Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hvalvertíðinni er lokið. Báðum hvalbátunum hefur verið lagt við bryggju í Reykjavíkurhöfn. Alls veiddust 148 langreyðar, sem er svipað og verið hefur á vertíðum undanfarinna ára. Vertíðin stóð yfir frá 22. júní til 29.
Meira
Opnunarviðburður Bleiku slaufunnar var haldinn með pompi og prakt í Háskólabíói í gærkvöld og fengu þau sem mættu á hátíðina að kynnast andlitunum á bak við herferðina í ár.
Meira
Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Okkur finnst skjóta skökku við að á sama tíma og gjaldskráin var lækkuð síðasta vetur fyrir fullorðna hafi hún verið hækkuð um 60% fyrir ungmenni undir 18 ára,“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna, í samtali við Morgunblaðið.
Meira
Haust Mannlífið á Hafnartorgi í miðbæ Reykjavíkur hefur verið líflegt í sumar og það sem af er hausti. Þótt úlpuveðrið sé að skella á er samt tilefni til að setja upp...
Meira
Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Töluvert hefur verið bætt í mannafla í kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu til þess að ráða bót á löngum málsmeðferðartíma.
Meira
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hefur sagt sig frá rannsókn á hryðjuverkum, sem grunur leikur á að hafi verið í undirbúningi. Ástæðan er vanhæfi og hefur forræði á rannsókninni færst yfir til embættis héraðssaksóknara.
Meira
Íslenski kammerkórinn í Kaupmannahöfn, Staka, heldur tvenna tónleika hér á landi. Þeir fyrri eru í Háteigskirkju í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20 og svo kemur kórinn fram í Skálholtskirkju á laugardag kl. 17.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er kallað eftir breytingum og nýjum áherslum í verkalýðshreyfingunni. Það er löngu tímabært að gera breytingar,“ segir Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags á Húsavík.
Meira
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir kaup ríkisins á Norðurhúsi við Austurhöfn stórt skref fyrir íslenska samtímalist. Íslenska ríkið hefur gengið frá kaupsamningi á um sex þúsund fermetrum í húsinu af Landsbankanum.
Meira
Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar hefur samþykkt að lækka hlutfall fasteignaskatts af íbúðar- og atvinnuhúsnæði á komandi ári. Tilgangurinn er að draga úr áhrifum hækkunar fasteignamats á íbúa og fyrirtæki í Eyjum.
Meira
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Söngleikurinn Níu líf í Borgarleikhúsinu hefur slegið í gegn enda valinn maður í hverju rúmi. „Ég er mjög stoltur af verkinu og í sæluvímu,“ segir Guðmundur Óskar Guðmundsson, tónlistar- og hljómsveitarstjóri söngleiksins, en 118. sýning verður annað kvöld. „Allir standa sig mjög vel og það skilar sér í útkomunni.“
Meira
Endurnýjun á flota björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar er nú að ganga í garð. Formleg afhending á skipinu Þór sem Björgunarfélag Vestmannaeyja fær er á morgun, laugardag, 1. október. Þetta er fyrsta skipið af þremur sem Landsbjörg kaupir.
Meira
Íslenska ríkið hefur keypt Norðurhús við Austurbakka í Reykjavík af Landsbankanum. Um er að ræða tæplega 6 þúsund fermetra byggingu sem er hluti af nýframkvæmdum Landsbankans við Austurhöfn.
Meira
Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Skjöl þýska ræðismannsins á Íslandi, Werners Gerlachs, sem voru gerð upptæk af Bretum á hernámsdaginn 10. maí 1940, hafa verið í íslenskri vörslu í rúm 80 ár og verða á mánudag afhent Þýska þjóðskjalasafninu til vörslu.
Meira
Halldóra Sigríður Sveinsdóttir, 2. varaforseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og formaður Bárunnar stéttarfélags á Selfossi, hyggst ekki bjóða sig fram til forystu á 45. þingi ASÍ sem haldið verður 10.-12. október. Þar verður m.a. kjörin ný forysta.
Meira
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Vladimír Pútín Rússlandsforseti hyggst viðurkenna í dag formlega innlimun fjögurra héraða í Úkraínu við hátíðlega athöfn sem hefst á hádegi að íslenskum tíma. Dmitrí Peskov, talsmaður Pútíns, sagði í gær að forsetinn hygðist flytja „mikilvæga ræðu“ við þetta tilefni.
