Um 60% atkvæðabærra fulltrúa sem eiga seturétt á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa greitt atkvæði í rafrænni formannskosningu sem hófst 15. ágúst.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Farþegaflutningar með Herjólfi hafa aldrei verið meiri en á þessu ári, eftir að Landeyjahöfn var opnuð til fulls. Met hefur verið sett í hverjum mánuðinum á fætur öðrum.
Meira
Unnið var að því seint í gærkvöldi að setja upp endamarkið fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Ræst verður bæði í heilu og hálfu maraþoni klukkan 8.40 í dag, en maraþonið markar alla jafna upphaf Menningarnætur.
Meira
Almennt ríkir traust gagnvart stjórnvöldum hér á landi. Almenningur telur þó að stjórnvöld taki ekki nægilegt tillit til ábendinga sem þeim berast. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD .
Meira
„Þetta eru auðvitað mikil vonbrigði“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, um niðurstöður Náttúrufræðistofnunar Íslands, en greint var frá því í Morgunblaðinu í fyrradag að viðkoma rjúpunnar á Norðausturlandi...
Meira
Stangveiði Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Að mörgu leyti finnst mér Hofsá nú minna á gamla góða daga,“ segir Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður um laxveiðina í Hofsá í Vopnafirði í sumar.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nú er rúmar þrjár vikur þar til Alþingi kemur saman á ný eftir þriggja mánaða sumarhlé. Byrjað er að undirbúa setningu nýs þings, samkvæmt upplýsingum Rögnu Árnadóttur skrifstofustjóra. Þingfundum var frestað 16.
Meira
Kynnt hafa verið í samráðsgátt áform Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að leggja fram lagafrumvörp sem hafa að markmiði að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda fiskiveiðiflotans og hraða orkuskiptum í samræmi við markmið stjórnvalda.
Meira
Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tilkynnti í gær á fundi í Iðnó að hún sæktist eftir formannsembætti flokksins. Enn hefur enginn annar boðið sig fram til að gegna formennskunni.
Meira
Hinn 10. ágúst síðastliðinn stóð til að opna hjá Reykjavíkurborg tilboð í verkið „Miðborgarleikskóli og miðstöð barna – uppbygging nýs leikskóla og lóða“. Svo bar við að engin tilboð bárust í verkið.
Meira
Sigurður Ægisson sae@sae.is Í dag eru hundrað ár liðin frá því að minnisvarðinn um Hafliða Guðmundsson, hreppstjóra á Siglufirði, var afhjúpaður. Hann stendur nærri þar sem Þjóðlagasetrið hefur verið frá 8. júlí 2006, en Hafliði byggði einmitt það hús og bjó þar lengi. Var húsið nefnt eftir honum og kallað Hafliðahús.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það á að vera þokkalegasta veður. Ég býst við að það verði geggjuð stemning þarna,“ segir Róbert Aron Magnússon, skipuleggjandi götubitamarkaðarins sem verður á Miðbakka í Reykjavík í dag.
Meira
Gæsaveiðitímabilið byrjar í dag og mega skotveiðimenn hefja veiðar á bæði grágæs og heiðagæs. Fram kemur á vef Umhverfisstofnunar (UST) að grágæsinni hefur fækkað hér á landi og eru veiðimenn því beðnir að gæta hófs við veiðarnar.
Meira
Baksvið Andrés Magnússon andres@mbl.is Til tíðinda dró hjá Samfylkingunni í gær þegar Kristrún Frostadóttir greindi frá því undir kratarós á fundi með stuðningsmönnum í Iðnó, að hún byði sig fram til formanns flokksins á landsfundi í haust.
Meira
„Ég sé ekki eftir einni einustu mínútu,“ sagði Ágúst Ingi Jónsson þegar Morgunblaðsfólk þakkaði honum fyrir fyrir samstarfið með formlegum hætti í gær.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það var ótrúlega gaman að fá tækifæri til að taka þátt í þessu,“ segir Jóhann Guðmundsson, einn eigenda The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum.
