Hagstofan kom landsmönnum, þar með töldum hagspekingum Seðlabankans og annarra banka, á óvart í gær með tölum sem benda til að tólf mánaða breyting vísitölu neysluverðs, verðbólgan, hafi lækkað frá fyrri mánuði. Það munaði að vísu ekki miklu, en það er þó betra að fjarlægjast tveggja stafa verðbólgu um 0,2% en að ná þeim óskemmtilega áfanga. Mæling upp á 9,7% verðbólgu að þessu sinni var þess vegna fagnaðarefni.
Meira