Slökun Útiaðstöðu hefur verið komið upp fyrir utan veitingastaðinn Sölku Völku á Skólavörðustíg. Hér gluggar gestur í símann sinn til að fylgjast með straumum...
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 441 orð
| 2 myndir
Sviðsljós Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Neysla sykurlausra gosdrykkja hefur aukist jafnt og þétt milli ára. Á síðasta ári drukku 17% fullorðinna sykurlausa gosdrykki daglega eða oftar en voru 12,5% árið 2019.
Meira
Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við munum styðja við bakið á Úkraínu eins lengi og þurfa þykir,“ sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi í tengslum við fund Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem fram fer í Madríd á Spáni.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 430 orð
| 1 mynd
Jón Pétur Jónsson Logi Sigurðarson Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í gær úr gildi tvær ákvarðanir Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á þeim forsendum að þær hafi brotið í bága við 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar og lögmætisreglu íslensks réttar.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 160 orð
| 1 mynd
Þess verður minnst í dag að 50 ár eru liðin frá setningarathöfn einvígis aldarinnar, þar sem þeir Bobby Fischer og Boris Spasskí, þáverandi heimsmeistari, öttu kappi um heimsmeistaratitilinn í skák.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 64 orð
| 1 mynd
Kátt var á hjalla í gær á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum, en þá voru fjörutíu ár liðin frá því að það tók til starfa. Var tímamótunum fagnað með pomp og prakt og boðið upp á skemmtiatriði fyrir alla aldurshópa.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 448 orð
| 3 myndir
Mörg mál og allt of fátt starfsfólk veldur því að afgreiðsla mála hefur dregist hjá Réttindagæslu fatlaðs fólks. Það á þátt í því að ekki hefur tekist að skipa tímabundna persónulega talsmenn til að annast fjármál fólks sem ekki er fært um það sjálft.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 462 orð
| 1 mynd
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þjóðhátíðardagur Kanada er í dag en Íslendingadagshátíðin á Gimli í Manitobafylki (The Icelandic Festival of Manitoba) verður um verslunarmannahelgina. Hún er í hópi fjölsóttustu „íslenskra“ hátíða ár hvert en gestir og gangandi hafa verið mest um 50 þúsund. „Líklega verður hátíðin í ár ein sú fjölmennasta og besta til þessa,“ segir Jenna Boholij, forseti Íslendingadagsnefndar.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 97 orð
| 1 mynd
Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa með þátttöku í Evrópusamstarfinu HERA tryggt sér birgðir af bóluefninu Jynneos gegn apabólu. Ísland fær samtals 1.400 skammta og er efnið væntanlegt til landsins í lok júlí.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 160 orð
| 1 mynd
Ísland hefur tekið þátt í svonefndum samstöðuaðgerðum Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Eystrasaltsríkjunum. Framlag Íslands hefur verið að leggja til borgaralega sérfræðinga á sviði upplýsingamiðlunar.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þrjár ástæður geta verið fyrir því að Atlantshafsbandalagið (NATO) nefnir Kína í nýrri grunnstefnu sinni, að mati Guðbjargar Ríkeyjar Th. Hauksdóttur, doktorsnema í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 67 orð
| 1 mynd
„Sýnileiki er sterkasta vopnið“ var yfirskrift samstöðufundar sem haldinn var á Austurvelli síðdegis í gær, en fjöldi fólks kom þar saman til að sýna stuðning við íbúa Óslóar og hinsegin fólk hvarvetna, eftir að tveir voru skotnir til bana á...
Meira
1. júlí 2022
| Erlendar fréttir
| 195 orð
| 1 mynd
Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Jarðneskar leifar Patrice Lumumba, fyrrverandi leiðtoga Kongós, hafa verið bornar til grafar. Er um að ræða eina tönn, en hún mun vera það eina sem eftir er af leiðtoganum sem leystur var upp í sýru árið 1961.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 288 orð
| 2 myndir
Martin Hermannsson landsliðsmaður í körfuknattleik hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við spænska stórliðið Valencia sem hann hefur leikið með undanfarin tvö ár.