Meira
Sólsetur Lítið stendur eftir af Brimnesbænum á Langanesi sem fór í eyði árið 1943. Bændurna þar hefur varla órað fyrir því að þaðan yrði skotið eldflaug en þeirri hugmynd hefur þó verið...
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Margir lögðu leið sína í gær að eldgosinu í Meradölum, hvar kraumar í einum gíg þótt krafturinn sé ekki nema svipur hjá sjón miðað við hvað var þegar umbrotin hófust.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Starfsmenn verktakafyrirtækisins Eyktar vinna þessa dagana að uppsteypu á meðferðarkjarna nýs Landspítala og er framgangur verksins samkvæmt áætlun.
Meira
Vegagerðin hefur samið við Suðurverk um nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 12,6 kílómetra kafla á Dynjandisheiði. Kaflinn er um hæsta hluta heiðarinnar, frá Norðdalsá sem er norðan gatnamóta Bíldudalsvegar og norður fyrir sýslumörk Ísafjarðarsýslu.
Meira
Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég er aðallega að hugsa um að koma sjúkraþjálfaranum mínum í mark,“ segir Valdimar Sverrisson í samtali við Morgunblaðið og fylgir hjartanlegur hlátur.
Meira
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kallaði í gær eftir því að Rússar myndu ekki aftengja kjarnorkuverið í Saporisjía frá raforkuneti Úkraínu eftir að fregnir bárust um að Rússar væru að undirbúa slíka aðgerð.
Meira
Karlotta Líf Sumarliðadóttir karlottalif@mbl.is Hinn sautján ára gamli Mack Rutherford er aðeins fjórum dögum frá því að verða yngsti sólóflugmaðurinn til þess að fljúga einn umhverfis hnöttinn, og setja þar með nýtt heimsmet. Hann lenti á Reykjavíkurflugvelli í gær og flýgur til Bretlands í dag.
Meira
Olaf Scholz Þýskalandskanslari neitaði í gær að hann hefði aðstoðað M. M. Warburg-bankann við að koma sér undan skattgreiðslum til Hamborgar þegar hann var borgarstjóri þar.
Meira
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ætlar að sækjast eftir endurkjöri sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi í haust. Þetta staðfestir hún í grein sem hún ritar í Sunnudagsblað Morgunblaðsins.
Meira
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur úthlutað 584,6 milljónum króna úr Matvælasjóði. Fram kemur á vefsíðu sjóðsins að alls hljóti 58 verkefni styrk að þessu sinni en 211 umsóknir bárust til sjóðsins.
Meira
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nýlega hófst vinna við að hanna umfangsmiklar breytingar á fangelsinu á Litla-Hrauni. Fjögur teymi arkitekta, verkfræðinga og annarra hönnuða taka þátt í verkefninu.
Meira
Karl og kona særðust í skotárás í Emporia-verslunarmiðstöðinni í Malmö í gær. Var konan sögð í mjög alvarlegu ástandi. Lögreglan sagði að hún hefði handtekið hinn grunaða og að hættan væri liðin hjá.
Meira
„Á Vesturlöndum er hin almenna skoðun að séð sé um fatlað fólk þannig að það virðist enginn bera neina ábyrgð á því að hjálpa fötluðum,“ segir Megan Lee Christiana Smith í viðtali við Sunnudagsblaðið.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á ferð milli Reykjavíkur og Norðurlands – sama í hvora áttina er farið – er daglega á ferðinni stór floti flutningabíla. Bílstjórarnir á trukkum í tugatali fara úr heimahöfn síðla dags sem aðrir ökumenn mæta þá kannski í Borgarfirði eða norður í Húnavatnssýslum á miðju kvöldi. Arnsúgur fylgir þessum stóru bílum og eins gott er að halda vel um stýrið þegar þeir þeysa fram hjá. Raunar gildir þetta á öllum þjóðvegum landsins.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Starfsmenn verktakafyrirtækisins Eyktar vinna þessa dagana að uppsteypu á meðferðarkjarna nýs Landspítala og er framgangur verksins samkvæmt áætlun.
