamall, kemur til félagsins frá Rosenborg í Noregi þar sem hann hefur leikið frá árinu 2020.
Meira
Körfuboltinn Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Íslandsmeistarar Þórs úr Þorlákshöfn völtuðu yfir Keflavík þegar liðin mættust í toppslag úrvalsdeildar karla í körfuknattleik, Subway-deildinni, í Icelandic Glacial-höllinni í Þorlákshöfn í 16.
Meira
NFL Gunnar Valgeirsson Los Angeles Ofurskálarleikur NFL-ruðningsdeildarinnar fer fram á nýja SoFi-leikvanginum hér í Los Angeles á sunnudag (aðfaranótt mánudags að íslenskum tíma) og leika þar saman heimalið LA Rams og Cincinnati Bengals.
Meira
9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum K100. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi.
Meira
Víkingar Áhugafólk um víkinga ætti að fá sitthvað fyrir sinn snúð í nýjum framhaldsþáttum sem hefja göngu sína á efnisveitunni Netflix 25. febrúar.
Meira
Valur Hólm græjusérfræðingur fór yfir allt það sem maður þarf að vita um hina ógnarvinsælu loftsteikingarpotta eða „Air fryers“ í Síðdegisþættinum með þeim Sigga Gunnars og Friðriki Ómari á dögunum en pottarnir eru víst til af mörgum stærðum...
Meira
Hærra, hraðar, sterkar – saman, hljómar nýtt og endurbætt kjörorð Ólympíuleikanna. Vetrarólympíuleikarnir í Kína hafa farið af stað með látum og oft eru tilþrifin með slíkum ólíkindum að við sem heima sitjum göpum af undrun og aðdáun.
Meira
Fyrirlitning Eddie Vedder, söngvari grönsbandsins Pearl Jam, lýsti því yfir í viðtali við The New York Times að hann hefði fyrirlitið glysmálmböndin sem tröllriðu rokksenunni seint á níunda áratugnum og tilgreindi Mötley Crüe sérstaklega í því sambandi.
Meira
Lík fjögurra manna, sem fórust með flugvél í Þingvallavatni á fimmtudag í fyrri viku, fundust á sunnudagskvöld, ekki langt frá flaki vélarinnar, sem lá á 37 metra dýpi í Ölfusvatnsvík , sunnarlega í vatninu.
Meira
Undanfarið hef ég lagst í heimshornaflakk í tíma og rúmi með bækur sem fararskjóta. Frásagnir af ímynduðu eða raunverulegu lífshlaupi, réttum og röngum ákvörðunum, ást, hatri, kvíða, reiði og gleði undirstrika að mannskepnan er söm við sig.
Meira
Hin blásnauða Anna Sorokin villti á sér heimildir og hafði ríka og fræga fólkið í New York að háði og spotti. Launin voru fangavist og útskúfun. Netflix kafar ofan í málið í flunkunýjum þáttum. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Once Brewed, Englandi. AFP. | Nítján hundruð árum eftir að Hadríanusarveggurinn var reistur á Norður-Englandi til að halda barbörunum í skefjum steðjar að ný hætta.
Meira
Hrúga við fjölfarinn fjallveg vekur athygli og við hana staðnæmast margir. Sagan segir að hér hafi smali verið á ferð seint á 20. öld og verið kominn í bobba með götótt stígvél. Hafi skilið stígvélið eftir og lagt yfir grjót.
Meira
Listakonan Sibilla Bjarnason býr í Nice í Frakklandi. Áður var hún tannlæknir bæði hérlendis og í Svíþjóð, en Sibilla giftist íslenskum manni sem hún kynntist í Moskvu.
Meira
Runólfur Pálsson er ekki verkkvíðinn maður. Annars hefði hann ekki sótt um embætti forstjóra Landspítala sem hann hefur nú valist til og tekur til starfa um næstu mánaðamót.
Meira
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðil með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausnum í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila krossgátu 13.