Meira
Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Ríkisútvarpið ohf. hafi brotið gegn lögum um Ríkisútvarpið með kostun á þáttunum Tónaflóð um landið, sem sýndir voru í sjónvarpinu sumrin 2020 og 2021.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 238 orð
| 1 mynd
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mikið líf hefur verið í Húsavíkurhöfn í þessari viku. Skemmtiferðaskip og hvalaskoðunarbátar koma og fara og skip með hráefni fyrir kísilverið á Bakka.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 76 orð
| 1 mynd
Sigurjón Andrésson hefur tekið við sem bæjarstjóri sveitarfélagsins Hornafjarðar. Sigurjón starfaði síðast sem ráðgjafi hjá Góðum samskiptum og verkefnastjóri flóttamanna hjá Sveitarfélaginu Ölfusi. Þar áður vann hann m.a.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 172 orð
| 1 mynd
Slippurinn Akureyri ehf. hefur keypt fasteignir, vélar og tæki Martaks í Grindavík. Með kaupunum flytjast tíu starfsmenn Martaks til Slippsins frá og með mánaðamótunum. Aðrir starfsmenn Martaks fylgja félaginu til áframhaldandi rekstrar.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 176 orð
| 1 mynd
Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Æ fleiri hafa undanfarnar vikur óskað eftir að komast í sýnatökur á Akureyri vegna kórónuveirunnar. Sýnatökustaður hefur því verið færður til og er nú á planinu við Slökkvistöð Akureyrar við Árstíg 2.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 595 orð
| 2 myndir
Joe Biden Bandaríkjaforseti hét því að Bandaríkin myndu verja sérhvern þumlung af landsvæði Atlantshafsbandalagsríkjanna, er hann ávarpaði leiðtogafund bandalagsins í Brussel, sem lauk í gær.
Meira
1. júlí 2022
| Erlendar fréttir
| 137 orð
| 1 mynd
Þingmenn eiga ekki að taka börn sín með inn í þingsal á vinnutíma. Þetta er niðurstaða þverpólitískrar nefndar á vegum breska þingsins. Mikil umræða hófst í þinginu eftir að kjörinn fulltrúi Verkamannaflokksins tók nýverið ungbarn sitt með til vinnu.
Meira
1. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 441 orð
| 2 myndir
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Starfsmönnum í fiskeldi hefur fjölgað mikið á undanförnum árum og atvinnutekjur aukist enn meira. Að jafnaði störfuðu 620 manns beint við fiskeldið fyrstu fjóra mánuði ársins, sem er 15% aukning frá sama tímabili í fyrra. Mest eru umsvifin á sunnanverðum Vestfjörðum. Þannig má rekja um þriðjung atvinnutekna í Tálknafirði til fiskeldis og er greinin undirstaða atvinnulífs og mannlífs á staðnum.
Meira
Mörg mál og allt of fátt starfsfólk veldur því að afgreiðsla mála hefur dregist hjá Réttindagæslu fatlaðs fólks. Það á þátt í því að ekki hefur tekist að skipa tímabundna persónulega talsmenn til að annast fjármál fólks sem ekki er fært um það sjálft.
Meira
Athyglisverð umræða hefur farið fram á síðum Morgunblaðsins þessa vikuna um orkumál og orkuskipti. Jóhannes Stefánsson, lögfræðingur Viðskiptaráðs, ritaði fróðlega grein á mánudag og fjallaði þar ítarlega um tillögu Landverndar. Niðurstaða hans var sú að tillaga „um full orkuskipti án teljandi aukningar í orkuframleiðslu og neikvæðra áhrifa á efnahagslega velsæld á Íslandi, að teknu tilliti til forsendna og fyrirliggjandi rökstuðnings, stenst ekki skoðun. Tillagan hefði að óbreyttu í för með sér veruleg neikvæð áhrif á efnahagslega velsæld.“
Meira
Aðdáendur James Bond þurfa að bíða ansi lengi eftir næstu kvikmynd um njósnarann, þeirri 26. í syrpunni, og ólíklegt þykir að tökur hefjist á næstu tveimur árum.
Meira
Menningar- og markaðsnefnd Fjallabyggðar hefur útnefnt Aðalheiði S. Eysteinsdóttur bæjarlistamann Fjallabyggðar í ár og af því tilefni verður opnuð sýning á verkum hennar í dag í ráðhússal Siglufjarðar. Þar sýnir hún verk sem hún vann síðustu níu...
Meira
Sýningin Person, Place, Thing verður opnuð í dag, föstudag, kl. 16-18 í Listasal Mosfellsbæjar. Þar sýnir Carissa Baktay, kanadísk myndlistarkona sem búsett er hér á landi og rekur glerverkstæði.
Meira
Myndhöfundurinn Lilja Cardew fór með sigur af hólmi í keppni hins virta enska bókaforlags Penguin um bestu hönnun á bókarkápu. Keppt var í þremur flokkum og tók Lilja þátt í keppni í flokki bóka sem ekki eru skáldskapur.
