Sakamálarannsókn tengd stuldi á síma norður á Akureyri, þar sem fjórir blaðamenn hafa verið yfirheyrðir með stöðu sakborninga hefur vakið sterk viðbrögð. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, skrifar af því tilefni 2 km langa grein á vef sinn. Ekki þó sem ritstjóri og ekki sem blaðamaður, ekki einu sinni sem verðlaunablaðamaður, heldur var þetta aðsend grein utan úr bæ eftir eiganda Kjarnans, þar sem hann tók ásökunum um hvers kyns brot fjarri. Á það er engin leið að leggja mat en skýringar Þórðar Snæs á málatilbúnaðinum eru merkilegar.
Meira