Meira
Í vikunni var kveikt á þokuskúlptúr á hinu nýja torgi sunnan við Tollhúsið í Tryggvagötu. Torgið var tekið í notkun snemmsumars og hefur verið mikið notað af fólki, sérstaklega á sólardögum.
Meira
Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, tók í gær vímuefnapróf vegna myndbanda sem birtust af henni í fyrradag, þar sem hún var í gleðskap í heimahúsi.
Meira
Heiðar Guðjónsson fráfarandi forstjóri Sýnar var tekinn tali í Viðskiptablaðinu í vikunni og meðal annars rætt um Ríkisútvarpið. Heiðar bendir á að stofnunin fái sífellt meira fé úr ríkissjóði, kosti skattgreiðendur fimm milljarða og fái til viðbótar tvo með auglýsingasölu.
Meira
Lokahelgi Orgelsumars í Hallgrímskirkju hefst á Menningarnótt í dag, laugardag, með svonefndu „Orgelmaraþoni“ milli kl. 14 og 18 þar sem Björn Steinar Sólbergsson, organisti í Hallgrímskirkju, kemur fram ásamt fyrrverandi nemendum sínum.
Meira
Tríó fiðluleikarns Dans Cassidys kemur fram á tólftu tónleikum tónleikaraðarinnar Sumarjazz á Jómfrúnni í dag, laugardag, kl. 15. Tríóið skipa auk Dans þeir Björn Thoroddsen á gítar og Jón Rafnsson á kontrabassa.
Meira
Ný lög í New York skylda stjórnendur allra safna í ríkinu til að upplýsa með áberandi hætti hvort listaverk sem eru til sýnis séu hluti af þeim listaverkum sem nasistar stálu í seinna stríði.
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Myndlistarsýningin Blowout verður opnuð í dag kl. 17 í galleríinu Kling & Bang í Marshallhúsinu úti á Granda.
Meira
Japanski hönnuðurinn Hanae Mori er látin, 96 ára að aldri. Mori var þekkt fyrir að nota fiðrildamótíf í hönnun sinni, hanna brúðkaupsklæði Masako keisaraynju sem og búninga fyrir yfir hundrað japanskar myndir.
Meira
Kvikmyndin Beast, í leikstjórn Baltasars Kormáks, var sýnd í Laugarásbíói í fyrrakvöld á sérstakri viðhafnarforsýningu. Var leikstjórinn viðstaddur ásamt nokkrum sem komu að gerð myndarinnar og var stóri salurinn í bíóinu þéttsetinn.
Meira
Mikill fjöldi menningarviðburða er í boði í dag á Menningarnótt og þar af fjöld sýningaropnana. Hér verða nokkrar nefndar. Svæði nefnist sýning Gissurar Guðjónssonar sem opnuð verður kl. 17 í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófarhúsi.
Meira
Meistaranemar í sviðslistum við Listaháskóla Íslands standa fyrir hátíð sem nefnist „Beginning at the End“ og hefst á morgun og stendur til 27. ágúst.
Meira
Hvað er að gerast í samtímapopptónlist annars staðar á Norðurlöndunum? Hér verður spegli upp brugðið og leitast við að greina nýjustu strauma og stefnur sem leika um svæðið.
Meira
Safngestir á Museo Nazionale della Magna Grecia í Kalabríuhéraði á Ítalíu taka myndir af grískri bronsstyttu sem þar er til sýnis. Um er að ræða aðra af tveimur svonefndum Riace-bronsstyttum, sem eru fornar grískar styttur af hermönnum.
Meira
„Sang fra det yderste hav“ eða Söngur frá ysta hafi er yfirskrift tónleika sem haldnir verða í Mengi í dag, laugardag, kl. 14.30, en húsið verður opnað kl. 14.
Meira
Dagana 11.-15. ágúst dvaldist ég í Georgíu, mestallan tímann í höfuðborginni, Tbílísí. Mér varð þá hugsað til annars ferðalangs á þessum slóðum, Halldórs Kiljans Laxness, en hann hélt þar ræðu á rithöfundaþingi 27. desember 1937.
