Tómas Arnar Þorláksson tomasarnar@mbl.is Þeir Grétar Gústavsson, meistari í bifvélavirkjun, og Karl Friðriksson, framkvæmdastjóri Framtíðarseturs Íslands, luku við að aka hringinn í kringum Vestfirði á tveimur dráttarvélum í gær.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 160 orð
| 1 mynd
Raunveruleikaþáttaröðin The Bachelor hefur fengið mest endurgreitt úr endurgreiðslukerfi Kvikmyndamiðstöðvar Íslands á þessu ári. Greiðslan nemur um 75 milljónum króna.
Meira
Boris Johnson, fráfarandi forsætisráðherra og leiðtogi breska Íhaldsflokksins, gerði ein af þekktari ummælum kvikmyndasögunnar að sínum, þegar hann kastaði kveðju á breskt þing og þjóð í gær að loknum umdeildum ferli og á köflum skrautlegum.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 2277 orð
| 5 myndir
Viðtal Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég flutti til Danmerkur 2004 út af syni mínum og er þá með Zik Zak, íslenskt framleiðslufyrirtæki sem ég stofnaði 1995, og framleiðir kvikmyndir, hvort tveggja á íslensku og ensku.
Meira
Snorri Jakobsson hjá Jakobsson Capital telur að hækkandi vaxtastig muni hafa jákvæð áhrif á afkomu viðskiptabankanna. „Stýrivextir voru komnir undir 1,0-1,5%, sem gerir rekstrarumhverfi erfitt fyrir banka.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 310 orð
| 1 mynd
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Evrópusambandið samþykkti í byrjun júlímánaðar að veita evrópskum fyrirtækjum í fiskeldi og sjávarútvegi fjárhagsstuðning vegna áhrifa stríðsins í Úkraínu.
Meira
Hljómsveitin Dirty Cello kemur fram á tónleikum í Iðnó í kvöld kl. 20. Fyrir sveitinni fer Rebecca Roudman sellóleikari, sem býr og starfar í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 272 orð
| 2 myndir
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Ekkert skip á vegum Þorbjarnar hf. í Grindavík hefur verið á veiðum í Barentshafi í vetur, en fyrirtækið hefur leigt frá sér allar heimildir í norskir lögsögu.
Meira
Endurnar við Ráðhúspollinn þekkja velunnara sína á færi og eru fljótar til þegar þeir koma færandi hendi með brauðmola. Ekki síst þegar um er að ræða þá sem þangað koma oft og reglulega og gauka að þeim góðgæti af ýmsu tagi.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 115 orð
| 1 mynd
Endursmitum af völdum Covid-19 hefur fjölgað verulega á síðustu tveimur mánuðum og hafa þau á undanförnum vikum mælst um 20% af daglegum fjölda smita. „Fjölgunin tengist auknu nýgengi á BA.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 384 orð
| 1 mynd
Tómas Arnar Þorláksson tomasarnar@mbl.is Rúmlega 200 einkaþotur lenda mánaðarlega á Reykjavíkurflugvelli, eða sem nemur um sjö vélum á dag að jafnaði.
Meira
Aðvörun um „háskalega hitabylgju“ náði til 110 milljóna Bandaríkjamanna í rúmlega tuttugu ríkjum landsins í gær. „Komið ykkur á svala staði og gætið hvert að öðru,“ hljómuðu einföld skilaboð frá stjórnvöldum þar.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 212 orð
| 1 mynd
Ef það er eitthvað sem við elskum, þá eru það góðar bakaðar kartöflur. Þær eru nánast jafnmikilvægar og kjötið sjálft, enda bragðast þær unaðslega – ekki síst þegar búið er að bragðbæta þær með hinum ýmsu aðferðum eins og hér er gert.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 720 orð
| 2 myndir
Tollhúsið Náðugur dagur í skjóli mósaíkmyndar Gerðar Helgadóttur af mestu verstöð landsins, en þar hefur verið komið fyrir steyptri stétt í stað malbikaðra...
