Sviðsljós Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Leiðtogi vígasamtaka al-Kaída, Ayman al-Zawahiri, var drepinn í drónaárás leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, í Kabúl, höfuðborg Afganistans, síðastliðinn sunnudag, 31. júlí. Hann var arftaki Osama bin Laden, stofnanda samtakanna, en sá var í aðgerð SEAL-sérsveita bandaríska sjóhersins drepinn á heimili sínu í Abbottabad í Pakistan aðfaranótt 2. maí 2011. Eru Bandaríkin nú sögð hafa náð til allra þeirra sem lögðu á ráðin um hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001. Segist Bandaríkjaforseti vona að víg al-Zawahiris verði huggun, ástvinum þeirra sem týndu lífi í árásunum á Bandaríkin.
Meira