Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is „Þetta eru skemmtilegar og magnaðar sögur af fólki héðan úr Flóanum, bændum og búaliði og þjóðþekktum mönnum. Ég tíni svona rósir meðfram veginum og skreyti bókina með sögum af atburðum sem áttu sér stað í æsku minni og fram á þessa daga,“ segir Guðni Ágústsson, fv. þingmaður og ráðherra Framsóknarflokksins, um nýja bók sína, Guðni: Flói bernsku minnar, sem skrásett er af Guðjóni Ragnari Jónassyni menntaskólakennara í félagi við Guðna.
Meira