Meira
Lambakjöt klikkar aldrei á grillinu, enda í uppáhaldi hjá ansi mörgum. Lambaprime er þar framarlega í flokki. Það getur verið dálítil kúnst að elda það en reglan er sú að það á að vera vel eldað fremur en hitt. Hér er uppskrift frá Valgerði á GRGS.is sem býður jafnframt upp á æðislega sósu með.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ístak er að laga skemmdirnar í GAJU. Svo er enn verið að ræða við Ístak um ýmis mál á gallalistanum. Það tekur einhvern tíma enn,“ segir Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri SORPU. Hann segir að menn vilja fara vandlega yfir þessi atriði, en engin þeirra geti talist vera stór.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 487 orð
| 1 mynd
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Minkur er búinn að rústa kríuvarpinu á Seltjarnarnesi. Það hvarf nánast eins og dögg fyrir sólu fyrir um hálfum mánuði. Úti í Suðurnesi, þar sem varpið hefur verið einna mest, sést varla kría og aðeins örfáir ungar. Framan af sumri báru kríurnar síli í unga og þá var útlitið mjög gott. Eins þykjast menn sjá töluverð afföll á ungum anda, gæsa og tjalda.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 115 orð
| 1 mynd
Veðurstofa Íslands treystir sér ekki til þess að segja fyrir um veðurfar um verslunarmannahelgi. „Það eru enn tíu dagar í þetta og lítið hægt að segja til um það,“ segir Björn Sævar Einarsson, veðurfræðingur, í samtali við Morgunblaðið.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 474 orð
| 2 myndir
Baksvið Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir við fyrirhugaðan Sæbrautarstokk munu hafa í för með sér umtalsverða röskun hjá fyrirtækjum sem eru með starfsemi í húsum austan megin við Sæbraut.
Meira
Logi Sigurðarson logis@mbl.is Innlánsvextir bankanna hafa tekið að hækka í takt við stýrivaxtahækkanir Seðlabankans. Verðbólgan mældist hins vegar 8,8% í júní, svo raunvextir eru neikvæðir þrátt fyrir hækkandi innlánsvexti.
Meira
21. júlí 2022
| Innlent - greinar
| 432 orð
| 4 myndir
Ljóst er nú að slagurinn um stól Borisar Johnsons, fráfarandi forsætisráðherra og leiðtoga breska Íhaldsflokksins, stendur milli utanríkisráðherrans Liz Truss og fyrrverandi fjármálaráðherrans og nú þingmannsins Rishi Sunak.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 195 orð
| 1 mynd
Uppselt var á Skötumessuna sem haldin var í Gerðaskóla í gærkvöld. Þar var á borðum kæst skata og saltfiskur með tilheyrandi meðlæti. Dói og Baldvin léku harmónikkulög fyrir matinn.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 255 orð
| 1 mynd
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Úthlutað hefur verið 230 milljónum króna úr sjóði vegna styrkja til verkefna sem stuðla að eflingu hringrásarhagkerfis á Íslandi. Alls fengu 22 verkefni styrk úr sjóðnum í ár og er 141 m.kr.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 250 orð
| 2 myndir
Vilhjálmur Árnason, formaður samgöngunefndar, telur sanngjarnara að hafa gjaldtöku á stofnæðum frá höfuðborgarsvæðinu en við jarðgöng, líkt og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur boðað.
Meira
21. júlí 2022
| Innlendar fréttir
| 1242 orð
| 4 myndir
Viðtal Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Það tók tæpt ár fyrir Árna Sæberg, ljósmyndara hjá Morgunblaðinu, að taka frænda sinn og alnafna í sátt eftir að sá síðarnefndi gerðist blaðamaður á Vísi.
Meira
Björn Bjarnason fjallar um bensínstöðvabrask borgarstjóra á vef sínum og segir að markvisst hafi verið reynt að þagga niður opinberar umræður um samningana. Þá vísar hann til fréttar Morgunblaðsins um málið snemma árs en að borgarstjóri hafi brugðist við með því að segja að taka þyrfti fréttum Morgunblaðsins með fyrirvara í aðdraganda kosninga!