Meira
Breski tónlistarmaðurinn Skepta heldur tónleika í Valshöllinni í kvöld klukkan 19. Skepta er listamannsnafn Josephs Olaitan Adenuga jr. og eru þetta fyrstu sólótónleikar hans hér á landi.
Meira
Viðtal Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Hin gríðarstóra samsýning Nr4 Umhverfing , sem dreifist yfir Dali, Strandir og Vestfirði, hefst á morgun, 2. júlí, og stendur út ágúst.
Meira
Sýningin Ireland to Iceland: Over Water verður opnuð í dag kl. 16 í Akranesvita. Á henni sýna írsku listamennirnir Róisín O'Shea og Patricia Dolan vatnslitamyndir sem tengjast Íslandi og Írlandi, að því er fram kemur í tilkynningu.
Meira
Eftir Sigurð Ingólfsson: "Brýnt er að taka tillit til eigenda íbúða með því að lækka fasteignagjöld strax um þau 15% sem lóðaskorturinn hefur orsakað."
Meira
Verðbólgan mælist nú 8,8% á ársgrundvelli og hefur ekki mælst meiri síðan 2009 þegar hún var 9,7%. Spár benda til að verðbólgan verði enn meiri. Landsbankinn spáir 9,5% verðbólgu síðar á árinu, sem er líklega vanáætlun.
Meira
Eftir Ragnar Önundarson: "Leyfum hinum efnameiri að víkja úr biðröðum hins opinbera og stytta um leið bið annarra. Ríkið á ekki að leggja út eina krónu í slíkum læknisverkum."
Meira
Eftir Ingimar Ragnarsson: "NATO er varnarbandalag sem hefur tryggt varnir Íslands gegn hernaði í yfir 70 ár. Að kalla NATO hernaðarbandalag er stórlega villandi."
Meira
Minningargreinar
1. júlí 2022
| Minningargreinar
| 1624 orð
| 1 mynd
Anna Guðbjörg Gunnlaugsdóttir fæddist 18. júní 1953 í Heiðarseli í Hróarstungu. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Dyngju 20. júní 2022. Foreldrar Önnu voru Gunnhildur Björnsdóttir, f. 5.1. 1928, og Gunnlaugur Gunnlaugsson, f. 2.11.
MeiraKaupa minningabók
1. júlí 2022
| Minningargreinar
| 3990 orð
| 1 mynd
Árni Stefán Norðfjörð fæddist á Melrakkasléttu 1. febrúar 1932. Hann lést á Hjúkrunarheimili DAS á Sléttuvegi 21. júní 2022. Foreldrar Árna voru Árni Stefán Norðfjörð, f. 13.2. 1910, d. 22.11. 1933, og Sigrún Bergvinsdóttir, f. 30.8. 1914, d. 27.1....
MeiraKaupa minningabók
1. júlí 2022
| Minningargreinar
| 1819 orð
| 1 mynd
Gunnhildur Njálsdóttir fæddist 8. mars 1929 á Kambhóli í Eyjafirði. Hún lést 19. júní 2022. Hún fluttist þriggja vikna til Hríseyjar og bjó þar alla tíð að undanskildum tveimur síðustu æviárunum sem hún eyddi á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri.
MeiraKaupa minningabók
1. júlí 2022
| Minningargreinar
| 2542 orð
| 1 mynd
Kristbjörn Rafnsson sjómaður fæddist 8. maí 1959 í Reykjavík. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 17. júní 2022. Foreldrar Kristbjörns voru hjónin Rafn Ólafsson, f. 7. maí 1937, d. 25. janúar 2019 og Hrafnhildur Lilla Guðmundsdóttir, f. 24.
MeiraKaupa minningabók
1. júlí 2022
| Minningargreinar
| 928 orð
| 1 mynd
Sigrún Jóhannsdóttir fæddist í Reykjavík 29 mars 1967. Hún lést á líknardeild Landspítalans 21. júní 2022. Foreldrar hennar eru Jóhann H. Jónsson, f. 7 febrúar 1942, og Liv Jónsson frá Noregi, f. 1943, d. 12 desember 2021. Þau skildu.
MeiraKaupa minningabók
1. júlí 2022
| Minningargreinar
| 2498 orð
| 1 mynd
Sigurlín Ellý Vilhjálmsdóttir Thacker, eða Ellý eins og hún var alltaf kölluð, fæddist 5. janúar 1943 í Reykjavík. Hún lést 18. júní 2022 á heimili sínu Hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Kristín Stefanía Hjartardóttir, f. 26.