Meira
Eftir Ágúst Bjarna Garðarsson: "Frá því snemma á síðasta ári hefur heimsmarkaðsverð á olíu tvöfaldast, verð á kolum nærri fjórfaldast og verð á evrópsku jarðgasi nánast sjöfaldast."
Meira
Í vikunni voru drög að fyrstu opinberu stefnunni á sviði tónlistar á Íslandi, ásamt frumvarpsdrögum um heildarlöggjöf um tónlist, sett í opið samráð.
Meira
Ég ætla að byrja á því að segja að ég tek heilshugar undir það sem fyrrverandi borgarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, skrifaði hér í blaðið á dögunum.
Meira
Guðjón Stefánsson fæddist 7. janúar 1936 á Skólavegi 8, Búðarfelli, í Vestmanneyjum. Hann lést á heimili sínu 27. júlí 2022. Foreldrar hans voru Rósa Runólfsdóttir, f. 9. nóvember 1909 í Norðurvík í Mýrdal, d. 25. apríl 1948, á 39.
MeiraKaupa minningabók
Ingimar Jónsson fæddist á Sauðárkróki 26. desember 1968. Hann lést á sjúkrahúsinu á Akureyri 10. ágúst 2022. Foreldrar hans eru Sigríður Valdimarsdóttir, f. 1937, og Jón Ingimarsson, f. 1937. Systur Ingimars eru Hrönn, f. 1959, Herdís, f.
MeiraKaupa minningabók
Petra Magnúsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 13. október 1945. Hún lést 9. ágúst 2002. Foreldrar hennar voru hjónin Magnús Magnússon húsasmíðameistari, f. 12.9. 1905, frá Vesturhúsum í Vestmannaeyjum, og Kristín Margrét Ásmundsdóttir húsfreyja, f. 24.8.
MeiraKaupa minningabók
Pétur Uzoamaka Nwaokoro Destinysson fæddist á Landspítalanum Hringbraut 5. júlí 2018. Hann lést 4. ágúst 2022 í faðmi foreldra sinna. Pétur var fyrsta barn foreldra sinna, þeirra Árdísar Aspar Pétursdóttur, f. 21.4. 1981, og Destiny Mentor Nwaokoro, f.
MeiraKaupa minningabók
Vigfús Hjartarson fæddist 12. september 1937 í Reykjavík. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 27. júlí 2022. Foreldrar hans voru Hjörtur E. Guðmundsson lögregluþjónn og síðar forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, f. 26.2. 1913, d. 18.12.
MeiraKaupa minningabók
Baksvið Þóroddur Bjarnason Logi Sigurðarson Umboðsskrifstofan SWIPE Media heldur áfram að bæta við sig vinsælum áhrifavöldum en eins og ViðskiptaMogginn greindi frá í júní sl. gekk Dami Fadadami til liðs við Swipe í sumar.
Meira
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er orðinn stjórnarformaður Samherja fiskeldis ehf, en skipt var um stjórn í félaginu í byrjun júní.
Meira
„Ég var komin á fertugsaldur þegar ég heillaðist loks af bókunum og spændi þær í mig,“ segir Gerður Kristný sem mun stýra mikilli hátíð sem haldin verður hér í næsta mánuði og tileinkuð er Tove Jansson.
Meira
40 ára Andri er fæddur og uppalinn í Reykjavík, fyrstu átta árin í Breiðholti og Grafarvogi, en býr í Borgarnesi. „Þetta er bara með eins og margt annað í lífinu, þetta gerðist frekar óvart.
Meira
Margrét Eir söngkona hefur nóg fyrir stafni en hún landaði meðal annars hlutverki í söngleiknum Chicago sem verður settur upp á Akureyri í janúar.