Meira
Bandaríski vísindamaðurinn og ljósmyndarinn Nathan Myhrvold er staddur hérlendis að mynda. Hann hefur komið víða við í lífinu en ástríðan snýst um mat, gerð bóka og ljósmyndun. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Meira
Engilbert Sigurðsson geðlæknir er ósammála rökstuðningi meirihluta dómara í dómi Landsréttar þar sem nauðungarvistun manns var hnekkt en fjallað var um málið hér í blaðinu um síðustu helgi. Hann segir túlkun dómaranna setja öryggi ákveðins hóps sjúklinga í hættu. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Meira
Karl Blöndal kbl@mbl.is Kenning um að sá sem sveik Anne Frank í hendur nasista væri fundinn vakti mikla athygli þegar hún kom út á bók í janúar. Nú virðist sem hún byggist á ályktunum frekar en staðreyndum og ekki standi steinn yfir steini.
Meira
Minni Severance kallast spennuþættir sem hefja göngu sína á efnisveitunni Apple TV+ á föstudag. Þeir fjalla um starfsmenn fyrirtækis sem hafa samþykkt að gangast undir tilraun, þar sem minni þeirra er skipt upp.
Meira
Eftir fimmtugt hefur leikurinn ójafnast til muna. Maður þarf bókstaflega að taka á öllu sem maður á til að steinsofna ekki. Þetta er ógurleg og hatrömm rimma.
Meira
Ertu í snjónum á Ísafirði? Nei, ég er nú reyndar stödd í Hafnarfirði í upptökum. Það er svolítið skrítið að vera ekki þar núna þegar allir eru innilokaðir í snjó. Ertu eingöngu að semja og spila tónlist?
Meira
Franski landbúnaðarráðherrann, Edith Cresson, komst í hann krappan þegar hún heimsótti bóndabæ nokkurn í Normandí fyrir réttum 40 árum. Þar voru bændur samankomnir, sem voru óhressir með landbúnaðarstefnu Efnahagsbandalagsins.
Meira
Árið 2022 byrjar af miklum krafti í sjávarútveginum og námu útflutningsverðmæti sjávarafurða 24,6 milljörðum króna í janúar. Um er að ræða 44% meiri verðmæti en í sama mánuði í fyrra og þarf að leita lengi að jafn stórum janúarmánuði.
Meira
Íslenskar sjávarafurðir koma vel út úr mælingum á óæskilegum efnum í sjávarfangi ef marka má niðurstöður sívirkrar vöktunar sem Matís framkvæmdi á síðasta ári. Vegna fjárskorts náði vöktunin ekki til afurða sem ekki eru ætlaðar til manneldis.
Meira
Norska hafrannsóknastofnunin mælir gegn því að vindmyllugarðar verði reistir á hafi úti á þeim svæðum sem eru sérstaklega mikilvæg fyrir lífríki sjávar.
Meira
Íslenski fiskiskipaflotinn heldur áfram að minnka og hefur hann dregist saman um 142 fiskiskip á undanförnum fimmtán árum. Meðalaldur opinna báta hefur ekki verið hærri síðastliðin 15 ár, en aldur togara hefur hins vegar lækkað ört frá 2016 vegna umfangsmikilla fjárfestinga í nýjum skipum.
Meira
Óhætt er að segja að stinglaxinn (aphanopus carbo) minni ekki mikið á lax í útliti. Jafnvel myndu sumir segja hann ófríðan. Hann veiðist í auknum mæli við Íslandsstrendur og þykir lostæti á Madeira.
Meira
Til stendur að skoða þau lyf sem notuð eru til meðhöndlunar við laxalús í sjókvíum á Íslandi með tilliti til hugsanlegra neikvæðra áhrifa á lífríki sjávar. Þekkt er að virku efnin í lyfjunum kunna að skaða skelfisk og krabbadýr.
Meira
Alls voru 5,7% færri starfandi í fiskeldi, -veiðum og -iðnaði í fyrra en fyrir rúmum áratug. Konum hefur fækkað mikið í fiskiðnaði þrátt fyrir að jafnmargir starfi þar nú og árið 2008. Tækniframfarir og útflutningur á óunnum afla er líklegasta skýringin á þróuninni.
Meira
Lagt er til að ígulkeraveiðar með plógi verði ekki stundaðar í Hestfirði vegna viðkvæmra kóralþörunga og er talið að grófur botn í Seyðisfirði geri erfitt að draga plóg.
Meira
Sæmundur Þór Hafsteinsson á Skagaströnd kveðst hafa gengið sáttur frá borði eftir sína síðustu veiðiferð í desember en þar með lauk 32 ára ferli á sjó. Hann segir mikla samheldni hafa verið í þeim áhöfnum sem hann hafi tilheyrt og þakkar Guði fyrir að hafa aldrei misst mann.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.