Baksvið Hörður Vilberg hordur@mbl.is Norskir kafarar sem rekköfuðu um helstu laxveiðiár landsins vopnaðir skutulbyssum eru farnir heim. Þeir náðu 31 eldislaxi á þremur og hálfum degi. Í næstu viku kemur nýr hópur kafara til að halda hreinsun ánna áfram.
Meira
„Þetta er alltaf óheppilegt,“ segir Sveinn Agnarsson, formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins, SKE, við Morgunblaðið spurður hvaða áhrif umræða og gagnrýni sem SKE hefur fengið undanfarið hafi á störf eftirlitsins og traust þess
Meira
Alls veiddust 862 hreindýr til 20. september sl. er veiði lauk. Felldar voru 436 kýr og 426 tarfar. Þar fyrir utan verður leyft að veiða 34 kýr í nóvember á veiðisvæðum 8 og 9. „Veiðarnar gengu bara vel þegar á heildina er litið
Meira
Fyrsta skóflustunga að hinu nýja Móahverfi nyrst og vestast á Akureyri var tekin í gærmorgun. Gert er ráð fyrir að í hverfinu verði um 1.100 íbúðir sem hýsa munu allt að 2.400 manns. Framkvæmdir við gatnagerð og lagnavinnu hófust strax eftir athöfn…
Meira
„Þetta eru svo litlir skjálftar þarna núna að við erum ekki að stöðva ferðirnar út af þeim. Við erum auðvitað með öryggisáætlanir og slíkt en við erum alveg vön því að það séu svona litlir skjálftar þarna á svæðinu
Meira
Leiguskip Eimskips Vera D, sem tók niðri við Akurey á dögunum, verður dregið af dráttarbáti til Hollands þar sem það fer í viðgerð. Það var um þrjúleytið hinn 10. september síðastliðinn sem Vera D tók niðri við Akurey þegar skipið var á leið að Sundabakka í Sundahöfn
Meira
Endurnýjun Laugavegar, frá Hlemmi að Snorrabraut, er á lokastigi. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar er upplýst að stefnt sé á að framkvæmdum ljúki í lok október. Vinnu við fráveitu og lagningu vatnsveitulagna og hitaveitu lauk í sumar og síðustu mánuðir hafa farið í frágang yfirborðs á svæðinu
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Kláfferja, sem var á strengjum yfir Markarfljót á Emstrum og notuð til að ferja sauðfé þar yfir, hefur nú verið endurgerð. Efnt var til athafnar síðastliðinn laugardag þegar gripnum var komið fyrir og sagan sögð. „Þetta er saga sem er mikilvægt að halda til haga. Okkur sem þekkjum til mála rann til rifja að sjá ferjuna eða kassann grotna niður og töldum nauðsynlegt að gera eitthvað í málinu,“ segir Páll Björgvin Guðmundsson sem er frá bænum Efra-Hvoli, skammt frá Hvolsvelli í Rangárþingi eystra.
Meira
Aðalmeðferð í hinu svokallaða Bankastræti Club-máli hófst í gær. Húsnæði Héraðsdóms Reykjavíkur reyndist of lítið sökum þess að á þriðja tug eru ákærðir fyrir sinn þátt í málinu og því var ákveðið að taka það fyrir í veislusal Gullhamra
Meira
Gróðurinn er farinn að búa sig undir veturinn eins og sjá má en víða á landinu má nú sjá haustliti. Ljósmyndari blaðsins var á ferðinni á Þingvöllum í gær en þar var líflegt eins og flesta daga. Sólin lét sjá sig og þjóðfáninn blakti varla á fánastönginni
Meira
Í gær gengu hátt í 70 manns í svokallaðri Hamingjugöngu um Hvaleyrarvatn og nágrenni. Hulda Sólveig Jóhannsdóttir, verkefnastjóri heilsueflandi vinnustaðar hjá Hafnarfjarðarbæ, leiddi gönguna og fræddi gesti um hamingjuna og af hverju Hamingjudagar Hafnarfjarðar væru haldnir í ár
Meira
Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Rússar réðust í fyrrinótt á úkraínsku hafnarborgina Ódessu. Beittu þeir árásardrónum, Kalibr-stýriflaugum og Oniks-skipaflaugum gegn skotmörkum í landi, einkum korngeymslum. Árásin var mjög umfangsmikil en loftvarnasveitir segjast hafa grandað flestum sprengjanna.