Meira
Annan ársfjórðunginn í röð heldur áskrifendum streymisveitunnar Netflix áfram að fækka. Á tímabilinu frá janúar til mars fækkaði áskrifendum um 200.000 og frá apríl til júní fækkaði þeim um 970.000. Frá þessu greinir Politiken .
Meira
Kammersveitin Elja hélt sumartónleika í Iðnó fyrr í vikunni undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar. Á efnisskránni var samtímatónlist í bland við þjóðlagaskotið popp sem féll vel í...
Meira
Ein af minnisbókum sænska leikskáldsins Augusts Strindbergs, sem hvarf frá Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi fyrir 50 árum, skaut nýverið óvænt upp kollinum þegar hún var sett til sölu hjá uppboðsfyrirtækinu Sotheby's í London.
Meira
Íranska kvikmyndaleikstjóranum Jafar Panahi, sem hnepptur var í varðhald í Tehran í síðustu viku, hefur verið tilkynnt að hann muni sæta fangelsisvist næstu sex árin. Frá þessu greinir BBC .
Meira
Lista- og uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa í Kópavogi verður haldin í Molanum í Kópavogi í dag milli kl. 17 og 20. Þar gefst gestum tækifæri til að sjá afrakstur tveggja mánaða vinnu hjá listafólki sumarsins.
Meira
Rússneska listakonan Julia Tsvetkova var í vikunni sýknuð af ákæru þess efnis að hún væri að dreifa klámefni og kynsegin áróðri, en hún átti allt að sex ára fangelsi yfir höfði sér.
Meira
Eftir Geir Ágústsson: "Við erum afkomendur víkinganna og tölum tungumálið þeirra, segjum við með stolti. En í raun eru Íslendingar aðallega uppteknir af gildandi reglum."
Meira
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson: "Njótum lífsins, göngum vel um og njótum þeirrar stórbrotnu og margbreytilegu fegurðar sem skapari okkar býður upp á."
Meira
Eftir Gunnar Þórðarson: "Með því að taka til sín stærri hluta virðiskeðjunnar verða bæði til verðmæti og eins spennandi störf fyrir Íslendinga í framtíðinni."
Meira
Eftir Svan Guðmundsson: "Ef fyrirtækjum í sjávarútvegi tekst að bæta afkomu sína, þá græðir þjóðin í formi hærri auðlindagjalda, aukinna skattgreiðslna og vaxandi gjaldeyristekna."
Meira
Árni Sigurbjörnsson var fæddur 10. nóvember 1951 á Akureyri. Hann lést á Landspítalanum 9. júlí 2022. Foreldrar Árna voru Sigurbjörn Árnason, sjómaður, f. 18. september 1927, d. 25. september 2014, og Kristjana Kristjánsdóttir, sjúkraliði, f. 13.
MeiraKaupa minningabók
Guðbjörg Þórisdóttir fæddist í Neskaupstað 28. ágúst 1936. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 12. júlí 2022. Guðbjörg var dóttir hjónanna Guðna Þóris Einarssonar, f. 15.5. 1913, d. 29.9. 1978, og Elísabetu Sigþrúðar Bergmundsdóttur, f. 21.3.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Jónsdóttir var fædd í Hattardal í Álftafirði 8 nóvember 1925. Hún lést á Vífilsstöðum 11. júlí 2022. Guðrún, eða Stella, eins og hún var alltaf kölluð, var dóttir hjónanna Guðrúnar Maríu Guðnadóttur, f. 22.7. 1899, d. 7.1.
MeiraKaupa minningabók
21. júlí 2022
| Minningargreinar
| 4188 orð
| 1 mynd
Hólmfríður Dögg Einarsdóttir sálfræðingur fæddist í Reykjavík 13. apríl 1976. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu 9. júlí 2022. Foreldrar hennar eru Þórhildur Magnúsdóttir, f. 31. maí 1949 og Einar Finnbogason, f. 6. júní 1946.