Meira
Svavar Pétur Eysteinsson tónlistarmaður er látinn, 45 ára að aldri. Svavar fæddist í Reykjavík 26. apríl 1977. Foreldrar hans eru Aldís Hjaltadóttir tækniteiknari og Eysteinn Pétursson eðlisfræðingur. Svavar Pétur greindist með 4.
Meira
Reykjavik Recording Orchestra (RRO) hefur nýlega lokið framleiðslu á tónlist Hans Zimmer fyrir Frozen Planet 2 á vegum BBC og David Attenborough. Þáttaröðin var frumsýnd fyrir skemmstu og hefur fengið góða dóma.
Meira
Hafin er undirskriftasöfnun meðal íbúa í Laugardal í Reykjavík þar sem skorað er á borgaryfirvöld að að samþykkja tillögu um að byggt verði við Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla og Langholtsskóla á fundi skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar á...
Meira
Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Vegurinn út á Langanes varð rækilega fyrir barðinu á óveðri og sjógangi á föstudaginn þegar lægðin mikla gekk yfir en hann varð algjörlega ófær.
Meira
Eftirlitsdýralæknar hafa orðið varir við vöðvasull í sauðfé frá nokkrum bæjum í sláturtíðinni. Þekkist þetta frá fyrri sláturtíðum. Hafa sérfræðingar á Tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum staðfest greininguna.
Meira
Þeir Huginn og Muninn í Viðskiptablaðinu fjalla í gær um „óendanlegar tafir á skilum Ríkisendurskoðunar á Íslandsbankaskýrslunni“ sem margir stjórnarandstæðingar bíða áfjáðir eftir í von um að þar verði skuldinni á klúðrinu í vor skellt á fjármálaráðherra.
Meira
Eftir Kay og Carin Pollak. Tónlist: Fredrik Kempe. Söngtextar: Carin Pollak og Fredrik Kempe. Íslensk þýðing: Þórarinn Eldjárn. Leikstjórn: Unnur Ösp Stefánsdóttir. Tónlistarstjórn: Jón Ólafsson, Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir. Búningar: Filippía I.
Meira
Appolo, listahátíð fyrir ungt fólk og skipulögð af ungu fólki, verður sett í Hafnarfirði í kvöld og verður allur októbermánaður „undirlagður“, eins og segir í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar.
Meira
Þorsteinn Siglaugsson: "Stjórnvöld sem beita sér fyrir höftum á tjáningarfrelsi, annað hvort beint, eða bak við tjöldin með því að þrýsta á einkafyrirtæki, hafa í raun glatað lögmæti sínu."
Meira
Okkur hefur lengi verið kunnugt um ofbeldið sem konur þurfa að sæta af hálfu klerkastjórnarinnar í Íran. Þeim er refsað grimmilega fyrir að brjóta gegn ströngum reglum um klæðaburð.
Meira
Unnur H. Jóhannsdóttir: "Klókt eða heimskulegt? Þetta er bara eitt dæmi um valdníðslu ríkisins hvað viðkemur málefnum fatlaðs fólks og vitaskuld er það heimskulegt."
Meira
Ása Finnsdóttir fæddist á Spjör í Grundarfirði 7. ágúst 1926. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði 21. september 2022. Foreldrar hennar voru hjónin Halla Halldórsdóttir og Finnur Sveinbjörnsson og var hún þriðja í fimm systkina hópi.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Lárus Skúli Jóhannesson, vélstjóri og útgerðarmaður í Grundarfirði, fæddist 18. desember 1931 í Krossnesi í Eyrarsveit, Snæfellsnesi. Hann lést 19. september 2022.
MeiraKaupa minningabók
Hrafn Jökulsson fæddist í Reykjavík 1. nóvember 1965. Hann lést á Landspítalanum 17. september 2022. Foreldrar hans voru Jóhanna Kristjónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, f. 14. febrúar 1940, d. 11.
