Baksvið Karl Blöndal kbl@mbl.is Þegar Eva Kaili frétti að morgni 9. desember í fyrra að lífsförunautur hennar, Francesco Giorgi, hefði verið handtekinn og hald lagt á bílinn hans áttaði hún sig ekki strax á hvað hefði gerst. Þegar hún las síðan um rassíu lögreglu, handtökur í Brussel, spillingu í Evrópuþinginu og sá nafnið Pier Antonio Panzeri, fyrrverandi þingmann á Evrópuþinginu og fyrrverandi yfirmann Giorgis, brást hún hins vegar við. Þegar þarna var komið hlaut henni að vera ljóst að málið snerist um stæður af peningum í sameiginlegri íbúð þeirra.
Meira