MeiraKaupa minningabók
21. júlí 2022
| Minningargreinar
| 2925 orð
| 1 mynd
Nanna Sæmundsdóttir fæddist 5. ágúst 1950 í Skagafirði. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum 10. júlí 2022. Foreldrar hennar voru Sæmundur Jónsson, f. 28. nóvember 1915, d. 13. maí 1993, og Mínerva Gísladóttir, f. 14. september 1915, d. 9. febrúar 1998.
MeiraKaupa minningabók
21. júlí 2022
| Minningargreinar
| 1897 orð
| 1 mynd
Sigríður Bernhöft (Siddý) fæddist 30. ágúst 1949. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 7. júlí 2022. Foreldrar hennar voru Dómhildur Guðmundsdóttir, f. 3. ágúst 1924, d. 8. nóvember 2011, og Árni Valdimarsson, f. 6. desember 1923, d. 16. maí 2004.
MeiraKaupa minningabók
Sigurborg Ingunn Einarsdóttir fæddist á Ísafirði 11. maí árið 1932. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði laugardaginn 9. júlí 2022. Foreldrar hennar voru þau Guðrún Friðrika Pétursdóttir, f. 7.9. 1908, d. 20.12.
MeiraKaupa minningabók
21. júlí 2022
| Minningargreinar
| 2947 orð
| 1 mynd
Þorgerður Brynjólfsdóttir hjúkrunarfræðingur fæddist á Siglufirði 12.3. 1927. Hún lést á öldrunardeild Vífilsstaða 10.7. 2022. Foreldrar hennar voru Guðrún Vilmundardóttir, f. 3.8. 1898, d. 25.4. 1996, og Brynjólfur Jóhannsson, f. 16.10. 1891, d. 7.10.
MeiraKaupa minningabók
Hlutabréfaverð í Marel hríðféll í gær eftir að fyrirtækið gaf út afkomuviðvörun í fyrradag. Hlutabréfaverð Marels lækkaði um tæplega 11% í viðskiptum sem námu 744 milljónum. Gengið stendur nú í 606 krónum.
Meira
21. júlí 2022
| Viðskiptafréttir
| 388 orð
| 3 myndir
Baksvið Logi Sigurðarson logis@mbl.is Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna þriggja og Kviku var um 92 milljarðar króna í fyrra. Síðan þá hefur vaxtastig tekið að hækka, eignamarkaðir lækkað og innrás Rússa hefur sett sinn svip á heimshagkerfið.
Meira
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 219 stig í júní 2022 og lækkar um 0,8% frá fyrri mánuði. Gildið 100 miðast við stöðuna í janúar 2011.
Meira
Landbrot og Meðalland í Skaftárhreppi eru milli hrauns og fjöru. Landið grætt upp. Ýmsir möguleikar eru í sveitum, þar sem byggð hefur verið á fallanda fæti.
Meira
6 til 10 Ísland vaknar Kristín Sif og Ásgeir Páll vakna með hlustendum K100 alla virka morgna. 10 til 14 Þröstur Gestsson Skemmtileg tónlist og létt spjall yfir daginn með Gesti.
Meira
50 ára Hanna er fædd í Reykjavík og ólst upp í Breiðholti en er Kópavogsbúi í dag. Hún er með BA-próf í spænsku og íslensku og meistarapróf í þýðingafræði frá Háskóla Íslands.
Meira
Fyrr á árum bað maður lesendur við og við að hætta í guðsbænum að tala um „ferðamannaiðnaðinn“ – áður en slys hlytist af, því iðnaður þýddi skipulögð ( vélvædd ) framleiðsla varnings úr hráefnum . Og létti þegar ferðaþjónustan sigraði...
Meira
Goðsagnakennda hljómsveitin Queen heldur áfram að verja titilinn um eina vinsælustu hljómsveit allra tíma. Á dögunum skráði hljómsveitin sig í breskar sögubækur þegar í ljós kom að fyrsta safnplatan sem sveitin gaf út árið 1981 sló enn eitt sölumetið.