Meira
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað beiðni malasíska athafnamannsins Loo Eng Wah um endurupptöku á kærumáli vegna fyrirhugaðra framkvæmda hans á Leyni 2 og 3 í Landsveit. Kæran sneri að ákvörðun Skipulagsstofnunar þess efnis að…
Meira
Diljá Mist Einarsdóttir, nýr formaður utanríkismálanefndar Alþingis, hefur sent öllum ráðherrum ríkisstjórnarinnar bréf og hvatt til þess að áhersla verði lögð á að við innleiðingu EES-gerða verði íslenskt regluverk ekki meira íþyngjandi en þörf krefur
Meira
Íslensk kona um fertugt var í fyrradag úrskurðuð í gæsluvarðhald til 27. september í Héraðsdómi Reykjavíkur á grundvelli rannsóknarhagsmuna, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í viðtali mbl.is við Ævar Pálma Pálmason,…
Meira
Á sama tíma og heimilin tóku verðtryggð lán fyrir tæpa 18 milljarða í ágústmánuði greiddu þau upp óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum fyrir um 14 milljarða króna
Meira
„Mér finnst þetta bagalegt en það sem ég hef eftir sumarið er reynslan sem ég hef aflað mér við að mjólka geiturnar, þannig að þetta verður léttara næsta sumar,“ segir Halla Sigríður Steinólfsdóttir, bóndi í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd, í samtali við Morgunblaðið
Meira
Gríðarmikið álag hefur verið á landamæravörðum í Bandaríkjunum allt þetta ár. Tilkynningum um ferðir ólöglegra innflytjenda um landamærin að Mexíkó hefur snarfjölgað að undanförnu. Fréttaveita AFP greinir frá því að síðastliðna 12 mánuði hafi verið…
Meira
Þingvallanefnd ákvað að nýta forkaupsrétt á húsi sem stendur á Valhallarstíg nyrðri númer 8. Nefndin tók afstöðu til forkaupsréttarins snemma í vor og fór málið í framhaldinu í gegnum tvö ráðuneyti, umhverfis-, orku- og lofslagsráðuneytið annars vegar og fjármála- og efnahagsráðuneytið hins vegar
Meira
„Þar sem ekki er um að ræða að hætta stafi af hleðslustöðvum okkar fyrir fólk eða fasteignir höfum við átt í samskiptum og leyft hverri einustu stofnun að leggja sitt mat á,“ segir Martin Langeland, samskiptastjóri hjá Easee sem framleiðir vinsælar hleðslustöðvar fyrir rafbíla
Meira
Sveinn Agnarsson, formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins, SKE, segir eftirlitið halda sínu striki við kortlagningu á eignarhaldi í íslensku atvinnulífi. „Það er í samræmi við skyldur okkar,“ segir hann
Meira
Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir 2,2% hagvexti á þessu ári í nýrri þjóðhagsspá sem birt er í dag. Spáin gildir út árið 2025. Í spánni, sem ber yfirskriftina Lygnari sjór eftir öldurót, segir að hagvöxtur verði talsvert hægari en í vorspá bankans
Meira
Í ár má segja að ráðstefna ECLAS, Evrópuráðs landslagsarkitektaskóla, hafi haft sérstaka þýðingu fyrir Ísland þar sem Jóna G. Kristinsdóttir hlaut framúrskarandi nemendaverðlaun í bakkalárnámi frá ráðinu
Meira
Bandaríkin viðurkenndu í gær fullveldi og sjálfstæði Cook-eyjanna og Niue í Kyrrahafinu, í þeirri viðleitni að sporna við ásælni Kínverja á Suður-Kyrrahafssvæðinu. Íbúar eyjanna eru samtals innan við 20 þúsund talsins
Meira
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra kvaddi sér hljóðs á 78. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og las yfir heimsbyggðinni á þann hátt að þjóðir heims lögðu ugglaust við hlustir. Í ræðunni var víða við komið, en meðal annars hvatti …
Meira
Kanadíski breikdansarinn B-Boy Phil Wizard sýndi listir sínar á heimsmeistaramóti breikdansara sem fram fór í Leuven í Belgíu um helgina. Það dugði honum þó ekki til að verja heimsmeistaratitil sinn, því að hann lenti í öðru sæti á eftir bandaríska…
Meira
Tveir heiðursgestir hafa bæst í hópi þeirra sem heiðraðir verða á RIFF 2023. Þetta eru leikstjórinn Nicolas Philibert, sem vann Gullbjörninn á nýliðinni Berlínarhátíð, og kvikmyndagerðarkonan og rithöfundurinn Catherine Breillat