MeiraKaupa minningabók
30. september 2022
| Minningargrein á mbl.is
| 1373 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Hrafn Jökulsson fæddist í Reykjavík 1. nóvember 1965. Hann lést á Landspítalanum 17. september 2022. Foreldrar hans voru Jóhanna Kristjónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, f. 14. febrúar 1940, d. 11.
MeiraKaupa minningabók
Hörður Lárusson fæddist 23. febrúar 1935 á Veðramóti á Blönduósi. Hann lést eftir stutt veikindi á Landspítalanum 20. september 2022. Foreldrar hans voru Anna Guðrún Björnsdóttir, f. 1901, og Lárus Þórarinn Jóhannsson, f.
MeiraKaupa minningabók
Ingveldur Tryggva Petreudóttir fæddist 21. september 1972 á Akureyri. Hún lést á Akureyri 13. september 2022. Foreldrar hennar voru Tryggvi Helgason, f. 7.4. 1932, d. 31.3. 2022, flugmaður, og Petrea Guðný Konráðsdóttir, f. 5.1. 1931, d. 29.10.
MeiraKaupa minningabók
Jón Ólafur Ormsson var fæddur 26. maí 1920 á Hvalsá í Steingrímsfirði í Strandasýslu. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 13. september 2022.
MeiraKaupa minningabók
Kjartan Runólfsson fæddist 31. mars 1932 í Litla-Sandfelli í Skriðdal. Hann lést 21. september 2022 á Heilbrigðisstofnun Austurlands í Neskaupstað. Foreldrar hans voru Runólfur Jónsson, f. 4.11. 1902, d. 1.2.
MeiraKaupa minningabók
Kristinn Jónsson fæddist í Reykjavík 22. nóvember 1940. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 19. september 2022. Foreldrar Kristins voru hjónin María Bóthildur Jakobína Eyjólfsdóttir, f. 2.3. 1920, d. 19.11. 1991, og Jón Jóhannes Veturliðason, f.
MeiraKaupa minningabók
Pétur Stefánsson fæddist á Húsavík 14. október 1943. Hann lést á Landspítalanum 23. september 2022. Foreldrar hans voru Stefán Pétursson, skipstjóri og útgerðarmaður, f. 23. júní 1906, d. 5.
MeiraKaupa minningabók
Ragnar Arnalds, rithöfundur, alþingismaður og ráðherra, fæddist í Reykjavík 8. júlí 1938. Hann lést á heimili sínu 15. september 2022. Foreldrar hans voru Guðrún Laxdal kaupkona, f. 1. mars 1914, d. 7.
MeiraKaupa minningabók
Ragnar Arnalds, rithöfundur, alþingismaður og ráðherra, fæddist í Reykjavík 8. júlí 1938. Hann lést á heimili sínu 15. september 2022.
MeiraKaupa minningabók
Rögnvaldur Hartmann Árnason fæddist á Sauðárkróki 2. nóvember 1950. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 18. september 2022. Foreldrar hans voru hjónin Jónína Antonsdóttir, f. 16. maí 1920, d. 28.
MeiraKaupa minningabók
Góður punktur ehf., félag í eigu Reynis Traustasonar ritstjóra, hagnaðist í fyrra um tæpar átta milljónir króna, en var 4,9 m.kr. árið áður. Tekjur félagsins námu um 20 m.kr. og jukust um 8,2 m.kr. á milli ára. Rekstrargjöld námu um níu m.kr.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hafsteinn Hauksson, sérfræðingur hjá Kviku banka í London, segir hörð viðbrögð fjármálamarkaða við „litla fjárlagafrumvarpinu“ hjá nýju ríkisstjórninni koma á óvart.
Meira
Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Kjaraviðræður snúast um lífskjör fólks og jákvæða þróun samfélagsins. Forsenda bættra kjara er samkeppnishæft atvinnulíf og jákvætt samstarf allra aðila á vinnumarkaði.
Meira
Umsjónarmaður sanngirnisbóta er gestur Dagmála í dag. Halldór Þormar Halldórsson hefur sinnt starfinu í tólf ár, eða allt frá því að lög um bótagreiðslur voru sett í kjölfar Breiðavíkurmálsins.
Meira
Fyrsta stiklan fyrir fimmtu seríu af Netflixþáttunum The Crown hefur nú verið gefin út en gríðarleg eftirvænting er í loftinu eftir þáttunum sem fjalla um bresku konungsfjölskylduna á valdatíð Elísabetar Bretadrottningar.