MeiraKaupa minningabók
1. júlí 2022
| Minningargreinar
| 1637 orð
| 1 mynd
Sveinn Þórarinsson fæddist í Viðfirði 12. ágúst 1930. Hann lést á hjúkrunardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað 17. júní 2022.
MeiraKaupa minningabók
1. júlí 2022
| Minningargrein á mbl.is
| 1504 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Unnur Jónsdóttir fæddist á Húsavík 3. mars 1933. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Grund 20. júní 2022.Foreldrar hennar voru Jón Aðalgeir Jónsson, f. 7. ágúst 1895, d. 8. apríl 1977, og Guðrún Eggertsdóttir, f. 7. nóv. 1894, d. 27. maí 1936.
MeiraKaupa minningabók
1. júlí 2022
| Minningargreinar
| 1205 orð
| 1 mynd
Unnur Jónsdóttir fæddist á Húsavík 3. mars 1933. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Grund 20. júní 2022. Foreldrar hennar voru Jón Aðalgeir Jónsson, f. 7. ágúst 1895, d. 8. apríl 1977, og Guðrún Eggertsdóttir, f. 7. nóvember 1894, d. 27. maí 1936.
MeiraKaupa minningabók
Viðskipti
1. júlí 2022
| Viðskiptafréttir
| 413 orð
| 3 myndir
Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Sprotafyrirtækið Oceans hagnýtir upplýsingar sem uppfærðar eru daglega og ýmiss konar gagnauppsprettur til að segja fyrir um framboð og verð á einstökum fisktegundum.
Meira
Pétur Stefánsson laumaði til mín vísu sem varð til eftir gigtarkast: Þó mig veröld hafi hrekkt og holdið veikt af streði, þá var alltaf unaðslegt að yrkja sér til gleði.
Meira
Leo fæddist hinn 1. júlí 1952 í Haag í Hollandi og var skírður Leonardus Johannes Willem eftir móðurafa sínum, Leonardusi Johannesi, og bróður hans Willem sem var læknir.
Meira
Að manni sé e-ð hugleikið þýðir að maður hafi áhuga á því , trúlega mikinn . „Það starf var honum mjög hugleikið og að því gekk hann með þeim áhuga og vandvirkni og samvizkusemi, sem einkendi alt líf hans.
Meira
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir skaðabótarétt farþega vegna seinkana og niðurfellinga á flugi afar skýran. Hannfer yfir hvaða reglur gilda um skaðabætur sem geta numið allt að níutíu þúsundum...
Meira
Ég vippaði mér inn á hið háæruverðuga internet um daginn. Á vef ríkisfjölmiðlanna ruv.is var vakin athygli á því að Ólafur Þ. Harðarsson prófessor emeritus hefði verið í viðtali í morgunútvarpinu um nefndir hjá ríkinu.
Meira
Fyrir tvo síðustu leikina í H-riðli undankeppni heimsmeistaramóts karla eru Ítalía og Ísland jöfn með tvo sigra og eitt tap hvort lið. Holland hefur hinsvegar tapað báðum sínum leikjum.
Meira
* Armand Duplantis , stangarstökkvarinn magnaði frá Svíþjóð, bætti í gærkvöldi eigið heimsmet utanhúss þegar hann tók þátt á móti í Stokkhólmi í heimalandinu.
Meira
Dregið var til undanúrslita í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu og átta liða úrslita í bikarkeppni karla, Mjólkurbikarnum, í höfuðstövðum KSÍ í hádeginu í gær.
Meira
Handbolti Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Handknattleikskonan Hildur Þorgeirsdóttir tilkynnti það í gær að hún væri búin að leggja skóna á hilluna, 33 ára gömul, eftir langan og farsælan feril. „Þetta var komið gott. Það er eiginlega bara ástæðan. Þetta var búið að vera stór hluti af lífi mínu lengi og mér fannst tímabært að hætta á meðan þetta var ennþá svona á milli þess að vera ekki orðið leiðinlegt en ekki eins gaman og var.
Meira
Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, leikur áfram með spænska stórliðinu Valencia næstu tvö árin. Hann skrifaði undir nýjan samning við félagið í gær og hann verður formlega kynntur í dag.
Meira
Fjölnir og Þór frá Akureyri unnu bæði góða sigra þegar 9. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu, Lengjudeildarinnar, hófst í gærkvöldi. Fjölnir fékk HK í heimsókn í Grafarvoginn og hafði betur, 3:1, en Fjölnir leiddi 3:0 í hálfleik.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.