Meira
Hjördís Gréta Guðmundsdóttir hefur opnað sýningu í Úthverfu á Ísafirði sem nefnist vad jag hade föreställt mig. „Á málverki er útsaumur. Hann er fléttaður í gegnum grunninn, sem myndar hnit
Meira
Fagtímaritið Variety greinir frá því að Hollywood andi léttar nú þegar svo virðist sem stéttarfélag handritshöfunda og samtök kvikmyndaframleiðenda og streymisveitna hafi náð samkomulagi um að semja til þriggja ára og binda þar með enda á 146 daga…
Meira
Matthías Tryggvi Haraldsson, leikskáld og sviðshöfundur, hefur verið ráðinn í starf listræns ráðunautar Þjóðleikhússins frá og með 1. nóvember. Matthías hefur víðtæka reynslu úr íslensku leikhús- og menningarlífi, en er þekktastur fyrir leikverk sín og þátttöku í hljómsveitinni Hatara
Meira
Indverski kvikmyndaleikarinn Anil Kapoor sem á Vesturlöndum er líklega þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndinni Slumdog Millionaire hafði í síðustu viku sigur í máli fyrir hæstarétti í Delí á Indlandi sem hann höfðaði gegn 16 fyrirtækjum sem höfðu…
Meira
Í bókinni Kristinn og Þóra: Rauðir þræðir rekur Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, lífshlaup Kristins E. Andréssonar og Þóru Vigfúsdóttur konu hans, en Kristinn var á sinni tíð mjög áhrifamikill í íslensku menningarlífi og …
Meira
Ragnheiður Gestsdóttir, kvikmyndagerðar- og myndlistarkona, hefur opnað sýningu í Gallerí Gróttu sem nefnist Sjónskekkjur. „Ragnheiður vinnur með ólíka miðla; innsetningar, skúlptúr, ljósmyndir og kvikmyndir
Meira
Í amstri dagsins getur stundum reynst þrautin þyngri að gefa sér tíma til að setjast niður fyrir framan sjónvarpið og kasta mæðinni, þó ekki sé nema í stutta stund. Hvað þá að fá 13 ára unglingsdrenginn á heimilinu til að samþykkja smá gæðastund með móður sinni yfir skemmtilegum þætti
Meira
Taylor Swift sýndi á dögunum hver máttur áhrifavalda getur verið þegar hún sendi út ákall á Instagram og beindi fylgjendum sínum inn á Vote.org sem aðstoðar bandarískan almenning að skrá sig til kosningaþátttöku
Meira
Krafa um aukið gagnsæi í sjávarútvegi er hávær meðal almennings og það er mín bjargfasta trú að með því að auka gegnsæið skapist betri skilyrði fyrir trausti milli sjávarútvegs og almennings. Það er staðreynd að aukið gagnsæi hefur jákvæð áhrif á ýmsa þætti viðskiptalífs
Meira
Halldór Árnason fæddist í Stykkishólmi 18. mars 1953. Hann lést á líknardeild LSH þann 27. ágúst 2023. Foreldrar hans voru Árni Helgason póstmeistari, f. 1914, d. 2008, og Ingibjörg Gunnlaugsdóttir kennari, f
MeiraKaupa minningabók
Ingibjörg Hildur Jónsdóttir fæddist 23. júlí 1930 í Vestur-Holtum undir Vestur-Eyjafjöllum. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli, Hvolsvelli 6. september 2023. Foreldrar hennar voru Margrét Einarsdóttir húsfreyja, f
MeiraKaupa minningabók
Jón Baldursson fæddist í Reykjavík 23. desember 1954. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 9. september 2023. Foreldrar Jóns voru Baldur Guðmundsson, f. 14.5. 1911, d. 14.8. 1989, útgerðarmaður og vélstjóri á Patreksfirði og í Reykjavík, og Magnea Guðrún Rafn Jónsdóttir, f
MeiraKaupa minningabók
Sigurbjörg Ingunn Kreml Sigfúsdóttir fæddist í Keflavík 28. júlí 1955. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 14. september 2023. Foreldrar hennar voru Sigfús Jóhannesson, fæddur 1. september 1924, dáinn 4
MeiraKaupa minningabók
Verðtryggð lántaka heimila heldur áfram að aukast á kostnað óverðtryggðra lána. Ný verðtryggð útlán til heimila námu í ágúst um 17,8 milljörðum króna. Meginþorri þeirra var með breytilegum vöxtum, eða 16,9 milljarðar króna
Meira
Akranes Óliver Sigurbogi Egilsson fæddist 22. október 2022, kl. 13.57, á Akranesi. Hann vó 3.342 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Anna Guðrún Sigurðardóttir og Egill Finnbogason.