Meira
„Ég hef talsvert mörgum sinnum séð lögregluna slæða höfnina í Hong Kong, en aldrei jafn lengi og vandlega sem í þetta sinn.“ Spennandi, en nú er það sögnin að slæða . Maður slæðir höfn eða vatn: dregur net eða kröku eftir botninum.
Meira
AKUREYRARKIRKJA | Þjóðlagamessa kl. 20. Leikin og sungin þjóðlög úr ýmsum áttum. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarhelgistund kl. 11. Sr.
Meira
Sigmundur Andrésson fæddist 20. ágúst 1922 á Eyrarbakka og ólst upp í Smiðshúsum þar. Foreldrar hans voru hjónin Kristrún Ólöf Jónsdóttir, f. 1881, d. 1934, og Andrés Jónsson, f. 1896, d. 1978.
Meira
Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Kvenskass mesta kynni hér. Kuti þessi bitlaus er. Nál, sem gagn ei gerir neitt. Gríðarmikil sveðja beitt. Harpa á Hjarðarfelli á þessa lausn: Bredda er hún Bína. Breddan léleg er. Breddu braut ég mína.
Meira
Alexandra Jóhannsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hefur skrifað undir samning við ítalska A-deildarfélagið Fiorentina, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Alexandra, sem er 22 ára gömul, rifti samningi sínum við þýska 1.
Meira
Guðmundur Bragi Ástþórsson, leikmaður karlaliðs Hauka í handknattleik, er til reynslu hjá þýska 1. deildar liðinu Hamm-Westfalen um þessar mundir. Handbolti.is greindi frá þessu í gær en Hamm-Westfalen er nýliði í þýsku 1.
Meira
Hilmar Pétursson er eini nýliðinn í landsliðshópi íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik sem undirbýr sig nú fyrir tvo mikilvæga leiki í 2. umferð undankeppni HM 2023. Ísland mætir Spáni á Pamplona hinn 24.
Meira
Guðni Valur Guðnason jafnaði besta árangur Íslendings frá upphafi í kringlukasti á Evrópumóti er hann hafnaði í ellefta sæti í greininni á EM í frjálsíþróttum í München í gærkvöldi.
Meira
Breiðablik vann nauman 1:0-sigur á nágrönnum sínum í HK í síðasta leik átta liða úrslita Mjólkurbikars karla í fótbolta í gærkvöldi, en leikið var í Kórnum. Breiðablik er í toppsæti Bestu deildarinnar á meðan HK er í öðru sæti í Lengjudeildinni, 1.
Meira
Frjálsar Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Guðni Valur Guðnason jafnaði besta árangur Íslendings frá upphafi í kringlukasti á Evrópumóti er hann hafnaði í ellefta sæti í greininni á EM í frjálsíþróttum í München í gærkvöldi.
Meira
Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik, hefur verið útnefndur fyrirliði norska liðsins Kolstad ásamt Norðmanninum Vetle Eck Aga en báðir eru þeir 28 ára gamlir.
Meira
Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, er kominn í eins leiks bann fyrir hegðun sína er Chelsea og Tottenham mættust í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni síðastliðinn sunnudag.
Meira
Víkingur úr Reykjavík á enn möguleika á að enda í öðru af tveimur efstu sætum Lengjudeildar kvenna í fótbolta, 1. deild, eftir 2:0-heimasigur á botnliði Hauka í gærkvöldi. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Emma Steinsen Jónsdóttir Víkingi yfir á 69.
Meira
Það var ansi gaman að sjá Þorstein Halldórsson, landsliðsþjálfara kvenna í fótbolta, velja miðvörðinn Örnu Sif Ásgrímsdóttur í landsliðshópinn sem mætir Hvíta-Rússlandi á heimavelli og Hollandi á útivelli í næsta mánuði.
Meira
Hrifning Misjafnlega hefur gengið að gera þætti byggða á persónu úr öðrum þáttum sem nutu vinsælda. Eitt best heppnaða dæmið um slíkt eru Frasier-þættirnir en oftar en ekki hefur þessi uppskrift mistekist.