Meira
Ég fékk póst frá Ingólfi Ómari þar sem hann segir frá því, að hann „rölti meðfram sjávarsíðunni og það var hvasst og sjórinn var talsvert úfinn að sjá“: Æða hviður hratt um svið heyrast kliða sköllin.
Meira
40 ára Friðþór ólst upp í Breiðuvík á Tjörnesi en býr á Akureyri. Hann er bíla- og tækjamaður og vinnur hjá Norðurorku. Áhugamálin eru bílar og líkamsrækt. Fjölskylda Eiginkona Friðþórs er Þórunn Soffía Þórðardóttir f.
Meira
Breskir framhaldsþættir um hina munaðarlausu Hetty Feather eru á dagskrá RÚV á laugardagskvöldum um þessar mundir og mér sýnist fimmti þátturinn af tíu verða sýndur annað kvöld.
Meira
Kópavogur Óskar Þór Ásgeirsson fæddist 19. mars 2022 kl. 22.17 á Landspítalanum í Reykjavík. Hann vó 3.250 g og var 49,5 cm langur. Foreldrar hans eru Nanna Óskarsdóttir og Ásgeir Þór Ármannsson...
Meira
Ágreiningsefni (aldrei fær maður nógsamlega þakkað fyrir þau): hvort á að sitja sig eða setja sig (ekki) úr færi (um e-ð): sleppa (ekki) tækifæri (til e-s)? Hvort tveggja tíðkast, og hananú.
Meira
Unnur Anna Valdimarsdóttir fæddist 30. september 1972 á Akureyri en ólst upp á Ólafsfirði. „Það var ekki amalegt að alast upp í litlum firði við ysta haf, með afa og ömmu í næsta húsi og mikið frjálsræði.
Meira
Bestur Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is „Ég hef verið mjög ánægður. Þetta hefur gengið vonum framar,“ segir Dagur Dan Þórhallsson, fjölhæfur leikmaður Breiðabliks, en hann var besti leikmaður septembermánaðar samkvæmt M-gjöf Morgunblaðsins. Dagur fékk alls fimm M í fjórum leikjum í Bestu deild karla í knattspyrnu í mánuðinum. Sjálfur segist Dagur ánægður með frammistöðu sína á tímabilinu.
Meira
* Karen Knútsdóttir , ein fremsta handknattleikskona landsins um árabil, verður ekkert með Íslandsmeisturum Fram á nýhöfnu tímabili. Karen er ófrísk að sínu öðru barni en hún skýrði frá því á samfélagsmiðlum í gær.
Meira
Keflvíkingar þykja líklegastir til sigurs í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Subway-deildinni, á komandi keppnistímabili en þeim var spáð sigri af fyrirliðum, þjálfurum og forráðamönnum á kynningarfundi deildarinnar í gær.
Meira
Meistaradeild kvenna 2. umferð, seinni leikir: Bayern München – Real Sociedad 3:1 • Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn með Bayern. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er frá vegna meiðsla og Cecilía Rán Rúnarsdóttir var ekki í hópnum.
Meira
Olísdeild karla Valur – KA 26:18 Selfoss – ÍBV 31:31 FH – Fram 25:25 Afturelding – Grótta 29:25 ÍR – Hörður 35:34 Staðan: Valur 4400122:988 Fram 4220110:1016 ÍBV 3120109:944 Grótta 4202112:1054 ÍR 4202116:1374 Haukar...
Meira
Handbolti Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eins og margir spáðu fyrir mót hafa Íslands- og bikarmeistarar Vals verið illviðráðanlegir í fyrstu umferðum tímabilsins í úrvalsdeild karla.
Meira
Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Sjö íslenskar landsliðskonur í knattspyrnu geta leikið í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í vetur eftir að Bayern München varð í gærkvöld sextánda og síðasta liðið til að tryggja sér sæti þar.
Meira
Spánn Obradorio – Zaragoza 76:73 • Tryggvi Snær Hlinason skoraði 2 stig, tók 4 fráköst og varði eitt skot á 16 mínútum með Zaragoza. Litháen Rytas Vilnius – Neptunas 93.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.