Meira
Einar K. Guðfinnsson sendi mér góðan póst: Gunnar Rögnvaldsson á Löngumýri, lítur yfir Vallhólminn, Hólminn, í Skagafirði á sumarnótt. Sveipar Hólminn silkikóf, sumarslæða fjarðar. Þessa fegurð alla óf andardráttur jarðar.
Meira
Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir fæddist 21. júlí í Reykjavík. Hún ólst upp í Smáíbúðahverfinu og gekk í Breiðagerðisskóla og síðan í Kvennaskólann í Reykjavík.
Meira
*Argentínski knattspyrnumaðurinn Paulo Dybala hefur gert þriggja ára samning við ítalska félagið Roma. Hann kemur til Roma frá Juventus á frjálsri sölu en hann kom til Juventus frá Palermo árið 2015.
Meira
Átta liða úrslit: England – Spánn 1:0 Markahæstar á EM: Beath Mead, Englandi 5 Alessia Russo, Englandi 3 Grace Geyoro, Frakklandi 3 Alexandra Popp, Þýskalandi 3 Aðrir leikir í átta liða úrslitum: 21.7 Þýskaland – Austurríki 22.
Meira
Fótbolti Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Hallbera Guðný Gísladóttir lék sinn síðasta knattspyrnuleik á ferlinum er hún spilaði fyrstu 60 mínúturnar í 1:1-jafntefli Íslands og Frakklands á Evrópumótinu á Englandi. Eftir leik tilkynnti Skagakonan, sem er 35 ára, að skórnir væru komnir á hilluna.
Meira
Halldór Jón Sigurður Þórðarson, leikmaður ÍBV, var besti leikmaður 13. umferðar Bestu deildar karla að mati Morgunblaðsins. Halldór gerði sér lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörk ÍBV í 3:2-sigrinum á Val, sem var fyrsti sigur liðsins í sumar.
Meira
Heimakonur í Englandi tryggðu sér sæti í undanúrslitum Evrópumóts kvenna í fótbolta í fimmta sinn með 2:1-sigri á Spáni í fyrsta leik átta liða úrslitanna í Brighton á suðurströnd Englands í gærkvöldi.
Meira
Íslands- og bikarmeistarar Víkings og Breiðablik, topplið Bestu deildarinnar í fótbolta, leika fyrri leiki sína í 2. umferð Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Meira
Handknattleiksmaðurinn Darri Aronsson missir af nær öllu undirbúningstímabilinu hjá franska félaginu US Ivry vegna meiðsla sem hann varð fyrir skömmu fyrir brottför til Parísar, hvar liðið er staðsett.
Meira
Sambandsdeildin Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslands- og bikarmeistarar Víkings úr Reykjavík og Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, leika fyrri leiki sína í 2. umferð Sambandsdeildarinnar á heimavelli í kvöld.
Meira
Nú þegar þátttöku Íslands á EM á Englandi er lokið treystum við á Íslands- og bikarmeistara Víkings úr Reykjavík og topplið Bestu deildarinnar í Breiðabliki að halda uppi heiðri Íslands í Evrópuknattspyrnunni í bili.
Meira
Knattspyrnukonan unga, Snædís María Jörundsdóttir, hefur verið lánuð til Keflavíkur frá Stjörnunni en bæði lið leika í Bestu deildinni. Snædís, sem er fædd árið 2004, hefur komið við sögu í sjö leikjum með Stjörnunni á leiktíðinni.
Meira
Sænski kylfingurinn Henrik Stenson verður ekki fyrirliði Evrópu í Ryder-bikarnum í golfi, þar sem hann hefur þegið boð um að keppa á LIV-mótaröðinni umdeildu.
Meira
Brasilíumaðurinn Alison dos Santos fagnaði sigri í 400 metra grindahlaupi karla á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum í Oregon í Bandaríkjunum í gær. Dos Santos kom fyrstur í mark á 46,29 sekúndum, sem er þriðji besti tími sögunnar.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.