Meira
Tómas W. Meyer slapp með skrekkinn þegar upp komst að hann var með geysilega háan blóðþrýsting. Leiðinlegt óhapp reyndist lán í óláni. Kristján Jónsson kris@mbl.is
Meira
Fuglager er heima hjá Guðlaugi Georgssyni, en hann ákvað að snúa sér að handverki fyrir tveimur árum. Fyrrverandi kennari og húsasmíðameistari nýtur sín vel í skúrnum bak við hús við listasmíðina. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Meira
Sunnudagsblaðið fékk þrjá Íslendinga til að ræða áhuga útlendinga á norrænu goðafræðinni og víkingum sem birst hefur okkur í ýmiss konar afþreyingarefni á umliðnum árum. Kristján Jónsson kris@mbl.is
Meira
Megan Lee Christiana Smith hefur búið í fjórum heimsálfum við nám og störf tengd mannréttindum. Þrátt fyrir félagslega mismunun hefur fötlun hennar haft jákvæð áhrif á líf hennar. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Meira
Mér er sagt að ég hafi verið fyrirferðarmikill krakki, jafnvel óþekkur, og það gekk frekar hægt hjá mér að læra að lesa. Það fannst mér alla vega á sínum tíma. En þegar ég var loksins búinn að ná tökunum þá las ég mikið.
Meira
Í Hafnartorgi Gallery er sannarlega hægt að gera vel við sig í mat og drykk. Þar má finna gott úrval veitingastaða sem bjóða upp á mat frá öllum heimshornum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Meira
Brasilísk yfirvöld handtóku fyrr í mánuðinum dóttur látins listaverkasala í hverfinu Copacabana í Rio de Janeiro fyrir að féfletta móður sína á níræðisaldri.
Meira
Í samfélagi sem byggist í auknum mæli á hugviti og nýsköpun eru það starfsmennirnir sem eru uppspretta stærsts hluta verðmætasköpunarinnar og því sanngjarnt og eðlilegt að þeir njóti góðs af því þegar vel gengur.
Meira
Gullliðið Streymisveitan Netflix hefur tryggt sér sýningarréttinn að heimildamynd um bandaríska landsliðið í körfuknattleik sem vann til gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008.
Meira
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðil með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausnum í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila krossgátunni 21.
Meira
Efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar, sem meðal annars snerust um að fella gengi krónunnar um 13 af hundraði, var slegið upp á forsíðu Morgunblaðins þriðjudaginn 24. ágúst 1982.
Meira
Andóf Rússneskur dómstóll komst að þeirri niðurstöðu á þriðjudag að rokkarinn Júrí Sjevtsjúk hefði gerst sekur um að vanvirða rússneska herinn eftir að hann gagnrýndi innrás Rússa í Úkraínu á tónleikum í borginni Ufa.
Meira
Hver ert þú? Ég er lærður sviðshöfundur, grínisti og pistlahöfundur og einn meðlima uppistandshópsins VHS. Við vorum með mjög vinsæla sýningu í fyrra sem heitir VHS krefst virðingar. Sýningin heitir Fullkomið ójafnvægi. Segðu mér frá henni.
Meira
Andlát Steve Grimmett, söngvari bresku málmhljómsveitarinnar Grim Reaper, er allur. Andlátið var tilkynnt á þriðjudaginn en Grimmett var aðeins 62 ára gamall.
Meira
Björn Grétar Baldursson, eigandi instagramsíðunnar Pabbalífið, segir mikilvægt að foreldrar hugi að viðbrögðum sínum þegar börn þeirra gera stór mistök því viðbrögðin geti skipt sköpum.
Meira
Jón Atli Jónasson vinnur aðallega við erlendar sjónvarpsseríur en gaf sér tíma til að semja hina alíslensku glæpasögu Andnauð. Hún trónir nú efst á vinsældalista hjá Storytel. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Meira
Krabbamein hefur bankað upp á hjá Köru Jóhannesdóttur oftar en einu sinni. Um helgina ætlar hún að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni og safna fyrir Ljósið. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.s
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.