Meira
40 ára Anna ólst upp á Svalbarðseyri en býr á Akranesi. Hún er með meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands og starfar á leikskólanum Garðaseli. Áður starfaði hún hjá Steypustöðinni og um árabil sem verkefnastjóri á Landspítala
Meira
Pétur Stefánsson gaukaði þessum tveim vísum að mér. Þær eru ortar að gefnu tilefni: Sölnað hefur sérhver jurt sem og tún og stallar. Fuglar eru flognir burt og flugur horfnar allar. Þó að hvessi og gráni grund, grimmt þó stressið flæði, alltaf hressir okkar lund að yrkja þessi kvæði
Meira
Það eru leiðindi í Hollywood og það á milli tveggja kvenna. Sagan er sú að Amy Schumer birti mynd af Nicole Kidman þar sem hún skrifaði undir „svona situr mannfólk“. Á þessari mynd situr Nicole með hönd undir kinn, horfir á tennis og starir út í tómið
Meira
Staðan kom upp í A-flokki Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur sem stendur yfir þessa dagana. Bárður Örn Birkisson (2.191) hafði svart gegn Hilmi Frey Heimissyni (2.367)Meira
Jón Þórður Jónsson fæddist 26. september 1943 á Landspítalanum í Reykjavík. Fyrsta heimilið var á Baldursgötu 9, en árið 1944 fluttist Jón ásamt móður sinni á Njálsgötu 52. Jón eignaðist nýjan pabba og síðan systur og fluttist fjölskyldan að Heimalandi við Vatnsenda í Kópavogi
Meira
Handknattleiksdeild KA/Þórs hefur gengið frá samningum við brasilísku systurnar Natháliu og Isabelle Fraga og munu þær leika með Akureyrarliðinu á tímabilinu. Sú fyrrnefnda, sem er 28 ára, er komin til landsins og er vonast til að hún geti leikið með liðinu gegn Stjörnunni á föstudag
Meira
Cecilía í markinu. Hallbera, Sif, Elísa og Áslaug í vörninni. Sara, Dagný, Gunnhildur og Alexandra á miðjunni. Berglind, Elín og Sveindís í sókninni. Væri þetta ekki firnasterkt íslenskt landslið í fótbolta? Jafnvel þótt þarna séu tólf leikmenn en…
Meira
Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður Íslands í handknattleik og leikmaður Noregsmeistara Kolstad, er ekki á leið til Þýskalandsmeistara Kiel
Meira
Breiðablik varð í gærkvöldi annað liðið til að vinna nýkrýnda Íslandsmeistara Víkings í Bestu deild karla í fótbolta á leiktíðinni er liðin mættust í annarri umferð efri hlutans, 24. umferð, á Kópavogsvelli
Meira
Stuðningsmenn köstuðu dauðum rottum inn á Bröndby-völlinn í leik Bröndby og Köbenhavn í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem fram fór á sunnudaginn. Það er danski miðillinn Ekstrabladet sem greinir frá þessu en leiknum lauk með sigri Köbenhavn, 3:2
Meira
Nýkrýndir Íslandsmeistarar Víkings úr Reykjavík máttu þola 1:3-tap á útivelli gegn Breiðabliki í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi. Viktor Karl Einarsson og Höskuldur Gunnlaugsson komu Breiðabliki í 2:0 í fyrri hálfleik og Jason Daði…
Meira
ÍBV vann sannfærandi sigur á nýliðum Aftureldingar í fyrsta leik 4. umferðar úrvalsdeildar kvenna í handbolta í gærkvöldi, en lokatölur í Vestmannaeyjum urðu 32:24. Eyjakonur voru litlu skrefi á undan í fyrri hálfleik og munaði þremur mörkum í hálfleik, 14:11
Meira
Handknattleiksmaðurinn Daði Jónsson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt KA á nýjan leik. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í gær en Daði, sem er 26 ára gamall, hefur verið búsettur í Danmörku undanfarin tvö ár en er nú mættur aftur heim á Akureyri
Meira
Íslensku þjálfararnir í handknattleikskeppni Asíuleikanna fögnuðu sannfærandi sigrum í annarri umferð í D-riðli í gær. Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Japan eru komnir í átta liða úrslit eftir 33:21-sigur á Íran
Meira
Í Düsseldorf Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þegar flautað verður til leiks Þýskalands og Íslands í Þjóðadeild kvenna í fótbolta á Ruhrstadion í Bochum í dag verða allra augu á þýska landsliðinu.
Meira
Þorlákur Árnason hefur látið af störfum sem þjálfari karlaliðs Þórs frá Akureyri í knattspyrnu. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í gær en Þorlákur, sem er 54 ára gamall, tók við þjálfun Þórsara eftir tímabilið 2021
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.